Morgunblaðið - 07.04.2010, Page 4
4 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 2010
LJÓST er að annaðhvort Alexander Petersson
eða Björgvin Páll Gústavsson fer í úrslitaleiki
EHF-bikarsins í handknattleik. Lið þeirra,
Flensburg frá Þýskalandi og Kadetten frá
Sviss, drógust saman í undanúrslitunum en
dregið var til þeirra í Vínarborg í gær. Fyrri
leikur liðanna fer fram í Flensburg helgina
24.-25. apríl og sá seinni í Schaffhausen í Sviss
viku síðar. Þriðja Íslendingaliðið í undanúrslit-
unum, Lemgo, með þá Vigni Svavarsson og
Loga Geirsson leikur gegn spænska liðinu
Naturhouse La Rioja í undanúrslitum. Róbert
Gunnarsson og félagar hans í Gummersbach
drógust gegn spænska liðinu San Antonio í
undanúrslitum Evrópukeppni bikarhafa. Í
hinni viðureigninni mætast
Steaua frá Rúmeníu og
Granollers frá Spáni. „Ég
hefði helst viljað fara til
Búkarest, aðallega til þess
að prófa eitthvað nýtt. Ef
við sýnum tvo góða leiki þá
förum við áfram en það má
ekkert klikka. Þetta er
raunhæfasti möguleikinn á
titli fyrir okkur. Það væri
virkilega gaman að ná
þessu aftur,“ sagði Róbert við Morgunblaðið
en Gummersbach sigraði í EHF-bikarnum í
fyrra. vs@mbl.is/kris@mbl.is
Alexander eða Björgvin í úrslit
Róbert
Gunnarsson
JULIE Fleeting, skoska knattspyrnukonan
sem kom aðeins við sögu hjá Val sumarið
2006, skoraði sitt 111. mark í sínum 111.
landsleik fyrir Skotland í síðustu viku. Skotar
unnu þá stórsigur á Búlgörum, 8:1, í undan-
keppni HM og Fleeting gerði fjögur mark-
anna og það síðasta, á 90. mínútu, var númer
111 í röðinni.
Julie Fleeting, sem lék lengi með Arsenal,
kom til Vals í stuttan tíma sumarið 2006 en
setti mark sitt á liðið því hún skoraði fjögur
mörk í tveimur leikjum Hlíðarendaliðsins í
úrvalsdeildinni. Þrennu gegn Fylki og eitt
mark gegn Breiðabliki. Dvöl hennar hjá Val
var styttri en gert var ráð fyrir því unnusti
hennar, Colin Stewart,
sem var markvörður hjá
Grindvíkingum, yfirgaf þá
í byrjun ágúst til að spila í
Skotlandi.
Þetta voru fyrstu lands-
liðsmörkin hjá Fleeting um
nokkurt skeið en átta mán-
uðir eru síðan hún eign-
aðist sitt annað barn. Skot-
ar heyja einvígi við Dani í
riðlakeppni HM og útlit er
fyrir tvo úrslitaleiki þeirra á milli. Skotar eru
með fullt hús en Danir misstu óvænt stig með
0:0 jafntefli í Búlgaríu. vs@mbl.is
Skoraði 111. markið í 111. leiknum
Julie
Fleeting
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
MESSI stal algjörlega senunni og
skoraði öll fjögur mörk Evr-
ópumeistararanna í 4:1-sigri á Ars-
enal og Börsungar unnu einvígið,
6:3. Nicklas Bendtner kom Arsenal
yfir á 18. mínútu en á 21 mínútu
skoraði Messi þrennu og hann kór-
ónaði frábæra frammistöðu sína
þegar hann skoraði fjórða markið
skömmu fyrir leikslok.
Þetta er í fyrsta sinn sem Messi
skorar fernu á ferli sínum en fyrir
leikinn hafði þessi snillingur skorað
fjórar þrennur á árinu 2010 og
mörkin sem hann hefur skorað á
leiktíðinni eru orðin 39 talsins. Hann
gæti því vel náð Brasilíumanninum
Ronaldo sem afrekaði að skora 47
mörk á einni leiktíð tímabilið 1996-
1997. Messi, sem er 22 ára gamall,
hefur skorað átta mörk í Meist-
aradeildinni á tímabilinu og er
markahæstur og samtals hefur hann
skorað 25 mörk í Meistaradeildinni
sem er meira en nokkur annar leik-
maður Barcelona hefur gert.
