Morgunblaðið - 07.04.2010, Síða 2
2 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 2010
KNATTSPYRNA
Meistaradeild Evrópu
8-liða úrslit, seinni leikir:
CSKA Moskva – Inter Mílanó................. 0:1
Wesley Sneidjer 6.
Inter áfram, 2:0 samanlagt.
Barcelona – Arsenal................................ 4:1
Lionel Messi 21., 37., 42., 88. – Nicklas
Bendtner 19.
Barcelona áfram, 6:3 samanlagt.
England
2. deild:
Huddersfield – Oldham ........................... 2:0
Staða efstu liða:
Norwich 40 26 7 7 81:42 85
Swindon 40 21 13 6 64:45 76
Millwall 40 21 12 7 66:37 75
Leeds 40 21 11 8 64:37 74
Charlton 40 20 14 6 66:45 74
Huddersfield 40 19 11 10 68:47 68
Colchester 40 18 11 11 57:45 65
Bristol R. 40 19 4 17 55:56 61
Southampton 39 18 13 8 71:41 57
MK Dons 40 17 6 17 55:58 57
Brentford 39 12 16 11 45:45 52
Carlisle 40 13 12 15 54:56 51
Walsall 40 13 12 15 48:54 51
Brighton 40 12 12 16 50:56 48
Yeovil 40 11 12 17 47:54 45
Hartlepool 40 12 9 19 51:60 45
Exeter 40 10 14 16 42:53 44
Gillingham 40 10 13 17 42:51 43
Oldham 39 11 10 18 33:48 43
Svíþjóð
Brommapojkarna – GAIS....................... 1:0
Eyjólfur Héðinsson lék fyrstu 74 mín-
úturnar fyrir GAIS en Hallgrímur Jónsson
lék allan tímann.
IFK Gautaborg – Djurgården................ 1:1
Ragnar Sigurðsson og Hjálmar Jónsson
léku allan tímann fyrir Gautaborg. Theódór
Elmar Bjarnason lék fyrstu 70 mínúturnar.
Malmö – Halmstad................................... 1:1
Jónas Guðni Sævarsson sat á vara-
mannabekk Halmstad allan tímann.
Åtvidaberg – Kalmar ............................... 0:0
Elfsborg – Häcken ................................... 0:0
Staðan:
Malmö FF 3 2 1 0 7:2 7
Häcken 3 2 1 0 5:2 7
Helsingborg 3 2 1 0 3:0 7
Mjallby 3 2 0 1 6:3 6
Gefle 3 2 0 1 5:4 6
Elfsborg 3 1 2 0 8:2 5
Brommapoj. 3 1 2 0 1:0 5
Halmstad 3 1 1 1 5:7 4
Kalmar 3 0 3 0 3:3 3
GAIS 3 1 0 2 3:5 3
Örebro 3 1 0 2 1:5 3
Djurgården 3 0 2 1 1:2 2
Trelleborg 3 0 2 1 3:5 2
AIK 3 0 1 2 1:4 1
Gautaborg 3 0 1 2 1:4 1
Atvidaberg 3 0 1 2 0:5 1
BLAK
Úrslitakeppni kvenna:
KA – Fylkir ............................................... 0:3
HK og Þróttur N. berjast um Íslands-
meistaratitilinn og mætast í hreinum úr-
slitaleik á laugardaginn.
í kvöld
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla, lokaumferð:
Selfoss: Selfoss – Afturelding ..............19.30
Hreinn úrslitaleikur um sæti í úrvals-
deildinni.
Austurberg: ÍR – Fjölnir ..................... 19.30
Vestmannaeyjar: ÍBV – Víkingur....... 19.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
Undanúrslit karla, annar leikur:
Stykkishólmur: Snæfell – KR ............. 19.15
Staðan er 1:0 fyrir Snæfell.
ENGINN Wayne Rooney verður í byrjunarliði Man-
chester United á Old Trafford-vellinum í Manchester
í kvöld þegar Englandsmeistararnir taka á móti Bay-
ern München í síðari viðureign liðanna í átta liða úr-
slitum Meistaradeildarinnar. Orðrómur var í gangi
um að Rooney, sem meiddist undir lok fyrri hálfleiks,
yrði jafnvel með frá byrjun en sir Alex Ferguson,
knattspyrnustjóri United, sagði í gær að ekki væri
inni í myndinni að tefla Rooney fram.
