Bláa blaðið - 20.06.1933, Page 4

Bláa blaðið - 20.06.1933, Page 4
4 BLAA BT.AÐIÐ Ást og glæpur. Saga úr ReykjavíkurlífLiiu eflir Davíð Draumland. I. kapftuli. F ó r n a r (1 ý r i ð . Sólin skein og fuglarnir sungu og sVeifluðu sér um háloftin, glaðir og ástleituir og áhyggjulausir að vanda. Vorið var komið, og yfir fjöll og dali sveif blíður blærinn, þrung- inn af suðrænum yl. FÓIkið kunni lika að meta það, það kepptist hver við sem betur gat að njóta þess. Bó er það nú svo í borgunum, að ekki eru jafn áberandi missira- skiftin, sem til sveitanna. Sólin skfn ekki eins skært, fuglarnir láta lítið til sín heyra og oft virð- íst andvarinn vera mettaður af daup. Og borgarbúinn rennir löngun- arfullum augum til sveitanna, til fjallanna, hugurinn fyllist útþrá, og allir, sem eru þess umkoranir, leitast við að koma/t eitthvað út úr borgunum. En það vill ganga misjafnlega, suma vantar fé til að geta látið það eftir sér,' aðra. vantar tima. l’átæktin fjötrar suma, annirnar aftur á móti aðra. En allir eigá eitt samciginlegt, hvar svo scm þeir hafa hlotið sæti í mannlegu félagi, og það er þrá, þrá til að njóta. En aftur á móti er það mjög misjafnt, hvað hver og einn legg- ur mikið kapp á áð láta eftir til- hneigingum sínum. En hitt vcrður aldrei flokkað, að allir eiga sama tilkall til lífsins, tilkall til að njóta. En örlagadlsirnár eru dutlunga- fullar, og vöggugjafirnar ekki all- ar einn veg. En þar er við djarfan að deila. Um göturnar í Reykjavík streymdi fólkið, allir voru f súm- arskapi og virtist sem hver léti líðandi stund nægja sína þjáningu. Niður við höfnina var lif og fjör, þar iðaði alt af fólki, fólki, sem var önnum kafið og einnig af slæpingjum. Éinnig í húsum inni var margt að líta, f verzlunum var allt á fleygiferð, allir sýndust þurfa að flýta sér. í bankanum var lfka starfað, þó var hægt að sjá, að starfsfólk- ið margt hvað er annars hugar, og jafnframt lftur það þreytulega út. Það er afskaplega heitt þar inni, og sólin flæðir inn um gluggaua, Framh.

x

Bláa blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bláa blaðið
https://timarit.is/publication/798

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.