Morgunblaðið - 27.03.2010, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 27.03.2010, Blaðsíða 50
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2010 Ísinni ómissandi reisubók um Bandaríkin,Travels With Charlie (’62), eyðir meist-ari John Steinbeck drjúgum tíma í aðlýsa nýjung sem hann telur að eigi eftir að leysa húsnæðisvamdamál hinna vinnandi stétta þar vestra, ekki síst farandverkamanna. Nýjungin er hjólhýsin, sem þá voru að byrja að breiðast út um landið. Þar varð nóbelsskáldinu á í messunni því á þeirri hálfu öld sem liðin er síðan hafa hjólhýsahverfin almennt breyst í fá- tækrahverfi sem einkum hýsa olnbogabörn og undirmálsfólk. Slíkt byggðarlag smælingja er bakgrunnur Kóngavegar, meinfyndinnar tragikómedíu Valdísar Óskarsdóttur. Hverfi sem þessi eru ekki til á landinu bláa nema talin sé með hjólhýsabyggðin á Laugar- vatni, hverfið var byggt „frá grunni“ af bráð- snjöllum leikmyndahönnuðum myndarinnar, Gunnari Pálssyni og Harry Jóhannessyni. Ár- angurinn minnir á faglega lausn Árna Jóhanns- sonar í Djöflaeyjunni. Niðurnítt slömm með niðurníddum íbúum. Persónurnar eru margar og misjafnar á Kóngavegi, þar sem BB (Ingvar Eggert Sig- urðsson), er staðarhaldarinn sem annast dag- legan rekstur þessa rytjulega samfélags fyrir eigandann, Senior (Sigurður Sigurjónsson). Fyrrverandi vafasaman kaupsýslumann sem spilaði rassinn úr buxunum í bankahruninu en komst undan með þýfi sem er í vörslu móður hans, Maríu (Kristbjörg Kjeld), Hann býr með ljóshærðri bimbó (Nanna Kristín Magnús- dóttir), en rót kemst á heimilislífið þegar Júní- or sonur hans (Gísli Örn Garðarsson), birtist allslaus og vel það að utan eftir þriggja ára fjarveru ásamt „vini“ sínum Rupert (Daniel Brühl). Hér hefur aðeins verið talið brot þeirra hornreka sem búa innan við rislága girðingu Kóngavegar, sem státar m.a. af undarlegum bræðrum (Ólafur Darri Ólafsson og Ólafur Eg- ilsson), Önna (Björn Hlynur Haraldsson) drykkfelldum og hæfileikarýrum tónlistar- manni, sem hokrar við þröngan kost í einum hjólhýsagarminum ásamt Rósu (Nína Dögg Filippusdóttir), þungaðri kærustu sinni. Valdís er með afburðaleikara í hverju einu og einasta hlutverki og það er engin spurning, hópurinn er aðal myndarinnar. Kóngavegurinn á einnig fína spretti í handriti því það er á köfl- um bráðfyndið með dúndurgóðum tilsvörum. Yfirbragðið á þessu undirmálsfólki þjóðfélags- ins er vel samhæft og í anda ásigkomulagsins á þessum griðastað landeyða sem ber þetta tígu- lega öfugmæli, Kóngavegur. Valdís og hennar góða fólk hafa skapað ný- stárlegan heim, fjarri glaumi og gleði því flestir eru vansælir og ónógir sjálfum sér og með ör- stuttan kveikjuþráð. Myndin líður lítillega fyrir alvöruþunga dramans en það er jafnan fljótt að kúvenda á ný inn í kómedíuna og það er maka- laus, fersk skemmtun að fylgjast með þessum mennska, vesældarlega dýragarði, sem hreyk- ir sér líka af sómafólki sem hefur af einhverjum ástæðum orðið undir í lífsgæðakapphlaupinu. Rétt eins og þjóðin sem býr utan við „bæjar- mörkin“. Kóngavegur er annað leikstjórnarverkefni gæðaklipparans Valdísar og engin spurning að hún hefur tekið framförum sem slíkur. Mér finnst hún einkum eftirtektarverð sem hnytt- inn handritshöfundur og stjórnandi leikara- hópsins. Tónlistin, sem er að mestu eftir Lay Low og Sugar Cubes, samfléttast þessum und- arlega, vel filmaða heimi, Kóngavegi, sem á eft- ir að gleðja okkur næstu vikurnar, engin spurning. Smárabíó, Háskólabíó, Borgarbíó Akureyri Kóngavegur bbbmn Leikstjóri og handritshöfundur: Valdís Ósk- arsdóttir. Aðalleikarar: Gísli Örn Garðarsson, Dani- el Brühl, Nanna Kristín Magnúsdóttir, Ólafur Darri Ólafsson, Ólafur Egilsson, Nína Dögg Filipp- usdóttir, Björn Hlynur Haraldsson og Ingvar E. Sig- urðsson o.fl. 100 mín. Ísland, 2010. SÆBJÖRN VALDIMARSSON KVIKMYND Kóngavegur Ólafur Darri og Ólafur Egilsson í́ hlutverkum sínum. Hjólhýsahyski og annað forvitnilegt fólk SÝND Í REGNBOGANUM Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Sími 551 9000 SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI OG SMÁRABÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI OG REGNBOGA- HHH -Dr. Gunni, FBL HHHH -H.S.S., MBL HHHH -Ó.H.T. - Rás 2 Earth kl. 4 - 6 - 8 - 10 LEYFÐ Shutter Island kl. 3 - 6 - 9 B.i. 16 ára Daybrakers kl. 8 - 10:15 B.i. 16 ára The Good Heart kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 10 ára Nikulás litli kl. 4(650kr) - 6 LEYFÐ Kóngavegur kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:15 B.i.10 ára Lovely Bones kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12 ára Daybreakers kl. 8 B.i.16 ára The Good Heart kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i.10 ára Precious kl. 3 - 5:30 B.i.12 ára Loftkastalinn sem hrundi kl. 10:15 B.i.14 ára Mamma Gógó (síðustu sýningar) kl. 3:30 LEYFÐ Kóngavegur kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 10 ára Bounty Hunter kl. 8 - 10:10 B.i. 7 ára Nanny McPhee kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ SÝND Í SMÁRABÍÓ, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND Í REGNBOGANUM STÆRSTA OPNUN ALLRA TÍMA Á MARTIN SCORSESE MYND SÝND Í SMÁRABÍÓI HHHH -Roger Ebert HHHH -EMPIRE HHHH -S.V., MBL HHH -Þ.Þ, FBL SÝND Í REGNBOGANUM OG HÁSKÓLABÍÓI FRÁBÆR MYND Í ANDA “THE MATRIX” OG “28 DAYS LATER” ÁRIÐ ER 2019 OG VIÐ ERUM VERÐMÆTASTA AUÐLINDIN BARÁTTAN MILLI MANNKYNSINS OG HINNA ÓDAUÐLEGU ER HAFIN TÖFRANDI SKEMMTUN FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA Emma Thompson HHHH „Bráðfyndin og ákaflega vel leikin...” - Þ.Þ., FBL Ógleymanleg mynd í ætt við meistaraverkið Ferðalag keisaramörgæsanna Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann m
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.