Morgunblaðið - 04.06.2010, Side 1

Morgunblaðið - 04.06.2010, Side 1
Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Landsliðsmaðurinn Arnór Smárason gæti verið á leið til danska úrvalsdeildarliðsins Esbjerg en félagið hefur mikinn áhuga á að tryggja sér þjónustu ís- lenska framherjans og hefur gert honum til- boð. Skagamaðurinn er laus allra mála frá hollenska liðinu Heerenveen en hann hefur verið á mála hjá liðinu und- anfarin ár og sló í gegn með því tímabilið 2008-09 en missti af nær allri síðustu leiktíð vegna þrálátra meiðsla aftan í læri. ,,Ég er með tilboð frá nokkrum liðum og ég get staðfest að eitt þeirra er frá Esbjerg,“ sagði Arnór í samtali við Morgunblaðið í gær en lið í Hollandi og Noregi hefur einnig falast eftir kröftum hans. ,,Það er ekkert komið á hreint ennþá hvert ég fer en danski fótboltinn er mjög áhugaverð- ur og danska deildin er klárlega sú sterkasta í Skandinavíu um þessar mundir. Það væri því spennandi kostur að spila í Danmörku,“ sagði Arnór, sem vonast til að fá sín mál á hreint í næstu viku. Arnór er svo til nýbyrjaður að spila aftur en hann var frá æfingum og keppni í níu mánuði vegna meiðslanna aftan í læri. ,,Þetta var ansi erfiður tími en ég er búinn að vera heill frá því í mars og þetta er allt að koma hjá mér,“ sagði hinn 21 árs gamli Arnór sem lék sinn 8. leik með A-landsliðinu í 4:0 sigri gegn Andorra um síðustu helgi. Eyjamaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson er á mála hjá Esbjerg en hefur ekki verið inni í myndinni hjá þjálfara liðsins og var í láni hjá Reading í Eng- landi seinni hluta síðasta tímabils. FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2010 íþróttir B-riðill á HM Hleypur Maradona nakinn um götur Buenos Aires? Grikkir með 72 ára gamlan nýliða. Í hvaða hlutverki verður Messi? Vinnuhestur alinn á soðnum froskasafa. 4 Íþróttir mbl.is Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Guðmundur Guðmundsson þjálfari karla- landsliðs Íslands í handknattleik tilkynnti í gær 21 manns leikmannahóp fyrir æfingaleiki við Danmörku og Brasilíu í þessum mánuði. Á listanum eru menn sem eru að stíga sín fyrstu skref með sterkasta landsliðshópi Íslands, eins og til að mynda Oddur Gretarsson Ak- ureyringur, sem á þó að baki tvo landsleiki með nokkurs konar B-landsliði þjóðarinnar. Hann var í skýjunum þegar Morgunblaðið sló á þráðinn í gær. „Mér líður bara frábærlega. Þetta er það sem maður hefur stefnt að lengi. Þetta er svo- lítið snemmt og kom kannski smá á óvart en eftir þetta tímabil núna var maður samt alveg farinn að gera sér vonir um að detta inn í hóp- inn. Ég er mjög stoltur af þessu,“ sagði Odd- ur sem mun berjast um stöðu vinstri horna- manns við Sturlu Ásgeirsson en þeir Guðjón Valur Sigurðsson og Logi Geirsson eru báðir frá vegna meiðsla. „Það er vonandi að maður fái einhvern séns til að sýna sig og sanna en það verður bara að koma í ljós,“ sagði Oddur. „Leiðinlegt í útskriftarveislum“ Leikið er við Dani 8. og 9. júní í Laug- ardalshöll en 13. júní heldur hópurinn til Brasilíu þar sem hann mætir heimamönnum 16. og 18. júní. Þetta hefur ákveðnar afleið- ingar fyrir Odd sem er að ljúka námi í Menntaskólanum á Akureyri. „Maður þarf að aflýsa útskriftarveislu, það er ljóst. Ég held að það sé samt bara fínt, það er leiðinlegt í útskriftarveislum,“ sagði Oddur léttur í bragði en áhugasömum er bent á að skilja eftir útskriftargjafir á heimili hans. Þessi tæplega tvítugi hornamaður, sem leikið hefur fjölda landsleikja með yngri landsliðum Íslands, stóð sig með mikilli prýði í liði Akureyrar í vetur en norðanmenn voru sem kunnugt er hársbreidd frá því að komast í úrslitaeinvígi við Hauka á Íslandsmótinu. Oddur ætlar sér að leika áfram með Akureyr- ingum á næstu leiktíð undir stjórn nýs þjálf- ara, Atla Hilmarssonar: „Ég verð á Akureyri áfram og það er verið að ganga frá því. Ég ætla að fara í háskóla hér og einbeita mér svo bara að því að verða betri handboltamaður.