Morgunblaðið - 22.05.2010, Side 3
Íþróttir 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2010
LogiGunn-arsson
landsliðsmaður í
körfuknattleik er
kominn í sumarfrí
eftir að liði hans
St. Etienne mis-
tókst að komast í
úrslitakeppnina í
C- deildinni í
Frakklandi. St. Etienne er gamalt
stórveldi en var dæmt niður í C-deild
vegna spillingarmála sem tengdust
eiganda félagsins. Liðið byrjaði mjög
illa í haust vegna þessa og hafnaði að
lokum í 12. sæti deildarinnar. Logi
lagði sitt af mörkum í síðasta leiknum
og skoraði 26 stig.
Körfuknattleiksmaðurinn DaníelGuðni Guðmundsson er genginn
í raðir Stjörnunnar en hann hefur
leikið með Breiðabliki síðustu tvö
keppnistímabil. Daníel er uppalinn
Njarðvíkingur og þekkir þjálfara
Stjörnunnar, Teit Örlygsson, frá
fornu fari. Daníel var kjörinn leik-
maður ársins hjá Breiðabliki á síðustu
leiktíð en liðið féll niður í 1. deild.
Stjarnan hefur þegar fengið Marvin
Valdimarsson frá Hamri og mætir því
að öllum líkindum með mjög sterkt lið
til leiks í haust.
Eygló MyrraÓsk-
arsdóttir úr Golf-
klúbbnum Oddi
lauk leik í fyrri-
nótt á lokamóti
bandarísku há-
skólamótarað-
arinnar NCAA en
Eygló leikur fyrir
Oklahoma State skólann. Lið Okla-
homa hafnaði í 9. sæti í liðakeppninni
en Eygló var langt frá sínu besta og
hafnaði í neðsta sæti í einstaklings-
keppninni.
Ragna Björk Ólafsdóttir úr Keililék ágætlega fyrir McLennan
skólann á lokamóti NJCAA-
mótaraðarinnar. Ragna lék á 239
höggum og hafnaði í 18. sæti í ein-
staklingskeppninni. Skólinn hafnaði í
2. sæti í liðakeppninni, átta höggum á
eftir sigurliðinu.
Alexander Pet-ersson skor-
aði 5 mörk fyrir
Flensburg í gær
þegar lið hans
burstaði Minden á
útivelli, 40:22, í
þýsku 1. deildinni í
handknattleik.
Gylfi Gylfason
skoraði ekki fyrir
Minden og Ingimundur Ingimund-
arson lék ekki með liðinu sem er svo
gott sem fallið í 2. deild. Grosswall-
stadt vann Wetzlar, 28:25, en hvorki
Einar Hólmgeirsson né Sverre Jak-
obsson náðu að skora fyrir Grosswall-
stadt.
Stúlknalandsliðið í handknattleik,skipað leikmönnum 20 ára og
yngri, tapaði fyrir Rúmeníu, 28:31, í
fyrsta leik sínum í undankeppni
heimsmeistaramótsins í gær en leikið
var í Rúmeníu. Heimastúlkur voru yf-
ir í hálfleik, 14:12, en Ísland var yfir,
23:21, þegar 10 mínútur voru eftir af
leiknum. Íslenska liðið leikur við
Frakkland í dag og Króatíu á morgun.
U18 ára landslið pilta í handknatt-leik vann Belgíu örugglega,
33:24, í undankeppni EM í Belgíu í
gærkvöld. Sveinn Aron Sveinsson
skoraði 7 mörk fyrir íslenska liðið og
Guðmundur Hólmar Helgason 6.
HSÍ og fjarskiptafyrirtækið Mílaskrifuðu í gær undir samstarfs-
samning. Mun Míla verða einn af að-
alstyrktaraðilum kvennalandsliðs
HSÍ, ásamt Póstinum og Lyfju.
Fólk sport@mbl.is
Óhætt er að segja að boðið verði upp
á sannkallaðan stórleik í 32-liða úr-
slitum Visabikarkeppni karla í knatt-
spyrnu en dregið var í gær. Ríkjandi
bikarmeistarar í Breiðabliki drógust
gegn Íslandsmeisturum FH og fer
leikurinn fram á Kópavogsvelli. Tvö
önnur úrvalsdeildarlið drógust saman
en ÍBV og KR munu mætast í Vest-
mannaeyjum. Allir leikirnir verða
spilaðir 2. og 3. júní. Tvö lið úr 3.
deild eru enn með í keppninni. Ann-
ars vegar Sindri frá Hornafirði sem
sækir Víking heim í Fossvoginn og
hins vegar KB sem fær Víking Ólafs-
vík í heimsókn í Breiðholtið. Sex lið
úr 2. deild eru eftir í keppninni og alla
vega eitt þeirra kemst í 16-liða úrslit-
in því BÍ/Bolungarvík og Völsungur
drógust saman.
