Nýr Stormur - 02.12.1966, Page 5
Föstudagur 2. desember 1966
í NÝR
| iVOBMUR |
Útgefandi: Samtök óháðra borgara 3
§ Ritstjórar: Gunnar Hall, sími 15104 og Páll Finnbogason, ábm. i
I Ritstj. og afgr. Laugav. 30. Sími 11658
í Auglýsinga- og áskriftarsími: 22929
Vikublað — Útgáfudagur: föstudagflr
| Lausasöluverð kr. 12.00. Áskriftarverð kr. 450.00.
í PTentsmiðjan Edda h.f.
^JIIIIIIIIIIIIIHHIIIIHIIHIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIHIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHHIIHIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIHHl^
Áróður
Hinn látlausi árqður sem rekinn er af hinum pólitíslcu flokkum
og málpípum þeirra, hefur haft skaðlegri áhrif í þjóðfélagi okkar
en flestir gera sér grein fyrir, gegnum blöð og útvarp er fólkinu
færð þessi andlega næring, sem eitrar heilbigða hugsun og spillir
dómgreind þess, því það sem'einn segir rétt, segir annar lýgi. Út
yfir tekur þó um hverjar kosningar. Þá nær áróðurinn hámarki
sínu, þegar flokksvélamar em settar í gang fyrir alvörti.
Menn eru rægðir, málefni rangfærð og mgluð sitt á hváð og
við útvarpsumræður um stjórnmál, trúir hlutlaus hlustandi venju-
lega þeim, sem er að tala, en sannfærist svo um, að allt sem hann
hefur sagt, er rangt, þegar næsti ræðumður hefur fengið orðið.
Það væri vissulega full ástæða til þess að takmarka verulega
hinn pólitíska áróður flokkanna og bezt væri að losna við flokk-
ana alla eins og þeir leggja sig, með öllu þeim tilheyrandi. Þá
fyrst gætu liér farið fram frjálsar kosningar. Það er áreiðanlegt
að mikill hluti þjóðarinnar myndi greiða þeirri hugmyrid atkvæði,
ef hún væri borin undir þjóðaratkvæði. Væri það þjóðinni bæði
heilbrigðara og liagkvæmara, að kjósen.dur í liverju kjördæmi
veldu frambjóðendur úr liópi þeirra manna, er þeir treystu bezt
og kysu svo milli þeirra, í stað þess að verða að taka á móti og
eiga að kjósa einhvem mann, sem æðsta ráð-flokkarina í Reykja-
vík úthlutar þeim.
Jafnframt því, sem áróður flokkanriá spillir dóriigreirid þfóðár-
innar og mati hennar á mönnum og málefnum, er hann undirrót
þeirrar pólitísku spillingar, sem nú er á góðum vegi með að eyði-
leggja allt atvinnu- og fjármálalíf þjóðarinnar. Flokkarnir ausa
fé ríkisins þangað, sem þeir helzt eiga von á fylgi og veita ein-
stökum aðilum fríðindi, sem laun fyrir störf þeirra við flokksáróð-
unnn.
Flokkarnir eru búnir að koma þjóðinni í úlfakreppu með hinum
látlausa áróðri sínum. Fólkið vill fá að hugsa og starfa í friði, en
það fær það ekki og má það elcki. Alls staðar þurfa flokkarnir að
smeygja inn áróðri sínum og áhrifum. í hverjum kaupstað, kaup-
túni og sveit, hafa þeir fjölda útsendara, sem eiga að boða trú,
þeim sem óákveðnir eru eða hvikandi, læða inn illkvittni í garð
andstæðinganna, sannfæra ósjálfstæðar sálir um ágæti síns flokks
og ókosti hinna og trufla sjálfstætt mat kjósandans á þjóðmál-
unum.
Þjóðin er orðin langþreytt á áróðri flokkanna og hinum póli-
tísku málsprautum þeirra. Hún óskar eftir að fa að mynda ser
skoðanir í friði og án afskipta þeirra. Hún er farin að sjá í gegn
um blekldngavef áróðursins og kosningaloforðin, sem eru at-
kvæðagjaldeyrir flokkanna við hvejar kosningar. Vonandi fer hún
að hætta því, að láta áróðursútsqndara flokkanna blinda sig,
heldur tekur ákvarðanir sínar éftir eigin dómgreind og skoðun-
um, hvað sem öllum upskriftum líður frá áróðurssérfræðingum
flokkannna í Reykjavík.
Fjárbrall —
Framh. af bls.
1.
með fríðu föruneyti og munu
bankar standa á bak við það.
Munu menn víða um land
vera orðnir langeygðir eftir
að hann standi skil á andvirði
vöru, er hann hefir tekið að
sér að selja, oft með yfirboð-
um, og er enn ógreidd, eða
óseld og liggur undir cV«mmd
um eða er gjörónýt.
Grásleppuhrognin
Eins og kunnugt er, eru
grásleppuhrogn ein verðmæt-
asta útflutningsvara lands-
manna. Fjölmargir smáfram-
leiðendur hafa lífsframfæri
sitt af þessari framleiðslu að
miklu eða öllu léyti. Ýmsir
aðilar höfðu annast sölu á
þessári vöru og allt gengið
snurðulaust. Er Friðrik Jörg-
ensen hóf starfsemi sína tók
hann að þrengja sér inn í
þessi viðskipti og bauð fram-
leiðendum hærra verð, áð-
ur hafði tíðkast. Gerði hann
síðan víða mikil kaup, sem
flest eða öll einkenndust af
því að hann „greiddi vel“ en
greiðslan lét standa á sér.
