Morgunblaðið - 30.07.2010, Blaðsíða 2
Björgvin Sigurbergsson úr Golfklúbbnum Keili
í Hafnarfirði hefur titil að verja á góðgerða-
mótinu „Einvíginu á Nesinu“ sem fram fer á
mánudaginn. Alls taka tíu kylfingar þátt og þar
á meðal eru Íslandsmeistararnir í höggleik,
Birgir Leifur Hafþórsson og Tinna Jóhanns-
dóttir. Björgvin gæti með sigri jafnað við
Magnús Lárusson úr Kili Mosfellsbæ sem hef-
ur þrívegis sigrað á þessu skemmtilega móti.
Mótið fór fyrst fram árið 1997 og eru
leiknar 9 holur fyrir hádegi en eftir há-
degi hefst „Einvígið“ þar sem einn kylf-
ingur fellur úr keppni eftir hverja holu. Í
ár verður það
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra sem fær
veglega peningaupphæð að gjöf frá styrktarað-
ila mótsins, DHL. Þeir sem taka þátt á mánudag
eru: Björgvin Sigurbergsson GK, Birgir Leifur
Hafþórsson GKG, Tinna Jóhannsdóttir GKG,
Bjarki Pétursson GB, Hlynur Geir Hjartarson
GK, Nökkvi Gunnarsson NK, Ragnhildur Sigurð-
ardóttir GR, Sigurpáll Geir Sveinsson GK, Örn
Ævar Hjartarson GS og Örvar Samúelsson GA.
Eins og áður segir hefur mótið farið fram frá
árinu 1997. Þeir sem hafa sigrað eru, Björgvin
Þorsteinsson (1997), Ólöf María Jónsdóttir
(1998), Vilhjálmur Ingibergsson (1999), Kristinn
Árnason (2000), Björgvin Sigurbergsson (2001,
2009), Ólafur Már Sigurðsson (2002), Ragnildur
Sigurðardóttir (2003), Magnús Lárusson (2004,
2005, 2006), Sigurpáll Geir Sveinsson (2007),
Heiðar Davíð Bragason (2008).
Titilvörn Björgvin Sig-
urbergsson vann Ein-
vígið á Nesinu síðast.
2 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 2010
Sigurður Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
Þrír Íslendingar keppa á Evrópu-
meistaramótinu í frjálsíþróttum í
Barcelona í dag. Helga Margrét Þor-
steinsdóttir úr Ármanni hefur keppni
í sjöþraut en hún vann bronsverðlaun
á heimsmeistaramóti unglinga um sl.
helgi í Kanada. Helga Margrét er
yngsti keppandinn í sjöþrautinni og
sú eina sem keppti einnig á HM ung-
linga í Kanada. „Ég hefði aldrei keppt
á tveimur mótum með svona stuttu
millibili ef þetta væri ekki heims-
meistaramót. Ég er ekki með neinar
væntingar um árangur, og markmiðið
er að hafa gaman af þessu og njóta
þess að keppa á þessum stórkostlega
keppnisvelli,“ sagði Helga Margrét í
gær við Morgunblaðið. Hún hefur
notað undanfarna daga til þess að
safna kröftum eftir erfiða törn á HM í
Kanada.
„Æfingarnar hafa verið mjög létt-
ar, mest skokk og teygjuæfingar.
Líkaminn er lengi að jafna sig eftir
eina keppni í sjöþraut og ég finn al-
veg fyrir því að ég þarf aðeins fleiri
daga til þess að safna kröftum. En ég
ætla ekki að væla yfir því, og ég verð
tilbúin að gera mitt besta þegar
keppnin hefst,“ bætti Helga við en
besti árangur hennar er 5878 stig.
Karolina Klüft frá Svíþjóð á heims-
metið sem er 7.032.
Stefán Jóhannsson, þjálfari Helgu,
segir að mótið sé mikilvægt til þess
að öðlast meiri keppnisreynslu.
„Helga átti í vandræðum með lang-
stökkið á HM í Kanada. Það er skilj-
anlegt þar sem við tókum langstökkið
alveg í gegn sl. vetur og breyttum því
mikið. Hún á mikið inni þar og þar
sem hún var að jafna sig eftir meiðsli
í vetur þá gátum við ekki lagt áherslu
á að hraðaæfingar. Hún er ekki með
sama hraða og áður en það á eftir að
koma smátt og smátt,“ sagði þjálf-
arinn.
