Austri - 08.06.1979, Side 4
4
A U S T R I
Egilsstöðum, 8. júní 1979.
Flugáætlanir á
Austurlandi ísumar
Blaðinu heíur borist fréttatilkynn-
ing frá Flugleiðum um sumaráætlun
innanlandsflugs sumarið 1979, hvað
Austurland varðar. Þar sem hér eru
samanþjappaðar upplýsingar um
ferðamöguleika flugleiðis til og frá
Austurlandi og á milli staða hér
innan fjórðungs, þykir rétt að birta
fréttatilkynninguna hér í heild.
Millifyrirsagnir eru frá Flugleiðum.
Samkvæmt sumaráætlun fljúga
Flugleiðir frá Reykjavík til þriggja
staða á Austurlandi, þ.e. til Egils-
staða, Norðfjarðar og Hornafjarðar.
Til Egilsstaða eru flestar í'erðir, þ.e.
18 í viku, þegar áætlun hefir að fullu
tekið gildi. Á mánudögum, miðviku-
dögum, föstudögum og laugardögum
eru þrjár ferðir, aðra daga tvær
ferðir.
Morgunferðir eru alla daga, brott-
íör frá Reykjavík kl. 10:00 og kvöld-
ferðir alla virka daga, brottför frá
Reykjavík kl. 19:00. Þá eru eftir-
miðdagsferðir kl. 14:30 frá Reykja-
vík á mánudögum, miðvikudögum og
fimmtudögum. Á laugardögum er
þriðja ferð kl. 11:15, en eftir 1. júni
kl. 09:00. Morgunflug á laugardegi
heldur áfram til Færeyja og er Eg-
ilsstaðaflugvöllur þannig eini völlur
landsins utan Keflavíkur og Reykja-
víkur sem tengir ísland við útlandið.
Á miðvikudögum og laugardögum
halda Flugleiðavélarnar áfram til
Norðfjarðar og fljúga þaðan beint
til Reykjavíkur.
EGILSSTAÐAFLUGVÖLLUR —
SAMGÖNGUMIÐSTÖÐ
Á Egilsstaðaflugvelli tengist Flug-
leiðaflugið Flugfélagi Austurlands
Viðbrögð samninganefndar far-
manna við ályktun frkvstj. Fram-
sóknarflokksins vöktu furðu mína.
Vitanlega eru skiptar skoðanir um
málið. En útúrsnúningar og hártog-
anir gera enga stoð.
Látið er að því liggja að fram-
kvæmdastjórn flokksins hafi verið
að samþykkja eða fallast á áform
ríkisstjórnarinnar. Þetta er út í hött.
Þau liggja ekki fyrir. Það sem fram
kemur er afstaða Framsóknarmanrui
eins og staða málsins er nú.
Fundið var að því sem sagt var
um áhrif farmannadeilunnar, m.a.
á harðindasvæðunum. — Þar var þó
ekkert ofmælt. Mikil óþægindi og
tjón hafa orðið af truflun sjósam-
gangna þar, þrátt fyrir miklar und-
anþágur. Þetta fer ekki á milli mála
og var enn bagalegra fyrir þá sök
að almennar ástæður á ísa- og harð-
sem hefir áætlun til átta staða. Þann-
ig tengist flug frá Reykjavík flugi
til Bakkafjarðar, Vopnafjarðar,
Borgarfjarðar, Norðfjarðar, Breið-
dalsvíkur, Djúpavogs, Hornafjarðar
og Akureyrar. Með þessu fyrirkomu-
lagi eru t.d. daglegar flugferðir milli
Norðfjarðar, Egilsstaða og Reykja-
víkur, en til annara staða á Austur-
landi eru flugferðir þrjár til fimm
daga í viku. Þessar ferðir tengja
þannig Austurland ekki einungis við
Suðvesturland heldur einnig við Suð-
austurland og Norðurland. Flugfélag
Norðurlands flýgur þrisvar í viku
frá Akureyri til Egilsstaða og teng-
ist þar Flugfélagi Austurlands.
Flugfélag Austurlands, sem hefur
aðsetur á Egilsstöðum á tvær flug-
vélar. Önnur tekur níu farþega og
er af gerðinni Britten Norman Is-
lander og er sérstaklega útbúin til
þess að athafna sig á stuttum flug-
brautum. Hin er af gerðinni Paper
Navajo og tekur sjö farþega i sæti.
