Morgunblaðið - 08.07.2010, Qupperneq 3
Íþróttir 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2010
01.09.2010
Fyrstu 50 áskrifendur fá 2 miða á leik ÍBV og Keflavíkur
Mættu við innganginn og framvísaðu Moggaklúbbskortinu til að fá miða
BÝÐUR ÁSKRIFENDUM ÁVÖLLINN
ÍBV - KEFLAVÍK
8. júlí kl. 19:15 á Hásteinsvellinum
Arnór Smára-son sem ný-
lega samdi við
danska úrvals-
deildarliðið Esb-
jerg skoraði sitt
annað mark fyrir
liðið þegar það
gerði 1:1 jafntefli
í æfingaleik við
Horsens í gærkvöld. Arnór kom sín-
um mönnum yfir strax á 1. mínútu
leiksins og hann var óheppinn að
bæta ekki öðru marki við en skot
hans small í þverslánni. Arnór lék
allan tímann á miðjunni en keppni í
dönsku úrvalsdeildinni hefst um
aðra helgi og mæta Arnór og félagar
liði OB á útivelli en með OB leikur
Rúrik Gíslason.
Knattspyrnumaðurinn GunnarHeiðar Þorvaldsson er kominn
til reynslu hjá enska 2. deildarliðinu
Charlton. Gunnar er á mála hjá
danska úrvalsdeildarliðinu Esbjerg.
Hann á eitt ár eftir af samningi sín-
um við félagið en ljóst er að hann
verður ekki áfram í herbúðum liðs-
ins og leitar að nýjum vinnuveit-
endum.
Útvarp KR verður með lýsingufrá leik Glentoran og KR í Evr-
ópudeildinni í kvöld. Flautað verður
til leiks kl. 19.30 en klukkustund áð-
ur hefst útsendingin. Þetta verður
50. Evrópuleikur KR og verður
Bjarni Felixson með upphitun fyrir
leikinn en hann spilaði fyrsta leik
KR í Evrópukeppni við Liverpool
1964. Ólafur Brynjar Halldórsson
og Kristinn Kjærnested lýsa leikn-
um frá The Oval-vellinum í Belfast.
Fólk sport@mbl.is
Karlalið Hauka í knattspyrnu hefur
enn ekki innbyrt sinn fyrsta sigur í
Pepsideildinni í sumar og situr þar á
botninum eftir að hafa unnið sér rétt
til að spila þar á síðasta ári. Liðið
hefur þó náð í fimm stig í fyrstu tíu
umferðunum með því að gera jafntefli
í helmingi leikja sinna.
Árangurinn hefur að sjálfsögðu
ekki verið eftir væntingum leikmanna
og þjálfara sem brugðu á það ráð fyr-
ir 9. umferð að gera með sér veðmál.
Um það var samið að ef Haukar
næðu sex stigum úr næstu þremur
leikjum, gegn Fram, Fylki og Val,
yrðu þjálfarar liðsins að synda
ákveðna vegalengd í ísköldu Atlants-
hafinu. Ef ekki tækist að ná í sex stig
yrðu leikmenn hins vegar að synda
sjósundið.
Nú er orðið ljóst að takmark liðsins
næst ekki því það fékk aðeins tvö stig
úr leikjunum við Fram og Fylki. Þó er
ekki öll nótt úti enn fyrir leikmennina
því veðmálið hefur verið „tvöfaldað“
og sleppa þeir því við refsingu vinni
þeir sinn fyrsta sigur í sumar gegn
Val í kvöld. Að öðrum kosti fá þeir
viðbótarrefsingu sem ekki hefur verið
ákveðin. sindris@mbl.is
Haukar á leið í sjósund?
Ólíklegt er talið að Málfríður Erna Sigurð-
ardóttir muni geta leikið með íslenska landslið-
inu í knattspyrnu þegar það mætir Frakklandi í
nokkurs konar úrslitaleik um efsta sæti undan-
riðils þjóðanna fyrir HM í Þýskalandi.
Málfríður Erna fór meidd af velli í leik með
liði sínu Val gegn Breiðabliki í fyrrakvöld og
við læknisskoðun í gær kom í ljós að liðband í
hné hefur slitnað. Hún mun þurfa að gangast
undir nánari skoðun til að skera úr um hvort
liðþófi í hné hefur einnig rifnað en ljóst er að
krossbönd hafa ekki slitnað.
Málfríður Erna, sem gegnir stóru hlutverki í
Íslandsmeistaraliði Vals, verður því alla vega
frá keppni næstu 4-6 vikurnar og sé liðþófi rif-
inn má reikna með að hún verði tvöfalt lengur
frá keppni. Þetta er áfall fyr-
ir Val sem er þó í góðri stöðu
á toppi úrvalsdeildarinnar en
hefur leik í Evrópukeppni í
lok september og myndi
sakna Málfríðar mikið þar.
Hún var nýlega valin í
landsliðið á ný eftir hlé vegna
barneigna og kom inn á sem
varamaður í síðasta leik gegn
Króatíu.
„Þetta er slæmt en ég vona
bara það besta. Læknirinn sér betur hvernig
staðan er þegar bólgan hjaðnar og kannski er
þetta ekki eins slæmt og hann heldur,“ sagði
Málfríður í gær. sindris@mbl.is
Áfall fyrir Íslandsmeistaralið Vals
Málfríður Erna
Sigurðardóttir
„Þetta verður mjög erfitt og við höf-
um alveg gert okkur grein fyrir því.