Landsliðsmarkvörðurinn Gunn-
leifur Gunnleifsson segir FH-inga
stefna á sigur í öllum mótum. „FH fer
í öll mót til að vinna þau og það verð-
ur engin breyting á því. Við ætlum
okkur alla leið í bikarnum. Það er því
alveg eins gott að fá bikarmeistarana
strax. Það skiptir ekki máli í raun og
veru. Það eru nokkrir leikir í þessari
keppni fyrir þau lið sem fara alla leið
í úrslit. FH er Íslandsmeistari og við
ætlum okkur stóra hluti,“ sagði
Gunnleifur í samtali við Morg-
unblaðið.
Kári Ársælsson fyrirliði Blika segir
Kópavogsbúa vera áhugasama um að
komast aftur í úrslitaleikinn á Laug-
ardalsvelli eftir upplifunina í fyrra.
„Alveg klárlega. Eftir því sem nær
dregur úrslitaleiknum því skemmti-
legri verða leikirnir. Þetta er kannski
ekki draumadrátturinn því það er nú
yfirleitt betra að fá neðri deildar lið í
32 - liða úrslitum, með fullri virðingu
fyrir þeim,“ sagði Kári við Morg-
unblaðið í gær en hann varð mjög
hvumsa þegar hann sá að FH hafði
komið upp úr hattinum. „Við Óli þjálf-
ari vorum að ræða þetta á hádegisæf-
ingu í dag og ég hélt að við gætum
ekki mætt liði úr sömu deild í þessari
umferð. Þetta kom mér því hressilega
á óvart,“ sagði Kári og hann varð ör-
lítið hressari þegar blaðamaður til-
kynnti honum að Breiðablik hefði
fengið heimaleik. kris@mbl.is
Fyrirliði Breiðabliks kom af fjöllum
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
„Þátttaka okkar í þessari Evrópu-
keppni hefur verið einn draumur til
þessa. Við erum búnir að slá út tvö
þýsk lið, Flensburg og Göppingen, og
erum staðráðnir í að fara alla leið,
vinna Lemgo og verða Evrópumeist-
arar,“ sagði Björgvin Páll Gústavsson,
markvörður svissnesku meistaranna
Kadetten og íslenska landsliðsins í
handknattleik, við Morgunblaðið í gær.
Lemgo og Kadetten mætast á morg-
un í fyrri úrslitaleik EHF-bikarsins en
hann fer fram í Lipperlandhöllinni í
Lemgo.
Seinni leikurinn fer fram í Schaff-
hausen í Sviss næsta laugardag. Björg-
vin mætir í þessum leikjum Vigni Svav-
arssyni, línumanni úr landsliðinu, en
Logi Geirsson leikur ekki með Lemgo
þótt hann sé enn í leikmannahópi fé-
lagsins.
„Það verður gaman að hitta Vigni,
við erum góðir félagar og hann hefur
spilað mikið með Lemgo í undan-
förnum leikjum. Logi verður í stúkunni
að fylgjast með. Við erum búnir að slá
út eitt Íslendingalið, Flensburg, þar
sem Alexander Petersson var besti
maðurinn á móti okkur, og það yrði
sætt að ná líka að leggja Lemgo að
velli,“ sagði Björgvin.
Framganga Kadetten í vetur hefur
komið geysilega á óvart. Liðið varð
svissneskur meistari með yfirburðum
og hefur sýnt styrk sinn í EHF-
bikarnum svo um munar. Kadetten
vann m.a. sannfærandi sigra á hinu
geysisterka liði Astrakhan frá Rúss-
landi fyrr í keppninni.
„Ég sagði þegar ég kom til Sviss að
ég væri kominn í lið sem væri í þeim
styrkleika að það væri í hópi tíu bestu í
Þýskalandi. Flestir hlógu að mér á
þeim tíma en þeir gera það ekki lengur.
Lemgo er samt sigurstranglega liðið
í þessari viðureign, það er stóra liðið í
þessum leikjum, og öll pressan er á
Þjóðverjunum. Þeir mega ekki mis-
stíga sig, ef þeir vinna ekki þessa
keppni fá þeir ekki Evrópusæti á
næsta tímabili en við erum hins vegar
búnir að tryggja okkur sæti í Meist-
aradeild Evrópu.
Við mætum afslappaðir til leiks og
ætlum okkur að ná sem bestum úrslit-
um í útileiknum. Þar byggist allt á því
að byrja leikinn vel og lenda ekki
mörgum mörkum undir snemma. Við
munum ekki einblína á tölurnar sem
slíkar, heldur að spila sem best og sjá
hve langt það fleytir okkur, og hvaða
stöðu við náum í fyrir seinni leikinn á
okkar heimavelli.“
Schaffhausen, heimabær Kadetten,
er alveg við þýsku landamærin en
Björgvin sagði að samt væri 6-8 tíma
keyrsla til Lemgo. „Við förum því með
flugi í fyrramálið, svo framarlega sem
jökullinn heima er ekki að stríða okkur,
en annars yrðum við að keyra ef flug-
vellirnir lokast.“
Róbert líka í úrslitaleik
Þeir Björgvin og Vignir eru ekki
einu Íslendingarnir í úrslitaleikjum í
Evrópukeppni. Róbert Gunnarsson,
fyrirliði Gummersbach, leikur með sín-
um mönnum gegn Granollers frá Spáni
í dag en það er fyrri úrslitaleikurinn í
Evrópukeppni bikarhafa. Hann fer
fram á heimavelli Gummersbach í
Þýskalandi en seinni leikurinn verður á
Spáni um næstu helgi.
Eitt Íslendingalið enn, Kiel, gæti
komist í úrslit í Meistaradeild Evrópu
en lokakeppni fjögurra efstu liðanna
þar verður leikin í Köln um næstu
helgi. Kiel leikur þá við Evrópumeist-
ara Ciudad Real í undanúrslitum.
Morgunblaðið/Kristinn
Óvænt Björgvin Páll Gústavsson og félagar í Kadetten hafa komið verulega á
óvart í EHF-bikarnum í vetur og nú blasa við úrslitaleikir gegn Lemgo.
Björgvin Páll og Vignir mætast í fyrri
úrslitaleik EHF-bikarsins á morgun
„Þetta hefur
verið einn
draumur“
Það er mikilvægara að fá að spila
heldur en að sitja kannski á
bekknum hjá öðru liði. Ef ég
stend mig aftur vel á næsta tíma-
bili þá er möguleiki á að stærri
lið komi inn í myndina,“ sagði
Gylfi Þór við Morgunblaðið í
gærkvöld en hann var í vikunni
valinn í A-landsliðið í fyrsta sinn
og kemur til að fá eldskírnina í
leik á móti Andorra á Laugar-
dalsvellinum um næstu helgi.
Gylfi, sem er tvítugur að aldri, sló í gegn á sínu
fyrsta heila tímabili með Reading. Hann varð
markahæsti leikmaður liðsins á tímabilinu með 20
mörk og lagði upp flest mörkin og í lok leiktíð-
arinnar var hann útnefndur leikmaður ársins hjá
stuðningsmönnum Reading.
Draumurinn að spila í úrvalsdeildinni
,,Draumurinn er að spila í ensku úrvalsdeildinni
og það er vonandi að við förum upp á næsta tímabili.
Ef það tekst ekki þá sé ég bara til,“ sagði Gylfi Þór.
Það er því ljóst að Reading mun skarta áfram
þremur Íslendingum á næsta tímabili því þeir Ívar
Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson hafa á
síðustu dögum báðir gert nýja eins árs samninga við
liðið.
,,Ég er ánægður að þeir verði áfram. Það er fínt
að hafa smá reynslu í liðinu og þeir Ívar og Brynjar
hafa staðið sig mjög vel með liðinu síðustu árin,“
sagði Gylfi Þór.
samningstilboði Reading
Gylfi Þór
Sigurðsson
Það ræðst í kvöld hvort það verður Bayern München
eða Inter sem hampar Evrópumeistaratitlinum í
knattspyrnu en liðin leiða saman hesta sína í úrslita-
leik Meistaradeildarinnar á Santiago Bernabéu,
heimavelli Real Madrid, klukkan 18.45. Inter mun
spila án Portúgalans Thiago Motta sem tekur út leik-
bann en meiri blóðtaka er hjá Bæjurum þar sem
Franck Ribéry er í leikbanni.
Í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport
Milljónir manna um allan heim munu fylgjast spenntar
með leiknum og hér heima á Fróni verður hægt að
fylgjast með leiknum í beinni útsendingu á Stöð 2
Sport, sem sendir leikinn út í opinni dagskrá. Í fyrsta
skipti er leikið til úrslita á laugardagskvöldi og hinn
glæsilegi leikvangur Real verður stútfullur en hann
tekur rúmlega 80.000 manns. gummih@mbl.is
Bayern eða Inter?