Sú flugvél er hraðfleyg og er notuð
til lengri ferðanna.
BÍLFERÐIR Á FIRÐINA
Frá Egilsstaðaflugvelli eru einnig
greiðar samgöngur með langferða-
bíium til margra staða á Austur-
landi. Þessar ferðir eru í beinum
tengslum við flug til Egilsstaða. Bíl-
ferðir eru til Reyðarfjarðar, Eski-
fjarðar, Narðfjarðar, Seyðisfj arðar,
Fáskrúðsfjarðar, Breiðdalsvíkur og
Stöðvarfjarðar.
Ekið er fjórum til fimm sinnum í
viku. Sérleifishafar sjá um akstur-
inn í samráði við Sérleifisdeild Pósts
og Síma' og með nokkrum styrk frá
Flugleiðmn.
indasvæðunum voru ekki eðlilegar.
Um aðsteðjandi margþætta erfiðleika
var ekkert ofmælt í tilkynningu
framkvæmdastjórnar Framsóknar-
flokksins.
Margháttuð röskun í atvinnulíf-
inu af völdum siglingabanns veldur
þjóðarbúskapnum þungum búsifjum.
Þær verða tilfinnanlegri en ella —
fyrir þjóðarheildina — þegar saman
fer hafís sem truflar fiskveiðar,
harðindi sem auka tilkostnað og
skerða framleiðslu, gífurleg olíu-
kreppa, óhjákvæmilegar fiskveiðitak-
markanir og uppsafnaðir erfiðleikar,
bæði í landbúnaði og þýðingarmiklum
iðngreinum.
Menn ættu ekki að gera sig að
fíflum með því að látast ekki sjá
þetta.
V. H.
DAGLEGT FLUG TIL NORÐ-
FJARÐAR
Milli Reykjavíkur og Norðfjarðar
fljúga skrúfuþotur Flugleiða tvisvar
í viku svo sem fyrr er sagt. Á mið-
vikudögum er brottför frá Reykja-
vík kl. 14:30 og á laugardögum kl.
11:15, en eftir 1. júní kl. 09:00. Að
auki flýgur svo Flugfélag Austur-
lands frá Egilsstöðum til Norðfjarð-
ar og tengir Norðfjörð þannig t.d.
Hornafirði og fleiri stöðum. Norð-
fjörður er ört vaxandi bæi' með blóm-
legt atvinnulíf. í Egilsbúð er gist-
ing og veitingasala og þar fara enn-
fremur fram bíósýningar og sam-
komuhald. Þá er grillstaðurinn Eyr-
arrós í bænum.
HORNAFJÖRÐUR — FIMM FLUG
í VIKU
Til Hornafjarðar verða í sumar
flognar fimm ferðir í viku frá Rey-
kjavík alla daga nema mánudaga og
laugardaga. Þar að auki flýgur
Flugfélag Austurlands frá Egilsstöð-
um fjórum sinnum í viku og frá
Hornafirði til Djúpavogs á föstudög-
um og sunnudögum. Þá verða bíl-
ferðir frá Hornafirði í sambandi við
áætlun Flugleiða þangað.
Á Hornafirði er um margt að velja
fyrir ferðafólk sem kemur þangað
flugleiðis. Gisting er að Hótel Höfn,
sem einnig hefir fullkomna veitinga-
sali og bai'. Þá er Sumarhótelið í
Nesjaskóla rétt við flugvöllinn vin-
sæll gististaður. í bænum er grill-
staðurinn Hérinn, en í samkomu-
húsinu Sindrabæ eru bíó og samkom-
Seyðisfjarðarskóla var slitið föstu-
daginn 25. mai. Nemendur í skólan-
um voru s.l. vetur 248. í forskóla og
grunnskóla voru nemendur 222. í
framlialdsnámi voru 26 þ.e.a.s. 7
nemendur í bóklegu námi á haust og
vorönn og 19 í iðnnámi á haustönn,
sem skiptist þannig eftir iðngreinum,
vélvirkjar og rennismiðir 10, húsa-
smiðir 6 og rafvirkjar 3.
