Morgunblaðið - 22.05.2010, Síða 2
2 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2010
KNATTSPYRNA
2. deild karla
Höttur – Völsungur................................. 1:0
Garðar Már Grétarsson.
Afturelding – Víðir.................................. 3:1
Arnór Þrastarson (2), Wentzel Steinarr
Kamban – Björn B. Vilhjálmsson.
Reynir S. – Hamar ................................... 6:1
Guðmundur Gísli Gunnarsson (2), Hjörtur
Fjeldsted, Egill Jóhannsson, Sinisa Valdi-
mar Kekic, Davíð Örn Hallgrímsson – Atli
Sigurðsson.
Staðan:
Höttur 2 2 0 0 3:1 6
Reynir S. 2 1 0 1 6:3 3
BÍ/Bolung. 1 1 0 0 3:0 3
Hvöt 1 1 0 0 2:0 3
KS/Leiftur 1 1 0 0 2:0 3
Afturelding 2 1 0 1 4:3 3
Víkingur Ó. 1 1 0 0 2:1 3
Völsungur 2 0 1 1 0:1 1
Hamar 2 0 1 1 1:6 1
KV 1 0 0 1 1:2 0
ÍH 1 0 0 1 0:3 0
Víðir 2 0 0 2 1:5 0
3. deild karla C
Léttir – Ýmir............................................. 1:1
Undankeppni HM kvenna
4. riðill:
Úkraína – Ungverjaland.......................... 4:2
Staðan:
Pólland 5 4 0 1 16:6 12
Ungverjaland 6 3 2 1 12:8 11
Úkraína 4 2 1 1 13:7 7
Rúmenía 5 2 1 2 11:7 7
Bosnía 6 0 0 6 0:24 0
5. riðill:
Malta – England....................................... 0:6
Staðan:
England 5 5 0 0 21:0 15
Spánn 6 5 0 1 26:2 15
Tyrkland 5 2 0 3 8:14 6
Austurríki 4 1 0 3 2:6 3
Malta 6 0 0 6 1:36 0
Svíþjóð
1. deild:
Landskrona – Sundsvall ......................... 0:0
Ari Freyr Skúlason lék allan tímann með
Sundsvall og Hannes Þ. Sigurðsson allan
seinni hálfleikinn.
Belgía
Umspil um sæti í 1. deild:
Roeselare – Mons..................................... 0:0
Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn
með Mons en Bjarni Þór Viðarsson var
ekki með vegna meiðsla.
Eupen er með 9 stig, Mons 5, Roeselare 5
og KVSK 3 þegar tvær umferðir eru eftir.
Efsta liðið leikur í 1. deild, þeirri efstu,
næsta vetur, þannig að möguleikar Roesel-
are á að halda sæti sínu þar eru orðnir mjög
litlir.
HANDKNATTLEIKUR
Þýskaland
Minden – Flensburg............................. 22:40
Grosswallstadt – Wetzlar .................... 28:25
Staða efstu liða:
Hamburg 31 28 1 2 1022:825 57
Kiel 31 27 2 2 1043:789 56
Flensburg 32 25 0 7 957:827 50
Göppingen 32 22 2 8 946:916 46
RN Löwen 31 22 1 8 955:841 45
Gummersbach 32 19 3 10 931:879 41
Lemgo 32 19 2 11 918:850 40
Grosswallst. 32 17 4 11 869:833 38
Füchse Berlin 31 18 0 13 883:864 36
Magdeburg 31 11 0 20 871:930 22
N-Lübbecke 31 9 4 18 855:877 22
um helgina
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild kvenna, Pepsi-deildin:
Vodafonevöllur: Valur – Fylkir ............. L14
Kópavogsv.: Breiðablik – Stjarnan....... L14
Varmárvöllur: Afturelding – FH .......... L14
Grindavíkurv: Grindavík – KR.............. L15
Ásvellir: Haukar – Þór/KA .................... L16
Úrvalsdeild karla, Pepsi-deildin:
Vodafonevöllur: Haukar – ÍBV ............ M17
Fylkisvöllur: Fylkir – Fram ............ M19.15
Kópavogsvöllur: Breiðablik – FH ........ M20
1. deild karla:
Akranesvöllur: ÍA – Fjölnir................... L14
Gróttuvöllur: Grótta – HK..................... L14
Víkin: Víkingur R. – Leiknir R.............. L14
ÍR-völlur: ÍR – KA ................................. L14
