Morgunblaðið - 04.06.2010, Page 4

Morgunblaðið - 04.06.2010, Page 4
Aðalmaður Park Ji-sung er fyrirliði og lykilmaður í liði Suður-Kóreu. Park Ji-sung er án efa þekktasti leikmaður Suð- ur-Kóreu og hefur sannað sig hjá stórliði Man- chester United á undanförnum árum. Park er raunar einn þekktasti Kóreubúinn, burtséð frá boltasparki. Þrátt fyrir að vera ein- ungis 29 ára gamall þá hefur Park leikið 88 landsleiki og hefur ýjað að því að keppnin í Suður-Afríku verði hans HM-svanasöngur. Park er fyrirliði S-Kóreu og skoraði þrjú mörk í und- ankeppninni. Park sló í 4 Íþróttir MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 2010 Ljóst er að pressan er á Argentínu- mönnum í þessum riðli. Þeir eiga að vinna hann ef allt er eftir bókinni. Hin liðin eru þó sýnd veiði en ekki gefin og hafa öll sannað sig á ein- hverjum tíma í alþjóðlegri knatt- spyrnu. Auk þess voru Argent- ínumenn allt annað en sannfærandi í undankeppninni. Fyrsti leikurinn gegn Nígeríu gæti ráðið miklu. Morgunblaðið spáir Argentínu og Nígeríu 6 stigum en Grikklandi og Suður-Kóreu 3 stigum. Pressan er á Argentínu gegn á heimavelli á HM árið 2002 og fór í kjöl- farið til PSV Eindhoven í Hollandi. Vafalaust hefur sá búferlaflutningur verið fyrir tilstilli þá- verandi landsliðsþjálfara, Guus Hiddink. Vinnusemi Parks hefur fallið í góðan jarðveg hjá núverandi vinnuveitendum hans á Old Traf- ford. Bretarnir gantast gjarnan með að úthald Parks sé slíkt að hann hljóti að vera með þrjú lungu. Sjálfur rekur leikmaðurinn það til þess að hafa nærst á soðnum froskasafa hjá föður sínum í uppvextinum. kris@mbl.is Vinnuhestur alinn upp á soðnum froskasafa Lionel Andrés Messi er ein af skærustu stjörnum knattspyrnunnar og er fremstur á meðal jafningja í liði Spánarmeistara Barcelona. Messi fór oft á tíðum hamförum hjá Börsungum í vetur og ætti því að koma fullur sjálfstrausts til leiks á HM. Málið er hins vegar ekki alveg svo einfalt. Barcelona notast við leikkerfið 4-3-3 sem hefur hentað Messi afar vel. Maradona hefur hins vegar látið Argentínu leika 4-4-2 og svo virðist sem Messi passi síður inn í það kerfi. Enda hefur hann ekki verið ýkja áberandi með landsliðinu að und- anförnu en Messi skoraði 4 mörk í 18 leikjum und- ankeppninnar. Það er ágætt framlag en ekki mjög mikið fyrir mann sem er nefndur til sögunnar sem einn allra besti leikmaður heims. Eftir framgang Messi á síðustu árum vill það stundum gleymast að hann er aðeins 23 ára gamall og á því mörg ár enn í að ná kjöraldri knatt- spyrnumannsins. Messi er lík- legur til þess að skrifa nafn sitt rækilega í sögu HM en spurn- ingin er hvort það verði í sum- ar, eftir fjögur ár eða jafnvel eftir átta ár. Menn fara kannski varlega í að spá því að hann verði stjarna keppninnar að þessu sinni einfaldlega vegna þeirrar óvissu sem ríkir í kringum argentíska lið- ið. Maradona notaði gífurlega marga leikmenn í undankeppninni og ekki er ljóst hvert hlutverk Messi verður í keppninni. Almennt séð eru hlut- irnir ekki í mjög föstum skorðum hjá Argent- ínumönnum að þessu sinni. Saga Messi er um margt sérstök. Hann hefur í raun verið eign Barcelona frá því hann var 13 ára gamall. Þá fluttist hann og fjölskylda hans frá Rosario í Argentínu til Katalóníu. Stór þáttur í þeirri ákvörðun var boð Barcelona um að greiða allan lækniskostnað sem hlaust af baráttu drengs- ins við sjúkdóm sem fól í sér skort á vaxtarhorm- ónum. Þeir sjá ekki eftir því. kris@mbl.is Í hvaða hlutverki verður Messi?  