„Það er enginn möguleiki á að hann spili. Hann hef-
ur tekið miklum framförum, sjúkrateymið okkar hef-
ur gert frábæra hluti en þetta eru bara dæmigerð
ökklameiðsli. Það má ekki taka áhættu með leikmann
sem er ekki 100 prósent heill. Ég býst ekki við því að
hann verði heldur á varamannabekknum, enda þótt
það gæti farið svo að hann næði að tala mig til um
það,“ sagði Ferguson en hans
menn töpuðu fyrri leiknum, 2:1.
Bæjarar endurheimta að öllum
líkindum tvo öfluga leikmenn.
Víst er að Bastian Schweinsteiger
verður í byrjunarliðinu og þá eru
Þjóðverjarnir vongóðir um að
geta nýtt krafta Hollendingsins
Arjens Robbens.
„Ég kom ekki hingað til að
fylgjast með leiknum úr stúkunni.
Mér finnst ég tilbúinn til að spila
og er bjartsýnn á að svo verði,“ sagði Robben við
fréttamenn í gær. „Pressan er á leikmönnum United.
Við höfum þegar sýnt það að við getum lagt ensk lið
að velli.“
„Rooney gæti talað sig inn á bekkinn“
Wayne
Rooney
Eftir Kristján Jónsson
kris@mbl.is
KR undirstrikaði í gærkvöldi að fé-
lagið er stórveldi í íslensku íþrótta-
lífi. Um 1.200 áhorfendur mættu á
leikinn og stemningin var eins og
best gerist enda umgjörðin til sóma.
Allajafna eru áhorfendur frekar fáir
á kvennaleikjum hérlendis í bolta-
greinum en í gærkvöldi varð veruleg
breyting á. Körfuboltakonurnar hafa
líka unnið fyrir því. Úrslitarimman
var frábær og fór í oddaleik og sama
má segja um rimmuna þegar Haukar
unnu í fyrra. Kvennakörfuboltinn er
einfaldlega orðinn mun skemmtilegri
á að horfa en áður var, með fullri
virðingu fyrir þeim leikmönnum sem
héldu merki hans á lofti fyrir nokkr-
um árum. Harkan er meiri, hraðinn
er meiri og gæðin eru meiri að öllu
leyti enda leikmenn farnir að leggja
meira á sig.
Tímanna tákn
Það var því kannski tímanna tákn
að Benedikt Guðmundsson, þjálfari
Íslandsmeistaranna í karlaflokki,
skyldi söðla um og taka að sér
kvennaliðið. Einhvern tíma hefði það
þótt fremur fjarlægur möguleiki.
Benedikt tók við góðu búi af Jóhann-
esi Árnasyni. Liðið hafði innanborðs
leikstjórnanda landsliðsins, Hildi
Sigurðardóttur, besta varnarmann-
inn í fyrra, Guðrúnu Gróu Þorsteins-
dóttur, og Margréti Köru Sturludótt-
ur sem hefur blómstrað á leiktíðinni.
Unnur Tara var síðasta púslið
Benedikt var klókur þegar hann
bætti við sig landsliðsfyrirliðanum
Signýju Hermannsdóttur sem var
hungruð í að vinna titilinn eftir ann-
ars glæsilegan feril. Síðasta púslið í
púsluspilinu var svo lagt þegar Unn-
ur Tara Jónsdóttir kom heim frá
Finnlandi og gekk til liðs við KR.
Hún reyndist betri en enginn og var
sá leikmaður sem tók af skarið í
sókninni hjá KR í oddaleiknum. Unn-
ur var frábær í úrslitarimmunni og
verður væntanlega kjörin besti leik-
maður úrslitakeppninnar. KR-liðið
sýndi að það er besta lið landsins
með því að vinna deildina á afar
sannfærandi hátt. Hins vegar fékk
maður á tilfinninguna að spennustig-
ið væri á köflum svolítið hátt hjá leik-
mönnum liðsins. Þær þurftu að búa
við þá pressu sem fylgir því að vera
með besta liðið sem allir reikna með
að vinni. Auk þess hlýtur að hafa set-
ið í leikmönnum að hafa tapað síð-
ustu tveimur úrslitarimmum. KR-
konur standa hins vegar uppi sem
sigurvegarar og nutu augnabliksins
út í ystu æsar í gærkvöldi.
