Morgunblaðið - 26.06.2010, Qupperneq 4
Á VELLINUM
Júlíus G. Ingason
sport@mbl.is
Eyjamenn unnu sannfærandi 3:0-
sigur á Selfossi í fyrsta Suður-
landsslag efstu deildar þegar ná-
grannaliðin tvö mættust á Há-
steinsvelli í gærkvöldi. Tryggvi
Guðmundsson skoraði fyrsta mark-
ið eftir aðeins 40 sekúndur en
þrátt fyrir einstefnu að marki Sel-
fyssinga urðu mörkin ekki fleiri.
Síðari hálfleikur var örlítið jafnari
en Tonny Mawejje og Tryggvi
bættu við tveimur mörkum og þar
við sat.
Talsverð tengsl eru á milli félag-
anna tveggja, leikmenn hafa farið
á milli í gegnum árin en í leik-
mannahópi Selfyssinga mátti m.a.
finna þrjá Selfyssinga sem höfðu
leikið með ÍBV í efstu deild. Það
ríkti því talsverð eftirvænting í
Eyjum í gærkvöldi enda létu
áhorfendur sig ekki vanta á Há-
steinsvöllinn því bæði Eyjamenn
og Selfyssingar fjölmenntu og
stemningin var skemmtileg.
Aftur eru Eyjamenn komnir á
topp deildarinnar, tímabundið í
það minnsta. Þeir sem spáðu liðinu
botnbaráttu í sumar eru líklega
flestir tilbúnir að viðurkenna það
að Eyjamenn hafa alla möguleika
á að berjast um Íslandsmeist-
aratitilinn í sumar. Í því samhengi
er ekki hægt að líta framhjá þeirri
staðreynd að af þeim níu leikjum
sem ÍBV hefur leikið í sumar eru
sex á útivelli og aðeins þrír á
heimavelli. Eyjamenn hafa til
þessa verið taldir það lið sem
gengur hvað verst á útivelli og
hvað best á heimavelli en þrátt
fyrir fáa heimaleiki er ÍBV í efsta
sæti deildarinnar. Stuðningsmenn
liðsins bíða spenntir eftir júl-
ímánuði þegar ÍBV leikur fimm
heimaleiki í röð, hvorki meira né
minna, og með góðu gengi í þeim
leikjum gæti haustið orðið ansi
spennandi í Eyjum.
Gamli refurinn Tryggvi Guð-
mundsson sýndi að markanefið er
enn í góðu lagi en Tryggvi er nú
markahæstur í liði ÍBV með fjögur
mörk. Í raun er erfitt að finna
veikan hlekk í liði Eyjamanna eins
og liðið hefur spilað undanfarið.
Það er helst fyrrnefndur skortur á
nýtingu færa sem er veikleiki. Þá
mun brotthvarf enska bakvarð-
arins James Hurst skilja eftir sig
skarð sem verður vandfyllt en
Hurst hefur þótt leika afbragðsvel
á lánstímanum hjá ÍBV.
Eftir ágæta byrjun Selfyssinga,
þar sem liðið vann m.a. frækinn
útisigur gegn KR, hefur liðið nú
tapað fimm leikjum í röð. Það er
hugsanlega meira en brothætt lið
nýliðanna ræður við en þó vantar
ekkert upp á umgjörðina hjá félag-
inu. Nýr heimavöllur verður brátt
tekinn í notkun og stuðningsmenn
Selfyssinga eru þeir bestu í upp-
hafi Íslandsmótsins. Nú er það
verkefni leikmannanna sjálfra að
fylgja eftir uppganginum inni á
vellinum. Getan er svo sannarlega
fyrir hendi en sjálfstraustið skortir
sárlega.