Hugðist hann ýta keppinaut-
um sínum út af markaðnum
með yfirboðum og er nú svo
komið að menn víða af land-
inu, svo sem á Húsavík, Þórs-
höfn, Flatey og víðar, hafa lít
ið sem ekkert fengið og munu
sennilega ekki fá, þar sem stór
hluti vörunnar liggur óseldur
Fjöldi fjölskyldna er í fjár-
hagslegri rúst út af þessu
máli. Árinu áður hafði öll
framlelðslan selzt á góðu
verði, en framboð hafði aukizt,
svo sem oft vill verða um
arðbæra framleiðslu. Þurfti
því að hafa hemil á framboð-
inu.
Hinsvegar fékkst Jörgensen
ekki til að hlusta á slíkt. —
Blekkti hann ráðuneytið til að
veita ótakmarkuð útflutnings-
leyfi og „keypti“ síðan í stór-
um stíl. Framleiðendur hafa
hinsvegar ekki Jengið nema
lítinn hluta andvirðisins og
sumir. ekkert, en Jörgensen
siglir út í lönd með fríðu
föruneyti, sumir segja átta
manns!
15 milljónir
Engin tök eru á því að rekja
allar svikamillur þessa ævin-
týramanns, sem virðist hafa
tekizt að tröllríða sumum bönk
um þessa lands, svo að ótrú-
lefú er.
,^ýaf,sýa?in er útibússtjóra-
fandur hjátvegsbanka.íslands
og er sagt að sumir útibús-
Stjórarnir hafi fengið veru-
lega ofanígjöf og er þar eink-
um tilnefndur útibússtjórinn
í Vestmannaeyjum.
Mun Jörgensen hafa komizt
þar verulega inn fyrir dyr og
mun nú vera búinn að koma
stóru fyrirtæki, Fiskiðjunrii í
Vestmannaeyjum og félögum
sínum þar á heljarþröm.
■ Síldarverksmiðja ein á Seyð
isfirði hefir átt allmikil við-
skipti við Jörgensen. þennan
og komst fyrir skömmu í
greiðsluþrot vegna þess að
Jörgensen skuldaði henni
15 milljónir króna!
Má furðulegt teljast hvernig
sumir menn geta spilað á
náungann og er sannarlega
tími til kominn að sett verði
á stofn opinbert eftirlit hæfra
manna, sem fylgjast með at-
höfnum slíkra manna.
Hér er ekki um mál sem
varða eingöngu þá eina er
viðskiptin gera heldur þjóð-
ina alla.
Það er sparifé hennar, sem
verið er að sólunda og hún
verður að gera kröfu til þess
að trúnaðarmenn hennar láti
ekki ófyrirlitna ævintýra-
menn leika lausa í fjárhyrzl-
um hennar. Mennn verða látn
ir fylgjast með framvindu
þessa máls, hér í blaðinu ef
það gæti orðið til varnaðar því
að slíkir afglapar geti vaðið
uppi og lagt í rústir líf og af-
komu fjölda manns.
Nýju bækurnar
Halldóra Bjarnadóttir:
Vefnaður á íslenzkum heimilum.
Höfundur þessa rits hefur safnað til þess efni ára-
tugum saman, bæði máli og myndum. Þar er fjallað
um íslenzkan vefnað af öllu tagi, og gerð grein fyrir
helztu vefurum í flestum héruðum landsins. I bók-
inni eru 115 litmyndir og fjöldi annara mynda.
Þetta er veglegt rit og fallegt, sem mjög hefur ver-
ið til vandað.
I' ' .
Arnheiður Sigurðardóttir:
. Híbýlahættir á miðöldum
Bók þessi er árangur víðtækra rannsókna á íveru-
húsum íslendinga fyrr á tímum. Þar er fjallað um
skála, stofu, baðstofu, svefnstaði, borð, stóla, kistur
og annan húsbúnað. — Merkisbók, einkar vel og
ljóslega ’rituð.
Mynd úr bókinni Híbýlakostur á miðöldum.
Ævar R. Kvaran:
Á leiksviði
Leiðbeiningabók um flezt hið helzta, er að starf-
semi og leiksviðsbúnaði lýtur. Fjöldi skýringamynda
og ljósmynda af íslenzkum leikurum er í bókinni.
Guðmundur Halldórsson:
Hugsað heim um nótt
Safn smásagna, fyrsta bók nýs höfundar.
Gottfried Keller:
Rómeó og Júlía í sveitaþorpinu
Ástarsaga, sem hlotið hefur heimsfrægð og verið
þýdd á fjölmörg tungumál. — Njörður P. Njarð-
vík íslenzkaði.
Njáls saga
Gefin út af Magnúsi Finnbogasyni, menntaskóla-
kennara, með vísna og textaskýringum eftir hann.
í bókinni eru kort og nokkrar myndir af sögustöðum
Njálu.
Loks ber að nefna tímaritin Almanak Þjóðvinafé-
lagsins og Andvara. í Andvara birtist að þessu sinni
löng og gagnmerk ævisaga Ólafs Thors eftir Bjarna
Benediktsson, forsætisráðherra.
Kynnið yður hjá umboðsmönnum útgáfunnar val-
frelsið og þau kostakjör, sem félagsmenn njóta.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs