Nýr Stormur


Nýr Stormur - 02.12.1966, Síða 6

Nýr Stormur - 02.12.1966, Síða 6
5 %BNUR Föstudagur 2. desember 1966 Síðastliðinn sunnudag flutti Alþýðublaðið þá fregn að ríkis- stjómin hefði ákveðið að leggja fyrir Alþingi lagafmmvarp um vferðstöðvun. Blaðið tók til sitt stærsta fyrirsagnaletur og skýrði jafnframt frá því að Emil Jóns- son hefði tilkynnt þetta í setn- ingarræðu sinni, á flokksþingi Alþýðuflokksins, er hófst laugar- daginn 26. nóv. Emil Jónssyni mun hafa verið látið eftir, að tilkynna þessi „stór tíðindi“, til þess að hressa upp á álit Alþýðuflokksráðherranna, sem nú eiga í vök að verjast vegna síaukinnar andspymu Al- þýðuflokksmanna vegna þjónk- unnar sinnar við samstarfsflokk- inn. Mun þetta eiga að vera skraut fjöður í liatti Alþýðuflokksráð- herranna og mun ekki af veita. Það fer ekki milli mála, að kosn- ingar em í vændum og nú ligg- ur mikið við, að telja almenningi trú um, að ríkisstjórnin sé að gera eitthvað til að stöðva verð- bólguna. Það er engu líkara en verðbólga á íslandi sé eitthvað nýtt fyrirbrigði. Fyrirbrigði, sem ekki hafi verið neitt vandamál fyrr en nú. Það sé fyrst nú, sem ástæða sé til að stöðva hana. Það er heldur ekki neitt smá- ræði, sem á að gera! Frumvarpið nær eingöngu til ríkisstofnana, sem nú mega ekki hækka neitt lengur og sveitarfélögin mega heldur ekki hækka sína gjald- stiga. Það láist að geta þess, að þau hafa þegar hækkað þjónustu hjá fyrirtækjum sínum og ekki var vitað að frekari hækkanir stæðu fyrir dymm. í Reykjavík hafa gjöld til hita- veitunnar, rafmagnsvéitunnar og strætisvagna verið nýlega hækkuð og ekki hefir verið venja að hækka þau gjöld, nema einu sinni á ári. Um aðra verðstöðvun er rík- isstjórninni aðeins veitt heimild til aðgerða og verður fróðlegt að sjá hvemig ráðstafanir hún ætl- ar að gera. Það voru því engar líkur til að þessi gjöld yrðu hækkuð fyrir næstu kosningar hvort eð var. Ekki hefir heldur verið til um- ræðu, að sveitarfélög hækkuðu útsvör sín, svo að engin ástæða var fyrir ríkisvaldið að grípa í þá tauma. Það, að Emil Jónsson er lát- inn tilkynna þetta fyrstur á þingi Alþýðuflokksins, gefur auga leið Það er verið að hressa upp á gamla skriflið, fúahrip Alþýðu- flokksins, sem þessi maður hefir róið undanfarið og sífellt reynist lekara og lekara. Hinir ræðararnir em raunar engu betri og sumir lakari. Þessi pjatla mun ekki reynast hald- góð til að troða í götin með. Það kemur semsé í ljós að enginn hemill verður hafður á verðlagi á þjónustu einkafyrirtækja, eða seldri vinnu. Almenningur mun eftir sem áður verða ofurseldur okri og „svindilbraski", sem nú einkenn ir orðið stóran hluta af viðskipt- um og þjónustu íslendinga. En það 'eru kosningar a næsfá vori og þeir í ríkisstjórninni skjálfa af ótta við að kjósendur veiti þeim þá ráðningu, er þeir eiga skilið, fyrir það að verðlag á öllu, mögulegu og ómögulegu, þörfu og óþörfu, hefir stigið meir á undanförnum ámm, en í nokkm öðm Evrópulandi og þótt víðar væri leitað. Það er frá þessu sem verið er að flýja. Hinir „ábyrgu“ stjórn- málamenn þekkja ekki aðra á- byrgð en þá, að þeim kunni áð verða vikið til hliðar af hinum almenna kjósanda. Þess végna er höfuðnauðsynin sú, að bregða upp dulu til að blekkja með. Reyna að troða í göt afglapanna svo að fleytan sökkvi ekld undir þeim. Þegar fjögurra ára frest- urinn er fenginn á ný, skapast ný viðhorf. Þá er það þjóðin sjálf, sem ábyrgðina ber og verð- ur að taka afleiðingunum, en forystumennimir sitja rólegir og makráðir í „Háuhlíð" sinni. „MISVITUR ER NJÁLL!