Morgunblaðið - 27.03.2010, Page 56
Hönnuðirnir Snæfríð Þorsteins og
Hildigunnur Gunnarsdóttir eru um
þessar mundir að hefja vinnu við bók
Benedikts Gröndals, Íslenzkir fuglar.
Handrit bókarinnar hefur legið í
mörg ár í skjalaskáp hjá Náttúru-
fræðistofnun og mun nú koma fyrir
augu almennings í fyrsta sinn.
Til stendur að gefa út tvær útgáfur
af bókinni, annars vegar sérstaka há-
tíðarútgáfu í takmörkuðu upplagi og
hins vegar almenna útgáfu. „Við ætl-
um að finna einhverja leið til að búa
til fallega bók sem er ekki of dýr og
verður aðgengileg fyrir alla,“ segir
Snæfríð.
Myndirnar í bókinni eru ákaflega
fallegar og nákvæmar og löngu kom-
inn tími til að gefa verkið út. „Bene-
dikt hefur svo mikla þýðingu fyrir
svo marga, en af mismunandi ástæð-
um. Náttúrufræðingar og sagnfræð-
ingar til dæmis tengjast honum af
mismunandi ástæðum en hann hefur
skírskotun til svo margra.“
Kristján B. Jónasson, útgefandi hjá
Crymogeu sem gefur verkið út, segir
textann sem fylgir bókinni vera
dæmigerðan fyrir Benedikt, en í inn-
gangi bókarinnar skammast hann út í
áhugaleysi Íslendinga um útgáfu
bókarinnar. Orðrétt segir Benedikt:
„Ég lagði myndirnar einu sinni fram
á alþíngi, en þar var ekki litið við
þeim, því síður að þær væru mér til
nokkurrar meðmælíngar.“ Hann seg-
ist enn fremur hafa sýnt þær
útlendingum og að þeir hafi lofað
þær og kunnað betur að meta en sam-
landar hans.
Rætt er við Snæfríði og Hildigunni
í Sunnudagsmogganum um verð-
launahönnun þeirra á Flora Islandica
eftir Eggert Pétursson.
Íslensk flóra
og fuglar
Fengu verðlaun fyrir Flora Islandica
og vinna nú bókina Íslenzkir fuglar
Skógarþröstur Teikningar Benedikts eru bæði nákvæmar og fallegar.
LAUGARDAGUR 27. MARS 86. DAGUR ÁRSINS 2010
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 590 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Umheimurinn hræðist Kötlugos
2. Hraunstraumur að Hvannárgili
3. Hraunið komið í tvo farvegi
4. Varað við banvænum eiturgufum
Sæbjörn Valdimarsson rýnir í
Kóngaveg Valdísar Óskarsdóttur.
Hrósar hann sérstaklega leikurunum,
segir þá aðal myndarinnar og að hand-
ritið sé jafnframt bráðfyndið. »50
„Undarlegur, vel
filmaður heimur“
Í ljósi elds-
umbrota á Fimm-
vörðuhálsi þótti
Helga Björns til-
hlýðilegt að
„ræsa Kröflu“
eins og hann
orðar það og
sleppa ball-
skrímslinu Síðan
skein sól, lausu. Sveitin leikur á Spot
í kvöld og heldur síðan vestur til Ísa-
fjarðar og heldur árlegt páskaball í
Edinborgarhúsi á páskadagskvöld.
Síðan skein sól ætlar
að rokka um páskana
Dansmyndin
Uniform Sierra
eftir Sigríði Soffíu
Níelsdóttur var
valin á dans-
myndahátíðina
Loikka í Helsinki.
Einungis tíu
myndir voru
valdar til sýningar
á opnum hluta hátíðarinnar. Uniform
Sierra hefur verið sýnd á hátíðum á
Spáni, Noregi og Íslandi og var m.a.
valin besta myndin á Actfestival í
Bilbao.
Dansmyndin Uniform
Sierra til Finnlands
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Austan 8-15, en 15-20 við suðurströndina. Rigning eða slydda S-lands, en stöku él
fyrir norðan.