“ Fimm leikmenn í hópnum léku í N1- deildinni í vetur en þar af hafa þrír nú samið við erlend félög, til að mynda Arnór Þór Gunnarsson en þeir Oddur eru einu „nýlið- arnir“ í sterkasta landsliðshópnum. Þeir hafa þó báðir leikið með því sem má kalla B- landslið Íslands. Oddur aflýsir veislunni  Guðmundur valdi 21 leikmann fyrir leikina við Danmörku og Brasilíu  Fimm leikmenn léku í N1-deildinni í vetur  Oddur og Arnór „nýliðar“ Handknatt- leikskapp- inn Valdi- mar Fannar Þórs- son kom til lands- ins í gær eftir nokkura daga dvöl í Danmörku en þar var hann til skoðunar hjá danska úrvalsdeildarlið- inu Viborg. ,,Ég veit lítið um framhaldið. Þeir sögð- ust ætla að vera í sambandi en mín tilfinning er sú að þetta gangi ekki,“ sagði Valdimar við Morgunblaðið í gær. Valdimar er lykilmaður í HK-liðinu. Hann varð í 2.-3. sæti yfir markahæstu leikmenn í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og var valinn leik- maður ársins í lokahófi HSÍ. Valdimar, sem lék með sænska liðinu Malmö leiktíð- ina 2007-08, reiknar með að halda fljótlega til Noregs en nokkur lið þar í landi hafa sýnt áhuga á að fá hann til liðs við sig, eitt þeirra er Elverum sem Eyjamaðurinn Sigurður Ari Stef- ánsson leikur með. gummih@mbl.is Nokkur norsk lið vilja fá Valdimar Valdimar Þórsson Forráðamenn norska knattspyrnuliðsins Viking í Stavanger vilja gjarnan framlengja samn- inginn við Birki Bjarnason en samningur hans við félag- ið rennur út á næsta ári. Birkir hefur farið á kostum með liði Viking á leiktíðinni og þrátt fyrir ungan aldur er hann orðinn lykilmaður liðsins, sem er í sjötta sæti norsku úr- valsdeildarinnar. Birkir, sem lék sinn fyrsta leik með ís- lenska A-landsliðinu gegn An- dorra um síðustu helgi, hefur vakið áhuga margra félaga fyrir frammistöðu sína. Egil Østenstad, yfirmaður knatt- spyrnumála hjá Viking, segir í viðtali við norska blaðið Rogeland Avis að vilji félagsins sé að framlengja samn- inginn við Birki enda sé litið á hann sem framtíðarmann í liðinu en hann dregur ekki úr því mikilvægi félagsins að fá eins hátt verð fyrir Birki og mögulegt er, ákveði útlend félög að draga upp tékkheftið og kaupa Íslendinginn unga en litið er á Birki sem helstu söluvöru Viking. Tveir aðrir Íslendingar leika með Stavangursliðinu, Indriði Sigurðs- son, sem er samningsbundinn Viking til ársins 2012 og Stefán Gíslason en hann er í láni frá Bröndby. Sá samningur rennur út þann 1. ágúst en vilji forráðamanna Viking er að framlengja þann samning. gummih@mbl.is ,,Spennandi kostur að spila í Danmörku“ Viking vill framlengja við Birki MARKMENN: Aron Rafn Eðvarðsson, Haukum Björgvin Páll Gústavsson, Kadetten Hreiðar Levy Guðmundsson, TV Emsdetten AÐRIR LEIKMENN: Alexander Petersson, Flensburg Arnór Atlason, FC Köbenhavn Arnór Þór Gunnarsson, Val Aron Pálmarsson, Kiel Ásgeir Örn Hallgrímsson, Faaborg Ingimundur Ingimundarson, Minden Kári Kristján Kristjánsson, Amicitia Zurich Oddur Gretarsson, Akureyri Ólafur Andrés Guðmundsson, FH Ólafur Stefánsson, RN Löwen Róbert Gunnarsson, Gummersbach Rúnar Kárason, Füsche Berlin Sigurbergur Sveinsson, Haukum Snorri Steinn Guðjónsson, RN Löwen Sturla Ásgeirsson, Düsseldorf Sverre Jakobsson, Grosswallstadt Vignir Svavarsson, Lemgo Þórir Ólafsson, N-Lübbecke Landsliðshópurinn HANDBOLTI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.