Nýr Stormur - 27.05.1966, Side 1
FÖSTUDAGUR 2 7. MAl 1966
2. árgangur
Reykjavík
21. töhMaS.
ÞÁTTUR ÚR SÖGU VERÐBÓLGUNNAR
VERDBOLGAN MALAR!
Það hneyksli hefur nú skeð
hér í Reykjavík, að kvenna-
samtök þau, er standa að
byggingu Hallveigarstaða,
hafa neyðst til að leigja hús
þetta að mestu leyti hinu op-
inbera. Borgardómaraskrif-
stofurnar í Reykjavík hafa
tekið meginhluta húsnæðisins
á leigu fyrir starfsemi sína.
Konurnar hafa sjálfar lítinn
hluta hússins til eigin þarfa
um óákveðinn tíma. Sá tími
Kvennaheimilið Hallveigarstaðir leigt
undir skrifstofur borgardómara
getur orðið langur, því að
byggingin hefur farið fram úr
öllum áætlunum, og fé það er
konurnar höfðu á löngum
tíma safnað til hennar, hefur
horfið eins og dögg fyrir sólu
í verðbólguhítina.
Ofremdarástand í
sjúkrahússmálum
Læknar eiga í stöðugum vinnudeilum um kaup
og kjör og kröfum þeirra um aðbúnað og tæki
á sjúkrahúsin ekki sinnt
Nú fyrir skemmstu var
langvinnri vinnudeilu lækna
við vinnuveitendur, sem er að
mestu ríkið, að ljúka. Lækn-
amir fengu einhverju af
launakröfum sínum fram-
gengt, en ekki er kunnugt
um að þeim hafi tekizt að
fá fram þær lagfæringar á
aðbúnaði, sem þeir æsktu.
Hér á landi hafa sjúkra-
Tóbakfrá USA
R. J. Reynolds Tobacco
Company, framleiðendur
Camel, Winston og Salem-
sígaretta, höfðu metsölu í
öllum þessum tegundum á
heimsmarkaðnum 1965 og
gefa R. J. Reynolds Tobacco
Company heiðurinn af því,
að framleiða þrjár mest
seldu tegundirnar af sígarett-
um í Bandaríkjunum. Til við-
bótar má geta jiess, að R. J.
Reynolds Tobacco Company
hefur haldið og styrkt mikið
stöðu sína, sem langstærsti
Eramh. á bls. 2
húsmál verið í hinni mestu
óreiðu um langa hríð. Vinnu-
laun handa því fólki, sem
gegnir einna mestu ábyrgð-
arstöðu sem um getur, i dag-
legu lífi, en það er að hjúkra
sjúkum, hafa verið skorin við
nögl. Mikil skipti eru stöðugt
á starfsfólki á spítölum og
mikið vantar á að sumt af
því megi teljast hæft. Alls-
konar mistök eiga sér stað í
meðferð sjúklinga og virðist
sumt af þvi fólki, sem tekið
hefir að sér hið göfuga hjúkr
unarstarf ekki gera sér ljóst
að til þess þarf meira en
kunnáttu. Hjartahlýja og góð
vild er oft meira virði fyrir
sjúklinginn, en færni við að
gefa sprautu.
Skortur á hæfu starfsliði
og skortur á sjúkrarúmum er
vandamál, sem þrúgað hefir
höfuðbörgina og raunar fleiri
landsbyggðir um áratugi.
Framkvæmdir og umbætur
í þessum málum hafa verið
látnar sitja á hakanum, sam
anber Borgarsjúkrahúsið
fræga. Geðsjúklingar fá ekki
næga umönnun og er um að
Framh. á bls. 4.
Hér er enn ein sönnunin fyr
ir ófremdarástandi því er
verðbólgan skapar. Félagssam
tök, sem komið hafa fleiru
góðu til leiðar en nokkur önn-
ur samtök í landinu, lenda í
vandræðum með eitt meðal-
stórt hús, vegna fjárskorts.
Konurnar, sem gengust fyr
ir byggingu Landsspitalans,
rekstri Hvítabandsins, bygg-
ingu fjölda barnaheimila, svo
nokkuð sé nefnt, lenda nú í
vandræðum með málefni, sem
allir hefðu átt að leggjast á
eitt um að koma í fram-
kvæmd.
