Nýr Stormur - 10.06.1966, Side 3
FÖSTUDAGUR 10. júní 1966
3
LOG og RETTUR
Framhald af bls. 2.
komandi, t. d. með því að hafa áhrif á framkvæmda-
stjórn landsins, ellegar sniðganga skýlaus lagaákvæði,
ef svo ber undir.
Hér eru stjórnarskrárákvæði um verksvið dómstól-
anna þverbrotin..
Þegar þannig er málum komið mun draga að því, að
almenningur hljóti fyrr en síðar að andæfa og krefj-
ast þess, að breytt verði um stefnu í réttarfarsmálum
og þeim mönnum, sem gerzt hafa sekir um augljós
dómglöp víkji úr embætti og verði fengin önnur
störf, sem betur henta þeim!
— ffl
Það hefur löngum þótt óviðeigandi og jafnvel and-
stætt lögum, að gagnrýna dóma Hæstaréttar!
Hér er þó um reginmisskilning að rœða, því ef al-
menningi þykir dómstóllinn eigi fara að lögum, þá
ber hverjum og einum fullkominn réttur til að gera
aðfinnslur, enda vœri það óforsvaranlegt, ef œðsta
dómstóli landsins héldist það uppi að misþyrma réttar-
vitund þjóðarinnar, með hverjum þeim hœtti, sem það
annars vœri gjört.
Sjálf þjóðin vill búa við réttlæti, en foragtar rangs-
leitni í hverri mynd, sem hún birtist!
Þetta er mergurinn málsins — og þetta verða dóm-
stólar að skilja — hvað sem tautar!
Annað er ósvinna og verður eigi liðið!
Hver er Evans?
Hin fræga sakamálasaga
Agatha Christie
WHY DIDN’T THEY ASK EVANS?
er komin út á íslenzku
HVER ER EVANS er 320 bls. bók og kostar
kr. 113,00 með söluskatti.
riiistear —
Framh. af bls. 12.
verzlunardómi milli víxil-
skuldarans og eiganda mun-
anna, „á mál þetta eigi leng-
ur heima fyrir Hœstarétti. —
Ber því að vísa þvi frá dómi.“
Samkvæmt ofangreindu er
augljóst að mál þetta hefur
þó einhvern tíma átt heima
fyrir Hæstarétti, en eftir að
þeir aðilar, sem eigandi mun
anna taldi hafa traðkað á
rétti sinum höfðu læðupokast
upp í fógetarétt og meira að
segja eftir að þeim hafði rétti
lega verið stefnt til Hæsta-
réttar, þá er málinu vísað frá
og eigandinn jafnframt dæmd
ur til að greiða aðeins einum
af þremur stefndu málskostn
að! Tekið skal fram, að það
var ekki sá sem á í máli við
eigandann fyrir sjó- og verzl-
unardómi, heldur annar lög-
fræðinganna Enginn grein er
gerð fyrir þessu atriði og
er engin leið að skilja
hvað Hæstiréttur meinar með
því, að láta þann sem leitar
réttar síns á löglegan hátt
verða að kosta allan mála-
reksturinn, sem skiptir þús-
undum króna, auk þess sem
hann er dæmdur til að greiða
einum hinna stefndu kr. 6000
í málskostnað. Hafi málið ekki
átt lengur heima fyrir Hæsta-
rétti — þá hlýtur það sam-
kvæmt þessu orðalagi að hafa
átt þar einhvern tíma heima,
hvað sem öðru líður — og það
var áður en hinir stefndu máls
aðilar gerðu upp sín á milli
og leystu fjárnámið af eign
um áfrýjandans. Nú er spurn-
ingin: „Hvers á sá að gjalda,
sem skv. þessu hefur rétti-
lega höfðað mál fyrir Hæsta-
rétti og ekkert annað er til-
komið en að hinir stefndu
höfðu leyst fjárnámið af eign
unum löngu EFTIR að málið
var höfðað fyrir Hæstarétti,
og sá sem áfrýjaði er síðan lát
inn bera kostnað af öllu mál-
inu, sem var mjög mikill og
skipti mörgum þúsundum
króna?“! — Getur hver sem
er skv. þessari dómsniður-
stöðu Hæstaréttar bent á
Morgunblaðshöllina til fjár-
náms fyrir skuldum sínum og
síðan leyst fjárnámið af Höll
inni seinna og eftir áfrýjun,
eigi að síður látið Mogga
borga brúsann af slíkum að-
förum?!!
Ef til vill verður ofangreind
ur dómur Hæstaréttar tekinn
rækilegar til meðferðar síð-
ar í blaðinu ásamt fleiri furðu
dómum, en það er svo önnur
saga.