Hvergerðingar létu KR heldur
betur hafa fyrir hlutunum og voru
mjög nálægt sigri. Að loknum fyrri
hálfleik í oddaleiknum virtist Hamar
vera líklegri til þess að sigra. Slakur
leikur í þriðja leikhluta varð Ham-
arskonum hins vegar að falli en lík-
lega tapaðist rimman hjá þeim í öðr-
um leiknum, þar sem liðið fékk
tækifæri til þess að komast í 2:0 á
heimavelli. Það er hins vegar mjög
ánægjulegt að bæjarfélag eins og
Hveragerði hafi eignast jafn sterkt
lið og raun ber vitni. Ágúst Björg-
vinsson, þjálfari Hamars, veit hvað
hann syngur og er líklegur til þess að
færa Hvergerðingum sinn fyrsta titil
á næstu árum.
Íslandsmeistarar Leikmenn kvennaliðs KR fögnuðu gríðarlega í leikslok í gær eftir að hafa landað 14. Íslandsmeistaratitlinum í oddaleik gegn Hamri úr Hverager
KR-konum tókst í þriðju tilraun að
hampa Íslandsmeistaratitlinum í
körfuknattleik í gærkvöldi eftir sigur
á Hamri, 84:79, í DHL-höllinni í
Frostaskjóli. KR tapaði í úrslitum fyr-
ir Keflavík árið 2008 og fyrir Haukum
í oddaleik fyrir ári síðan. Allt er þegar
þrennt er segir einhvers staðar og
KR-konur fögnuðu af mikilli innlifun
þegar sigurinn var loks í höfn.
Allt er þegar þre
KR-konur urðu Íslandsmeistarar í þriðju tilraun Hamar var nálægt sínum fyrsta
kvennaleik Unnur Tara tók af skarið hjá KR Úps, Benedikt gerði það aftur!
ÞAÐ ræðst í kvöld hvort Afturelding eða Selfoss
sigrar í 1. deild karla í handknattleik og tryggir
sér sæti í úrvalsdeildinni fyrir næsta tímabil. Liðin
mætast í lokaumferð deildarinnar á Selfossi klukk-
an 19.30 en aðeins eitt stig skilur þau að á toppn-
um. Afturelding er með 29 stig en Selfoss 28 og
Mosfellingum nægir því jafntefli til að komast í
hóp þeirra bestu á nýjan leik.
Afturelding lék síðast í úrvalsdeildinni veturinn
2007-08, eftir að hafa unnið 1. deildina árið á und-
an, og í fyrra tapaði liðið úrslitaleikjum við Stjörn-
una um sæti þar. Selfyssingar voru meðal þeirra
liða sem höfnuðu í 1. deild þegar deildaskipting
var tekin upp á ný árið 2006 og hafa verið þar síð-
an.
Liðin hafa unnið sinn leikinn hvort í vetur. Aft-
Afturelding eða Self
KR – Hamar 84:79
DHL-höllin, úrslit kvenna, oddaleikur,
þriðjudag 6. apríl 2010.
Gangur leiksins: 0:2, 6:2, 15:8, 15:11, 20:18,
27:26, 33:37, 38:39, 47:39, 56:47, 64:58,
72:63, 72:67, 78:73, 80:78, 84:79.
Stig KR: Unnur Tara Jónsdóttir 27/7 frá-
köst, Hildur Sigurðardóttir 16/6 fráköst/8
stoðsendingar, Guðrún Gróa Þorsteins-
dóttir 13/11 fráköst, Signý Hermannsdóttir
11/4 fráköst/11 varin skot, Margrét Kara
Sturludóttir 8/10 fráköst, Jenny Pfeiffer-
Finora 8, Helga Einarsdóttir 1, Heiðrún
Kristmundsdóttir 0, Brynhildur Jónsdóttir
0, Þorbjörg Andrea Friðriksdóttir 0, Heið-
rún Hödd Jónsdóttir 0, Jóhanna Björk
Sveinsdóttir 0.
Fráköst: 29 í vörn – 11 í sókn.
Stig Hamars: Koren Schram 24/6 stolnir,
Kristrún Sigurjónsdóttir 24/4 varin skot,
Julia Demirer 18/11 fráköst, Íris Ásgeirs-
dóttir 6, Guðbjörg Sverrisdóttir 5/4 fráköst,
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 2/9 fráköst,
Hafrún Hálfdánardóttir 0, Sóley Guðgeirs-
dóttir 0, Kristrun Rut Antonsdottir 0,
Jenný Harðardóttir 0, Fanney Lind Guð-
mundsdóttir 0, Bylgja Sif Jónsdóttir 0.
Fráköst: 19 í vörn – 11 í sókn.
Villur: KR 24 – Hamar 24.
Dómarar: Kristinn Óskarsson og Rögn-
valdur Hreiðarsson. Þeir voru smámuna-
samir.
Áhorfendur: 1.200.