Fastráðnir kennarar við skólann
voru 14 og stundakennarar 8.
Skólastjóri er Þorvaldur Jóhanns-
son, yfirkennari Valgeir Sigurðsson.
Næsta vetur er áætlað að um 20
nemendur stundi nám við framhalds-
deild skólans á haustönn. Kennt er
eftir áfangakerfi. Iðnnámið verður
einnig tekið inn í áfangakerfið eins
og gert hefur verið í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja og Fjölbrautaskóla Akra-
ness og víðar.
Mjög er farið að þrengja að öllu
skólahaldi og er skólinn til húsa á
fjórum stöðum. Fyrirhugað er að
FERÐIR UM AUSTURLAND
í ljósi þess að bensín hefur hækkað
verulega að undanförnu og bílferðir
um landið eru þess vegna orðnar dýr-
ar, þykir rétt að gefa hér nokkrai'
upplýsingar um ferðamöguleika á
Austurlandi í sambandi við flug og
langferðabifreiðir. Ef flogið er til
Egilsstaða getur ferðamaðurinn val-
ið um þrjú gistihús sem ei;u á Hér-
aði. Þ.e. gistihúsið á Egilsstöðum og
Eddu-hótelin á Hallormsstað og Eið-
um. Á Egilsstöðum er ennfremur
bílaleiga. Undanfarin sumur hafa
verið farnar skoðanaferðir umhverf-
is Lögin. Þá eru ferðir með lang-
ferðabifreiðum til fjarðanna, mjög
fýsilegar fyrir ferðafólk. Á flestum
stöðum eru gistihús og matsölur. Þá
býður Flugfélag Austurlands vildar
kjör í skoðunarferðir og fer enn-
fremur í útsýnisflug þegar aðstæður
leyfa. Ferðamiðstöð Austurlands á
Egilsstöðum skipuleggur hópferðalög
um Austurland og víðar. Auðvelt er
að ferðast um í nágrenni Horna-
fjarðar. Daglegar ferðir eru til Ör-
æfa, kl. 09:00 að morgni og til baka
síðdegis. Leiðin liggur um Breiða-
merkursand og ber þar margt for-
vitnilegt fyrir augu. Skriðjöklar á
aðra hönd en hafið á hina. Jökullónið
í Jökulsá með sínum síbreytilegu ís-
jökum er ljósmyndurum sífellt við-
fangsefni. í Öræfum er þjónustumið-
stöð, sem opnuð var fyrir stuttu og
ennfremur greiðasala. í Þjóðgarðin-
um eru gönguleiðir t.d. inn að
Svartafossi og fleira mætti telja.
Hér er aðeins gripið á öi'fáum at-
riðum. Ljóst er þó að auðvelt er að
notfæra sér áætlunarflug og lang-
ferðabíla til ferðalaga um Austur-
land.
byrja' á undirbúningsvinnu að nýrri
skólabyggingu á þessu ári. Mjög vel
hefur gengið að fá kennara til starfa
við skólann enda ekki mikið um kenn-
araskipti, nema sem hæfilega endur-
nýjun mætti kalla.
Námsframboð á haustönn fram-
haldsdeildar 1. sept. - 15. des.:
íslenska 100, 102, 103. Danska 100,
102, 103. Enska 100, 102, 103. Stærð-
fræði 100, 102, 103. Félagsfræði 103.
Eðlisfræði 102. Efnafræði 102, 103.
Grunnteikn. 102, 112. Rafm.fræði 102.
Vélritun 101, 202. Bókfærsla 103.
Listir, tónm. 102. Fundasköp 101.
Hjálp í viðlögum 101.
Þessir áfangar gefa nemendum
möguleika á að Ijúka fyrstu önn á
eftirtöldum brautum.: Fornám, al-
menn bóknámsbraut (eðlisfræðibr.,
náttúrufræðibr., tæknibraut, félags-
fræðibr., fornmálabraut, málabraut.)
Uppeldisbraut, iðnbraut, verslunar-
braut, heilsugæslubraut, vélstjórnar-
braut, fiskvinnslubraut, tónlistar-
braut.
Þorv. Jóhannsson.
Furðuleg viðbrögð
ur.
frí SeytcfiorSarsMli