“ Bjami Benediktsson skrifar að venju Reykjavíkurbréf sitt í Morgunblaðið sl. sunnudag. Bjami er, sem kunnugt er, vel ritfær, skarpvitur maður, en mis- vitur. Að þessu sinni skrifar hann ekki um Bjarna Benedikts- son og er það tilbreyting. Hins- vegar gerir hann kosningaúrslit- ii> fi Danmörku og á Norður- löndunum yfirleytt, að umræðu- efni. Bjami hefur áhyggjur vfir gengi vinstri manna á Norður- löndum og virðist alþýðu manna þar, hafa láðst að koma auga á yfirburða hæfileika hægii manna þrátt fyrir heimsóknir hins hægrisinnaða forsætisráð- herra íslands þangað. Má það heita aumleg frammi- staða flokksmanna hans þar, að hafa ekki vakið athygli á af- burða stjóm hægrimanna á ís- landi, til sönnunar hæfni þeirra stefnu í stjórnmálum allra landa. Forsætisráðherrann er svo sem ekki í vanda staddur að finna skýringu á fylgileysi íhalds majma í Danmörku. Hún er sem sé andstaða þeirra gegn honum sjálfum í handritamálinu. Hinsvegar lætur forsætisráð- herrann að sjálfsögðu ekki hjá líða að vara við hættunni, sem af því stafar að „öfgafólk og öf- uguggar . . . öfgaskepnur og blindingjar" fái auldð fylgi. Á hann þar við hinn nýstofnaða „þjóðemissinnaflokk“ í Þýzka- landi, sem er hinn nýi nazista- flokkur þar. Sú var tíðin, að Bjami Benediktsson kallaði ekki „þjóðemissinna“ í Þýzkalandi eða á íslandi „öfgaskepnur og blindingja“, eða varaði við hætt- unni af þeim. Á Islandi hétu þeir „unglingar með hreinar hugsan- ir!“ Aftur á móti hefir ráðherr- • «•«•»»* »H>l»llll«»M»«»«M«mM«M ■•■■■■ «*■•■••■••■■■ ■»■■■■■■■■ ■■«■»■■■■»■ IMHMHIII ■■■ B ■■■■■■■■«■■■■■■>• f W •►■■■• •■■■■■tH ■■■■■■■«■■■■■■■■■■■■»■■■■■■■■■»■»■ » ■>»«J ■■■■>■»»■••»■■ •■ ■■■•■■■ — ■■■«■■■■ ■■■■■■■■CSSSSSSSSSSf.SS.* 5* *■**■■■■■■ »»|» THAILAND BERST FYRIR FRELSI SÍNU eftir Carl Rowan, fyrsta blökku- manninn, sem skipaður var sendiherra Bandaríkjanna. Píkin, sem liggja að landamærum Thailands, loga í deilum og ófriði. 1 Thailandi sjáífu standa stjórnarvöldin andspænis gífurlegum erfiðleikum. LAOS- flanoi íjiurt Kaen* • . .t.THAHANU '%v., V, k ikoii* Mcnam • ! ;*JfAMBOOIA< % Saiííoo •• S.VIETN.AM í". . Siam- ■i' Búgun 'ví ; malavsia "i.. • i iNDONESIEM *. ......... Ferðamönnum, sem milli- lenda á Don Muang, flugvellin- um í Bangkok, virðist hinn mikli ófriður, sem ríkir í SA-Asíu til- heyra allt öðmm heimi. í dag- renningu yfir Menam-sléttunni skína smaragðsgrænar rísekrur svo langt sem augað eygir. í Bangkok sjálfri eru musteri með gullnum tumum, fallegar stúlk- ur í litríkum kjólum, litlir dreng- ir, sem Ieika sér í regnvotum skurðiun, mjög nýtízkuleg hótel og fjörug viðskipti, þar sem vel- efnaðir ferðamenn geta rótað í ljósrauðu Thai-silki og bláum safírum, sem hvíla í hreiðmm af demöntum. Mönnum hættir til að gleyma sér í dásemdum Bangkok og skynja ekki, að bak við hið glæsta yfirborð liggnr land, sem berst örvæntingar- fullri baráttu fyrir tilvem sinni. Höfuðborg Thailands liggur ekki undir lofárásum eins og þeim, sem gert hafa Saigon að borg