Austri - 21.02.1962, Side 3
Neskaupstað, 21. febrúar 1962.
AUSTRI
/P*T>'
3
Mjólkurlramleiðslan
Framhald aí 1. síðu.
dal hafa sent mjólk. Nokkur sala
er einnig úr Tungunni og úr Jök-
ulsárhlíð var haldið uppi mjólk-
urferðum 1 allt sumar og langt
íram á haust. — En erfitt hefur
verið um flutninga úr Hlíð og
Tungu í desember og janúar.
Mjólkursölu fylgja meiri og
betri samgöngur.
Að sjálfsögðu er stefnt að því
að ferðir verði daglega um aðal-
mjólkurframleiðslusvæðin. Tveir
uýir, ágætir bílar annast nú flutn-
ingana austan fljóts, staðsettir
sinn á hvorum enda, annar á Víði-
læk í Skriðdal, hinn á Sandi í
Hjaltastaðaþinghá. — Er það út
af fyrir sig mikill kostur fyrir
fólkið, sem getur þá notað ferðir
bílanna til að bregða sér í kaup-
staðinn og komizt aftur heim
samdægurs. — Ferðirnar eru
reknar af einstaklingum, sem hafa
sérleyfi, og póstflutningar þá einn-
ig tengdir þeim. — Þetta ger-
breytir allri aðstöðu fólksins í
sveitunum.
Og menn telja hagkvæmt að
firamleiða mjólk samhliða sauð-
fjárbúskapnum ?
Á því er enginn vafi. Ég veit
heldur engin dæmi til þess að
menn fækki fé vegna mjólkurinn-
ar. — Bóndi einn í Hjaltastaða-
þinghá hafði t. d. 100 þús. kr.
mjólkurinnlegg í fyrra og mun
heldur hafa fjölgað fé sínu sam-
hhða. Mér virðist menn yfirleitt
ánægðir með mjólkursöluna.
Og afurðasala búsins gengur
vel?
Við höfum aldrei selt neitt til
Reykjavíkur. Hinsvegar kemur
það fyrir að við sendum mjólk til
Raufarhafnar á veturna þegar
vegir teppast norður þar og of
langt á milli ferða að vestan.
En segja má að öll framleiðsl-
an fari til sölu á Austurlandi.
Lang jöfnust er salan til Seyðis-
fjarðar vegna stöðugra ferða vet-
ur og sumar. En annars er selt
meira og minna á alla firðina allt
suður til Fáskrúðsfjarðar, en þar
var stöðug sala frá því síld byrj-
aði og fram undir jól. Um síldar-
tímann fer mikið af nýmjólk til
neyzlu, 7—8 tonn á dag, Seyðis-
fjörður einn komst upp í 3 tonn á
dag þegar mest var. — Smjör
safnast nokkuð að vetrinum en
hverfur „í síldin“ og útvegum við
oft smjör annars staðar frá til að
geta sinnt pöntunum.
Það eru sem sagt ekki horfur
á sölutregðu, markaður hér eystra
hvergi nærri fullnýttur, og ef til
kæmi, er opin leið að selja syðra.
Þið hafið opna mjólkurbúð?
Kaupfélagið rekur matvörubúð
þá, sem hér er til húsa í viðbygg-
ingu. Er tvískipt, annars vegar
brauð, kjöt, niðursuðuvörur o. s.
frv., hinsvegar eingöngu mjólk og
mjólkurvörur, skyr, rjómi og
smjör. -—• Búið selur verzluninni
fyrir 60—80 þús. á mánuði (heild-
söluverð). Því má skjóta hér inn
að janúarsala búsins var rétt um
280 þús. (niðurgreiðslur ekki með-
taldar).
Kaupfélag Héraðsbúa á hús og
vélar mjólkurbúsins og leigir því.
Rekstur búsins er svo alveg út af
fyrir sig, öll viðskipti þess við
framleiðendur og við kaupendur
afurða. Við búið starfa nú 5
manns, einn á skrifstofu, þrír í
mjólkinni og svo vinnur ein stúlka
við pökkun á smjöri og skyri o. fl.
Framkvæmdir og fyrirætlanir ?
Húsakynni hafa verið nokkuð
aukin og bætt og líta nú orðið
mjög sómasamlega út. — Verið
er að setja niður tæki sem vinna
úr undanrennu, svokallað „kass-
in“, sem notað er til iðnaðar.
Verður það flutt út til Þýzka-
lands. — Við höfum ekki fengizt
neitt við ostagerð.
