Austri - 27.02.1981, Síða 4
m
AUSTRI
Egilsstöðum, 27. febrúar 1981.
iHréttir
Frii UngnieniMftliigi Borgarfjarínr
úr fréttobréfi 11.11
Það síðasta sem þið hafið líklega
frétt frá Borgfirðingum, er í pistli í
Snæfelli 1980. Það er því fyllilega
ástæða til að bæta úr þvi og senda
ykkur línu héðan úr Borgarfirðinum.
Um áramót er alltaf talsvert um að
vera í starfi félagsiris, enda koma þá
margir heim í jólaleyfi. Félagið hel-
dur árlega álfadans hér í firðinum,
og í vetur mættu allmargir álfar til
fagnaðarins. Annað árið í röð kusum
við íþróttamann ársins. Það voru
stjórn og nefndir UMFB sem greiddu
atkvæði í kjörinu. Sæmdarheitið hlaut
að þessu/sinni knattspyrnuniaðurinn
marksækni Þorbjörn Björnsson, en
Björn Skúlason varð i öðrri sæti.
Fyrirhugað er að knattspyrnumenn
okkar taki þátt í 3. deildar keppninni
í knattspýrnu í fýrsta sinn í sumar.
Mörgum mun líklega þykja það djörf
áætlun hjá svo litlu félagi. Hvað þá
heldur ef fréttist að ekki er' hug-
myndin að ráða rándýran þjálfara
eins og venjan er hér eystra. Ástæðan
er einfaldlega sú að félagið getur
ekki staðið undir slíku fjárhagslega,
vegna þess að allar tekjur okkar
renna í íþróttavöll félagsins. En
stefnt er að því að ljúka vallargerð
í sumar. Lág upphæð á fjárlögum
ríkisins getur þó breytt þeim áform-
um.
UMFB á sitt eigið félagsblað er
Gusa heitir. Blaðið kemur út reglu-
lega tvisvar á ári. Síðasta blað Gusu
kom út í nóvember, og erum við að
safna efni í næstu Gusu, sem kemur
út í vor. Gaman væri ef einhverjir
úr félögunum hér fyrir austan gætu
sent okkur efni í næstu Gusu, annað
hvort tengt Borgarfirði eða ung-
mennafélagsstarfinu yfirleitt. -
Við Borgfirskir ungmennafélagar
vonumst til að eiga góð samskipti við
ykkur sambandsfélögin i starfi og
leik á þessu nýbyrjaða ári.
Með íþróttakveðju
Pétur Eiðsson, ritari UMFB
I dagsins önn
Þá er þorrinn genginn um
garð, og góa byrjuð. Þessi nöfn
eru lífseigust í vitund almenn-
ings af hmum gömlu mánaða-
nöfnum, og er það kannski eink-
um af því að vissir siðir og venj-
ur eru við þá tengdar enn þann
dag í dag.' .
Þorránlótin eru fylgifiskar
þorramánaðarins, og þessi æva-
íprnisiður sem er víst ættaður
úr heiðni á sívaxandi vinsæld-
uin að fagna, og teygir sig
stundum aðeins fram á góuna
ojg geta má þess að nú um næstu
helgi er síðasta þorrablótið
haldið á Héraði og er það á
Jökuldal.
í Þorrablótin eiga sér fasta
hiefð á Héraðinu og er þetta
merkilegur þáttur í menningar-
lifinu hér fyrir margra hluta
sákir. Það hljómar ef til vill ein-
kennilega að tala um menningu
í ‘ sambandi við þorrablót og
mundi margur spyrja hvort
ekki væri nær að tengja þau við
cfrykkju og át.
1 Þorrablótin þar sem ég þekki
t|l hér hafa verið miklu meira
eh drykkjuvéislur. Þau hafa
v’erið árshátíðir sinna byggðar-
l^iga sem vandað er mjög til, og
dágskrá þeirra er merkilegt
fyrirbæri sé það nánar skoðað.
' Dagskráratriði á þorrablót-
i|m eru undantekningarlaust
unnin upp úr atburðum liðins
^rs, frumsamið efni í ljóðum og
lausu máli, flutt af fólkinu
sjálfu sem að samkomunni
stendur..Þarna koma oft fram
menn sem aldrei myndu gera
slíkt í annan tíma, og þarna
semja menn efni af mörgu tagi,
fólk sem aldrei myndi leggja
slíkt fyrir sig við önnur tæki-
færi.
Sá sem þetta ritar hefur tví-
vegis tekið þátt í undirbúningi
þorrablóta hér á Egilsstöðum.
Þorrablótsnefndir hér saman-
standa af hópi fólks um 30
manns sem ekki eru tengdir
neinu ákveðnu félagi eða hópi
manna, koma sitt úr hverri átt-
inni og hafa ekki sérstök tengsl
fyrirfram. Sú hópvinna sem
þetta fólk innir af hendi er
skemmtilegt, og þarna takast oft
kynni milli manna sem ekki
hefðu annars orðið.
Efni þorrablótanna er bundið
við stað og tíma og býður mér í
grun að lítið af því hafi varð-
veist. Það er þó ekki aðalatriðið,
heldur það að viðhalda þessum
gamla sið um mörg ár og halda
því sérkennilega andrúmslofti
sem ríkir á þessum samkomum.
VEÐURFARIÐ
Sennilegá talar engin þjóð í
heimi meira um veðrið en Is-
lendingar. Þegar tveir menn
hittast á förnum vegi er ekki
ósjaldan að talið berst fyrst að
því.
