Nýr Stormur


Nýr Stormur - 10.06.1966, Qupperneq 4

Nýr Stormur - 10.06.1966, Qupperneq 4
FÖSTUDAGUR 10. jónf 1966 ! Ódeigur skrifar pistiíinn: Nú hefur hin nýkjörna borgarstjórn Reykjavikur komið saman til fundar i fyrsta sinn----og þá þyk- ir mér rétt að gjöra grein fyrir sjónarmiðum mínum í sambandi við hin nýju viðhorf, sem skapast hafa — þegar litið er til kosn- ingaúrslitanna í heild. Einkum þykir mér rétt og sjálfsagt að víkja nokkrum orðum að því, sem mestu máli skiptir, en þaö eru lof- orð allra þeirra flokka, sem höfðu lista í kjöri til þess- arra kosninga í Reykjavík. Almenningur á heimt- ingu á því, a'ð gjört sé aimað og meira heldur en að gefa gullin loforð fyrir kosningar, þvi loforðin verður að efna! Rétt er að gefa lesend- um nokkra innsýn í það, sem fylgir réttindum og skyldum þeirra frambjóð- enda, sem náð hafa kjöri til borgarstjórnar! Borgarfulltrúastöðunnl fylgir annað og meira held- ur en að mæta á borgar- stjórnarfundum — og deila þar um menn og málefni, — eða skiptast á skoðun- um í sambandi við fram- kvæmd verkefna sem fyrir liggja hverju sinni! Það er kölluð borgaraleg skylda, að taka kjöri í borg- arstjórn; / þeirri skyldu fellst sá ábyrgðarhluti, að gœta hagsmuna borgarbúa í öll- um atriðum, sem snerta borgarmálefnin Þar á móti hafa fulltrú- amir svo rétt til að láta sannfœringu sína ráða um lausn málefnanna — en þó innan þess ramma, sem þeir sjálfir hafa gefið lof- orð fyrirfram um! ¥ A ♦ * „Allir stjórnmálaflokkarnir sammála í Reykjavík..!!“ Verður að ætla, að sú meginregla gildi hér, að sérhver kjósandi hafi ljáð atkvæði sitt í þeim til- gangi------og til að stuðla að því, að sá flokkur sem hann hefur kosið — hafi hlotið atkvæðið vegna trausts kjósandans á því, að byggja megi á því, að þeim stefnuskráratriðum sé framfylgt, sem fyrir lágu — áður en kjör full- trúanna fór fram! Nú hafa allir fjórir stjórnmálaflokkarnir birt fyrir kosningarnar ákveðna stefnuskrá — og allir fram bjóðendur orðið sammála um framkvæmd hennar — — eftir því sem þeir frekast hafa bolmagn til-----mið- að við kjörfylgi og fulltrúa- tölu í borgarstjóm! — Það er óþarft og langt mál að birta hér stefnu- skrár allra flokkanna, enda tel ég þess ekki þörf. Því hefur verið gerð nægi leg skil í flokksblöðunum fyrir kosningar — og ein- mitt þar hefur hver og einn kjósandi átt þess kost, að kynna sér þau til hlítar! Ég læt því nægja að víkja að þeim staðreyndum —, sem mestu skipta máli — og telja verður megingrund völl! Sj álfstæðisflokkurinn gaf að venju út sína Bláu bók, þar sem flokkurinn greindi stefnumál sín----------og loforð um ákveðnar og fyr- irhugaðar framkvæmdir, sem hann kvaðst myndu hrinda áfram og standa við — ef hann fengi nægilegt kjörfylgi — og næga tölu borgarfulltrúa til að stjórna á eindæmi málefn- um borgarinnar næsta kjör tímabil! Góðu heilli fór svo, að Sjálfstœðisflokkurinn fékk nœgilegt hlutfallslegt traust til að fara einn með stjórn borgarinnar nœstu fjögur árin! ¥ * ♦ * „Nú er allt komið í ein- daga . . . bæði gömul og ný kosningaloforð ... “ ! Það eru staðreyndir, að þessi flokkur — sem hefur stjómað um fjörutíu ára bil — hefur eigi staðið fylli lega í stykkinu — og fer víðs fjarri að hann hafi til fulls efnt öll kosningaloforð sín . — Þeim mun írekar verð- ur hann að gjöra betur nú — ef bæta á upp allt