Nýr Stormur


Nýr Stormur - 02.12.1966, Síða 8

Nýr Stormur - 02.12.1966, Síða 8
8 %RNOR Föstudagur 2. desember 1966 MANNKYNS “'ÍSíííí!1"!)' SAGA 1493-1521 Blóðbað í STOKKHÓLMI Kristján konungur útrýmir sænska aðlinum og kirkjuyfirvöldum. 90 háishöggnir á 3 dög- um í Stokkhólmi. Stokkhólmi, 11. nóv. 1521. 1 dag er Kristján II. konungur yfirboðari þriggja Norðurlanda. Meðan Noregur hefur haldið tryggð við sambandið, hefur Svíþjóð stöðugt reynt að slíta sig frá, en nú liggja örlög lands ins á ljósu. Kristján er orðinn konnngur og það verður erfitt að hreyfa mótmælaaðgerðum úr þessu. Fyrir viku 4. nóv. var Kristján Kristján konungur 11. konungur af Danmörku og Nor- egi krýndur í Stórkirkjunni hér í borginni, sem konungur Sví- þjóðar. Sama dag sendi mágur hans honum mestu orðu Evrópu Hið gullna Vlies, sem aðeins fá- einir bræður í trúnni bera. Kristján konungur lofaði, að hér með væri klofningur Danmerk- ur og Svíþjóðar á enda bundinn Nýtt korta- geröafyrirtæki nefnir nýja landið Ameríku Lissabon, 31. des. 1507 Nýtt kortagerðafyrirtæki, sem Martinus Waldseemuller veitir forstöðu, sem hefur vakið athygli langt suður í álfuna, alla leið til Afríku hefur kallað hið stóra nýja land Ameríku. Waldseemull- er er prófessor í landafræði við St. Die háskólann í Lorr- aine. Það er nefnt eftir Amerigo Vespucci, sem 1499 ferðaðist með Alonso de Ojeda. Eftir 44 daga siglingu komu þeir til lands og þræddu fyrir langa strönd. Þeir sigldu fyrir gífurlegt ármynni, síðan fóru þeir enn norðar að öðru ármynni og því næst sneru þeir heim. Landið liggur langt suður af þeim eyjum sem Kolumbus fann. og deilur fortíðarinnar gleymd- ar. Sænsk stórmenni tóku þátt í fagnaðinum með miklum létti, jafnvel þótt menn tækju eftir að nokkrir danskir og norskir menn, en enginn sænskur, voru slegnir til riddara í þessu til- efni. • Lokaður inni í höllinni. Hvað gerðist er ennþá óljóst en þremur dögum eftir krýning- una stóð erkibiskupinn Gustav Trolle upp og kvartaði yfir þeim sænsku höfðingjum, sem leikið höfðu hann grátt, fangelsað hann og svívirt dómkirkjuna í Uppsölum. Frú Kristín Gylden- stjerne vildi verja minningu látins eiginmanns síns mót á- kæru erkibiskupsins og lagði fram frægt bréf þar sem marg- ir sænskir höfðingjar sóru sig saman og ákærðu erkibiskupinn. Nöfn þeirra og innsigli voru á skjalinu. Konungurinn yfirgaf salinn, loks kom Sören Norby inn og færði burt þau sænsk stórmenni, sem undirritað höfðu skjalið. Öll um hliðum hallarinnar var læst, enginn gat sloppið út. Næsta dag var útgöngubann sett á Stokkhólmsborg, það voru ridd arar og fallbyssur á götunum, regnið streymdi niður, enginn sýndi sig í hinum.auða og myrka bæ. Það var kopunginum nóg, að þeir sem sett höfðu sig á móti erkibiskupi voru heiðingjar og höfðu svívirt kirkjuna. Fyrir Herklæði Kristjáns II. þá nægir ekki hin almenna stjórnmálalega fyrirgefning hans. • Fjöldaaftökur á torginu. Klukkan 12 á hádegi var út- göngubanninu aflétt og riddar- ar konungsins mynduðu lokaða götu frá höllinni til stórtorgs- ins. Borgararnir streymdu að og sáu sænsku aðalsmennina færða út xir höllinni til Atórtorgs ins. Niels Lykke tilkynnti frá ráðhússvölunum, að menn skyldu ekki undrast það sem þeir sáu, þetta væri heiðingjar, sem ætti að taka af lífi. Hinn dæmdi mótmælti, biskup Vinc- ens af Skara hrópaði, að þetta væri lygi og fals, en riddaram- ir yfirgnæfðu hann með háum hrópum sínum. Fyrst var tekinn af lífi Matt- hias biskup af Strangnæs, Eril Leijohuvud tíu aðrir stjórnar- ráðsmenn, Erik Johannsson Vasa, 14 þingmenn og margir Framh. á bls. 9. Aðalsmenn og biskupar færðir fram fyrir böðulinn á torginu í Stokkhólmi, þar sem blóðið flaut í göturæsunum. Skálmöld á íslandi Undanfarna áratugi hefir ríkt skáimöld á fslandi. Biskupar og veraldlegir höfðingjar deila og fara með ránum og yfirgangi. Löglegir dómar ná ekki fram að ganga og bannfær- ingarréttur biskúpáhfra'er rtíisnotaður til að svæla fé og jarðir undir yfirráð þeirra. Leiðarhólmi í Dölum 24. júní 1513. Tveir. veraldlegir höfðingjar á Vestur- og Norðurlandi hafa