Morgunblaðið - 07.04.2010, Page 3
Íþróttir 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 2010
Tveir mark-verðir úr
N1-deild karla
voru úrskurðaðir
í eins leiks bann á
fundi aganefndar
HSÍ og leika þeir
ekki með liðum
sínum í loka-
umferð N1-deild-
arinnar annað kvöld. Um er að ræða
þá Hörð Flóka Ólafsson, markvörð
Akureyrar, sem hlaut útilokun fyrir
óíþróttamannslega framkomu eftir
leik Akureyrar og HK í fyrrakvöld,
og Aron Rafn Eðvarðsson, mark-
vörð úr Haukum, sem hlaut útilokun
fyrir óíþróttamannslega framkomu í
leik Hauka og Stjörnunnar í 2.
flokki.
Javier Clemente, fyrrverandilandsliðsþjálfari Spánverja í
knattspyrnu, var í gær ráðinn þjálf-
ari spænska úrvalsdeildarliðsins
Valladolid í stað Onesimos Sanchez
sem var rekinn í fyrrakvöld. Cle-
mente var þjálfari spænska lands-
liðsins á árunum 1992-1998 og hann
hefur þjálfað lið Bilbao, Espanyol,
Getxo og Real Betis. Hann tók við
þjálfun serbneska landsliðsins árið
2006 en var látinn taka poka sinn ári
síðar þegar Serbum mistókst að
vinna sér sæti í úrslitakeppni EM.
Matt Kucharfrá Banda-
ríkjunum og KJ
Choi frá Suður-
Kóreu verða með
Tiger Woods í
ráshópi fyrstu tvo
keppnisdagana á
Mastersmótinu á
Augustavellinum
sem hefst á morgun. Woods verður í
næstsíðasta ráshópnum á fyrsta
keppnisdegi og hefur hann leik kl.
17.32 að íslenskum tíma.
Woods hefur fjórum sinnumsigrað á þessu móti en hann
hefur ekkert keppt á golfmótum í
fjóra mánuði. Gríðarlegur fjöldi
áhorfenda hefur fylgt Tiger Woods á
æfingadögunum fyrir mótið og er
búist við því að fleiri bætist í þann
hóp á morgun.
Árni GauturArason,
landsliðs-
markvörður í
knattspyrnu, átti
stóran þátt í því
að Odd Grenland
skyldi ná jafntefli
við Sandefjord í
úrvalsdeildinni í
fyrrakvöld, þrátt fyrir auma öxl og
brotinn þumalfingur.
Patrick Walker, þjálfari Sande-
fjord, sagði við TV2 að lið sitt hefði
unnið öruggan sigur í leiknum, ef
ekki hefði komið til frábær frammi-
staða Árna í markinu hjá Odd.
Árni lék með hlíf á þumalfingrieftir að hafa brotið hann fyrir
skömmu. Hann sagði við TV2 að það
gengi alveg að spila þannig, auk þess
sem Árni er ekki orðinn góður í öxl
eftir að hafa meiðst í landsleik Kýp-
ur og Íslands í byrjun mars. „Vissu-
lega veit maður af þessum meiðslum
en stundum er fótboltinn þannig að
maður verður bara að harka af sér
og spila. Þetta er ekkert hættulegt.
Ég set hlíf á fingurinn og þá er allt í
lagi. Ég er á batavegi,“ sagði Árni og
gerði lítið úr hetjudáðum sínum í
markinu.
Lionel Messi skaust upp fyrirCristiano Ronaldo með mörk-
unum fjórum sem hann gerði í gær
og er orðinn markahæstur í
Meistaradeildinni. Messi hefur skor-
að átta mörk, Ronaldo sjö og þeir
Wayne Rooney og Nicklas Bendnter
eru með fimm mörk.
Fólk sport@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
rði. Gríðarleg stemning var á leiknum og húsfyllir.
ennt er
sigri Alger bylting í áhorfendafjölda á
urelding vann í Mosfellsbænum í nóvember, 26:25,
en Selfyssingar unnu á sínum heimavelli í febrúar,
32:23. Þreföld umferð er leikin í 1. deildinni og það
kom í hlut Selfyssinga að fá tvo heimaleiki gegn
Aftureldingu.