Það er svo til ætlazt, að aðstað-
an hérna geti dugað eitthvað
j fyrst um sinn, t. d. 4—5 ár. Þá
verði reist nýtt mjólkurbú frá
grunni miðað við þær aðstæður,
sem þá verða fyrir hendi og fram-
tíðarhorfur þá. — Nú er leitazt
við að haga þannig kaupum á nýj-
um tækjum, að þau geti síðar orð-
ið liður í vélakerfi nýrrar mjólk-
urstöðvar. Þannig hafa t. d. ver-
ið keypt gerilsneiðingartæki fyrir
rjóma, sem geta skilað margfalt
meiri afköstum en nú er þörf fyr-
ir.
Hvað svo að lokum, Svavair?
Bændurnir í frjósömum og víð-
lendum sveitum Héraðsins auka
mjólkurframleiðsluna, á því er
enginn vafi. En umferðin þarf að
batna, vegakerfið að styrkjast og
endurbyggjast. Greiðar samgöng-
ur eru nauðsynlegar allri fram-
leiðslu. Og fyrir mjólkurvinnsluna,
aðfærslu mjólkurinnar og dreif-
ingu söluvara, eru þær alveg lífs-
nauðsyn.
V. V.
Tilboð
Tilboð óskast í smiði á löndunarbryggju hjá Sildarvinnslunni
hf. í Neskaupstað.
Tilboðum þarf að skila fyrir lok þessa mánaðar.
Útboðslýsingu, ásamt frekari upplýsingum, gefur Hermann
Lárusson.
Síldarvinnslan hf.
U tsvarsinnlieimtan 1961
Bæjarstjórn Neskaupstaðar hefur ákveðið, að við útsvars-
innheimtu í Neskaupstað árið 1962 skuli farið eftir sömu regl-
um og giltu við útsvarsinnheimtuna 1961.
Samkvæmt þessu ber hverjum gjaldanda að greiða fyrir-
fram upp í útsvar þessa árs upphæð, sem svarar til helmings
þeirrar fjárhæðar, er honum bar að greiða í útsvar 1961.
Gjalddagar eru fjórir, 1. marz, 1. apríl, 1. maí og 1. júní og
skal á hverjum gjalddaga greiða upphæð, sem svarar til 12.5%
útsvarsins 1961.
Bæjarstjórinn í Neskaupstað, 8. febr. 1962.
Bjarni Þórðarson.
^^^^VS/VW/VWWWWS/WWWWWWVWWWWWWWWWWVWWVWWWWVA/SA^VWWW
Frá Heilsuverndar-
stöð Neskaupstadar
Heilsuverndarstöð Neskaupstaðar tekur til starfa föstudag-
inn 23. febr. 1962. (Mæðravernd kl. 1—2 e. h.).
Starfsemi heilsuverndarstöðvarinnar nær til eftirtalinna
greina heilsugæzlunnar:
a. Mæðravernd. Eftirlit með barnshafandi konum.
b. Barnavernd: Eftirlit með heilsufari ungbarna og barna
innan skólaskyldualdurs og ónæmisaðgerðir (barnaveiki,
berldar, stífkrampi, kíghósti, kúabólusetning og ónæmis-
aðgerðir gegn mænusótt).
: e. Berklavarnir og eftirlit með berklaveikum.
: d. Kynsjúkdómaeftirlit og lækningar.
| Starfsemin fer fram í húsnæði fjórðungssjúkrahússins í Nes-
kaupstað og verður tilhögun sem hér segir:
a. Mæðravernd 1. og 3. föstudag hvers mánaðar kl. 1—2 e. h.
; b. Barnavernd 2. og 4. föstudag hvers mánaðar kl. 1—2 c. h.
c. Aðrar greinar, þ. e. berklavarnir og kynsjúkdómaefí^lit
fara fram í móttökutímum sjúkrahússins og er sú móttaka
á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 1—3 e. h. eða eftir
! samkomulagi.
; Neskaupstað, 16. febr. 1962
F. h. Heilsuverndarstöðvar Neskaupstaðar
; Eggert Brekkan
; ' yfirlæknir.
Ti
Ú tger ðar iiien n — Skipstjórar
Alls konar yfirbreiðslur og segl eru tekin til við-
gerðar.
Saumum og útvegum ný segl og yfirbreiðslur.
Gerum við bilaða plastbelgi.
Netaslöngur, netateinar og uppsett þorskanet fyrir-
liggjandi.
NETAGERÐIN,
sími 102 — Eskifirði.
ATVINNA
Vantar háseta á 100 tonna netabát. Einnig vantar einn mann
á 250 tonna bát.
Uppl. gefur Jóhann K. Sigurðsson, sími 52, Neskaupstað.