Austri - 29.05.1969, Síða 1
fttgefandi:
Kjördæmlssamband
Framsóknarmanna í
Austurlandskjðrdæml.
Ný vegadœtlun
byggð á swtorjj þingimtnna í öllum flohhum
Ritstjórar og ábyrgttarmenn:
Kristján Ingólfsson
Vilhjálmur Hjálmarsson
Fjármál og auglýsingar:
Bjðrn Steindórsson,
Neskaupstað.
NESPRKNT
Forystuleysi ríkisstjórnarinnar
kemui- víðar from en á sviði
efnahagsmála. Má þar meðal
annars nefna tvo umfangsmikla
og viðkvæma máiaflokka, vegina
og fiskveiðilögsögun-a.
Segja má, að Alþingi það er
lauk störfum á laugardaginn,
tæki þessi mál bæði í sínar hend-
ur og leysti þau með víðtæku
samstarfi margra þingmanna úr
öllum flokkum. Er það vitanlega
góðra gjalda vert en afsakar í
engu ráðleysi ríkisstjór.naiinnar.
Framkvæmd laga um b*ann við
botnvcrpuveiðum innan fiskveiði-
lögsögunnar hafði um hríð verið
með þeim hætti, að naumast var
umræðum hætt fyrir opnum tjöld-
um. — Fyrir áramótin gerðu al-
þingismenn samkomulag um
bráðabirgð*aaðgerðir og var það
staðfest með löggjöf. Landhelgis-
.nefndin svo'kölluð, skipuð af sjáv-
arútvegsmálaráðherra fyrir þrýst
ing frá þingmönnum og eftir til-
nefningu þingflokkanna, lagði í
fyrstu mikla alúð við að kynna
sér viðhorf landsm*anna. Síðan
vann hún að iþví í nokkrar vikur
að semja heildartillögur og hafði
þá stöðugt samráð við aðra þing-
menn og enn var haft samráð
við útvegsmenn og sjómenn í
ýmsum byggðarlögum. Fór svo
•að tillögur nefndarinnar um fyr-
irkomulag veiða innan fiskveiði-
lögsögu.nnar náðu fram að ganga.
Hið nýja fyrirkomulag verður svo
endurskoðað í síðasta lagi eftir
hálft þriðja ár.
Fjárveiting-anefnd hafði for-
ystu um gerð vegaáætlunarinnar.
Þegar ríkisstjórnin lagði fyrir
Alþingi tillögur sínar um skipt-
ingu vegafjárins á næstu fjórum
árum, ætluðu þingmenn vart að
trúa sínum eigin augum. Fram-
kvæmdir i þjóðbrautum og lands-
brautum voru víð*a þvínær niður
felldar. Og ekki var ráðgert að
brúa neitt opið vatnsfall á tíma-
bilinu utan ljúka þeim brúm er
byrjað hafði verið á 1968. Aðrar
brúargerðir voru allar bundnar
við endurbyggingu gamalla brúa.
Sem dæmi um niðurskurðinn í
tillögum ríkisstjómarinnar má
nefna, að til nýbygginga á þjóð-
vegum i Austurlandskjördæmi,
voru veittar 7.8 millj. kr. árið
1967 og 5 millj. ikr. 1968, en sam-
kvæmt tilicgunum aðeins 1.790
millj. kr. á þessu ári og 2.190
millj. kr. árið 1970.
Þingmenn urðu fljótt ásáttir
um *að þannig væri ekki hægt að
skiljast. við þatta mikla og við-
kvæma hagsmunamál allra lands-
manna.
Framsóknarmenn hafa haldið
því fram, að tekjur hing opin-
bera af umferðinni ættu með ein-
um eða öðrum hætti að renna til
vegakerfisins. Og áður á árum
var það svo, að ríkissjóður lagði
meira af mörkum til vegamála
en innheimt var sem gjöld á
benzín og bíla.
Þetta sjónarmið fékk ekki náð
fyrir augum ríkisstjórnarinnar nú
fremur e.n áður. Auk þess er af-
greiðs’a fjárlaga fyrir yfirstand-
andi ár lokið og hún byggð á
sama fyrirkomulagi og áður, að
stc.r hluti skattanna af umferð-
inni renni í ríkissjóð til almennra
þarfa.
Kom þá til álita að hækka
vegaskatt á benzíni um eina kr.
pr. lítra. Náðist um þetta víðtæk
samstaða meðal þingmanna þótt
ekki vildu alveg allir á þett*a fall-
ast. Það var undirskilið, að allt
það fé, er þannig innheimtist,
skyldi renna til nýbyggingafram-
kvæmda í þjóðbrautum og lands-
brautum. Einnig var það fast-
mælum bundið, að ríkissjóður
tæki á sínar herðar afborganir
þeirra lána er hvíla á þessum
vegaframkvæmdum eftir næstu
áramót.