Annað tækifæri í umspili
Liðið sem missir af úrvalsdeildarsætinu í kvöld
fær annað tækifæri í umspili. Það leikur þá gegn
ÍBV í undanúrslitum en Víkingur, sem endar í
fjórða sætinu, mætir liðinu sem verður næstneðst í
úrvalsdeildinni, en það gæti orðið Fram, Stjarnan
eða Grótta. Sigurliðin í þessum tveimur einvígjum
spila síðan um úrvalsdeildarsætið.
Umspilið hefst föstudaginn 23. apríl og því lýkur
3. eða 5. maí. vs@mbl.is
foss upp?
GORDON Hayward, leikmaður bandaríska há-
skólaliðsins Butler, var nálægt því að skrifa nafn sitt
í sögubækurnar þegar hann reyndi erfitt skot úr
þröngu færi þegar sjö sekúndur voru eftir af úrslita-
leik háskólakörfuboltans í Indianapolis á sunnudag.
Skotið frá Hayward dansaði á körfuhringnum en
boltinn fór ekki ofan í og nokkrum andartökum síð-
ar fögnuðu leikmenn Duke-háskólans 61:59-sigri.
„Öskubuskuævintýri“ Butler-háskólans endaði því
ekki eins og flest ævintýri en Butler-háskólinn er
„smáháskóli“ í samanburði við stærstu háskóla
landsins, með aðeins 4.000 nemendur.
Kyle Singler skoraði 19 stig fyrir Duke. Lið Butl-
er hafði fyrir leikinn unnið 25 leiki í röð en Butl-
er-háskólinn er í borginni Indianapolis og er þetta í
fyrsta sinn sem hann kemst alla leið í úrslitaleikinn.
Duke-háskólinn, undir stjórn
þjálfarans Mikes Krzyzewskis,
fagnaði sigri í þessari sterku
keppni í fjórða sinn en hinn 63
ára gamli Krzyzewski hefur
þjálfað liðið í 30 ár.
Til samanburðar er þjálfari
Butler-liðsins aðeins 33 ára gam-
all en hann heitir Brad Stevens.
Krzyzewski þjálfaði banda-
ríska landsliðið sem tryggði sér
ólympíumeistaratitilinn í Peking
2008 og er hann nú orðaður við þjálfarastarfið hjá
New Jersey Nets. Er talið að eigandi Nets vilji
greiða Krzyzewski um tvo milljarða kr. í árslaun
fyrir að taka slakasta lið NBA að sér. seth@mbl.is
Duke háskólameistari í fjórða sinn
Mike
Krzyzewski
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
HILDUR var ekki með það á hreinu
hve oft hún hefur fagnað „þeim
stóra“ á ferlinum. „Ég er ekki góð í
því að muna svona hluti. Þessi er
allavega sá eftirminnilegasti.“
Hildur fékk fimmtu villuna þegar
rúmlega mínúta var eftir af leiknum
í stöðunni 78:73 en hún var aldrei í
vafa um að KR myndi landa titlinum
þrátt fyrir að fyrirliðinn og leik-
stjórnandi liðsins væri farinn af velli.
„Það var kannski klaufaskapur hjá
mér að láta vaða svona inn í vörnina
þegar við vorum yfir. Ég fékk tvær
ruðningsvillur og þær vita alveg af
mér þegar ég kem á ferðinni. Þær
voru flinkar að stíga í veg fyrir mig
og fiska ruðninginn. Vissulega var
ég óróleg að þurfa að horfa á síðustu
mínútuna, það er ekkert erfiðara en
að fara út af á slíkum stundum. Við
erum bara með frábært lið og það er
alltaf einhver sem er til í að taka af
skarið þegar þess þarf. Það kom
bara annar leikmaður inn á og klár-
aði dæmið.“
Hildur er líkt og aðrir leikmenn
KR að ljúka fyrsta tímabili sínu með
Benedikt Guðmundsson sem þjálf-
ara. Hann tók við liðinu sl. vor eftir
að hafa stýrt karlaliðinu til sigurs á
Íslandsmótinu. Hildur er ekki í vafa
um að „Benni“ hafi lært heilmikið af
því að þjálfa kvennalið í fyrsta sinn.