boðað til fundar, sem nú er hald inn að Leiðarhólmi í Dölum, um að mynda samtök allra höfð- ingja á Vestur og Norðurlandi til að stemma stigu við yfir- gangi klerka og biskupa, sem nú er orðinn svo niikill, að eng- in er óhultur lengur um eign- ir sínar og jafnvel líf. Er svo komið að biskuparnir nota ó- spart bannfæringarrétt kirkj- unnar til að kúga fé af mönn- um og Ieggja undir sig tugi og hundruð jarða. Þeir er aðallega standa fyrir þessum fundi eru höfðingjarnir Bjöm Guðnason í Ögri og Jón Sigmundarson lög maður. Er líða tók á síðustu öld gerð- ust biskupar ærið yfirgangsfrek- ir hér á landi og er sagnir af einum þeirra mönnum minnis- stæðar sérstaklega. Er þaö Jón Gerreksson biskup, sem var út- lendur maður og fór með rán- um og ofríki og lauk lífi sínu í Brúará, en bændur drekktu honum þar. Um svipað leiti var Jón Vilhjálmsson biskup á Hól- um og var hann litlu betri. Sýndi hann fádæma frekju og yfirgang á ýmsum sviðum, er hann fýsti að ná undir sig fé. Má þar nefna er hann tók undir verndarvæng enska ránsmenn og lýsti þá frið helga í nafni heilagrar kirkju, gegn ærnu gjaldi. Gengu bisk- upsembættin lengi eftir þetta kaupum og sölum og voru í mis jafnra manna höndum. Er líða tók á öldina urðu mikl ar róstur og vígaferli og tóku kirkjunnar menn engu síöur þátt í þeim, en aðrir. IlOrtfiJil ■ uSilni11Ti ,/i'i 'í Gottskálk og Stefán Skálholtsbiskup Biskupamir í Skálholti og Hól um, þeir Stefán Jónsson og Gott skálk Nikulásson, kallaður hinn grimmi, eiga í stöðugum úti- stöðum við leikmenn. Er nú svo komið að þeir bera lognar sak- ir á menn í fjáröflunarskyni og má nefna sem dæmi, að Gott- skálk grimmi hefir látið útbúa reikning á Reykhólakirkju í Tungusveit 209 ár aftur í tím- ann og látið dóm ganga, svo að jörðin og allt sem henni fylg ir hrekkur hvergi nærri tH. Með þessum og öðrum slíkum brögð- um hefir honum tekist að koma 110 jörðum undir Hólastól og er nú leikmönnum nóg boðið. • Siðleysi Prestar kirkjunnar hlýta lítt reglum hennar um skírlífi og eru flestir þeirra auðugri, ekki við eina fjölina felldir í kvennamál- um. Má nefna sem dæmi, að tveir þeirra, síra Þorkell Guð- bjartsson, eigi 30 börn, er hann hefir gengist við og annar, síra Sveinbjörn Þórðarson í Múla 50. Er það almennur siöur, að prest- ar friðkaupa sig við kirkjuna og biskupa með fégjöldum. Biskup- arnir láta sakamenn um hjú- skaparmál, hórdómsmál og sifja spell, kaupa sig undan refsing- um og komast þannig yfir of fjár. Ofan á þetta bætist svo al- menn efnahagsleg hnignun af völdum eldgosa og annarra ó- áran. • Plágan síðari Árið 1494 barst hingað drep- sótt með enskum kaupmönnum sem út komu í Hafnarfirði. — Breiddist plága þessi út um nær liggjandi sveitir og eyddust þá nálega margar sveitir, svo að eftir urðu á sumum bæjum ekki nema tvær til þrjár manneskj- ur. Dóu menn út af skyndilega við vinnu sína og ungbörn sugu látnar mæður sínar, er að var komið. — Önnur sótt kom í fyrra og var það bólusótt og féllu úr henni fjöldi manns. Er nú fólks ekla svo mikil að víða fást ekki konur til mjalta og nautpening- ur æðir baulandi um og sauð- fé hleypur til fjalla. Framh. á bls. 9. Kólumbus var ekki fyrstur Hispaniola, Nýja Spáni 1911 Menn hafa lengi vitað, að ís- lenzkir sæfarar- hafa fundið land í vestri, en jafnvel þótt reiknað sé meö síðustu öldum, þá var Kolumbus ekki fyrstur til að finna land hinu megin við Atlantshafið. Er sonur hins mikla aðmíráls kom hingað, eftir útnefningu sína sem aðmíráls yfir Indlandi, nafn hans er Diego Kolumbus, þá hafði hann uppgötvað að Sebastian Ocampo hafði fundið Kúbu og siglt umhverfis hana áður en faðir hans Kólumbus kom þangað. Þá berast þær fregnir frá Englandi, að Sebastian Cabot frá Bristol hafi komið til hinna nýju landa mörgum árum aður. Þannig en það ætíð um nýjar uppgötvanir; margir eru um hana, en einn gerir hlutina, þannig að þeir fréttast og fá þýðingu.

x

Nýr Stormur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýr Stormur
https://timarit.is/publication/793

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.