Morgunblaðið - 04.06.2010, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 04.06.2010, Qupperneq 2
2 Íþróttir MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2010 KNATTSPYRNA VISA-bikarinn Bikarkeppni karla, 32ja liða úrslit: Leiknir R. – Stjarnan .............................. 1:3 Aron Daníelsson 44. – Daníel Laxdal 77., 90., Halldór Orri Björnsson 73.(víti) Rautt spjald: Steinarr Guðmundsson (Leikni) 73. ÍA – Selfoss ............................................... 2:1 Andri Júlíusson 45., Andri Geir Alexand- ersson 79. – Davíð Birgisson 50. Þróttur R. – Grótta.................................. 3:1 Halldór Hilmisson 37., 80., Andrés Vil- hjálmsson 68. – Elvar F. Arnþórsson 36. Grindavík – Þór ....................................... 2:1 Jósef K. Jósefsson 85., Gilles M. Ondo 87. – Nenad Zivanovic 5. Víðir – Fylkir ........................................... 0:2 Jóhann Þórhallsson 23., Tómas Þorsteins- son 88. Valur – Afturelding................................. 2:1 Haukur Páll Sigurðsson 28., Viktor Unnar Illugason 85. (víti) – Arnór Þrastarson 26. Keflavík – KS/Leiftur............................. 1:0 Magnús Þórir Matthíasson 63. Haukar – Fjölnir...................................... 0:2 Guðmundur Karl Guðmundsson 16., 79. Breiðablik – FH ........................................1:1 Guðmundur Pétursson 71. – Björn Daníel Sverrisson 72.  FH áfram eftir vítaspyrnukeppni, 2:4.  Sigurliðin níu eru komin í 16-liða úrslit ásamt KR, Fram, KA, Víkingi R., Víkingi Ó., Fjarðabyggð og BÍ/Bolungarvík. Dreg- ið verður á mánudaginn. Vináttulandsleikir Spánn – Suður-Kórea.............................. 1:0 Jesus Navas 87. Ítalía – Mexíkó ......................................... 1:2 Leonardo Bonucci 89. – Carlos Vela 17., Al- berto Medina 84. Þýskaland – Bosnía ................................. 3:1 Bastian Schweinsteiger 73.(víti), 77.(víti), Philipp Lahm 50. – Edin Dzeko 15. í kvöld KNATTSPYRNA VISA-bikar kvenna, 2. umferð: Valbjarnarv.: Þróttur R. – ÍBV................ 18 Neskaupst.: Fjarð./Leiknir – Sindri........ 20 3. deild karla: Ásvellir: Markaregn – Sindri ................... 20 Bessastaðav.: Álftanes – Hvíti riddarinn 20 Hvolsvöllur: KFR – KFG ......................... 20 Vogavöllur: Þróttur V. – Afríka ............... 20 Fagrilundur: KFK – KFS ................... 20.30 Boginn: Draupnir – Magni ....................... 20 Seyðisfjörður: Huginn – Leiknir F.......... 20 Fylkismenn þurftu að hafa virki- lega fyrir því að komast í 16 liða úr- slit bikarkeppninnar í knattspyrnu í gærkvöld. Þeir sóttu 2. deildarlið Víðis heim suður í Garð og náðu ekki að gulltryggja sér sigurinn, 2:0, fyrr en undir lok leiksins. Árbæingar náðu þó undirtök- unum um miðjan fyrri hálfleik þeg- ar Víðispiltum urðu á slæm varn- armistök. Jóhann Þórhallsson nýtti sér þau og kom Fylki yfir, 1:0. Þannig stóð lengi vel og bar- áttuglaðir Víðismenn voru í tví- gang nærri því að jafna metin í seinni hálfleiknum. En rétt fyrir leikslok skoraði bakvörðurinn Tómas Þorsteinsson laglegt mark fyrir Fylki, beint úr aukaspyrnu, og braut mótspyrnu heimamanna end- anlega á bak aftur. vs@mbl.is Tómas tryggði sigur Fylkis Hans Óttar Lindberg, danski landsliðsmaðurinn í hand- knattleik sem leikur með þýska stórliðinu Hamburg, hefur fengið tilboð frá Barcelona að því er spænska blaðið Marca greindi frá í gær. Börsungar vilja semja við Lindberg til þriggja ára en hann kom til Hamburg frá danska liðinu Viborg fyrir þremur árum. Lindberg á ættir að rekja til Íslands en foreldrar hans eru báðir íslenskir og léku með FH á árum áður. Hans