Nýr Stormur


Nýr Stormur - 02.12.1966, Síða 2

Nýr Stormur - 02.12.1966, Síða 2
 %RNUR Föstudagur 2. desember 1966 A A *> ❖ Framburður vitna Nýjum Stormi þykir rétt að birta í þessum dálki örfá atriði um mjög merkilegt málefni, en það er hvert gildi framburður vitna hefur fyrir dómi. Eini íslendingurinn sem vitað er til, að ritað hafi um þetta mikilsverða málefni mun vera próf. Símon Jóh. Ágústsson og af því tilefni leyfir blaðið sér að taka hér fyrir örfá atriði úr Úlfljóti 1. tbl. 1961, en þar birtist stór- fróðlegt erindi um þetta mál eftir próf. Símon, en hér verður aðeins stiklað á stóru: Próf. Símon segir svo m. a.: „Langt er raunar síðan — og vissulega lengra en rakið verður — að menn veittu því eftirtekt, að því fór fjarri, að öll vitni væru jafntrúverðug. Þannig er langt síðan menn voru á verði gegn framburði vilhallra og fjandsamlegra vitna, ennfremur gegn framburði áberandi vangefinna manna, ótvírætt geðveikra manna, svo og ungra barna, sem mikið skortir á, að náð hafi fullum skynsemisþroska. Hitt var mönnum miður ljóst, hversu valt er oft að treysta fram- burði þeirra vitna, sem gera sér allt far um að segja satt, eru geðheil, fullvita og ekki vanhæf til vitnisburðar sakir bemskuóra né elliglapa. Það var ekki fyrr en á seinnii hluta 19. aldar, að farið var að gera skipulegar rannsóknir á þessu sviði 0-0-O-0-0 - ; Brautryðjandi í rannsóknum á framburði vitna var Austur- ríski lögfræðingurinn Hans Gross. Höfuðrit hans eru Hand- bók handa rannsóknardómurum, og Afbrotasálarfræði. Bæði þessi rit hfa verið þýdd á ýmis tungumál og hafa þau komið út í fjölmörgum og breyttum útgáfum, jafnvel eftir hans daga. í Afbrotasálarfræði sinni sýnir Gross fram á með fjöl- mörgum sönnum dæmum, hversu torvelt er oft að dæma um sannleiksgildi framburðar vitna. En þótt Gross sé venjulega talinn upphafsmaður fræðilegra rannsókna á þessu sviði, á þessi sérgrein hagnýtrar sálarfræði öllu meira að þakka tveimur ágætum sálfræðingum, öðrum frakkneskum, en hin- um þýzkum, þeim Alfred Binet og William Stem. 0-0-O-0-0 Ég dreg nú að lokum fram nokkur atriði, sem sérstaklega þarf að hafa í huga, þegar meta skal framburð vitna: 1. Mikilvægt er að vita, hvort framburður vitnis um eitt- hvert atriði er fenginn með frjálsri frásögn þess eða sem svör við spurningum; og ef um er að ræða hið síðarnefnda, er áríðandi að vita orðalag spurninganna. Spurning og svar eru ein heild. Yfirheyrslur um mikilvæg atriði skulu bók aðar orðréttar, en ekki dregnar saihan og endursagðar, e. t. v. með orðum, sem vitnið tekur sér aldrei í munn, eða leggur óljósari skilning í. 2. Eftir því, sem unnt er, verður að reyna að komast að því, að hve miklú leyti framburður vitnisins er byggður á skynreynslu þess og að hve miklu leyti það hefur orðið fyrir áhrifum frá öðmm. Gefa skal vandlega gaum að öll- um þeim hvötum, sem leitt geta vitnið til hlutdrægrar eða rangrar frásagnar og til þess að segja vísvitandi ósatt. 3. Þegar dæma á gildi framburðar vitnis um sérstakt og mikilvægt atriði, skal, ef þess er kostur, prófa með tilraun- um gildi framburðar þess um lík atriði. Vitni, sem þykist t. d. hafri heyrt hljóð af ákveðnum styrkleika i 50 m. fjar- lægð, en nemur það ekki við tilraun í 10 m. fjarlæggð; vitni, sem staðhæfir, að stúlka hafi verið í bláum kjól, en þekkir ekki við tilraunir aðallitina, er lítið sem ekkert að treysta. Við sálfræðilegar athuganir getur einnig óvenjulega gott minni og frábær athugunarhæfileiki komið fram hjá vitninu. Ótrúlegt má t. d. virðast, þótt þess séu dæmi, að maður. sem einungis hefur staldrað við örfáar sekúndur í stofu, ? Framh * ^ sf?!u. Þjófnaður í Framh. af bls. 1. Skipafélögin hafa gefist upp við að hafa eftirlit með mönn um sínum, en vörusendingar, sem ekki eru heilar, er þær koma upp úr skipunum, eru venjuiega sendar í sérstakt „tugthús“ eða í sér vöruskála, þar sem þær eru yfirfamar. Það virðist því vera vöm- húsin sjálf, sem böndin her- ast að. Er hér um slíkt ó- fremdarástand að ræða, sem auk þess er til algjörrar skammar, að ekki verður við unað. Virðist ekki annað vera til úrræða hjá innflytjendum, en kæra þessi mál til saka- dómara, ef ekki verður úr bætt. • Ösvífni og ótúr- snúning Þeir, er fyrir svörum verða á þessum stöðum, virðast ekki kunna snefil af mannasiðum. Sem dæmi upp á þetta, skal sagt hér frá smáatviki. Fyrir nokkru síðan átti mað ur hér í bæ von á tveim all- stórum kösspm eða um um 5 kubifet og