Valbj.: Þróttur R. – Fjarðabyggð ......... L14
Þórsvöllur: Þór – Njarðvík .................... L14
1. deild kvenna:
Kórinn: HK/Víkingur – Draupnir ......... L16
Fellavöllur: Höttur – ÍR ........................ L15
Bessastaðav.: Álftanes – Völsungur...... S14
Sauðárkr.: Tindast/Neisti – Þróttur R M14
Neskaupst.: Fjarðab/Leiknir – ÍR....... M14
2. deild karla:
Ásvellir: ÍH – Hvöt ................................. L13
Ólafsfjörður: KS/Leiftur – Víkingur Ó. L14
Ísafjörður: BÍ/Bolungarvík – KV.......... L14
3. deild karla:
Bessastaðavöllur: Álftanes – Sindri...... L14
Sauðárkr.: Tindastóll – Grundarfj ........ L14
Árskógsvöllur: Dalvík/Reynir – Magni L14
Seyðisfjörður: Huginn – Samherjar ..... L14
Boginn: Draupnir – Leiknir F.......... L16.30
Egilshöll (úti): Björninn – KFG ........... M12
Selfossv.: Árborg – Hvíti riddarinn ..... M13
Ásvellir: Markaregn – KFR ................. M13
Vogavöllur: Þróttur V. – KFS .............. M14
Víkin: Berserkir – KFK ........................ M16
Kórin: Augnablik – KB.......................... M16
Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í Kiel, Aron
Pálmarsson þar meðtalinn, mæta Hamburg í stór-
leik vetrarins í þýska handboltanum í dag. Liðin
tvö eru langefst í 1. deildinni, og viðureign þeirra í
Hamborg ræður væntanlega úrslitum um hvar
meistaratitillinn hafnar þetta árið. Uppselt er fyrir
mörgum mánuðum á viðureign liðanna í O2-
höllinni glæsilegu sem rúmar ríflega 13 þúsund
áhorfendur.
Kiel hefur orðið meistari fimm ár í röð, síðasta
vetur undir stjórn Alfreðs, en Hamburg hefur
aldrei komist svona langt. Tvisvar á undanförnum
þremur árum hefur silfrið fallið Hamburg í skaut.
Nú hefur liðið, undir stjórn Martins Schwalb, hins-
vegar eins stigs forystu á Kiel, 57 stig gegn 56.
Þremur umferðum er ólokið en ljóst er að vinni
Hamburg leikinn í dag er titill-
inn sama og í höfn því liðið mis-
stígur sig varla gegn bæði
Burgdorf og Balingen í tveimur
síðustu umferðunum.
Jafntefli myndi líka setja
Hamburg í kjörstöðu, þannig að
fyrir Alfreð og hans menn dug-
ar ekkert annað en sigur í dag.
Þá myndu þeir ná eins stigs for-
ystu en þar með væri björninn
ekki unninn. Eftir heimaleik
gegn Balingen bíður nefnilega útileikur gegn
Grosswallstadt í lokaumferðinni. Það eru því þrír
sigrar og ekkert annað sem Alfreð og Aron þurfa
á að halda á lokasprettinum í deildinni. vs@mbl.is
Risaslagur Hamburg og Kiel í dag
Alfreð
Gíslason
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Það er komið að úrslitastundu hjá
kvennalandsliðinu í handbolta en í
næstu viku leikur það síðustu tvo leiki
sína í undankeppni Evrópumótsins. Í
húfi er sæti í lokakeppni Evrópumóts-
ins sem haldin verður í Danmörku og
Noregi í desember en íslensku val-
kyrjurnar eiga möguleika á að komast
á stórmót í fyrsta sinn í sögunni. Til
þess þarf liðið að ná einu stigi út úr
leikjunum við Frakka og Austurrík-
ismenn. Frakkar, sem hafa þegar
tryggt sér þátttökuréttinn í loka-
keppninni og eru með eitt besta lands-
lið heims, mæta í Laugardalshöllina á
miðvikudaginn og laugardaginn á eftir
sækja Íslendingar lið Austurríkis
heim.
