Morgunblaðið - 30.07.2010, Qupperneq 3
Íþróttir 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 2010
Elvan Abeyle-gesse frá
Tyrklandi sigraði
með yfirburðum í
10.000 metra
hlaupi kvenna á
Evrópumeist-
aramótinu í frjáls-
íþróttum á mið-
vikudag. Hún var
12 sekúndum á undan Ingu Abitovu
frá Rússland. Abeylegesse er fædd í
Eþíópíu en er nú með tyrkneskan rík-
isborgararétt. Hún ætlar sér einnig
sigur í 5.000 metra hlaupinu. Hún
kom í mark á 31.10,23 mínútum. Inga
Abitova frá Rússland varð önnur en
hún sigraði á Evrópumeistaramótinu
árið 2006 í þessari grein. Jessica Aug-
usto frá Portúgal varð þriðja.
Slóvakinn Libor Charfreitag sigr-aði í sleggjukasti karla á EM.
Hann kastaði 80,02 metra en þetta er
í fyrsta sinn sem Slóvakía vinnur til
gullverðlauna á Evrópumeist-
aramótinu í frjálsíþróttum. Robert
Stefko var með bestan árangur Sló-
vaka á EM en hann varð fjórði í
10.000 metra hlaupi árið 1994. Annar
í sleggjukastinu varð Ítalinn Nicola
Vizzoni sem kastaði sleggjunni 79,12
metra. Bronsið fékk Krisztián Pars
frá Ungverjalandi, 79,06 m. Heims-
og Evrópumetið er 24 ára gamalt en
það á Juri Sedikh, 86,74 metrar sem
hann setti í Stuttgart árið 1986.
Bandaríkja-maðurinn
Lorenzen Wright,
sem lék í 13 ár í
NBA deildinni í
körfubolta, fannst
látinn í skóglendi
fyrir utan borgina
Memphis í fyrra-
dag. Wright, sem
var 34 ára gamall, hafði verið saknað
frá 18. júlí eða í 10 daga. Lögreglan
rannsakar nú málið en talið er að
Wright hafi verið myrtur. Wright var
valinn af Los Angeles Clippers í há-
skólavalinu sumarið 1996 og var hann
sá sjöundi sem var valinn í fyrstu um-
ferð. Hann lék með Los Angeles Clip-
pers, Atlanta Hawks, Memphis
Grizzlies, Sacramento Kings og Cle-
veland Cavaliers veturinn 2008-2009.
Hann skoraði 8 stig að meðaltali í 778
leikjum og tók 6,4 fráköst.
BÍ/Bolungarvík framlengdi í gærsamninga við tvo af sínum efni-
legustum sonum, Bolvíkinginn Andra
Rúnar Bjarnason og Ísfirðinginn
Matthías Króknes Jóhannsson.
Andri er markahæsti leikmaður 2.
deildar sem stendur og Matthías er í
17 ára landsliðinu.
Mark Hughesvar í gær-
kvöld ráðinn nýr
knattspyrnustjóri
enska úrvalsdeild-
arliðsins Fulham.
Hughes skrifaði
undir tveggja ára
samning við
Lundúnaliðið og
leysir af hólmi
Roy Hodgson sem er tekinn við liði
Liverpool. Hughes hefur verið at-
vinnulaus frá því hann var rekinn úr
starfi hjá Manchester City í desem-
ber á síðasta ári en áður var hann við
stjórnvölinn hjá Blackburn. Eiður
Smári Guðjohnsen hefur verið orð-
aður við Fulham.
Íslenska sveitin er í öðru sæti áfyrsta degi af þremur í und-
ankeppni fyrir EM piltalandsliða í
golfi í Eistlandi. Rúnar Arnórsson
GK lék best Íslendinganna á 71 höggi
eða höggi undir pari. Páll Theodórs-
son GKj. átti næst besta hringinn á
76 höggum, Guðmundur Ágúst
Kristjánsson GR lék á 77, Hall-
grímur Júlíusson GV á 79, Magnús
Björn Sigurðsson GR á 86 og Guðni
Fannar Carrico GO á 81.
