Nýr Stormur


Nýr Stormur - 10.06.1966, Blaðsíða 9

Nýr Stormur - 10.06.1966, Blaðsíða 9
g FQSTUDAGUR 10. júiaí 1060 t>.."— “ MANNKYNS SAGA í dagblaðsfprmi Skyldur og réttindi Saurfélagi vorra daga má líkja við Pýramída, þar sem kon- ■ungurfam situr á efsta tindi. Þrepi neðar standa svo lénsmenn hans, stærri og minni. Síðan kemur svo aðallinn, lénsmenn léns- mannanna. Grunnurinn samanstendur síðan af hinu frjálsa fólki, fófki sem leysir af þau störf í þjóðfélaginu, sem vinna skal. I konunginum er ekki aSeins að finna hinn æðsta lénsmann, heldur og hinn æðsta dómara, verndara kirkjunnar og hinna vamarlausu og verndara hins innri friðar. Embætti konungsins fær sérstaka þýðingu með hinni hátíðlegu krýningu: hinn æðsta af lénsmönnunum verður á þennan hátt „konungur af guðs náð“ (Dei gratia). Vorir tímar sakna höfuðstaðar í fornri merkingu — Róm í ítalíu, Aþenu í Grikklandi. Konungurinn er venjulega á ferðalagi milli borga eða konungs- gaTða, þar sem hann dvelst skemmri eða lengri tíma, til að fylgj- ast með framleiðslu þegnanna og sjá um að skattar og aðrar skyldur séu réttilega af hendi leystar, kveða upp dóma og sinna öðrum stjómarstörfum. Venjulega er íbúum landanna skipt niður í þrjár stéttir. — Geistlega stéttin, klerkar og kennimenn sjá um hið kristilega uppeldi og lifa samkvæmt því. Aðallinn, sem hefir hin veraldlegu völd í höndum og hið vinn- andi fólk, sem hefir næstum því engin pólitísk réttindi. Hvað réttarstöðu íbúa landanna viðkemur, er um að ræða mjög skýrar Iínur meðal vissra stétta. Pullkomlega réttlaus eru þræl- amir, sem að vísu eru í minnihluta víðast hvar. Þræl má selja og kaupa að geðþótta eigendanna; hann er aðeins vinnudýr og er refsað án nokkurs réttlætis, ef eigandanum býður svo við að horfa. Verði frjáls maður þræli að bana, ber honum að gjalda skaðabætur, en að sjálfsögðu ekki fjölskyldu þrælsins, hfiídur eigandanum. Brjóti þrællinn af sér, ber hann sj&lfur ekki ábyrgðina, heldur eigandinn. Þrældómur er ekki sama og ánauð. Herramaðurinn hefir ekki óskertann rétt yfir hinum ánauðugu, sem eru hálf- frjálsir landsetar. En allt sitt líf er hinn ánauðugi bundinn til að yrkja jörð herra síns og skyldan færist yfir á herðar afkom- endanna. Þessi skylda er auðvitað gerð með það fyrir augum að veita landeigendum ódýrt vinnuafl, til þess að geta greitt leiguna af lénunum. Hinir ánauðugu mega ekki selja eignir sínar eða arfleiða þær öðrum. Ofar hinum ánauðugu standa svo hinir frjálsu bændur. Enn aðeins á fáum stöðum í Ölpunum hafa bændurnir algjörlega frjálsar hendur með sína jörð og afrakstur hennar, en allstaðar annarsstaðar verða bændur að greið lénsherrunum skatta. Auk þess verða þeir víða að vinna ákveðin dagsverk á höfuðbólunum eða greiða jarðrentu. Frelsi þeirra er einkum fólgið í því að þeir mega selja og kaupa jörð í samráði við lénsherrann. Hinn félagslegi munur, sem er á stöðu aðalsmanna og bænda, kemur fram í mörgum myndum. Það sem einum er leyfilegt, er ef til vill öðrum bannað. Til dæmis er veiðirétturinn einungis fyrir aðalinn og ver hann þessi réttindi sín af mikilli hörku. Þung viðurlög eru bændum og öðrum gerð gegn því að veiða villt dýr og er þeim bannað að eiga boga og örvar, dýragildrur og veiðihunda. Hirtir, villisvín og rádýr mega ganga á jörðum bændanna, án þess að við þeim verði stuggað, og skiptir þá engu þótt þau traðki niður og eyðileggi uppskeruna. Jafnvel er sumsstaðar aðlinum einum leyfilegt að ala kanínur og dúfur. Réttindi borgarbúa eru annars eðlis en bændanna. Sumar borgir hafa eigin stjórn og lög, meðan aðrar heyra undir krún- una og lénsherrann. 