Sannfærandi sigur ÍBV
Eyjamenn aftur á toppnum eftir 3:0-sigur á Selfyssingum Stemning í
fyrsta Suðurlandsslagnum Fimmti ósigurinn í röð hjá nýliðunum
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Marksækinn Tryggvi Guðmundsson var aðeins 40 sekúndur að koma ÍBV yfir í leiknum í gærkvöldi. Hér sækir hann að marki Selfyssinga en Ingólfur
Þórarinsson er til varnar. Ingólfur og félagar máttu sætta sig við sinn fimmta ósigur í röð í deildinni en Eyjamenn skelltu sér í toppsætið með sigrinum.
4 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 2010
Júlíus G. Ingason
sport@mbl.is
„Þetta minnti bara á gömlu góðu
tímana,“ sagði Tryggvi Guðmunds-
son eftir að hafa skorað tvö mörk
gegn Selfossi í gærkvöldi. „En það
sem skiptir máli er auðvitað sigurinn
og að við skulum koma okkur í topp-
sætið. Þetta var bara góður sigur og
ljúfur. Við náðum samt sem áður
ekki að fylgja eftir þessari byrjun
okkar til að klára leikinn strax í fyrri
hálfleik eins og við hefðum átt að
gera. Leikurinn var frekar jafn í
seinni hálfleik, þar til Tonny setti
seinna markið, og eftir það áttum við
leikinn. Liðið sem heild spilar mjög
vel, frábær vörn, ótrúlega vinnusöm
miðja og flottir framherjar. Við er-
um ánægðir með stöðuna sem við er-
um í en erum jafnframt meðvitaðir
um að það er nóg eftir af Íslands-
mótinu.“
Byrjunin gerði útslagið
Sævar Þór Gíslason, fyrirliði Sel-
foss í gærkvöldi, var ósáttur við tap-
ið. „Það sem gerði útslagið í þessu
var byrjunin. Að fá mark á sig eftir
aðeins fjörutíu sekúndur sendi allt
okkar skipulag út um gluggann. Við
vorum klárir í slaginn í upphafi leiks
en við ætluðum að vera þéttir fyrir
enda vissum við
að þeir vilja
sækja. Hins veg-
ar vorum við
heppnir að fá
ekki fleiri mörk á
okkur í fyrri hálf-
leik en leikurinn
var mun jafnari í
seinni hálfleik.
Við hefðum átt að
nýta okkur vind-
inn betur þá. En Eyjamenn eru
klókir og með þessa gömlu stelpu í
framlínunni sem kann að skora
mörk,“ sagði Sævar og skaut nettu
skoti á Tryggva sem kom aðvífandi.
„Minnti á gömlu góðu tímana“
Sævar Þór
Gíslason
1:0 1. Eyjamenn voru ekkilengi í gang því eftir fyrstu
sókn og þrjú skot að marki lá bolt-
inn í netinu og það eftir aðeins 40
sekúndur sléttar. Þórarinn Ingi
Valdimarsson lék í gegnum sofandi
vörn Selfyssinga, skaut en Jóhann
Ólafur varði, Þórarinn skaut aftur
og aftur varði Jóhann en þá kom
Tryggvi Guðmundsson aðvífandi
og lagði boltann snyrtilega í netið..
2:0 63. James Hurst tókhornspyrnu, sendi á fjær-
stöng þar sem Rasmus Christian-
sen skallaði að marki. Jóhann Ólaf-
ur varði í stöng og náði að krafla
boltanum frá marklínunni en ekki
betur en svo að Tonny Mawejje
mætti á markteigshornið og þrum-
aði boltanum upp í þaknetið úr
þröngu færi.
3:0 76. Þórarinn Ingi Valdi-marsson sendi stungu-
sendingu inn á Eyþór Helga Birg-
isson, sem missti af boltanum en
Tryggvi Guðmundsson þefaði bolt-
ann uppi, lék inn í vítateig og lagði
boltann snyrtilega í netið úr vítat-
eignum.
I Gul spjöld:Sigurður (Selfossi) 34.
(brot), Sytnik (ÍBV) 38. (brot), Ein-
ar Ottó (Selfossi) 72. (brot), Þór-
arinn (ÍBV) 75. (brot), Eiður (ÍBV)
85. (brot), Arilíus (Selfossi) 88.