Við erum raunsæir og vitum hver
staðan er en þessi leikur fer alla vega í
reynslubankann og auðvitað gerum
við okkar besta og sjáum hvert það
fleytir okkur,“ sagði Valur Fannar
Gíslason, fyrirliði Fylkis. Fylkir leik-
ur seinni leik sinn við Torpedo Zhod-
ino frá Hvíta-Rússlandi í undan-
keppni Evrópudeildarinnar í knatt-
spyrnu í dag. Liðin mætast kl. 19 á
Laugardalsvelli en Torpedo vann
fyrri leikinn á heimavelli sínum, 3:0,
fyrir viku.
„Við förum afslappaðir inn í þennan
leik en leggjum okkur auðvitað alla
fram. Þetta var erfiður leikur úti og
þeir eru með hörkulið sem spilar
þrælvel. Leikmennirnir eru mjög
teknískir og fljótir, og ekki hægt að
segja annað en að þetta sé þrælgott
lið,“ sagði Valur Fannar sem vonast
til að íslensk veðrátta geti riðið bagga-
muninn í kvöld þótt útlitið sé vissu-
lega dökkt fyrir Fylkismenn.
„Það er aldrei hægt að útiloka neitt
í fótbolta og nú mæta þeir í rokið og
rigninguna úr 40 gráðu hitanum sem
við spiluðum í úti. Það er talsverð
breyting. Við hljótum að geta nýtt
okkur það og spilað boltanum upp í
vindinn. Þeir kunna það ekki,“ sagði
Valur Fannar léttur. sindris@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Evrópuleikur Valur Fannar Gíslason og félagar eiga á brattann að sækja í
kvöld eftir ósigurinn í Hvíta-Rússlandi í síðustu viku, 0:3.
Fylkir mætir Torpedo í Laugardalnum
í kvöld Valur vonar að veðrið hjálpi
„Þrælgott lið“
„Við stefnum að því að spila leikinn
þannig að það á ekki að vera nein
hætta á ferð,“ sagði Logi Ólafsson,
þjálfari KR-inga, sem leika seinni leik
sinn við Glentoran í undankeppni Evr-
ópudeildar UEFA í Belfast í dag.
„Við vitum hins vegar að það getur
verið mikill munur á liðum eftir því
hvort þau spila á heimavelli eða úti-
velli, og nú hafa Glentoran-menn haft
viku til að hugsa sinn gang eftir fyrri
leikinn. Þeir þekkja okkur betur núna,
rétt eins og við þekkjum þá betur,“
bætti Logi við.
KR vann fyrri leikinn 3:0 og er því
með afar vænlega stöðu.
„Það voru ágætis kaflar í þeirra leik
í fyrri hálfleiknum á KR-velli og það
eru fínir fótboltamenn í þessu liði.
Þeir eru með grundvallaratriði fótbolt-
ans á hreinu og kunna vel að spila
sína „tegund“ af fótbolta.
Það var einn í banni í síðasta leik
og svo hafa bæst við þrír leikmenn
með töluverða reynslu úr Evr-
ópukeppni sem voru ekki með síðast.
Við getum því ekki nú frekar en áður
verið kærulausir í þessum leik. Við
munum spila af krafti frá byrjun, ekki
bara til þess að halda fengnum hlut
heldur til að vinna leikinn,“ sagði
Logi.
Allir leikmenn KR eru heilir heilsu
utan Mark Rutgers sem meiddist í
leik gegn Grindavík á sunnudag. Hann
gæti þó vel verið orðinn klár í slaginn
í dag að sögn Loga. Guðjón Baldvins-
son og Jordao Diogo eru að mestu
búnir að jafna sig af meiðslum.
Glentoran, sem hafnaði í þriðja sæti
á síðasta tímabili á Norður-Írlandi,
hóf fyrir stuttu undirbúning fyrir
næstu leiktíð sem hefst eftir mánuð, 7.
ágúst.
Leikur KR og Glentoran fer fram á
The Oval í Belfast og hefst kl. 18:30
að íslenskum tíma.
sindris@mbl.is
„Á ekki að vera
nein hætta á ferð“
KR sækir Glentoran heim í kvöld
Þriggja marka forskot á að nægja
a, miðvallarleikmaður Manchester City, hefur tilkynnt að
ki lengur kost á sér í franska landsliðið. Hann ætlar að ein-
rið að Manchester City sem hann gekk til liðs við í janúar.
aðist eftir því að verða valinn í franska landsliðshópinn sem
hann hlaut ekki náð fyrir augum landsliðsþjálfarans, Ray-
nech, sem er nú hættur.
ti mér nú að Manchester City og engu öðru. Ég vil gera
rir félagið og vil borga til baka það traust sem Roberto
r haft á mér,“ sagði Vieira.
st hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum með frammistöðu
M eins og allir landar sínir en Frakkar urðu í neðsta sæti í
g fóru heim með skottið á milli lappanna en mikill skrípa-
ringum liðið. „Ég varð fyrir vonbrigðum eins og allir Frakk-
sitt landsliðið. Það var erfitt að vera ekki til staðar en ég
val. Við reiknuðum öll með því að það kæmist upp úr riðl-
tókst ekki og þetta var mjög erfiður tími.“ gummih@mbl.is
ick Vieira er hættur