Messi þykir ekki passa vel inn í leikkerfið 4-4-2  Fór 13 ára til Barcelona Lionel Messi Eftir Kristján Jónsson kris@mbl.is Morgunblaðið heldur í dag áfram kynningu sinni á liðunum 32 sem leika til úrslita um heimsmeistaratit- ilinn í knattspyrnu í Suður-Afríku en veislan byrjar 11. júní. B-riðilinn skipa: Argentína, Grikkland, Níg- ería og Suður-Kórea. Argentína verður vafalaust í sviðs- ljósinu meðan á keppninni stendur. Ekki er liðið einungis með eina skærustu stjörnu samtímans, Lionel Messi, innanborðs, heldur stýrir ein skærasta stjarna knattspyrnusög- unnar, Diego Armando Maradona, liðinu. Ef að líkum lætur munu báðir sjá til þess að fjölmiðlamenn hafi nóg fyrir stafni en hvor á sinn hátt. Argentína státar af glæsilegri knatt- spyrnuhefð og tvívegis hefur þjóðin fagnað sigri á HM. Í fyrra skiptið á heimavelli 1978 en síðara skiptið í hinni stórskemmtilegu keppni í Mexíkó 1986 þar sem Maradona var einmitt fyrirliði. Allar götur síðan hefur Maradona verið dýrkaður og dáður í heimalandinu þar sem starf- ræktur er Maradona-trúarsöfnuður og er enginn hörgull á meðlimum. Þrátt fyrir þetta eru til þeir Argent- ínumenn sem hafa litla trú á þjálf- arahæfileikum kappans. Þeim hefur raunar farið fjölgandi og þeirra á meðal er Daniel Passarella sem var fyrirliði 1978. Þessir tveir eiga álíka mikla samleið og Árni Finnsson og Kristján Loftsson. Maradona gaf fjölmiðlamönnum það einkennilega loforð að hann muni hlaupa nakinn um stræti Buenos Aires takist Arg- entínu að sigra í keppninni. Það ætti að vera næg ástæða til þess að halda með Argentínu þetta árið. Grikkland öðlaðist virðingu knatt- spyrnuheimsins en litla aðdáun sum- arið 2004 þegar liðið varð Evr- ópumeistari. Agaður og frábærlega útfærður varnarleikur gerði útslagið ásamt óaðfinnanlegri frammistöðu markvarðarins, Antonios Nikopolid- is. Maðurinn á bak við þennan gíf- urlega óvænta sigur, Þjóðverjinn Otto Rehhagel, er enn við stjórnvöl- inn. Sá mikli herforingi hefur stjórn- að liðinu síðan 2001 sem er nú lengri starfstími en gengur og gerist í hans stétt. Einungis Morten Olsen hjá Dönum hefur verið lengur með sitt lið af þeim sem verða með í loka- keppninni. Þrátt fyrir langan starfs- aldur er Rehhagel nýliði þegar kem- ur að lokakeppni HM og þangað hefur Grikkland aðeins einu sinni áður komist. Sú keppni var í Banda- ríkjunum árið 1994 og það var ekki ferð til fjár hjá Grikkjum. Ekkert stig og markatalan 0:10. Þá lentu Grikkir einnig í riðli með Nígeríu og Argentínu. Nígería hefur á síðari árum verið þekkt knattspyrnuþjóð og hefur komist fjórum sinnum upp úr und- ankeppni HM í síðustu fimm mótum. Þar til 1994 þegar Nígería komst í lokakeppnina í fyrsta skipti, var saga Nígeríu í HM nokkuð skrautleg en Nígería hætti í undankeppninni 1966 og var dæmd úr leik 1974. Níg- eríumenn unnu hins vegar hug og hjörtu knattspyrnuunnenda 1994 og fylgdu því eftir með sigri á Ólympíu- leikunum 1996. Liðið var hins vegar á síðasta snúningi með að tryggja sér farseðilinn til Suður-Afríku en sigurmark í síðasta leiknum gegn Keníu á 81. mínútu kom þeim áfram. Svíinn Lars Lagerbäck stýrir liðinu en hann tók við því í