Ánægður með mörkin
,,Við byrjuðum illa en buðum svo
upp á stórbrotna sýningu. Ég er
virkilega ánægður með mörkin mín
en það mikilvægasta er að liðið haldi
áfram á sigurbraut,“ sagði Messi við
spænska sjónvarpið eftir leikinn en
á laugardaginn sækja Börsungar lið
Real Madrid í heim í úrslitaleik um
spænska meistaratitilinn.
Messi bestur í heimi
,,Við áttum tækifærin en þegar
maður eins og Lionel Messi er ann-
ars vegar þá er manni refsað fyrir öll
mistök sem maður gerir. Messi er
besti fótboltamaður í heimi og er
langbestur. Hann er ekki alltaf í
boltanum en þegar hann hefur hann
þá er hann óstöðvandi. Ég óska
Barcelona til hamingju. Það er með
betra lið en við,“ sagði Arsene Wen-
ger, stjóri Arsenal, eftir leikinn en í
lið hans vantaði þá Cesc Fabregas,
Andrei Arshavin, William Gallas og
Alex Song.
Mourinho í sögubækurnar
Hinn litríki Jose Mourinho, þjálf-
ari Inter, skráði nafn sitt í sögubæk-
ur Meistaradeildarinnar þegar lið
hans lagði CSKA Moskvu, 1:0, á
Luzhnyki-gervigrasvellinum í
Moskvu og samanlagt 2:0. Mourinho
varð þar með fyrsti þjálfarinn til að
koma þremur mismunandi liðum í
undanúrslit Meistaradeildarinnar en
það afrekaði hann einnig með Porto
og Chelsea. Úrslitin í Moskvu í gær
réðust strax á 6. mínútu þegar Hol-
lendingurinn Wesley Sneidjer skor-
aði með skoti beint úr aukaspyrnu. Í
upphafi síðari hálfleiks var Níger-
íumanninum Chidi Odiah í liði
CSKA vikið af velli og þar með varð
eftirleikurinn auðveldur fyrir Ítal-
íumeistarana.
,,Áætlunin fól í sér að skora á und-
an þeim. Í Mílanó skoruðum við í 10.
skotinu en í því fyrsta í kvöld.
CSKA-liðið var undir pressu og því
tókst ekki spila sinn besta leik. Við
náðum okkur heldur ekki á strik í
sóknarleiknum. Við áttum að skora í
það minnsta eitt mark til viðbótar,“
sagði Mourinho eftir leikinn.
Messi setti upp sýningu
Argentínumaðurinn lék Arsenal grátt og skoraði fjögur mörk Messi orðinn
markahæstur í Meistaradeildinni Barcelona og Inter eigast við
Reuters
Snillingur Lionel Messi er hér að vippa boltanum fyrir Manuel Almunia og skora þriðja mark sitt gegn Arsenal.
Í HNOTSKURN
»Barcelona er komið í und-anúrslit í Evrópukeppni í
26. sinn og jafnaði þar með ár-
angur Real Madrid.
»Barcelona og Inter voru ísama riðli í Meistaradeild-
inni. Liðin skildu jöfn í Mílanó,
0:0, en Barcelona vann heima-
leikinn, 2:0.
Lionel Messi undirstrikaði að hann er
besti fótboltamaður veraldar um
þessar mundir. Argentínumaðurinn
bauð upp á sannkölluð töfrabrögð á
Camp Nou í gær þegar Evrópumeist-
arar Barcelona slógu Arsenal út.
Mæta þeir Inter í undanúrslitum en
Ítalíumeistararnir komust áfram eftir
að hafa lagt CSKA Moskvu að velli.
Hinn sigursæliþjálfari
körfuboltaliðsins
Los Angeles La-
kers, Phil Jack-
son, hefur verið
sektaður af NBA-
deildinni fyrir að
gagnrýna dóm-
gæslu opin-
berlega.
Jackson lét gamminn geisa í fjöl-
miðlum eftir að hans menn töpuðu
stórt fyrir San Antonio Spurs á
páskadag. Jackson var fyrst og
fremst óánægður með þá dóma sem
sneru að liðsmanni hans, Ron Ar-
test. Jackson var sektaður um 35
þúsund dollara sem eru um 4 millj-
ónir íslenskra króna.
Aðalsteinn Örnólfsson úr Golf-klúbbnum Kiðjabergi er orð-
inn alþjóðadómari í golfi. Aðalsteinn
sótti námskeið á St. Andrews í Skot-
landi í febrúar og þreytti þar próf í 5
daga eftir því sem fram kemur á vef-
síðu GKB. Aðalsteinn verður yfir-
dómari á Íslandsmótinu í höggleik í
sumar sem haldið verður í Kiðja-
berginu í fyrsta skipti.