það sem á vantar — auk þeirra viðbótarloforða, sem nú voru gefin! Aldrei hefur það skeð fyrr, svo ég muni, að and- stöðuflokkarnir hafi allir orðið sammála í megin- máli — en það skeði nú — því þeir urðu á eitt sáttir um það — — með Sjálf- stæðisflokknum — að fela honum meirihluta í borg- arstjórn--------gegn því einu fororði þó — að hann stœði í einu og öllu við gef- in kosningaloforð! Minnihlutaflokkarnir gerðu nú ekki kröfur til þess, að kjósendur felldu meirihlutastjórn Sjálfstæð isflokksins-----heldur ein ungis lofuðu því, að veita meirihluta Sjálfstœðis- flokksins i borgarstjórn nauðsynlegt og aðkallandi AÐHALD í sambandi við alla framkvœmd borgarmál efnanna! Alþýðubandalag, Alþýðu- flokkur og Framsóknar- flokkur voru hér á einu máli------og er það vel! Þessir þrír flokkar gerðu eigi kröfur til kjósenda um að veita sér brautargengi til að fella meirihluta Sjálf stæðisflokksins að þessu sinni-----heldur brýndu kjósendur á þvi einu að veita meirihlutanum verð- uga áminningu-------með því að RÝRA kjörfylgi Sjálf stœðisflokksins-----en að sama skapi að ATJKA kjör- fylgi minnihlutaflokkanna, svo þeir fengju nægilega marga fulltrúa til þess að veita öflugt AÐHALD þeim flokki, sem krafðist þess, að fá enn einu sinni hreinan meirihluta borgarfulltrúa til. að stjórna borginni nœsta kjörtímabil! Reyndin varð og sú, að kjósendur hlýddu kallinu og juku kjörfylgi minni- hlutaflokkanna — að sama skapi og þeir rýrðu fylgi Sjálfstœðisflokksins! V A ♦ * „Hagkvæmari úrslita var alls ekki aS vænta...! “ Mjótt var á mununum, því aðeins skorti Framsókn arflokkinn tæp 400 atkvæði til að fella meirihlutavald Sj álf stæðisf lokksins! Forlögin urðu jhins vegar öllum flokkunum velviljuð — og nú hefur Sjálfstæðis- flokkurinn einungis eins atkvæðis mun í borgar- stjórn Minnihlutaflokkarnir voru enda ekki undir það búnir að taka við stjórn borgarinnar — — og bjuggu sig heldur ekki und ir slíkt. Úrslit kesninganna gátu því alls ekki orðið betri og hagkvœmari, heldur en raun varð á! Borgarbúar mega því sannarlega fagna úrslitum kosninganna! Ef allt fer sem lofað er — — og ætla má að ó- reyndu,-----þá ætti vissu- lega meira og farsælla starf að vera unnið í þágu borg- arbúa á næsta kjörtíma- bili — heldur en nokkru sinni fyrr! Kosningaúrslitin hafa hins vegar lagt öllum stjórn málaflokkunum ríkar skyld ur á herðar! Aldrei áður hafa borg- arar Reykjavíkur mátt vera vonbetri um heilladrjúga stjórn en á komandi og ný- byrjuðu kjörtímabili! Það er þetta marglofaða AÐHALD minnihlutaflokk- cmna, sem hlýtur að vera mest fagnaðarefni kjós- endum! Það eru brigður — ef ekki verður staðið við gef- in loforð um strangt og ná- kvœmt AÐHALD gagnvart meirihlutanum! Það væru og stærri svik við reykvíska borgara — en nokkru sinni fyrr — ef Sj álfstæðisflokkurinn hvarflaði frá loforðum sín- um núna-------þegar þess er gætt, að minnihluta- flokkarnir eru allir sam- mála um að leyfa Sjálf- stœðisflokknum að stjórna borginni — — í trausti þess, að hvergi vœri kvikað frá því að vinna verkefn- in af kostgœfni — sem flokkurinn hefur tekizt á hendur að framkvœma Að öðrum kosti myndi Sjálfstæðisflokkurinn gjör- samlega bregðast trúnaði við reykvíska kjósendur — — og raunar einnig forustu minnihlutaf lokkanna! ¥ * ♦ * „Allir flokkarnir hafa feng- ið traust... og bera sam- eiginlegar