(brot), Gauti (ÍBV) 89. (brot).
I Rauð spjöld: Enginn.
MMM
Enginn.
MM
Enginn.
M
Albert Sævarsson (ÍBV)
James Hurst (ÍBV)
Eiður Aron Sigurbjörnsson (ÍBV)
Matt Garner (ÍBV)
Þórarinn Ingi Valdimarsson (ÍBV)
Andri Ólafsson (ÍBV)
Tryggvi Guðmundsson (ÍBV)
Sigurður Guðlaugsson (Selfossi)
Agnar Bragi Magnússon (Selfossi)
Sævar Þór Gíslason (Selfossi)
Enski bakvörðurinn James Hurst
lék sinn síðasta leik fyrir ÍBV í gær-
kvöld en hann hefur verið í láni frá
enska félaginu Portsmouth í sumar.
Hurst hefur vakið verðskuldaða at-
hygli fyrir góða frammistöðu og
verður án efa sárt saknað í Eyjum.
Tryggvi Guðmundsson skoraði
sitt 110. mark í efstu deild þegar
hann kom ÍBV yfir á fyrstu mínútu
leiksins. Hann bætti öðru við, því
111., og þokast smám saman nær
markahæsta leikmanni allra tíma,
Inga Birni Albertssyni, sem heldur
þó enn 15 marka forskoti. Ingi gerði
126 mörk í deildinni.
Tryggvi komst í leiðinni upp í
þriðja sætið yfir markahæstu leik-
menn ÍBV í deildinni frá upphafi,
sigldi fram úr Tómasi Pálssyni og
er með 57 mörk fyrir félagið. Fyrir
ofan hann eru Steingrímur Jóhann-
esson með 72 mörk og Sigurlás
Þorleifsson með 60 mörk.
Ingólfur Þórarinsson var á ný í
liði Selfyssinga í gærkvöld eftir að
hafa misst af leikjunum við Val og
FH vegna meiðsla. Sævar Þór
Gíslason var í byrjunarliði á ný en
hann missti af Valsleiknum og kom
inná seint í leiknum við FH.
Þetta gerðist
á Hásteinsvelli
Hásteinsvöllur, Pepsi-deild karla, 9.
umferð, föstudaginn 25. júní 2010.
Skilyrði: Austanvindur, sól og hiti
um 11 gráður. Hásteinsvöllurinn góð-
ur.
Skot: ÍBV 18 (13) – Selfoss 7 (4).
Horn: ÍBV 8 – Selfoss 5.
Lið ÍBV: (4-5-1) Mark: Albert Sæv-
arsson. Vörn: James Hurst, Eiður Ar-
on Sigurbjörnsson, Rasmus Christi-
ansen, Matt Garner. Miðja: Tonny
Mawejje (Arnór Ólafsson 73.), Finnur
Ólafsson, Andri Ólafsson, Tryggvi
Guðmundsson (Gauti Þorvarðarson
78.), Þórarinn Ingi Valdimarsson.
Sókn: Denis Sytnik (Eyþór Helgi
Birgisson 49.)
Lið Selfoss: (4-4-2) Mark: Jóhann
Ólafur Sigurðsson. Vörn: Sigurður E.
Guðlaugsson (Viðar Örn Kjartansson
73.), Agnar Bragi Magnússon, Stefán
R. Guðlaugsson, Andri Freyr Björns-
son. Miðja: Ingi Rafn Ingibergsson
(Davíð Birgisson 57.), Einar Ottó
Antonsson, Ingólfur Þórarinsson
(Jón Guðbrandsson 57.), Jón Daði
Böðvarsson. Sókn: Arilíus Marteins-
son, Sævar Þór Gíslason.
Dómari: Þóroddur Hjaltalín – 3.
Áhorfendur: 1.292.
ÍBV – Selfoss 3:0