þjakaðri af angist. Landið er ekki þjakað af innbyrðis deil- um, eins og nágrannalandið Laos. Og samt er ekkert land í Asíu, sem í jafn ríkum mæli er flækt í baráttunni gegn yfir- gangsstefnu kommúnista yfir- leitt né gegn hemaðarstefnu Kínverja sérstaklega. Engin þjóð hefur tekið á sig jafn víðtækt og áhættusamt verkefni en þetta fagra land, sem heitir á máli innfæddra Muong Thai: „Land hinna frjálsu." Thailendingar vita, að tilvem þeirra sem þjóðar er ógnað af komúnistum, en þeir berjast gegn þeim eins og unnt er. Margar bandarískar sprengju- herferðir til N-Vietnam em fam- ar frá stöðvum, sem Thailand hefur látið Bandaríkjunum í té. Kommúnistar vita það mæta- vel, að tillag Thailendinga er lífsnauðsynlegt í þeirri viðleitni að hamla gegn „frelsisstríði“ Maos formanns. Þessvegna leggja útvarpsstöðvamar í Pek- ing og Hanoi mikið á sig til að hræða Thailendinga til að taka upp hlutleysisstefnu. í október 1965 lýsti utanríkisráðuneyti N- Vietnam Thailandi sem „einni nýlendu Bandaríkjanna, sem þjónar ofbeldis- og heimsvalda- stefnu Bandaríkjamanna í þess- um heimshluta.“ Ríkisstjómin í Hanoi sendi frá sér aðvömn um afleiðingarnar af samstöðu Thai- lands „með hinum heimsvalda- sinnuðu ofbeldisseggjum.“ Tliai- land svaraði því til, að ógnunin frá Hanoi „hefði ekki hin minnstu áhrif á aðgerðir lands- ins.“ Utanríkisráðherra landsins Thanat Khoman segir: „Það er spuming um frið, um líf og dauða fyrir land vort. Eig- um við að víkja fyrir þessum ógnunum, biða eftir því að ófreskjan stækki, eftir því að áhættan auldst til þess að standa að lokum andspænis algjörri eyðileggingu? Við Thailending- ar stöndum með engu öðm ríki. Þessvegna stöndum við með festu og einurð með þessu ríki!“ UMLUKIÐ ÓFRIÐAR- BÆLUM Thailand er umlukið ófriðár- bælum, sem em nægilega óhugn ánleg til að jafnvel hinir stað- föstustu mundu missa hugrekk- ið. Mekong-fljótið myndar hin 1427 km. löngu landamæri við Laos. Á sumum stöðum, er fljót- ið svo lítið, að kommúnistísldr herir gætu bókstaflega stokkið yfir það. í hinum thailenzku héraðum meðfram fljótinu tala íbúamir Lao-málið og flestir þeirra eiga ættingja hinumegin fljótsins. í þessum hémðum em 40.000 flóttamenn frá N-Viet- nam og margir þeirra em grun- aðir um að standa með óvinun- um. Þessvegna er Mekong frem- ur brú fyrir ófriðinn en vörn gegn honum. I suðaustri em hin 390 km. löngu landamæri, sem skilja Thailand frá Cambodiu, en helzti ráðamaður þar Shianouk fursti, hallast meir og meir að kommúnisma. Og mót vestri skilja 1500 km. löng landamæri Thailand frá Burma, sem á seinni ámm hallast heldur að þeirri skoðun, að SA-Asía sé innan umráðasvæðis Peking. AÐALMÁLEÐ Hversu lengi og með hve miklum árangri getur Thailand andæft, sérstaklega, þegar því hefúr verið lýst yfir opinber- lega, að komúnistar hafi mik- inn áhuga á landinu? Kína hef- ur sýnt vaxandi áhuga í 15 ár, en það em þó einungis fá ár síðan hin velskipulagða áróðurs barátta hófst. 1 október 1964 vitnaði hin opinbera fréttastofa í Kína í ummæli thailenzka komúnistaflokksins, sem hrósaði „hinni ágætu stjórn kínverska

x

Nýr Stormur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýr Stormur
https://timarit.is/publication/793

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.