Höfum fulla trú á þessu
,,Það má eiginlega orða það svo að
við séum í dauðafæri á að komast í úr-
slitakeppnina. Við höfum aldrei verið
svona nálægt því áður og við allar
stelpurnar höfum fulla trú á að okkur
takist það. Það er mikil stemning og
trú í hópnum. Markmiðið hefur verið
svo lengi að komast á stórmót og nú
ætlum við að láta það verða að veru-
leika,“ sagði stórskyttan Rakel Dögg
Bragadóttir við Morgunblaðið en
Garðbæingurinn er á mála hjá norska
úrvalsdeildarliðinu Levanger og fram-
lengdi á dögunum samning sinn við
liðið um tvö ár.
Frakkar eru silfurverðlaunahafar
frá heimsmeistaramótinu í fyrra og
hafa verið í fremstu röð og ljóst er ís-
lenska liðsins bíður afar erfitt verkefni
gegn þeim en Frakkar unnu fyrri leik
þjóðanna með 9 marka mun, 32:23.
,,Hugsunin hjá okkur og drauma-
staðan er sú að við getum tryggt okk-
ur farseðilinn á EM á miðvikudaginn
með því að taka stig af Frökkunum.
Við hugsum eingöngu um Frakkaleik-
inn og bíðum með að spá í austurríska
liðið þar til eftir leikinn á móti Frökk-
unum. Á pappírunum eru Frakkarnir
með sterkara lið en við og þeir koma
hingað með sinn sterkasta hóp. Við
vitum hins vegar ekki hvernig hug-
arfarið verður hjá þeim þar sem þeir
eru búnir að tryggja EM sætið. Von-
andi nær Eyjafjallajökullinn að setja
smástrik í reikninginn í ferðalag
þeirra en að sjálfsögðu vitum við allar
að við þurfum að eiga toppleik til að
vinna franska liðið,“ sagði Rakel.
Rakel segir mjög mikilvægt að Ís-
lendingar fjölmenni á leikinn og hvetji
íslenska liðið til dáða. ,,Ef hugarfarið
verður rétt hjá okkur og við fáum
brjálaðan stuðning þá veit ég að við
getum komið Frökkunum á óvart og
lagt þá að velli.“
Fótboltalandsliðið hvatning
Rakel segir að sá árangur hjá
kvennalandsliðinu í fótbolta að komast
í lokakeppni EM í Finnlandi í fyrra sé
góð hvatning. ,,Þetta var frábært af-
rek hjá fótboltalandsliðinu og fyrst
þær gátu það þá getum við það líka.
Árangur þeirra gefur okkur trú á að
við getum náð okkar markmiðum.“
Rakel gekk í raðir Levanger í Nor-
egi í nóvember á síðasta ári frá danska
liðinu Kolding og hefur staðið sig afar
vel með liðinu.
,,Ég hef bætt mig heilmikið og það
var rétt ákvörðun hjá mér að fara til
Noregs. Ég er í stóru hlutverki með
liðinu í næststerkustu deild í heimi og
það gekk mjög vel hjá mér eftir ára-
mótin. Ég er mjög ánægð og hlakka til
næsta tímabils og að spila með Ram-
une Pekarskyte,“ sagði Rakel en
Ramune hefur leikið með Haukum
mörg undanfarin ár.
Morgunblaðið/Eggert
Fagnað Rut Jónsdóttir, Hanna G. Stefánsdóttir og Anna Úrsúla Guðmundsdóttir ánægðar eftir að sigur á fyrri leiknum
gegn Austurríki var í höfn. Íslenska liðið fær Frakka í heimsókn á miðvikudaginn og fer síðan til Austurríkis.