Á sunnudag
Austanátt, 15-20 m/s við suðurströndina, annars víða 8-15. Slydda eða rigning á sunn-
anverðu landinu og dálítil él fyrir norðan. Hiti 0 til 5 stig, en 0 til 5 stiga frost N- og A-lands.
Hamarskonur úr Hveragerði náðu í
gærkvöld undirtökunum í einvíginu
við KR um Íslandsmeistaratitilinn í
körfubolta með því að vinna þær
örugglega í Vesturbænum, 92:79, í
fyrsta úrslitaleik liðanna.
Í átta liða úrslitum karla var líka
um útisigra að ræða, Snæfell sigraði í
Grindavík og Njarðvík lagði Stjörnuna
í Garðabænum. »2-3
Hamar vann fyrsta úr-
slitaleikinn gegn KR
Guðmundur Þ. Guðmunds-
son, landsliðsþjálfari í
handknattleik, fær það hlut-
verk að koma nýja stjörnu-
liðinu í Danmörku, AG Kö-
benhavn, í fremstu röð í
Evrópu. „Ég verð ábyrgur
fyrir árangri liðsins. Sé um
alla áætlanagerð varðandi
framtíðina, legg drög að því
hvaða leikmenn við eigum
að fá til liðsins, “segir Guð-
mundur. »1
Á að koma AG á
toppinn í Evrópu
Íslenska kvennalands-
liðið í fótbolta mætir
Serbum í undankeppni
heimsmeistaramótsins
klukkan 14 í dag. Leikið
er í serbneska smábæn-
um Banatski Dvor
þar sem aðstæður
eru ekki upp á það
besta. Völlurinn,
stúkan og bún-
ingsklefarnir eru
langt frá því að
sæma leik í svona
keppni. Margrét Lára
Viðarsdóttir var í
vandræðum vegna
meiðsla á æfingu í gær
og tvísýnt er hvort hún
nái að taka þátt í
leiknum. Fylgst
verður með gangi
mála á mbl.is í
dag. »1, 4
Slæmar
aðstæður og
tvísýnt með
Margréti
Bragi V. Bergmann á Akureyri mælir með elstu
boltaíþrótt í heimi, að fitla við kúlurnar, eins og
mælt hefur verið með í auglýsingum undanfarið í
herferð Krabbameinsfélags Íslands, Karlar og
krabbamein. Hann segir frá því í Sunnudags-
mogganum í dag að slíkt hafi orðið til þess að hann
fann æxli í öðru eista.
„Við hjónin horfðum á auglýsingu þar sem Þor-
steinn Guðmundsson hvatti karlmenn til þessarar
íþróttar og konan mín nefndi að þetta þyrfti ég að
gera. Ég tók hana á orðinu þegar ég fór í heita
pottinn síðar um kvöldið. Kannaði þá málið og
dauðbrá, fann að vinstra eistað var miklu stærra
en það hægra og að auki glerhart viðkomu.“
Bragi viðurkennir að hann hafi orðið skít-
hræddur enda var hann algerlega einkennalaus
og hefur alla tíð verið heilsuhraustur og aldrei
kennt sér meins. Ómskoðun leiddi í ljós að illkynja
æxli var í eistanu og það var fjarlægt aðeins viku
eftir heitapottsferðina. Bragi leggur áherslu á að
þetta eigi ekki að vera feimnismál og hann sagði
samstarfsfólki sínu öllu strax frá hvers lags væri.
Hann segir húmorinn einnig mikilvægan í þess-
um málum. „Ég held til dæmis að herferðin Karl-
ar og krabbamein sé mjög vel heppnuð vegna
húmorsins.“ Niðurstöður blóðrannsókna eru enn
ekki komnar en Bragi er bjartsýnn. „Því fyrr sem
krabbamein finnst, því betra. Þess vegna eru lík-
urnar með mér. Þetta hefur verið mikil lífsreynsla
og fær mann til að hugsa hlutina upp á nýtt.“
Þakklátur fyrir áminninguna
Ófeiminn Bragi leggur áherslu á opna umræðu.
Illkynja æxli fjarlægt viku eftir að sjónvarpsauglýsing varð til að það fannst
Þakkar herferðinni Karlar og krabbamein fyrir að hafa uppgötvað meinið