1 stórum dráttum má segja að borgarbúar njóti meiri réttinda en bændur. Lægri aðallinn, hinir minni lénsherrar, sem hafa lén sín af öðrum lénsherrum, eru bundnir þeim en ekki konunginum. Milli konungs og kirkju er venjulega gott samkomulag. Kirkj- an tekur ekki á vorum dögum — þrátt fyrir auðæfi sín — ekki mikinn þátt í veraldlegum málum. Vald páfadómsins er að vísu míkið í afgerandi málum, en hinar ýmsu kirkjur hinna ýmsu þjóðlanda, styðjast að mestu leyti við hið þjóðlega veraldlega vald og sumstaðar eru háttsettir kirkjunnar menn í ráðum með hin- um veraldlegu þjóðhöfðingjum. Eins og sjá má, er skyldum samfélagsins deilt á h 'gs- meðlimina, þótt réttindunum sé að mestu skipt a fárra manna hendur. Rögnvaldur jarl klippir hár Haralds hárfagra Haraldur háríagri lætur klippa sig Sór að hann myndi hvorki skera hár sitt né skegg fyrr en hann hefði náð undir sig öllum Noregi. Lúna sigruð — Framh. af bls. 8. hefði verið sú að taka kristna trú og fá kristilega greftrun. Innrás í kirkjuna Eftir þetta álitum við, að hark an hefði brunnið upp. Eftir nokkrar viðræður fengu víking- arnir leyfi ti lað bera hinn dauða höfðingja sinn upp í stærstu kirkju borgarinnar, þar sem biskupinn hafði á meðan safn- að saman íbúum borgarinnar til að vera vitni að því, hvern- ig sannleikurinn nær að lokum jafnvel hinum daufustu eyrum, og hvernig iðrun og yfirbót get- ur jafnvel náð til hinna forhert- ustu. Börur höfðingjans voru skreyttar fögru klæði og settar fyrir framan háaltarið og hinir hraustu hermenn stóðu hljóðir og kyrrir fyrir framan altarið, meðan biskupinn gekk fram til að syngja hina heilögu messu. Einmitt á því andartaki spratt Hasting upp frá bör- unum, kastaði líkklæðunum til hKðar og klauf enni bisk- upsins með öxi sinni. Lamað- ir af ótta stóðu borgarbúar þétt saman í kirkjunni, með- an víkingarnir drógu upp vopn sín undan skikkjunum og réð- ust á varnarlausa kirkjugest- ina. Margir menn, konur og börn, voru drepin og limlest er víkingarnir brutu sér leið út úr kirkjunni. Þeir geystust niður göturnar að ströndinni, en rændu verzlanirnar á leið- inni og fóru með þungar byrð- ar af allskonar verðmætum, niður að herbúðunum í gegn- um borgarhliðin. Þaðan hlupu þeir svo niður að skipunum, sem voru reiðubúin til að sigla, áður en borgarbú- ar kæmu því við að ná vopn- um sínum og veita þeim eftir- för. Þrátt fyrir að tjón borgarinn- ar yrði í raun og veru lítið, hefir þetta þó verið óhugnan- legur atburður. Afleiðingamar eru auðvitað smávægilegar á móts við það sem hin norðlæg- ari lönd hafa orðið að þola. ísland fundlff — Framh. af bls. 8. marsson. Þeir urðu ósáttir við sonu Atla jarls á Gaulum og felldu tvo þeirra í orrustu. Náðu þeir sættum við jarlinn, en létu eignir sínar í sonarbætur. Þeir fóstbræður bjuggu þá skip mik- ið, er þeir áttu, cg fóru að leita Iands þess, er Hrafr.a-Flóki hafði fundið og kallað var Is- land. Þeir fundu landið og voru á Austfjörðum í Álftafirði hin- um syðra um veturinn, en fóru síðan aftur til Noregs, til að und irbúa för sína og sinna til