,,Erum í dauðafæri
að komast á EM“
Eitt stig í viðbót nægir Gegn Frökkum eða Austurríki
Hópurinn sem Júlíus Jónasson
þjálfari kvennalandsliðsins í
handknattleik hefur valið er
þannig skipaður:
MARKVERÐIR:
Berglind Íris Hansdóttir, Val
Guðrún Ó. Maríasdóttir, Fylki
Íris Björk Símonardóttir, Fram
AÐRIR LEIKMENN:
Anna Ú. Guðmundsdóttir,Val
Arna Sif Pálsdóttir, Horsens
Ásta B. Gunnarsdóttir, Fram
Elísabet Gunnarsdóttir, Stjörn.
Guðrún Þ. Hálfdánardóttir, Fram
Hanna G. Stefánsdóttir, Haukum
Harpa S. Eyjólfsdóttir, Stjörn.
Hildigunnur Einarsdóttir, Val
Hrafnhildur Skúladóttir, Val
Karen Knútsdóttir, Fram
Rakel D. Bragadóttir, Levanger
Rebekka R. Skúladóttir, Val
Rut Jónsdóttir, Tvis Holstebro
Stella Sigurðardóttir, Fram
Sunna Jónsdóttir, Fylkir
Júlíus mun fækka í hópnum
niður í 16 eftir helgina en Ísland
tekur á móti Frakklandi í Laug-
ardalshöllinni á miðvikudaginn
og sækir síðan Austurríki heim
um næstu helgi.
Úrslit leikja í riðlinum:
Frakkland – Ísland.............. 32:23
Austurríki – Bretland ........ 30:20
Bretland – Frakkland.......... 16:42
Ísland – Austurríki ............. 29:25
Bretland – Ísland ................ 16:27
Austurríki – Frakkland ....... 24:27
Ísland – Bretland............... 40:20
Frakkland – Austurríki ....... 29:22
Frakkland er með 8 stig og
komið á EM. Ísland er með 6 stig,
Austurríki 2 en Bretland ekkert
stig.
Landsliðshópurinn
Þessi lið drógust saman í 3.
umferð VISA-bikars karla,
bikarkeppni KSÍ, í gær:
MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ:
ÍBV – KR
Víkingur R. – Sindri
BÍ/Bolungarvík – Völsungur
Þróttur R. – Grótta
Grindavík – Þór
Víðir – Fylkir
Fjarðabyggð – Njarðvík
Valur – Afturelding
KB – Víkingur Ó.
Keflavík – KS/Leiftur
KA – HK
FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ:
ÍA – Selfoss
Breiðablik – FH
Leiknir R. – Stjarnan
Haukar – Fjölnir
Fram – ÍR
16-liða úrslit keppninnar eru
síðan leikin 23. og 24. júní, 8-liða
úrslitin 11.-12. júlí, undanúrslitin
28. og 29. júlí og úrslitaleikurinn
fer fram á Laugardalsvellinum
laugardaginn 14. ágúst.
VISA-bikarinn
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Gylfi Sigurðsson, hinn nýbakaði landsliðsmaður úr
enska 1. deildarliðinu Reading, hefur ákveðið að
gera nýjan samning við félagið. Gylfi átti tvö ár eftir
af samningi sínum en eftir frábæra frammistöðu
með Reading á nýafstöðnu tímabili hafa mörg lið
sýnt honum áhuga. Þeirra á meðal eru ensku úrvals-
deildarliðin Bolton, WBA, Fulham og Wolves en
hann fékk á dögunum nýtt samningstilboð frá Read-
ing og hefur ákveðið að taka því.
,,Það er fínt að taka alla vega eitt ár til viðbótar
með Reading. Þetta er nýr og betri samningur sem
er til þriggja ára. Mér líst vel á hann og ég teldi vit-
laust að fara eitthvað annað á þessum tímapunkti.
f
m
m
Gylfi ætlar að taka s
G
S