febrúar. Suður-Kórea er lið sem er ávallt vanmetið á HM enda þarf ekki mikið til að komast upp úr þeirra undan- riðli. Þeirra langbesti árangur kom á heimavelli árið 2002 þegar liðið fór alla leið í undanúrslit. Það er í eina skiptið sem S-Kórea hefur farið upp úr riðli í lokakeppninni. Heimamað- ur er við stjórnvölinn í fyrsta skipti í langan tíma, Huh Jung-Moo, en hann þjálfaði liðið 1998-2000 áður en Guus Hiddink tók við og vann kraftaverk. S-Kórea getur hæglega komið á óvart ef hraði og snerpa leikmanna fær að njóta sín. Fá spjarirnar að fjúka?  Maradona er tilbúinn til þess að koma nakinn fram  Rehhagel er 72 ára gamall HM-nýliði  Lagerbäck nýtekinn við Nígeríu  Heimamaður hjá Kóreu Reuters Fyrirliði og þjálfari Javier Mascherano og Diego Maradona verða í sviðsljósinu í kringum alla leiki Argentínu á HM. B-RIÐILL 12.6 S-Kórea – Grikkland 11:30 12.6 Argentína – Nígería 14:00 17.6 Argentína – S-Kórea 11:30 17.6 Grikkland – Nígería 14:00 22.6 Nígería – S-Kórea 18:30 22.6 Grikkl. – Argentína 18:30  Leikið í Port Elizabeth, Jó- hannesarborg, Bloemfon- tein, Durban og Polokwane.  Argentínumenn tefla fram ófáum stórstjörnum eins og svo oft áður þó nokkrar sitji heima. Javier Zanetti og Esteban Cambiasso hlutu hvor- ugir náð fyrir augum landsliðsþjálf- arans og hefur sú ákvörðun vakið mikið umtal. Fyrsta verk Maradona í starfi var að svipta Zanetti fyrir- liðabandinu og láta það utan um handlegg Javiers Mascherano sem virðist ekki ýkja spenntur fyrir ábyrgðinni sem hlutverkinu fylgir. Auk þess neitar Juan Román Ri- quelme að leika undir stjórn Mara- dona. Lionel Messi er náttúrlega helsta tromp liðsins en fleiri sókn- armenn eru lík- legir til afreka. Diego Milito og Gonzalo Higuain koma báðir með gríðarlegt sjálfs- traust inn í keppnina. Angel Di Maria gæti átt eftir að vekja at- hygli á vinstri vængnum en hann þykir geysilegt efni.  Grikkir eru ekki með marga heimsþekkta leikmenn í sínu liði, ekki frekar en þegar þeir urðu Evr- ópumeistarar 2004. Flestir leik- manna liðsins leika með stórliðunum Panathinaikos og Olympiakos í heimalandinu. Einn þeirra er miðju- maðurinn ungi Sotiris Ninis hjá Pa- nathinaikos sem vakið hefur mikla athygli en mun væntanlega hefja keppnina á varamannabekknum. Fróðlegt verður að fylgjast með hvernig sóknarmanninum Theofanis Gekas gengur að koma tuðrunni í netið í Suður-Afríku en hann skoraði 10 mörk í undankeppninni. Auk þeirra má nefna tvær hetjur frá EM 2004, fyrirliðann Giorgos Karagoun- is og Angelos Charisteas.  Fyrir utan Park Ji-sung er vinstri bakvörð- urinn Lee Pyong- yo líklega sá reyndasti í liði Suður-Kóreu en er ekki lengur í lykilhlutverki. Park Chu-young samherji Eiðs Smára Guðjohnsens hjá Mónakó gæti gert góða hluti í Suður-Afríku en hann náði sér vel á strik í und- ankeppninni.  Hjá Nígeríumönnum má segja að Obafemi Martins sé þeirra þekkt- astur. Þrátt fyrir að vera aðeins 26 ára er hann á góðri leið með að verða mesti markaskorari nígeríska lands- liðsins frá upphafi. Mikel John Obi leikmaður Chelsea er í mikilvægu hlutverki aftarlega á miðjunni. Jos- eph Yobo er einnig orðinn leik- reyndur eftir nokkur ár með Ever- ton þar sem hann er fyrirliði. B-riðill Sæti á FIFA-lista Argentína 7 Grikkland 13 Nígería 21 Suður-Kórea 47

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.