Á sama tíma ris hvert stór-
hýsið á fætur öðru, stórhýsi,
sem byggð hafa verið af ein-
staklingum með fullar hendur
fjár, hafa risið af grunni á
örstuttum tíma. Þar hefur
hvorki vantað fé eða vinnu-
afl, en þar var líka gróðavon.
Konurnar hafa hins vegar leit
ast við að koma upp þessu
húsi fyrir eigið fé en ekki ann
arra og afleiðingin er sú, að
nú sitja þær eftir með sárt
ennið, en dómsmálastjórnin
fær nú húsnæði við sitt hæfi,
en eins og kunnugt er, er það
tízka á þeim bæ að leigja hús-
næði undir starfsemi sína, en
nota ekki aðstöðu sina til að
byggja húsnæði yfir skrifstof
ur hins opinbera.
Það er hins vegar ömurleg
staðreynd að kvennasamtökin
neyðast nú til að leigja hús
sitt út, í stað þess að nota
það sjálfar.
ÞÁTTUR ÚR SÖGV
VERÐBÓLGUNNAR
Hér er eitt áþreifanlegt
dæmi um ástandið í landinu.
Fjársterk fyrirtæki eru í eng-
Framh. á bls. 2
NÝJAR
AÐFERÐIR
OKRARA
Ótti afbrotamanna þeirra
sem nú mergsjúga þjóðfé-
lagið í skjóli lánsfjár-
skortsins hefir knúið þá til
nýrra aðferða í fjárplógs-
starfsemi sinni.
í vetur var sagt frá ein-
um þeirra, sem tók upp á
þelrri nýlundu að færa
viðskipti sin fram á næsfcu
öld.
Nú þora þessir menn
ekki lengur að fremja fjár
plógsstarfsemina á skrif-
stofum sínum, heldur aka
þeir í bílúm sínum upp í
sveit og gera viðskiptin
þar úti á grænu grasinu.
Þar er engin hætta á vott-
um og fórnardýrið er ofur-
selt svíðingnum, sem not-
Framh. á bls. 2
ÁFRAM BJARNI!
Algiör upplnusn í forustuliSi SfálfstœðisfloUksins -
Ósigur Geirs vurð sigur fyrir Bjarna og ósigur flohhsins.
Enn einu sinni hefir komið « Ijós, að völundarhús stjórnmálanna
er óútreiknanlegt.
f þetta sinn fór þó svo að kjósendurnir sjáifir gerðu strik
í reikninginn, en það var alls ekki ætlunin. Sýningartjaldið
var strengt og á því birtust myndir, sem nú, eins og áður,
áttu að nægja til að rugla og blekkja fólk, svo að það
skildi ekki hismið frá kjarnanum. Sýndarmennzkan hefir
fengið svar, bæði í borgarstjórn og ríkisstjórn. Spilaborgin,
sem stjórnmálamennirnir hafa verið að hlaða upp síðustu
áratugina er byrjuð að hrynja.
Ógn og skelfing ríkir nú í
herbúðum ríkisstjórnarinnar.
Þrátt fyrir fylgisaukningu Al-
þýðuflokksins, gera ráðherrar
hans, þeir Emil og Gylfi, sér
það ljóst að fylgisaukning
flokksins var ekki traustyfir-
lýsing til þeirra.
Hér voru aðrir menn að
verki, menn sem eru farnir
að sjá að forusta þeirra fé-
laganna hefir og mun leiða til
ófarnaðar flokksins.
Þeir sem gerzt vita, telja að
þeir félagarnir muni hafa ósk
að þess eins að kosningarnar
sýndu status quo. óbreytt á-
stand!
Þeir reyna að telja sjálfum
sér og öðrum trú um, að lif
Alþýðuflokksins sé undir því
komið að hann geti haldið
áfram að verða skósveinn
Sjálfstæðisflokksins 1 ríkis-
stjórninni. Fylgisaukning
komi þvi eins og „þjöfur úr
Framh. á bís. 2