Þegar hugsað er út í þetta er
þetta að vonum því að veður hér
er síbreytilegt og við eigum
enn svo óskaplega mikið undir
veðurlaginu. Samgöngur okkar
eru háðar veðri, og stærstu at-
UNNAR STÖKK TVO
METRA
Austurlandsmeistaramót í
frjálsum íþróttum eldri flokka
innanhúss fór fram á Eskifirði
sunnudaginn 8. feb. s.l. þessir
urðu Austurlandsmeistarar.
Meyjar:
Hástökk með atrennu:
1. Þórdís Hrafnkelsd. Hetti 1.55
Langstökk án atrennu:
1. Þórdís Hrafnkelsd 2.36
Stúlkur:
Sigurvegarar:
Hástökk með atrennu:
Arney Magnúsd Hetti 1.58
Asturl.met.
Langstökk án atrennu:
Amey Magnúsd Hetti 2.34
Konur:
Sigurvegarar:
Hástökk með atrennu:
Dagný Hrafnkelsd Hetti 1.35m.
Langstökk án atrennu:
Dagný Hrafnkelsd Hetti 2.30m.
Sveinar:
Hástökk með atrennu:
1. Ármann Einarss Hetti 1.70
Hástökk án atrennu:
1-2. Gunnl. Grettiss. Þr. 1.20
1-2. Víðir Ársælss Þrótti 1.20
Langstökk án atrennu:
1. Ármann Einarss Hetti 2.82
Þrístökk án atrennu:
1. Ármann Einarss Hetti 8.25
Drengir:
Sigurvegarar:
Langstökk án atrennu:
Haraldur Jónsson UMFB 2.95m.
Þrístökk án atrennu:
Haraldur Jónsson UMFB 8.66m.
Karlar:
Sigurvegarar:
Hástökk með atrennu:
Unnar Vilhjálmss Hetti 2.00
Austurl.met
Hástökk án atrennu:
Unnar Vilhjálmss Hetti 1.53
Austurl.met
Langstökk án atrennu:
Guðl Sæbjörnss Hugin F 2.93m.
Þrístökk án atrennu:
Guðl Sæbjörnss Hugin F 8.87m.
Urslit í stigakeppni félaga:
1. Iþr. Höttur 102 stig
2. Iþr. fél. Þróttur 57 stig
3-5. Umf. Huginn 12 stig
3-5. Samvirkjaf. Eiðaþ. 12 stig
3-5. Umf. Borgarf 12 stig
6. Umf. Súlan 5 stig
Mótið fór vel fram, en var
fámennt að venju. Þó vakti at-
hygli myndarleg þátttaka frá
Þrótti. Vekur hún vonir um að
krakkamir fari nú að halda sér
vinnuvegir okkar eiga feikna-
lega mikið undir skaplegu veð-
urlagi.
Menn hafa fyllilega haft á-
stæðu til þess að tala um veðrið
í vetur, því að tíðarfar hefur
verið með eindæmum óstillt, og
stórviðri tíð. Snjóalög hafa enn
sem komið er sneitt hjá Austur-
við efnið fram yfir ferminguna,
en eins og kunnugt er, er mjög
gott starf í yngri flokkunum hjá
flestum stærstu aðildarfélögum
U.I.A. fyrir 14 ára og yngri. Er
því búist við miklu fjölmennara
móti á Reyðarfirði 1. marz,
þegar yngri flokkarnir mæta
til keppni.
Hvernig var það annars,það
er ekki á hverjum degi sem þrjú
Austurlandsmet falla á einu
bretti.
AUSTURLANDSMÓT INN-
ANHÚSS í FRJÁLSUM
ÍÞROTTUM 14 ÁRA OG
YNGRI
verður haldið á Reyðarfirði
sunnudaginn 1. marz n.k.
Keppt verður í eftirtöldum
f lokkum:
Telpur 13-14 ára (f.1967 og ’68)
Steipur 11-12 ára (f.’69 og ’70)
Steipur 10 ára og y. (f.’71 o.s.)
Piltar 13-14 ára (f.’67-’68)_
Strákar 11-12 ára (f.’69-’70)
Strákar 10 ára og y. (f.’71 o.s.)_
Keppt verður í hástökki með
atrennu og langstökki án at-
rennu í öllum flokkum.
Þáttökugjald, kr. 8.- fyrir
hverja skráningu verður inn-
heimt á mótsstað.
Þáttöku skal tilkynna Helgu
Alfreðsdóttur í síma 1444 í síð-
asta lagi þriðjudaginn 24. feb.
SKÍÐAGÖNGUNÁMSKEIÐ
Helgina 6. - 8. febrúar sl. var
mikið um að vera fyrir unn-
endur skíðagöngu á Austurlandi
Hinn kunni skíðagöngugarpur
Halldór Matthíasson dvaldi á
Egilsstöðum og leiðbeindi á
tveim námskeiðum.
Annars vegar var staðið fyrir
námskeiði fyrir væntanlega leið-
beinendur og sóttu það nám-
skeið 16 manns. Eftir hádegi á
laugardag og sunnudag kenndi
Halldór almenningi skíðagöngu
og meðferð skíðabúnaðar, og
urðu þátttakendur hátt í 40.
Mikil ánægja var með bæði
þessi námskeið og má vænta
stóraukins áhuga fyrir þessari
íþróttagrein á næstunni.
Námskeiðin voru haldin að
tilhlutan skíðaráðs U.I.A., en
umsjón af hálfu heimamanna
hafði Hjálmar Jóelsson. Hafi
þeir Halldór heila þökk fyrir
góða frammistöðu.
landi og hefur veturinn verið
mun snjóþyngri á vestanverðu
landinu enn sem komið er. Þetta
er að vonum því að vestlægar
áttir hafa verið mjög ríkjandi í
veðurfarinu með augljósum af-
leiðingum, snjókomu fyrir sunn-
an og vestan, en þurru veðri og
kulda hér fyrir austan.
frariihaid á bls, 3