Óðinn hefur kastað 19,37 metra
Óðinn Björn Þorsteinsson úr FH
hefur keppni kl. 9.30 að íslenskum
tíma í kúluvarpi. Óðinn Björn hefur
kastað 19,37 metra á þessu tímabili
en hann þarf að kasta yfir 20 metra
til þess að komast sjálfkrafa í úrslit.
22 af alls 27 keppendum í kúluvarpinu
hafa kastað yfir 20 metra en sá sem á
besta árangurinn er Andrei Mikne-
vich frá Hvíta-Rússlandi sem hefur
kastað 22,09 metra á þessu tímabili.
Heimsmet Ulfs Timmermans frá
árinu 1988 stendur enn óhaggað, en
Vestur-Þjóðverjinn kastaði 23,06
metra árið 1988.
Tsátoumas sigurstranglegur
Þorsteinn Ingvarsson keppir í lang-
stökki en hann hefur stokkið lengst
7,79 metra og það gerði hann á þessu
tímabili. Þorsteinn þarf að stökkva yf-
ir 8 metra til þess að komast sjálf-
krafa í úrslit.
Loúis Tsátoumas frá Grikklandi er
sigurstranglegur í þessari grein en
hann hefur stokkið lengst allra kepp-
enda, eða 8,66 metra. Heimsmetið í
greininni á Mike Powell frá Banda-
ríkjunum. Hann stökk 8,95 metra í
stórkostlegri keppni á HM í Japan
árið 1991 þar sem Carl Lewis stökk
8,87 metra og er það þriðja lengsta
stökk allra tíma. Bob Beamon frá
Bandaríkjunum setti heimsmet í
greininni árið 1968, 8,90 metra, og
það met stóðst allar atlögur allt þar
til Powell hitti á „risastökkið“ í Tók-
ýó.
Morgunblaðið/hag
Stórmót Helga Margrét Þorsteinsdóttir úr Ármanni hefur keppni í sjöþraut á EM í Barcelona í dag.
„Ég verð tilbúin“
Helga Margrét ætlar að njóta þess að keppa á ólympíu-
leikvanginum í Barcelona Óðinn og Þorsteinn keppa í dag
Ólafur ÖrnBjarnason
nýráðinn spilandi
þjálfari Grind-
víkinga er búinn
að fá bróður
sinn, Guðmund
Andra Bjarna-
son, til félagsins
á ný. Guð-
mundur er 29 ára gamall og er öll-
um hnútum kunnugur í herbúðum
Grindavíkur. Hann hefur hins veg-
ar leikið með Reyni í Sandgerði í 2.
deildinni í sumar. Reynir er að
missa af lestinni í baráttunni um
sæti í 1. deild að ári og því kannski
ágætur tímapunktur fyrir Guð-
mund að ganga til liðs við sitt
gamla félag á ný. Guðmundur lék
2008 og 2009 með Fjarðabyggð en
þar áður með Grindavík.
HólmfríðurMagn-
úsdóttir lands-
liðskona í knatt-
spyrnu var í
sviðsljósinu þeg-
ar lið hennar
Philadelphia In-
dependence sigr-
aði Chicago Red
Stars 3:0 í bandarísku atvinnu-
mannadeildinni aðfaranótt fimmtu-
dags. Hólmfríður lék sem vinstri
bakvörður eins og hún hefur gert
undanfarið. Hún var þó ekki í
sviðsljósinu af skemmtilegum
ástæðum heldur vegna þess að hún
var rekinn af leikvelli undir lok
leiksins. Gera má ráð fyrir því að
hún fái eins leiks bann fyrir vikið.
Roy Hodgson knattspyrnustjóriLiverpool var mjög sáttur við
frammistöðu sinna manna gegn FK
Rabotnicki í Evrópudeildinni í
gærkvöld en hann stýrði liðinu til
2:0 sigurs í sínum fyrsta mótsleik.
,,Ég er mjög sáttur. Þetta var
leikurinn sem hefði getað reynst
okkur mjög erfiður. Það var fjöl-
menni á leiknum og margir liðs-
manna minna eru ekki vanir því að
spila fyrir framan svona marga
áhorfendur,“ sagði Hodgson sem
tefldi fram mörgum ungum og
óreyndum leikmönnum. ,,Strák-
arnir lögðu sig vel fram í leiknum
og við förum á Anfield með gott
veganesti,“ sagði Hodgson en það
var Frakkinn David Ngog sem
skoraði bæði mörk Liverpool í
leiknum. Liverpool liðið lék án 10
leikmanna sem léku á HM í Suður-
Afríku og voru margir stuðnings-
menn liðsins með hnút í maganum
fyrir leikinn.
