Morgunblaðið - 08.07.2010, Page 1
FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2010
íþróttir
Marksækinn Kristinn Steindórsson og félagar í Breiðabliki stefna óhikað á Íslandsmeistaratitilinn.
Pabbinn markahæstur þegar Blikar voru í toppbaráttu 1991. Aukaæfingar sumarsins skila sér. 4
Íþróttir
mbl.is
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Karlalið Vals í handbolta fékk góðan
liðsstyrk í gær þegar Valdimar
Fannar Þórsson skrifaði undir
tveggja ára samning við Hlíðar-
endaliðið. Valdimar kemur til Vals
frá HK sem hann lék með á síðustu
leiktíð en hann var kjörinn leik-
maður ársins af leikmönnum deild-
arinnar á lokahófi HSÍ. Valdimar
varð í 2.-3. sæti yfir markahæstu
leikmenn í deildinni, skoraði 135
mörk í 21 leik með Kópavogsliðinu.
„Mér líst mjög vel á að vera kom-
inn í Val. Þetta er ekki eitthvað sem
ég átti von á en þegar Valsmenn
settu sig í samband við mig þá var ég
sterkir í staðinn og mér líst bara vel
á liðið. Valur er félag sem hefur mik-
inn metnað og stefnir alltaf á titlana
og það verður bara gaman að taka
þátt í því með þessu stóra og öfluga
félagi,“ sagði Valdimar.
Valdimar er fimmti leikmaðurinn
sem Valur fær til liðs við sig í sumar
en hinir fjórir eru: Sturla Ásgeirs-
son, Anton Rúnarsson, Finnur Ingi
Stefánsson og Einar Örn Guð-
mundsson. Á móti hafa Valsmenn
misst: Elvar Friðriksson, Fannar
Þór Friðgeirsson, Arnór Þór Gunn-
arsson og Ingvar Árnason, sem allir
hafa samið við erlend lið, Sigfús Pál
Sigfússon, Sigurð Eggertsson, Sig-
fús Sigurðsson, Ólaf Sigurjónsson
og Gunnar Inga Jóhannsson.
strax mjög áhugasamur. Valur er fé-
lag sem er alltaf í titilbaráttu og ég
vil endilega taka þátt í henni,“ sagði
Valdimar Fannar í samtali við Morg-
unblaðið. Valdimar er þrítugur að
aldri. Hann hóf feril sinn með Sel-
fyssingum en hefur síðan leikið með
Aftureldingu, Fram og HK og tíma-
bilið 2007-8 spilaði hann með HK
Malmö í Svíþjóð. Hann var til skoð-
unar hjá danska liðinu Viborg fyrir
skömmu og einnig sýndu norsk lið
s.s. Elverum honum áhuga en að
hans sögn var ekkert spennandi sem
félögin höfðu að bjóða.
Valur hefur orðið fyrir töluverðri
blóðtöku í sumar en Valdimar hræð-
ist það ekkert. ,,Það eru mjög góðir
leikmenn farnir en það hafa komið
Vil vera í titilbaráttu
Valdimar Þórsson, besti leikmaður Íslandsmótsins, gerði
tveggja ára samning við Val Sá fimmti sem Valur fær
Morgunblaðið/Ómar
Velkominn Sveinn Stefánsson formaður handknattleiksdeildar Vals og
Valdimar Fannar Þórsson eftir undirskriftina á Hlíðarenda í gær.
Ásdís Hjálms-
dóttir úr Ár-
manni vann
öruggan sigur í
spjótaksti á al-
þjóðlegu frjáls-
íþróttamóti í
Glasgow í Skot-
landi í gær-
kvöldi. Hún kast-
aði lengst 57,43
metra og átti
einnig næstlengsta kast keppn-
innar, 55,40. Tvö fyrstu köst henn-
ar í keppninni voru ógild.
Að sögn Stefáns Jóhannssonar,
þjálfara Ásdísar, var keppnin frem-
ur snubbótt. Hver keppandi fékk
aðeins að kasta fjórum sinnum en
venjulega stendur keppni í kast-
greinum yfir í sex umferðir. Þá var
engin aðstaða við keppnisvöllinn til
þess að kasta spjóti í upphitun. Þeg-
ar komið var út á keppnisvöllinn
fékk hver keppandi að kasta tvisv-
ar áður en flautað var til keppni.
„Ásdís lærir af þessu, þetta fer
bara í banka reynslunnar,“ sagði
Stefán yfirvegaður í samtali við
Morgunblaðið.
Laura Whittingham frá Englandi
varð önnur í spjótkastkeppninni
með 54,46 m.
Næst tekur Ásdís þátt í Dem-
antamóti Alþjóðafrjálsíþrótta-
sambandsins í Gateshead á Eng-
landi á laugardaginn. Fyrir vikið
tekur hún ekki þátt í Meistaramóti
Íslands.
„Ásdís er í fínu formi um þessar
mundir. Það hefur gengið vel á æf-
ingum og við bíðum bara eftir að
allt smelli hjá henni í keppni og Ís-
landsmetið falli,“ sagði Stefán Jó-
hannsson. iben@mbl.is
Sigraði í
snubbóttri
keppni
Ásdís
Hjálmsdóttir
„Það var alveg sama hvar á lið mitt
var litið í þessum leik, allir léku
framúrskarandi vel,“ sagði hinn yf-
irvegaði landsliðsþjálfari Spánar í
knattspyrnu, Vicente del Bosque,
eftir að hann varð fyrstur spænskra
landsliðsþjálfara til þess að stýra
knattspyrnulandsliði þjóðarinnar í
úrslitaleik heimsmeistaramóts í
knattspyrnu í gær. Þá lögðu Spán-
verjar Þjóðverja, 1:0, í Soccer City í
Jóhannesarborg. Það var miðvörð-
urinn Carles Puyol sem skoraði eina
mark leiksins á 73. mínútu þegar
hann skallaði boltann í markið frá
vítapunkti eftir hornspyrnu sam-
herja síns hjá Barcelona, Xavi.
Spánn mætir Hollandi í úrslitaleik
sem hefst kl. 18.30 á sunnudag en
sólarhring áður eigast við Þjóðverjar
og Úrúgvæmenn í leik um brons-
verðlaunin. Þýskaland hlaut brons á
síðasta heimsmeistaramóti og silfur
á HM fyrir átta árum.
Hvorki Spánn né Holland hafa
fagnað heimsmeistaratitili í knatt-
spyrnu. Spánverjar eru ríkjandi
Evrópumeistarar og geta með sigri á
sunnudag fetað í fótspor franska
landsliðsins sem var handhafi bæði
heims- og Evrópumeistaratitilsins
eftir Evrópukeppnina fyrir 10 árum.
„Ég held að Spánverjar verði
heimsmeistarar,“ sagði Joachim
Löw, landsliðsþjálfari Þýskalands,
eftir tapið í gær. „Spánverjar létu
boltann ganga og vinna fyrir sig í
þessum leik. Þegar þeir komast í þá
stöðu er hrikalega erfitt að eiga við
þá. Við náðum okkur aldrei á strik,
vorum aldrei nógu beittir,“ sagði
Löw ennfremur. iben@mbl.is
Puyol
hetja
Spánar
Reuters
Fögnuður Gríðarlegur fögnuður braust skiljanlega út á meðal leikmanna Spánar þegar flautað var til leiksloka í
gær og ljóst að þeir væru komnir í úrslitaleik heimsmeistaramótsins gegn Hollendingum á sunnudaginn.