„Konur eru stundum góðar í
því að flækja hlutina“
„Við kenndum honum allavega
eitt. Ef það koma upp einhver vafa-
atriði þá getur hann sem þjálfari
ekki beðið eftir því að við veljum.
Konur eru stundum góðar í því að
flækja hlutina og pæla kannski of
mikið í því sem þarf að gera. Hann
tók oft af skarið og valdi,“ sagði
Hildur og brosti.
Fyrirliðinn var ekki sáttur með
niðurstöðuna sl. vor þegar Haukar
fögnuðu Íslandsmeistaratitlinum
eftir úrslitaeinvígi gegn KR. Hún
tók sig til og fór að æfa frjálsíþróttir
fimm sinnum í viku aðeins viku eftir
að keppnistímabilinu lauk. Hildur er
fædd og uppalinn í Stykkishólmi og
þekkir því frjálsíþróttirnar vel og
segir hún að þessi tilbreyting hafi
breytt miklu.
„Það eru miklar íþróttakonur í
þessu liði og við liggjum ekki í
„dvala“ þegar keppnistímabilið er
búið. Ég og Margrét Kara Sturlu-
dóttir fórum að æfa frjálsíþróttir hjá
ÍR. Það skilaði árangri að mínu mati
og ég verð örugglega komin á fullt í
frjálsíþróttunum eftir nokkra daga,“
sagði Hildur Sigurðardóttir, fyrirliði
Íslandsmeistaraliðs KR.
Morgunblaðið/Ómar
Það tókst Hildur Sigurðardóttir og Margrét Kara Sturludóttir tóku vel á
því s.l. sumar í frjálsíþróttaæfingunum - og það skilaði árangri.
Hildur Sigurðardóttir, fyrirliði KR,
fagnaði sínum þriðja meistaratitli
„Ég læt hann ekki frá mér, það er al-
veg á hreinu,“ sagði Hildur Sigurð-
ardóttir, fyrirliði KR, eftir 84:79-sigur
liðsins gegn Hamri í oddaleik um Ís-
landsmeistaratitilinn í Iceland Ex-
press-deild kvenna í körfubolta í gær.
„Benni hefur
lært heilmikið“
ÁGÚST Björgvinsson, þjálfari Hamars,
þurfti að sætta við sig 2:3-tap fyrir KR
eftir frábæra úrslitarimmu um Íslands-
meistaratitilinn í körfuknattleik
kvenna. „Ef við skoðum þennan leik
sérstaklega þá fórum við illa með þetta
tækifæri með spilamennsku okkar í
þriðja leikhluta. Þá skoruðu þær alltof
auðveldar körfur á okkur og komust 10
eða 12 stigum yfir. Það var einfaldlega
munur sem var of erfitt að brúa. Hvað
varðar rimmuna í heild sinni þá var
annar leikurinn klárlega sá lélegasti af
okkar hálfu. Þá spiluðum við engan
veginn nógu vel. Í hinum leikjunum
spiluðum við af eðlilegri getu að mínu
mati. Á heildina litið spiluðum við ekki
illa í kvöld en það bara dugði ekki til,“
sagði Ágúst sem stýrði Hamri í úrslit
Íslandsmóts í fyrsta skipti í sögu fé-
lagsins. Hann má vera stoltur af
árangri liðsins í vetur.
„Það er ekki hægt annað en að vera
sáttur. Auðvitað vill maður alltaf vinna
og hefði verið sáttari við það. Ég hef
unnið titilinn og margar af mínum
stelpum hafa unnið. Þetta snýst um að
ná því besta út úr sjálfum sér. Við
reyndum það og við fórum eins langt
og við möguleika gátum. Við spiluðum
oddaleik í úrslitum Íslandsmóts og það
er besti árangur félagsins. Svo er bara
okkar að toppa það. Ef við höldum
þessum stelpum saman verður þetta lið
gríðarlega sterkt þegar þær verða
árinu eldri og reynslunni ríkari. Þá
getum við að sjálfsögðu gert aðra at-
lögu að titlinum.“ kris@mbl.is
„Við fórum eins langt og
við mögulega gátum“