Gengislækkun —
Framh. af bls. 2.
endasambandinu íslenzka! —
Kveður Benedikt það hafa
verið sitt verk (og Alþýðu-
flokksins) að koma í veg fyrir
að slíkt mætti takast. Þá segir
greinarhöfundur enn fremur
að Álbræðslan gæti styrkt
mjög samtök vinnuveitenda,
starfsfólk Álbræðslunnar verð
ur íslenzkt og myndi því að
sjálfsögðu vera í íslenzkum
verkalýðsfélögum — en hér
á landi séu stöðug átök milli
verkalýðshreyfingarinnar og
vinnuveitenda um kaup og
kjör. — Nú leyfir Nýr Stormur
að læða þeirri látlausu spurn-
ingu inn í þetta mál: „Hvern-
ig stendur á þessum sífelldu
átökum milli íslenzks verka-
lýðs og íslenzkra vinnuveit-
enda um kaup og kjör — ef
allt er í himnalagi í efnahags-
málum þjöðarinnar — eins og
ríkisstjórn og stjórnarflokkar
hafa ávallt haldið fram?“ —
Hefur stjórnarliðið ef til vill
ekki ávallt sagt sannleikann
í þessum efnum, þegar mál-
gögn þess hafa haldið því
sýnkt og heilagt fram, aö við-
reisn og velmegun færi blóm-
strandi og hefði gert allt frá
því stj órnarf lokkarnir tóku
við völdum fyrir sjö árum?!
Eða er það einungis Benedikt
Gröndal, sem óvart hefur nú
hlaupið á sig — aldrei þessu
vant?! — Máske að almenn-
ingur fari að sjá hvað upp
snýr áður en lýkur — og taki
eftirleiðis með varúð allar full
yrðingar ríkisstjórnarinnar
um „heilbrigt og batnandi
efnahagslíf þjóðarinnar ís-
lenzku“?!
Ef hins vegar væri betur
skyggnst inn í launastíga þá,
sem stjórnarflokkarnir hafa
hingað til gengið, mætti
kannske sjá glitta í ljósið frá
þeim grútarlampa, sem nú á
að bregða upp á baðstofuloft
íslenzks almennings á næst-
unni. Þegar stjórnarflokkarn-
ir hafa einangrast í sinum
eigin blekkingarvef — og
verkföll — kauphækkanir —
og vaxandi vöruverð fer að
segja til sín, þá mætti ætla
að stjórnin reyndi enn að
grípa til einhverra ráða til að
geta eilítið lengur setið við
„völd“ á íslandi. '— Trúlega
myndi það henta einkar vel,
að geta bent almenningi á þá
staðreynd — AÐ ALLT VÆRI
SVO SEM í HIMNALAGI —
þrátt fyrir gengislækkun, sem
óhjákvæmilega myndi sigla í
kjölfar nýrra kauphækkana
og vaxandi vöruverðs — því
atvinnumöguleikarnir hefðu
sízt rýrnað, né kaupmáttur
launþega — þar eð Álbræðsl-
an væri þá orðin allra meina
bót — og ekkert væri að ótt-
ast í sambandi við efnahags-
líf þjóðarinnar!! — Aðeins
eitt er eftir — skyldi íslenzka
þjóðarheildin enn láta blekkj-
ast um sinn? Mörgum mun þó
sýnast mál sé að linni . . . !
Núverandi ríkisstjórn og
stuðningsflokkar hennar á
Alþingi eiga nú bráðlega í
vændum að fá að standa
frammi fyrir íslenzkum kjós-
endum — þar sem þeir loks
neyðast til að gera íslenzku
þjóðinni skil þeirra gífurlegu
skulda, sem ógoldnar eru enn
— og þá er hætt við grið-
rofum milli núverandi stjórn-
valda og íslenzks almenn-
ings . . . ! Hætt er við að
ekki náist fullar sáttir strax
með þessum aðilum — þeg-
ar endanlegt uppgjör liggur
fyrir..
„Dragbítar í íslenzku þjóðlífi"
Framh. af bls. 5.
arheildin öðlast örugga forsjá. Þá fyrst er þess að vænta að
hún muni geta lifað ánægð í ríki hagsældar við eðlilegar og
jafngóðar aðstæöur. Illu heilli hafa nokkrir frekir og skamm-
sýnir sérgæðamenn náð æðstu völdum innan allra íslenzku
stjórnmálaflokkanna, en hinir þroskaðri velvildarmenn al-
þýðunnar hafa hvergi komizt að stjórnvellinum. Þeir bíða
samt þolinmóðir álengdar — reiðubúnir hvenær sem kallið
kemur frá fjöldanum. — Blekkingar, lygar og auðsæld hafa
fleytt skuggasveinum til valda — en vonandi verður þess
eigi langt að bíða, að þessir dragbítar í íslenzku þjóðlífi
hverfi á burtu með óheillaverkum sínum. Allt bendir til að
svo verði í náinni framtíð og vonandi fer að rofa til í þessum
málum.
Síðar mun Nýr Stormur gera þessu máli nánar skil og þá
reyna að færa rök að því, hverjir þurfi og verði að hverfa
úr forustu stjórnmálaflokkanna — og hverjir séu liklegastir
til að koma i staðinn!
imiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiijiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiriiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
I Orðskviðir |
Því aö speki mun koma í hjarta þitt
og þekking veröa sálu þinni yndisleg;
| aðgætni mun vernda þig
og hyggindin varðveita þig, —
| til þess að vernda þig frá vegi hins illa,
frá þeim mönnum, sem fara með fals,
| sem yfirgefa stigu einlægninnar
og ganga á vegum myrkursins,
| sem hafa gleði af því að gjöra illt.
Orðskviffir Salomons |
ef hún væri þar aðili, þvi njiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiii