Morgunblaðið - 22.05.2010, Page 4

Morgunblaðið - 22.05.2010, Page 4
4 Íþróttir MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2010 Ragna Ing-ólfsdóttir, Íslandsmeistari í badminton, féll í gær úr keppni á opna spænska meistaramótinu eftir naumt tap fyrir Sarah Wal- ker frá Eng- landi í þriggja lotu hörkuleik sem sú enska vann 2:1. Walker vann fyrstu lotuna 21:18 en Ragna rúll- aði yfir hana í annarri lotu, 21:9. Sú þriðja fór síðan á sama veg og sú fyrsta, 21:18 fyrir Walker sem þar með var komin áfram. Ragna skoraði þó fleiri stig í lotunum þremur, 57 stig gegn 51 hjá and- stæðingnum. Ragna fór beint í 1. umferðina en Sarah Walker komst áfram úr undankeppninni sem var í fyrradag.    Íslands- og bikarmeistararHauka í handknattleik hafa fengið til liðs við sig rétthentu skyttuna Svein Þorgeirsson. Sveinn kemur til Haukanna frá Víkingi en hann er uppalinn Fjöln- ismaður. Sveinn var markahæsti leikmaður Víkings á síðustu leiktíð og er honum ætlað að fylla skarð Sigurbergs Sveinssonar að ein- hverju leyti en Sigurbergur hefur samið við þýska liðið Dormagen.    Þá hefur GísliGuðmunds- son fyrrum markvörður Haukaliðsins verið ráðinn að- stoðarmaður Halldórs Ing- ólfssonar sem tekur við þjálfun liðsins af Aroni Kristjánssyni. Jafnframt mun Gísli sjá um markvarðaþjálfun bæði hjá meistaraflokki og yngri flokkum félagsins.    Það var Kristinn Steindórssonsem lagði upp síðara mark Breiðabliks fyrir Alfreð Finn- bogason gegn Val í úrvalsdeildinni í fyrrakvöld. Ekki Haukur Bald- vinsson eins og sagt var í umfjöll- un um leikinn í blaðinu í gær. Fólk sport@mbl.is Þessir eru með flest M í einkunnagjöf Morgunblaðsins. Gefið er eitt M fyrir góð- an leik, tvö M fyrir mjög góðan leik og þrjú M fyrir frábæran leik. Leikmenn Sævar Þór Gíslason, Selfossi...................... 4 Alfreð Finnbogason, Breiðabliki ............... 3 Andrés Már Jóhannesson, Fylki ............... 3 Arnar Sveinn Geirsson, Val........................ 3 Baldur Sigurðsson, KR............................... 3 Baldvin Sturluson, Stjörnunni ................... 3 Bjarni Guðjónsson, KR............................... 3 Daði Lárusson, Haukum ............................ 3 Gunnleifur Gunnleifsson, FH..................... 3 Haraldur F. Guðmundsson, Keflavík ........ 3 Ian Jeffs, Val................................................ 3 Ingvar Þór Kale, Breiðabliki...................... 3 Jón Guðni Fjóluson, Fram ......................... 3 Kristján Hauksson, Fram .......................... 3 Steinþór Þorsteinsson, Stjörnunni ............ 3 Lið Selfoss......................................................... 16 Stjarnan...................................................... 16 ÍBV ............................................................. 16 KR............................................................... 16 Fram........................................................... 15 Breiðablik................................................... 14 Keflavík ...................................................... 13 Fylkir.......................................................... 13 FH............................................................... 12 Valur ........................................................... 12 Haukar ....................................................... 11 Grindavík...................................................... 7 Einkunnagjöf Gul Rauð Stig Breiðablik................................... 1 0 1 Fram........................................... 3 0 3 Keflavík ...................................... 3 0 3 Stjarnan...................................... 6 0 6 FH............................................... 7 0 7 Fylkir.......................................... 7 0 7 Haukar ....................................... 7 0 7 Valur ........................................... 8 0 8 Selfoss......................................... 5 1 9 KR............................................... 6 1 10 Grindavík.................................... 3 2 11 ÍBV ............................................. 9 1 13  Gefið er eitt refsistig fyrir gult spjald og fjögur fyrir rautt spjald. Spjöldin II KR (2) ......................................... 4306 2153Haukar (1) ................................. 2153 2153 Grindavík (1) ............................. 1568 1568 FH (1) ........................................ 1527 1527 Fylkir (1) .................................... 1506 1506 Breiðablik (2) ............................. 2866 1433 Valur (3) ..................................... 3861 1287 Keflavík (1) ................................ 1260 1260 Selfoss (2) .................................. 2512 1256 Stjarnan (2) ............................... 2072 1036 Fram (2) ..................................... 1567 784 ÍBV (0) ............................................. 0 0 Samtals: 25.198. Meðaltal: 1.400.  Fjöldi heimaleikja í svigum. Fremri tal- an er heildarfjöldi áhorfenda á heima- leikjum viðkomandi liðs en aftari talan er meðaltal á hvern heimaleik. Aðsóknin Hér má sjá markskot liðanna, skot sem hitta á mark innan sviga og síðan mörk skoruð: KR ............................................ 45 (22) 5 Valur......................................... 42 (28) 3 FH ............................................ 39 (25) 5 Stjarnan ................................... 37 (20) 7 Fram ........................................ 37 (18) 6 Fylkir ....................................... 35 (21) 7 Keflavík.................................... 35 (21) 4 Haukar..................................... 30 (16) 2 ÍBV........................................... 28 (17) 4 Breiðablik ................................ 27 (19) 4 Selfoss ...................................... 25 (14) 6 Grindavík ................................. 19 (8) 0 Markskotin Halldór Orri Björnsson, Stjörnunni .......... 3 Ívar Björnsson, Fram................................. 3 Alfreð Finnbogason, Breiðabliki ............... 2 Jóhann Þórhallsson, Fylki.......................... 2 Jón Daði Böðvarsson, Selfossi ................... 2 Kjartan Henry Finnbogason, KR.............. 2 Markahæstir Guðmundssonar á FH-liðinu. „Við hefðum líklega ekki farið út í að pressa FH-liðið svona framarlega ef Tryggvi hefði ekki lagt það til. Eins og hann sagði sjálfur þá þekkir hann FH-liðið náttúrlega mjög vel. Hann vissi um veikleika og styrkleika liðs- ins. Við spiluðum með tvo frammi í leiknum og það gerum við ekki oft.“ Fjórði leikurinn í efstu deild Ekki er hægt að segja að Eyþór sé reynslubolti eins og Tryggvi fé- lagi hans í framlínunni. Eyþór er að- eins 21 árs gamall og er uppalinn hjá HK. Þar fékk hann smjörþefinn af efstu deild sumarið 2008 og svo var hann kominn í herbúðir ÍBV síðast- liðið haust. „Ég held að þetta hafi bara verið fjórði leikurinn sem ég hef tekið þátt í og annar leikurinn þar sem ég er í byrjunarliði í efstu deild,“ sagði Eyþór og hann segist yfirleitt hafa spilað framarlega á vellinum. „Fyrir utan það þegar ég fór í miðvörðinn í 4. flokki. Þá vorum við Aaron Palomares mið- verðir en hann er nú kantmaður í meist- araflokki HK. Það er skemmtileg tilviljun en annars hef ég spil- að framarlega á vell- inum, annaðhvort sem framherji eða kantmað- ur. Ég kann best við mig á fremri hluta vallarins,“ sagði Eyþór og gat ekki neitað því að frammistaðan gegn FH gæfi honum byr undir báða vængi í framhaldinu. „Já, alveg klár- lega. Maður verður að byggja ofan á þetta. Þetta er náttúrlega bara einn leikur og maður verður að sýna fleiri svona takta. Ég æfði vel í vetur og spilaði marga leiki. Maður er því alveg tilbúinn í þessa bar- áttu. Sjálfs- traustið óx heldur betur á undirbúnings- tímabilinu og þá sér- staklega þegar mörkin fóru að koma í deildabik- arnum,“ sagði Eyþór sem lék mestan hluta síðasta sumars með 3. deildarliði Ýmis, sem er í raun B-lið HK. Eyþór segir það vissulega hafa verið stórt stökk að fara úr 3. deildarleikjum yfir í það að leika á heimavelli Íslandsmeistaranna. „Það eru svo sannarlega viðbrigði. Það er allt annar klassi á þessu. Það hjálpar mjög að hafa Heimi sem þjálfara vegna þess að hann hefur verið mjög duglegur að gefa mér tækifæri. Ég hef reynt að nýta þau tækifæri eins vel og ég get. Það skemmir heldur ekki fyrir að hafa svona snilling við hliðina á sér eins og Tryggva Guð- mundsson. Hann er reynslubolti og hjálpar manni gríðarlega mikið. Mér hefur fundist vera stígandi í mínum leik eft- ir að hann kom til félags- ins,“ sagði Eyþór og hann er óspar á lofið þegar Tryggvi berst í tal. Gagnrýni frá Tryggva „Tryggvi er mjög gagnrýninn á mig og ég kann að meta það. Hann hefur hjálpað mér mikið með því að segja mér hvað ég sé að gera rétt og hvað ég sé að gera vit- laust. Einnig er frábært að eiga liðsfélaga eins og í ÍBV-liðinu. Leik- mannahópurinn hef- ur þjappað sér vel saman og leik- menn standa vel við bakið á manni,“ út- skýrir Eyþór og hann segir leik- menn ÍBV vera orðna spennta fyrir því að geta spilað á heimavelli en bið hefur orðið á því vegna þess ösku- falls sem varð í Vestmannaeyjum á dögunum. „Já, það kitlar okkur að fara og spila fyrir Eyjamenn á Há- steinsvelli. Við höfum þurft að bíða eftir því,“ sagði Eyþór ennfremur. Lék í 3. deild og lék sér að FH-ingum ári síðar  Eyþór Helgi Birgisson stökk upp um 3 deildir  Fékk tvö M fyrir frammistöð- una gegn Íslandsmeisturunum  Segir Heimi og Tryggva hafa hjálpað sér Morgunblaðið/hag Frískur Varnarmenn FH voru í mestu vand- ræðum með að ráða við Eyþór Helga Birgisson í leikn- um í Kaplakrika í fyrrakvöld. VIÐTAL Kristján Jónsson kris@mbl.is Ungur sóknarmaður vakti mikla at- hygli í liði ÍBV í sigurleiknum gegn FH á fimmtudagskvöldið. Sá heitir Eyþór Helgi Birgisson og fékk tvö M í einkunnargjöf Morgunblaðsins fyrir frammistöðuna. Hann skoraði eitt marka ÍBV og fékk að auki víta- spyrnu í 3:2 útisigri Eyjamanna á meisturunum. „Þetta var skemmtilegt. Hlutirnir þróuðust eins og við lögðum upp með. Okkar áætlun gekk út á að skora snemma og setja annað mark í kjölfarið. Það gekk algerlega eftir en það var hins vegar ekki planið að missa forskotið niður eins og við gerðum. Við ætluðum alltaf að fara í Hafnarfjörðinn og taka þrjú stig. Heimir var búinn að þjappa það inn í hausinn á okkur. Við komum því mjög vel stemmdir inn í þennan leik,“ sagði Eyþór þegar Morgun- blaðið ræddi við hann í gær og fer ekki leynt með þá bjartsýni sem ríkti hjá Eyjamönnum fyrir leik- inn. Hann segir upplegg Heimis Hallgrímssonar þjálfara fyrir leik- inn hafa skipt miklu máli og einnig þekkingu Tryggva Lið 3. umferðar í Pepsi-deild karla 4-3-3 Hannes Þór Halldórsson Fram Baldvin Sturluson Stjörnunni Eiður Aron Sigurbjörnsson ÍBV Haraldur Freyr Guðmundsson Keflavík Andri Freyr Björnsson Selfossi Halldór Hermann Jónsson Fram Ingólfur Þórarinsson Selfossi Kristinn Steindórsson Breiðabliki Eyþór Helgi Birgisson ÍBV Kjartan Henry Finnbogason KR Alfreð Finnbogason Breiðabliki Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 2 2 Þótt KR-ingum hafi ekki lánast að innbyrða sigur í fyrstu þremur um- ferðum úrvalsdeildarinnar í fótbolta eru þeir það lið sem oftast hefur skotið að marki andstæðinganna til þessa. Eins og sjá má hér til hliðar eru þeir í efsta sæti á töflunni yfir markskotin í deildinni, hafa skotið 45 sinnum að marki, eða 15 sinnum að meðaltali í leik. Það eru hins vegar Valsmenn sem oftast hafa hitt á mark mótherjanna, 28 sinnum í fyrstu þremur leikj- unum, en hafa þó aðeins uppskorið þrjú mörk og eru líka án sigurs, eins og KR-ingar. Á hinum enda „skottöflunnar“ sitja Grindvíkingar en þeir hafa enn sem komið er aðeins hitt mark mót- herjanna átta sinnum í þremur leikj- um og eiga enn eftir að skora mark. Blikarnir prúðastir Breiðablik er með prúðasta liðið í fyrstu þremur umferðunum en Blik- arnir hafa aðeins fengið eitt gult spjald til þessa. Eyjamenn hafa hins vegar verið í mestum samskiptum við dómarana og fengið níu gul spjöld og eitt rautt. Eftir fimm rauð spjöld í fyrstu tveimur umferðunum fór ekkert slíkt á loft í 3. umferðinni. vs@mbl.is KR-ingar skjóta oftast að marki

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.