Hér er um mjög verulega fjár-
muni að ræða. Lætur nærri, að sú
fjárhæð, sem ætluð var til þjóð-
brauta og landsbrauta í frumtil-
lögum ríkisstjórnarinnar þrefald-
ist. Á Austurlandi verður aukn-
ingin þó nokkru meiri. En alls er
ráðstafað til vega- og brúargerða
á Austurlandi á fjögra ára áætl-
uninni 110 millj. króna, auk hins
sameiginlega koslnaðar til við-
halds vega, til vega í kaupstöð-
um og kauptúnum, til smábrúa,
fjallvega, véla- og áhaldakaupa,
til stjórnar og undirbúnings til-
rauna í vegagerð o. s. frv.
Þessi fjárhæð skiptist þannig á
hina einstöku flokka fram-
kvæmda:
Til hraðbrauta 2 millj. kr.
Til þjóðbrauta 50 millj, kr.
Til landsbrauta 35 millj. kr.
Til brúargerða 23 millj. kr.
Þótt hér sé um allháar fjár-
hæðir að ræða í krónum talið, þá
eru þær hörmulega litlar í sam-
anburði við verkefnin.
Sem dæmi má nefna, að á aðal-
þjóðleiðinni á milli Egilsstaða og
Hornafjarðar, sem auk þess að
vera tengileið landshluta og þétt-
býlissvæða, liggur í gegnum
blómlega byggð í fimm hreppum,
eru enn cbyggðir um 107 km,
sem áætlað er að kosti !um 112
milljónir Ikró.na.
Oft, er rætt um það, að æskileg-
ast væri að vinna að byggingu
vegakerfisins í fáum og stcrum
áföngum. Og á seinni árum hefur
í vaxandi mæli verið reynt að
þoka vegaframkvæmdum í þetta
horf. En á meðan þörfin er eins
sár í öllum áttum eins og raun
ber vitni, verður enn um sinn að
skipta því fjármagni, sem vega-
gerðin fær til umráða í Austur-
landskjördæmi, á hin ýmsu
byggðasvæði.
Bridgemóf
Sveitakeppni Bridgesambands
Austurlands fór fram í Vala-
skjálf á Egilsstöðum, sunnudag-
inn 11. maí sl. Keppt var í þrem
flokkum og voru 7 sveitir í
meistaraflokki, 9 í 1. flokki A og
9 í 1. flokki B, eða samtals, 25
sveitir. Voi'u 9 þeirra af Héraði,
4 af Seyðisfirði, 3 af Reyðarfirði,
3 af Fáskrúðsfrði, 2 af Norðfirði,
2 af Stöðvarfirði og 2 af Eski-
firði.
Þrjár efslu sveitir í hverjum
flokki urðu sem hér segir:
Meistaraf lokkur:
1. Sx’eit. Ásgeirs Metúsalems-
sonar, Reyðarfirði 569 stig.
2. Sveit Þórarins Hallgrímsson-
ar, Héraði 560 stig.
3. Sveit Kristmanns Jónssonar,
Eskifirði 553 stig.
Að loknu hinu fyrsta fjögra
ára áætlunartímibili verður sú
breyting, að ýmsir þeir vegir er
verið hafa þjóðvegir en teljast
tengja færri en þrjú býli, verða
nú sýsluvegir. Er það samkvæmt
reglu er lögtekin var 1965. Einn-
ig færast álmur að skólum, kirkj-
um og félagsheimilum yfir á
sýsluvegi. Jafnframt verða fjár-
ráð sýsluvega.nna aukin lítillega.
Eríitt hefur reynzt að fá fjár-
veitingar ti] hinna smærri fáfarn-
ari vega teknar inn á vegaáætlun.
Mun þeirri skoðun vaxa fylgi, að
stækka beri viðfangsefni byggð-
arlaganna á þessu sviði og um
leið að auka fjárráð þeirra.
Að lokum má minna á það, að
fjögra ára áætlun um vegafram-
kvæmdir er e.ndurskoðuð að hálfn-
uðu áætlunartímabilinu. Er þá
mcgulegt að 'koma að leiðrétting-
um, þar sem sérstök ástæða þyk-
ir til, auk þess sem þá þarf, ef
að líkum lætur, að horfast í augu
við þverrandi framkvæmdamátt
hinna áætluðu fjárhæða.
Hér er ekki rúm til að birla
tölur um fjárveitingar í einstaka
vegi að þessu sinni. Líklegast
þy'kir mér, að 'enginn verði ánægð-
ur með „sinn“ hlut. En spyrja
má hvernig mönnum hefði því
crðið við, ef tillögur ríkisstjórn-
arinnar um skiptingu vegafjárins
hefðu verið samþykktar óbreytt-
ar. V. H.
Austurlands
I sveit Ásgeirs Metúsalemsson-
ar voru auk hans þeir Sölvi Sig-
urðsscn, Bjarni Sveinsson og
Kristján Kristjánsson.
1. flokkur A
1. Sveit Þórðar Björnssonar,
Neskaupstað 556 stig.
2. Sveit Sveins Kristinssonar,
Héraði 535 slig.
3. Sveit Árna Jóns Sigurðsson-
ar, Seyðisfirði 527 stig.
1. flokjkuir I>
1. Sveit Ástráðs Magnússonar,
Héraði 564 stig.
2. Sveit Ágústar Sigurðssonar,
Scyðisfirði 551 stig.
3. Sveit Jónasar Eirikssonar,
Fáskrúðsfirði 541 stig.
Mótssljói'i var Magnús Þórð-
arson.