Óttar er hins vegar fæddur í Danmörku og hefur átt fast sæti í danska landsliðinu undanfarin ár en hann er afar lunkinn örvhentur hornamaður. Lindberg á markakóngstitilinn vísan í þýsku 1. deildinni þetta tímabilið en þegar einni umferð er ólokið hefur hann skorað 251 mark, 36 mörkum meira en stórskyttan Lars Kaufman í liði Göppingen. gummih@mbl.is Barcelona vill fá Hans Óttar til sín frá Hamburg Hans Óttar Lindberg Umboðsmaður landsliðsmannsins Ragnars Sigurðssonar, miðvarðar sænska liðsins IFK Gautaborg, sagði í viðtali við sænska netmiðilinn FotbollDirekt.se að tilboðs væri að vænta í Ragnar í sumar. ,,Það eru mörg lið að fylgjast með honum og hann getur reiknað með tilboði í sumar,“ segir Carl Fhager, umboðsmaður Ragnars. Ragnar er á sínu fjórða tímabili með Gautaborgarliðinu og það lítur allt út fyrir að þetta verði hans síðasta en samn- ingur hans við félagið rennur út á næsta ári. Félagaskipta- glugginn opnast um næstu mánaðamót og að sögn umboðs- mannsins er allt eins líklegt að Ragnar verði seldur frá Gautaborg í næsta mánuði en hefur átt góðu gengi að fagna með liðinu þau ár sem hann hefur leikið með því. Sænski netmiðillinn telur að verðmiðinn á Ragnari sé á bilinu 15-18 millj- ónir sænskra króna sem jafngildir 245-300 milljónum íslenskra króna. gummih@mbl.is Reiknað með að IFK Gauta- borg fái tilboð í Ragnar Ragnar Sigurðsson Skagamenn unnu loksins leik á keppnistímabilinu og þá gegn liði úr úrvalsdeildinni. Þeir náðu að leggja Selfyssinga að velli, 2:1, á Akranes- velli í gærkvöld, í 32ja liða úrslitum bikarkeppninnar í knattspyrnu. Kær- kominn sigur fyrir ÍA eftir að hafa fengið eitt stig í fyrstu fjórum leikjum 1. deildar. Andri Júlíusson kom Skagamönn- um yfir á lokasekúndum fyrri hálf- leiks þegar hann slapp innfyrir vörn Selfyssinga. Sem voru fljótir að jafna eftir hlé þegar Davíð Birgisson skor- aði af stuttu færi uppúr hornspyrnu. Hjörtur Júlíus Hjartarson, sem lék með Selfyss- ingum í fyrra, tók vítaspyrnu fyrir ÍA á 68. mínútu en skaut framhjá markinu. Það kom þó ekki að sök því tíu mínútum fyrir leikslok skoraði Andri Geir Alex- andersson með hörkuskalla eftir hornspyrnu og tryggði Skagamönn- um sigurinn, 2:1. ste@mbl.is Andri Geir tryggði Skaga- mönnum fyrsta sigurinn Andri Júlíusson Þórsarar máttu sætta sig við ósigur í Grindavík í gærkvöld þrátt fyrir að vera yfir gegn úrvalsdeildarliði heimamanna í 80 mínútur. Grindvík- ingar náðu að skora tvisvar undir lok- in og tryggja sér sigurinn. Norðanmenn byrjuðu af miklum krafti og Nenad Zivanovic kom þeim yfir eftir aðeins fimm mínútna leik. Grindvíkingar sóttu sig smám saman en hvorki gekk né rak hjá þeim fyrr en stutt var til leiksloka og allt stefndi í að enn eitt tapið á þessu tímabili yrði staðreynd. Jósef Kristinn Jósefsson náði þá að jafna metin í 1:1 og útlit fyrir að Grindvíkingar hefðu krækt sér í framlengingu. Þeir gerðu þó betur því strax í kjölfarið slapp Gilles Mbang Ondo innfyrir vörn Þórsara og lyfti boltanum yfir Gísla Eyland Sveinsson markvörð og í netið. Lang- þráður sigur Grindvíkinga eftir fimm töp í deildinni. vs@mbl.is Grindavík undir í 80 mín- útur en gerði tvö í lokin Jósef Kristinn Jósefsson Í seinni hálfleiknum brá Bjarni Jó- hannsson, þjálfari gestanna, á það ráð að færa fyrrnefndan Daníel úr vörn- inni á miðjuna og það, ásamt því að Halldór Orri Björnsson kom inná sem varamaður, hleypti mun meira lífi í sóknarleik Stjörnumanna. Daníel skoraði tvö góð mörk, annað með hjálp Jóhanns og hitt með aðstoð Halldórs, en Halldór skoraði jöfn- unarmarkið úr vítaspyrnu sem Jó- hann fiskaði eftir sendingu