Framsóknarblaðið - 01.11.1943, Qupperneq 3
FRAMSOKNARBLAÐIÐ
Andlátsfregn
Bergs Guðjónssonar.
Kvæði það, sem hér tairtist,
sendi Eyjólfur bóndi Guðmunds-
son Hvoli í Mýrdal Ólöfu á
Kirkjubóli -hér, þegar hann
frétti andlát Bergs sonar henn-
ar, hins góða drengs og sonar.
Heyri ég rétt? — í hinzta sinni
hafi Bergur kvatt mig heima,
og lokið sé hans lífi og starfi.
Lifandi skal hans minning geyma. —
Svo var Bergur sannur drengur,
sæmdur listadáð — og dyggðum.
Eins og bjarg af bergi traustu
bezta efnis íslands byggðum.
Svo var Bergur sínum vinum
samstarfandi í ævistríði.
Skyldubyrði að banastundu
bar svo vel, að dug og prýði. —
Gott á nú Bergur guðs í riki!
Glaður njóti verkalauna. —
Feðga beggja finnst í ævi
fögur perla á botni rauna. —
Þannig lauk þá þessum þætti.
Þannig fér í íslandssögum.
Sigra lífsins fá, — og falla —
frægðar vinna dóm að lögum.
Ég sé í anda — saman standa
sveipaðar blómum feðgakistur. —
En lengra og hærra lífs til landa
lít ég hvar þeim fagnar Kristur. —
Svo kvað vinurinn gamli.
E. S.
leikur „skáldið“ að ýmsu leyti
vel. Vinnukonuna leikur ungfrú
Rakel Sigurðardóttir. Trúað gæti
ég því, að hún byggi yfir tölu-
verðum leikarahæfileikum, svo
vel ferst henni að mörgu leyti
hlutverkið.
Gamlan, ergigjarnan Dana
leikur Stefán Árnason lögreglu-
þjónn. Enginn frýr Stefán leik-
arahæfileikanna og tekst hon-
um hlutverkið með prýði, þó að
persónan Hekkenfeldt sé í raun-
inni aukapersóna og harla veiga-
lítil í leiknum.
Margar fleiri persónur eru í
leiknum, þótt minna kveði að
þeim og leyfir rúmið ekki að
orðlengja um þær.
Miklar þakkir allra bæjarbúa
á Leikfélagið hér skilið. Það get-
ur innt af hendi mikið menn-
ingarstarf, ef því endist vit,
þróttur og þrek til þess. Það
krefst meiri vinnu og þraut-
seigju en margur gerir sér grein
fyrir, að halda uppi leikstarfi
í tómstundunum. Þess vegna er
áhugi og fórnarlund Leikfélags-.
þátttakendanna sérstaklega at-
hyglisverð og þakklætisskyld.
Þ. Þ. V.
ó
Skófatnaður
gott úrval
Helgi Benedikisson
Hurðarskrár
og
laniir fást hjá
Yerzlun SYeins Guðmundssonar
Skípaverzlun mín,
heiir fyrírlíggjaadi flest-
ar pær útgerðarvörur er
fáanlegar eru á hverjum
tíma.
Helgí Benediktsson
Verzlun mín hef-
ur á boðstólum
veínaðarvöru
svo sem
tilbúin fatnað
°g
prjonavörur
Ennfremur
\
hreinlætis-
vörur,
tóbak og
sælgæti
Tilkynning
Með skírskotun til auglýsingar, dags. 2. apríl 1943, um hámarks-
verð og hámarksálagningu á greiðasölu, og tilkynningar dags. 5.
október 1943, um hámarksverð á ölföngum, tilkynnist hlutaðeig-
andi aðilum hér með, að Viðskiptaráðið hefur ákveðið, að til við-
bótar hinu auglýsta hámarksverði á ölföngum og gosdrykkjum,
sé greiðasölum utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar heimilt að bæta
við verð hverrar flösku áföllnum flutningakíostnaði, þó ekki hærri
en hér segir:
1. í Gullbringu- og Kjósarsýslu og Árnessýslu .. 10 aurar
2. í Rangárvallasýslu og Vestur-Skaptafellssýslu 20 aurar
3. A) Á Akranesi og Borgarnesi ............ 20 aurar
B) Á öðrum höfnum um land allt ......... 40 aurar
Á öðrum stöðum utan hafna í 3. lið má bæta við allt að 10 aurum
á flösku, vegna flutnigskostnaðar á landi, auk flútningskostnað-
ar á skipi til næstu hafnar, samkv. 3. lið.
Mel tilkynningu þessari er úr gildi fallin tilkynning frá 19. apríl
1943 um sama efni.
Ákvæði tilkyningar þessarar ganga í gildi frá og með 6. nóvem-
ber 1943.
Reykjavík 3. nóvember 1943
VERÐL AGSST J ÓRINN.
Verzlun
Vefnarðavara og skóíafnaður
f jölbreytt úrval.
GÍSLA WÍUM
Helgi Benedíktsson