lands- ins. Hjörleifur kvæntist Helgu systur Ingólfs. Þeir mágar bjuggu síðan skip sitt til ís- landsferðar og létu í haf sum- arið 870 eða 871 að tölu Ara fróða, en 874 að sögn Landnámu Island var albyggt á 60 árum. Fyrst framan af komu menn á stangli, en er Haraldur konung- ur hárfagri tók i alvöru að beita ofriki sínu við landslýðinn, holdu margir það illa og stukku úr landi. Fóru þá margir frá Harahlur hárfagri, sonur Hálfdáns Svarta konungs í Vest foldu og dóttur Sigurðar Hjörts, hefir nú í mikilli sjóorrustu í Hafursfirði sigrað mótstöðu- menn sína, svo að hér eftir er ekki búist við að hann mæti meiri mótspyrnu í Noregi. Frá Vestfoldu ákvað Haraldur konungur að berjast fyrir því að sameina og leggja allan Nor- eg undir sig og hefir barist ár eftir ár með stöðugt meiri ár- angri. I baráttunni notaði hann öll meðöl, þrátt fyrir að hann er mjög norrænn í öllum háttum, Noregi til íslands, þar til er Har- aldur konungur bannaði, af því að honum þótti landauðn nema. Sættust menn á það, að hver maður skyldi greiða konungi gjald, er hingað færi, og var það upphaf að gjaldi því, er seinna var kallað LANDAURAR. Kon- ungur undi því illa, að svo marg ir þegnar hans vildu flytjast burtu, og vildi því ná yfirráðum vfir landinu. Uni Garðarsson var þá send- ur til fslands og skyldi freista bess að leggja undir sig landið. og tækist honum það hafði kon- ungur heitið honum að gera hann jarl sinn. Þegar landsmenn vissu ætlun hans. tóku þeir að ýfast við hann og vildu ekki selja honum kvikfé eða vistir, svo hann fékk eigi við haldist ng var hann að lokum drepinn. Um 890 var mest útstreymi til landsins. Kom þá fjöldi manna vestan um haf. er um lengri eða skemmri tíma höfðu dval- ið á írlandi. Skotlandi eða Vest- urhafseyjum. Byggðust þá heil héruð svo að segja í einni lotu. séð frá evrópsku sjónarmiði. — Meðal annars á hann níu kon- ur, og yfirgengur þar alveg sjálfa múhammeðstrúarmenn- ina, sem aðeins mega hafa fjór- ar konur. Fjöldi norskra smákonunga sameinuðust gegn honum og þeir fengu aðstoð frá frjálsum norsk um konungsdæmum í Skotlandi og írlandi. En Haraldur hefir sigrað og það er bersýnilega lokasigur hans: Enginn getur veitt honum andspymu í Noregi í dag. Þau ár, er konungurinn hefir unnið að þessu lífstakmarki sínu hefir hann hvorki látið skera hár sitt eða skegg, vegna þess að hann hafði svarið að gera hvorugt þar til hann hefði náð undir sig öllum Noregi. Það færði honum nafnið „Haraldur hinn hárfagri“. Það hefir verið tilkynnt nú í kvöld að hann hafi látið skera hár sitt og skegg, en hinir áköfu fylgismenn hans hafa þó ákveð ið, að hann skuli áfram bera nafnið „Haraldur hárfagri“. Hinn mikli víkingur — Framh. af bls. 8. Viðurnefni hans „loðbrók" er þýtt sem loðnar buxur, sé í sam bandi við ævintýri hans með norskri höfðingjadóttir. Með fráfalli Ragnars, er hinn vestræni heimur laus við óttann af hinum herskáa víkingi, sem kunni að nota sér öll tækifæri til hlýtar og hlýfði engu. En í umhverfi York eru menn ekki eíns rólegir. Eftir norrænni venju er föðursins hefnt og menn telja hyggilegt að vera við því búnir að synir Ragnars láti sjá sig næsta sumar, eða innan fárra ára.

x

Nýr Stormur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýr Stormur
https://timarit.is/publication/793

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.