skyldur...! “ Honum yrði alls ekki treystandi oftar — ef út af vœri brugðið i þessum efn- um! Þar á móti verða og hljóta minnihlutaflokkarn- ir ALLIR að gjöra það, sem þeir hafa tekið að sér — — og veita meirihlutanum öflugt AÐHALD svo sem þeir hafa lofað að gjöra! En hvernig verður þetta AÐHALD bezt framkvæmt? Það er auðvelt að gera grein fyrir því? Borgarfulltrúar eru skyld ugir til að gegna hlutverki sinu á raunhœfan hátt og með skynsamlegum aðgjörð um. Þessi skylda er i þvi fólg in, að fylgjast með öllum málefnum og framkvœmd- um borgaryfirvaldanna! Sérstaklega ber minni- hlutafulltrúunum að rœkja þessa skyldu sina — með þvi að afla sér nauðsyn- legra upplýsinga um ALLT það, sem lítur að borgar- stjórninni i smáu og stóru! Þetta verður einungis gert með þvi að kynna sér alla framkvœmdastjórn borgarinnar og þá sérstak- lega starfsemi og fjármála- rekstur hinna einstöku em- bœttismanna borgarinnar! Það er og réttur og skylda borgarfulltrúa að fylgja fast eftir í þessum efnum — þvi annars . er ekki um að rœða NAUÐ- SYNLEGT AÐHALD! Borgarfulltrúar minni- hlutans verða að skilja það — að með kjöri sinu hafa þeir ekki aðeins öðlast rétt til setu i borgarstjórn — heldur miklu frekar TEK- IÐ AÐ SÉR ÞÁ SKYLDU, að vera hvarvetna á verði gagnvart embœttisrekstrin um sjálfum og FJÁRMÁLA STJÓRNINNI Þetta starf verður eigi framkvæmt með öðrum hætti heldur en þeim, að KYNNA SÉR ALLAN BORG ARREKSTURINN AF EIG- IN RAUNH V A ♦ * „Borgarfulltrúar minni- hlutans verffa að fylgjast persónulega meff öllum borgarrekstrinum ...! “ Það er alls ekki nóg að spyrjast fyrir--------og heyra svo borgarstjóra segja frá!! Fulltrúar minnihlutans verða að leggja það á sig — að VERA SJÁLFIR Á VERÐI — með því bókstaf lega að SITJA YFIR EM- BÆTTISMÖNNUNUM OG UNDIRMÖNNUM ÞEIRRA og FARA í GEGNUM ALLT BÓKHALD OG SKRÁNING AR hinna ýmsu deilda fram kvœmdarstjórnar borgar- innar! Síðast og ekki síst, að AFLA SÉR PERSÓNULEGA ALLRA UPPLÝSINGA UM FJÁRREIÐUR BORGAR- INNAR! Til þess að þetta komi að gagni, þá verða borgar- fulltrúar minnihlutans að skipta með sér verkefnum ----eða vinna þau á víxl! Borgarfulltrúum er skylt að vinna öll þessi verkefni af nákvœmni og natni, ef vel á að vera — og til þessa hafa þeir lagalegan rétt og skyldu! Óráðsía og bruðl með fé borgaranna verður eigi upprætt nema til komi slíkt eftirlit — sem l raun réttu er hið nauðsynlega AÐHALD! Það þarf að fylgjast ræki lega með því, að starfs- menn borgarinnar vinni verk þau, sem þeir þiggja kaup fyrir----en séu ekki að slugsa hér og þar í iðjuleysi — eða við einka- mál sin! Það þarf að yfirfara gaum gæfilega alla starfsemi Gjaldheimtunnar — varð- andi innheimtu og gjöld borgaranna — og fyrir- byggja, að mönnum sé mis munað í þessum efnum! Það er ekki nægjanlegt að spyrja Gjaldheimtu- stjóra um eitt eða annað — heldur verður að afla upplýsinganna úr fyrirliggj andi gögnum í bókum og öðrum skjölum! í einu orði sagt---þá þarf hvers konar gagn- rýni á stjórn borgarmál- anna að BYGGJAST Á EIG IN KYNNUM borgarfulltrú anna sjálfra, en ekki sögu sögnum meirihlutans á borgarstjórnarfundum — ----engu þarf að leyna!! ÓDEIGUR i Í ♦ ♦

x

Nýr Stormur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýr Stormur
https://timarit.is/publication/793

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.