Ítalski framherjinn GiuseppeRossi lék á vörn Tottenham
þegar spænska liðið Villareal
skellti Lundúnaliðinu, 4:1, í æfinga-
leik á White Hart Lane í gærkvöld.
Rossi, sem um tíma var á mála hjá
Manchester United, skoraði þrjú af
mörkum Villareal en eina mark
Tottenham skoraði Mexíkóinn
Giovani Dos Santos.
Fólk sport@mbl.is
KNATTSPYRNA
Bikarkeppni karla
VISA-bikarinn, undanúrslit:
KR – Fram .................................................4:0
Óskar Örn Hauksson 40., Grétar Sigfinnur
Sigurðarson 58., Björgólfur Takefusa 71.,
80.
KR leikur við FH í úrslitaleik á Laug-
ardalsvelli 14. ágúst.
1 deild kvenna B
ÍBV – Fjölnir .............................................5:0
Hlíf Hauksdóttir, Kristín Erna Sigurlás-
dóttir, Edda María Birgisdóttir, Sóley Guð-
mundsdóttir,Antonio Karel Ese.
Staðan:
Selfoss 11 11 0 0 65:10 33
ÍBV 11 10 0 1 58:8 30
ÍR 11 5 1 5 20:34 16
Fjölnir 10 5 1 4 11:27 16
Fjarðab./Leikn. 11 4 1 6 16:32 13
Sindri 11 3 0 8 18:31 9
Fram 11 1 3 7 16:34 6
Höttur 10 0 2 8 7:35 2
Evrópudeild UEFA
Forkeppni, 3. umferð, helstu úrslit:
Buducnost Podgorica – Bröndby ...........1:2
Fatos Beciraj 90. – Goran Adamovic 73.
(sjálfsm.), Mike Jensen 87.
Rabotnicki – Liverpool ............................0:2
David Ngog 17., 58.
AZ – IFK Gautaborg ................................2:0
Ragnar Klavan 52., Jóhann Berg Guð-
mundsson 56.
Shamrock Rovers – Juventus .................0:2
Amauri 3., 75.
Olympiacos – M. Tel-Aviv........................2:1
Jaouad Zairi 67., Dennis Rommedahl 73. –
Haris Medunjanin 18. (víti).
Cercle Brügge – Anorthosis ...................1:0
Dominic Foley 69.
OB – Zrinjski.............................................5:3
Rúrik Gíslason 16., Johan Absalonsen 23.,
Peter Utaka 31., 60., Hans Henrik Andr-
easen 37. – Vlado Zadro 15., 71., Mladen
Zizovic 65.
Aalesund – Motherwell............................1:1
Alexander Mathisen 90. – Jamie Murphy
48.
Molde – Stuttgart .....................................2:3
Mattias Moström 65., Magne Hoseth 76. –
Sebastian Rudy 27., Zdravko Kuzmanovic
74., Martin Harnik 82.
Jóhann Berg
Guðmundsson
skoraði sitt
fyrsta mark fyrir
hollenska liðið
AZ Alkmaar í
gær í forkeppni
Evrópudeildar
UEFA. AZ
Alkmaar lagði
sænska liðið
Gautaborg, 2:0, á
heimavelli í fyrri leik liðanna í gær.
Ragnar Klaven skoraði fyrsta
mark heimamanna á 55. mínútu og
tveimur mínútum síðar skoraði Jó-
hann með góðu skoti sem fór yfir
markvörðinn og í stöngina og inn.
Kolbeinn Sigþórsson var á vara-
mannabekk AZ Alkmaar og kom
ekki við sögu. Þrír íslenskir leik-
menn léku með Gautaborg. Ragnar
Sigurðsson og Hjálmar Jónsson
voru í vörn liðsins frá upphafi en
Theódór Elmar Bjarnason lék síð-
ustu 30 mínúturnar fyrir Gauta-
borg.
Jóhann Berg
skoraði sitt
fyrsta mark
Jóhann Berg
Guðmundsson
Rúrik Gíslason
skoraði fyrir OB
frá Óðinsvéum í
5:3 sigri liðsins
gegn Zrinskij frá
Bosníu í 3. um-
ferð forkeppni
Evrópudeildar
UEFA í gær. Rú-
rik skoraði á 16.
mínútu og kom
heimaliðinu yfir
en staðan í hálfleik var 4:0. Íslenski
landsliðsmaðurinn fór af leikvelli í
hálfleik. Markið sem Rúrik skoraði
kom eftir fyrirgjöf og skoraði hann
af stuttu færi.
Rúrik skoraði í
átta marka leik
Rúrik
Gíslason
Íslandsmeistararnir mæta í „Einvígið á Nesinu“