Ólafur BjarkiRagnarsson
skoraði tvö mörk
fyrir Ahlener
sem vann Pots-
dam á útivelli,
33:29, í norð-
urriðli þýsku 2.
deildarinnar í
handknattleik.
Ahlener er í fimmta sætinu með 30
stig, átta stigum á eftir Hreiðari
Levy Guðmundssyni og félögum í
Emsdetten sem eru í þriðja sæti og
standa vel að vígi með að komast í
umspil um sæti í 1. deildinni.
Arnar Jón Agnarsson skoraði 4mörk fyrir Aue sem vann Er-
langen á útivelli, 27:22, í suðurriðli
þýsku 2. deildarinnar. Aue er í 13.
sæti af 18 liðum með 22 stig en er
komið af mesta hættusvæði deild-
arinnar.
Danski knatt-spyrnumað-
urinn Danni Kö-
nig er til reynslu
hjá Val þessa
dagana. Hann er
23 ára gamall
framherji sem
leikur með Rand-
ers í dönsku úr-
valsdeildinni en hann kom þangað
frá 2. deildarliðinu Brönshöj síðasta
sumar. „Við erum búnir að leita fyrir
okkur með framherja í nánast allan
vetur,“ sagði Gunnlaugur Jónsson,
þjálfari Vals, við Morgunblaðið.
Bandarísk knattspyrnukona, As-hley Myers, er gengin til liðs
við Hauka, nýliðana í úrvalsdeild-
inni. Myers er 23 ára framherji og
lék með háskólaliði Penn State í þrjú
ár, og í vetur með liði Norður-
Karólínuháskóla.
Fólk sport@mbl.is
ÞÝSKU Íslendingaliðin Rhein-Neckar Löwen og
Kiel drógust saman í 8-liða úrslitum Meistara-
deildar Evrópu í handknattleik en dregið var til
þeirra í Vínarborg í gærmorgun. Ólafur Stef-
ánsson, Snorri Steinn Guðjónsson og Guðjón Val-
ur Sigurðsson leika með Löwen en Aron Pálm-
arsson leikur með Kiel og Alfreð Gíslason þjálfar
liðið. Evrópumeistarar Ciudad Real frá Spáni
drógust gegn þýska liðinu Hamburg. Börsungar
mæta ungverska stórliðinu Veszprém og Nikola
Karabatic og félagar í Montpellier eiga í höggi við
Medvedi frá Rússlandi. Morgunblaðið fékk Ró-
bert Gunnarsson til þess að spá um Íslend-
ingaslaginn milli Kiel og Löwen. Róbert mun
ganga til liðs við Löwen í sum-
ar og er gamall lærisveinn Al-
freðs Gíslasonar.
„Ég myndi nú segja að Kiel
sé líklegri til þess að fara
áfram svona fyrirfram og það
búast sjálfsagt flestir við því að
Kiel vinni. Ljónin hafa ekki
verið sannfærandi í vetur en
hafa hins vegar verið að bæta
sig í síðustu leikjum. Snorri er
að finna sitt ólympíuform og
raðar inn mörkunum í hverjum leik. Ég held að
það muni velta á honum hvort Löwen muni vinna
Kiel eða ekki. Þetta er í höndunum á Snorra
Steini,“ sagði Róbert þegar Morgunblaðið bar
þetta undir hann. Róbert og Snorri eru sem kunn-
ugt er herbergisfélagar hjá landsliðinu. Lands-
liðsfyrirliðinn Guðjón Valur hefur verið meiddur
upp á síðkastið og nær tæplega leikjunum gegn
Kiel. „Þeir eru með virkilega góðan hornamann
með honum og ef hann finnur sig þá eru þeir í
ágætum málum. Gaui er engu að síður heims-
klassaleikmaður og nýtist mun betur í vörninni.
Það er vissulega missir fyrir þá að hann sé ekki
með en breiddin hjá Löwen gerir það að verkum
að fjarvera Gauja skaðar þá minna en hún myndi
gera hjá flestum liðum,“ sagði Róbert. kris@mbl.is
„Þetta er í höndunum á Snorra“
Alfreð og Aron í gin ljónanna Róbert segir Snorra geta ráðið úrslitum
Snorri Steinn
Guðjónsson