Daníels. Þetta þríeyki gerði því gæfumuninn í Breiðholtinu, og bræðurnir sér í lagi enda ættu þeir að kunna ágætlega hvor inn á annan. „Þekkjum hvor annan vel“ „Við bræðurnir þekkjum hvor ann- an mjög vel þannig að það er fínt að vera með honum í liði. Við kláruðum þetta vel. Annars vorum við sem lið bara lengi í gang í þessum leik enda eru Leiknismennirnir mjög sterkir,“ sagði fyrirliðinn Daníel og má taka undir þessi orð því Leiknismenn voru hreinlega sterkari aðilinn fram að vítaspyrnunni á 72. mínútu. Leikmenn á borð við Kristján Pál Jónsson og Fannar Arnarsson glöddu augað með góðri spilamennsku en þegar vítið var dæmt fékk Steinarr Guðmundsson, reyndur bakvörður Leiknis, að líta rauða spjaldið fyrir litlar sakir og var það vendipunktur. „Þetta var sennilega víti en ég er mjög ósáttur við rauða spjaldið,“ sagði Sigursteinn Gíslason þjálfari Leiknis. „Við hefðum fengið meira út úr þessum leik hefðum við haldið áfram 11 gegn 11. Liðið lagði sig mjög vel fram og mér fannst Stjarnan hreinlega ekki spila fótbolta í fyrri hálfleik. Þeir virðast hreinlega verða að hafa Halldór Orra eða Steinþór Frey Þorsteinsson til að geta spilað almennilega,“ bætti hann við. Bræðurnir til bjargar  Stjarnan kvað útivallagrýluna í kútinn  Vendipunktur er Steinarr sá rautt Valsmenn þurftu heldur betur að hafa fyrir því að sigra 2. deildarlið Aftureldingar, 2:1, í 32ja liða úr- slitum bikarkeppninnar að Hlíð- arenda í gærkvöld. Arnór Þrastarson kom Aftureld- ingu yfir um miðjan fyrri hálfleik eftir hornspyrnu. Valsmenn voru fljótir að jafna metin og þar var Haukur Páll Sigurðsson að verki með góðu langskoti, 1:1. Þannig stóð allt þar til fimm mínútur voru til leiksloka. Mark- vörður Mosfellinga felldi þá Danni König, markahæsta leikmann úr- valsdeildarinnar, sem kom inná sem varamaður skömmu áður. Vítaspyrna dæmd, og úr henni skoraði Viktor Unnar Illugason sigurmarkið. Það var lítill glans yfir leik Vals- manna að þessu sinni og lið Aftur- eldingar stóð fyllilega uppi í hárinu á þeim allan tímann. vs@mbl.is Valsmenn í vanda gegn Aftureldingu Morgunblaðið/Ómar Skot Leiknismaðurinn Fannar Þór Arnarsson skýtur að marki Stjörnunnar en Jóhann Laxdal sækir að honum. Á VELLINUM Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Það þurfti samstillt átak bræðranna Jóhanns og Daníels Laxdal, og kannski eitthvað aðeins meira, til að Stjarnan bryti á bak aftur öfluga vörn Leiknis R. og næði að vinna sinn fyrsta útileik frá því í maí í fyrra en liðin áttust við í 32-liða úrslitum VISA-bikarsins í knattspyrnu í gær. Lengi framan af leik benti ekkert til þess að Stjarnan færi með sigur af hólmi og heimamenn úr Breiðholtinu, sem eru í 2. sæti 1. deildar, náðu for- ystunni áður en flautað var til leikhlés með marki úr eina færi fyrri hálfleiks. Þróttarar eru komnir í 16 liða úrslit bikarkeppninnar í knattspyrnu eft- ir sigur á Gróttu, 3:1, í viðureign tveggja 1. deildarliða á Valbjarn- arvellinum í gærkvöld. Sérstakt atvik átti sér stað seint í fyrri hálfleik. Elvar Freyr Arnþórs- son skoraði þá fyrir Gróttu, eftir að hans menn áttu að skila boltanum aftur til baka til Þróttara í kjölfar dómarakasts. Seltirningar afgreiddu málið á heiðarlegan hátt. Þróttarar byrj- uðu á miðju og fengu að jafna metin óáreittir, 1:1. Halldór Hilmisson fékk það hlutverk að skila knett- inum í netið. Þannig stóð fram yfir miðjan seinni hálfleik. Andrés Vilhjálms- son kom þá Þrótti yfir og Halldór innsiglaði sigur liðsins þegar hann skoraði sitt annað mark. vs@mbl.is Leyfðu Þrótt- urum að jafna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.