ajls, 600 . kg. frá Danmörku. Kassarnir voru merktir og mál og: þyngdigef-. ið upp. Er til átti að taka fundust kassarnir hvergi í vöruskemmum Eimskinafél- agsins, þrátt fyrir víðtæka ,,leit“. Innflytjandinn sneri sér til skrifstofunnar, sem setti allt í gang til að finna kassana. Hringt var á allar hafnir, þar sem hugsanlegt var að þeir hefðu f'”-:ð í land, en allt kom fyrir ekki. Hringt var til Kaupmannahafnar og kom þá í ljós, að kassarnir höfðu farið með skipi því, er farmskýrteinið sagði til um. Liðu svo nokkrir dagar í stanzlausa leit, bið og óþæg- indi, þar til allt í einu var tilkynnt, að kassarnir hefðu fundizt — nákvæmlega í þeim skála í Borgartúni, þar sem þeir áttu að vera! Kom þá í ljós, að kassarnir höfðu allan tímann verið fyr- ir framan augun á „leitar- mönnunum“. Hins vegar úifði verkstjórinn fullyrt að búið væri að ,,slá máli“ á alla kassa í öllum húsum félagsins og þeir væru hvergi eða nokkrir kassar sem gæti „passað“. Er upp um sleifarlagið komst, sögðu forsvarsmenn vöruhússins að kassarnir væru ómerktir og eitthvert „enskt letur“ á þeim. í ljós kom að kassarnir voru greinilega merktir á tveim stöðum, en starfsmenn hússins höfðu rif ið merkispjöldin af, til að fela mistökin, en gættu þess ekki að það voru önnur merkis- spjöld á hinni hliðinni. Er eigandi kassanna fann hóglátlega að þessum mistök- um, sem höfðu orðið honum til all mikils tjóns, fékk hann þau svör hjá einhverjum yfir verkstjóra, að hann gæti sótt kassana ,,ef hann vildi“. Skylt er að geta þess, að skrifstofa Eimskipafélagsins gerði allt sem í hennar valdi stóð til að leysa málið og það sem að henni snýr í þessu máli og öðrum viðlíka, er það að starfsmenn vöruhúsanna, sem margir hverjir eru búnir að vera árum og áratugum sam- an, eru „eins og heimaríkir hundar“ og hirða ekki um skyldustörf sín, en þau er fyrst og fremst sú, að veita viðskiptamönnum skipafélag- anna þá beztu og liprustu þjónustu, sem unnt er. Stjórnarmönnum skipaféla^ anna ber og skylda til að veita þessum mönnum áminningu og reka þá, ef þeir láta sér ekki segjast. Þau eru í sam- keppni um vöru- og farþega- flutninga og ef starfsmenn þeirra kunna ekki sitt starf, getur það komið niður á fé- lögunum sjálfum, þótt eigend- ur þeirra og stjórnendur vilji gera sitt bezta. Þjófnaðurinn i húsunum er svo aftur annað mál. Verk- stjórar bera að sjálfsögðu á- byrgð á sínum mönnum, en það þýðir aftur á móti ekki það, að þeir sjálfir steli. Það verður hins vegar að krefjast þess að þeir hafi eftirlit með þessum ófögnuði, en láti ekki afskiptalaust í trausti þess að „tryggingin borgi“. Farið hefir verið fram á að þetta blað birti myndir og nöfn verkstjóranna, með sér- stökum tilmælum til þeirra, en það verður látið bíða, þar til séð verður hvort ófögnuð- inum linnir ekki. Ögöngur — Framh. af b]s. 1. til að magna andstöðuna að miklum mun og vinna til fylg- is við hana geysilegan fjölda manna, sem áður höfðu látið ser fátt urn finnast þeSsi hand rit, sem margir töldu Dönum vera lítið hjartans mál, þar sem þau f jalla, ekki að ráði um sögu Danmerkur. 01 Úhappaverk Nú horfir málið hinsvegar allt öðru vísi við. Þótt vænt- anlega verði engu breytt um úrslit þessa máls úr þessu, þar sem öruggur þingmeirihluti er fyrir afhendingunni, eftir nýafstaðnar kosningar í Dan- mörku, þá hefir hér verið unn ið óhappaverk, sem er til þess eins fallið, að vekja óþarfa deilur og óánægju, meðal þess arar, annars vinsamlegu grann ^UIIIIIIIIIIH|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||i||||,|||,|||||||||||||||||||||| STEFKRÓKUR Ýmsir að aurum falast, alltaf er vasinn tómur, milljónir eyðast — malast, magnaður tóma-hljómur sækir með sulti stórum sálrænt að hugum vórum. Allir af öðrum krefja aura og dala fleiri, uppfullir illskurefja otandi bitrum geiri, stéttir við stéttir miða, stimpast án vopnagriða. Ríkasta heimsins ríki rifrildisþegna nærir, — austur í eyðsludýki — ofrausnin spillir, tærir, heimtun við heimtun gellur, hækkandi auðvon fellur. Krakkar um kökubita kljást — svona eins og gengur — oft snýst í hörkuhita hunda og krumma fengur. — Hvort ertu þá eins og krakki? ellegar hrafn ,og rakki? Grímarr. & IIlllllIIHinillllllllHIHIIIllllIIHHHHHHHHIIHHHHIHHniHnilHIIIIIIIIIHIIIIHIIIIIIIIIIHIIHIIHHIIHHHHHIHIIIIItC

x

Nýr Stormur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýr Stormur
https://timarit.is/publication/793

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.