Fólk sport@mbl.is
Bandaríska landsliðið í körfuknatt-
leik karla undirbýr sig af krafti fyrir
heimsmeistaramótið sem fer fram í
Tyrklandi í ágúst en þar hafa Spán-
verjar titil að verja. Bandaríkin náðu
aðeins bronsverðlaunum á HM 2006
sem fram fór í Japan en þar tapaði
liðið gegn Grikkjum í undan-
úrslitum.
Fækkað var um þrjá leikmenn í
æfingahópnum í gær. Tyreke Evans,
nýliði ársins frá Sacramento, O.J.
Mayo frá Memphis og Gerald Wal-
lace frá Charlotte voru settir út úr
liðinu. Athygli vekur að aðeins tveir
miðherjar eru nú eftir í æfingahópn-
um, Brook Lopez og Tyson Chand-
ler
Æfingahópurinn er nú þannig
skipaður: Kevin Durant (Oklahoma),
Eric Gordon (LA Clippers),
Chauncey Billups (Utah), Derrick
Rose (Bulls), Rajon Rondo (Celtics),
Russell Westbrook (Oklahoma),
Lamar Odom (Lakers), Stephen
Curry (Golden State), Andre Iguo-
dala (76’ers), Rudy Gay (Memphis),
Danny Granger (Indiana), Kevin
Love (Minnesota), Brook Lopez
(New Jersey) og Tyson Chandler
(Dallas). Mike Krzyzewski er þjálf-
ari liðsins en hann stýrði liðinu til
sigurs á Ólympíuleikunum í Peking.
Margir af stjörnuleikmönnum NBA-
deildarinnar gáfu ekki kost á sér í
landsliðið að þessu sinni og má þar
nefna LeBron James og Dwayne
Wade. Athygli vekur að allir leik-
mennirnir úr ólympíuliðinu 2008
verða fjarverandi að þessu sinni.
Bandaríska liðið leikur æfingaleik
gegn Frökkum í Madison Square
Garden þann 15. ágúst. Liðið mun
leika æfingaleiki gegn Spáni, Grikk-
landi og Litháen í Evrópu áður en
keppni hefst á HM þann 28. ágúst.
Bandaríkjamenn eru með Brasilíu,
Króatíu, Íran, Túnis og Slóveníu í B-
riðli.
Í A-riðli eru: Angóla, Argentína,
Ástralía, Þýskaland, Jórdanía og
Serbía.
Í C-riðli eru: Kína, Fílabeins-
ströndin, Grikkland, Rússland, Pú-
ertó Ríkó, Tyrkland.
Í D-riðli eru: Kanada, Frakkland,
Líbanon, Litháen, Nýja-Sjáland og
heimsmeistaralið Spánar.
Bandaríska liðið á ÓL í Peking
var þannig skipað: Carlos Boozer,
Jason Kidd, LeBron James, Deron
Williams, Michael Redd, Dwyane
Wade, Kobe Bryant, Dwight How-
ard, Chris Bosh, Chris Paul, Tays-
haun Prince, Carmelo Anthony.
Draumaliðið frá
Peking mætir ekki á HM
Reuters
Landsliðsmaður Chauncey Billups
leikmaður Utah er lykilmaður.
Svo gæti farið að Unnur Tara Jónsdóttir tæki ekki
þátt í titilvörn Íslandsmeistara KR í körfuknattleik
kvenna á næstu leiktíð. Unnur gekk til liðs við KR á
síðustu leiktíð og var kjörin besti leikmaður úr-
slitakeppninnar. Morgunblaðið bar þetta undir
Hrafn Kristjánsson þjálfara KR en hann tók við lið-
inu í sumar af Benedikt Kristjánssyni. „Unnur hef-
ur reynt að komast inn í læknisfræðina hérlendis en
það gekk ekki. Hún sendi einnig inn umsókn til
Ungverjalands í hálfkæringi og það gekk eftir. Það
er bara ánægjulegt fyrir hana og ég býst fastlega
við því að hún láti á það reyna,“ sagði Hrafn við
Morgunblaðið í gær.
Varðandi leikmannamálin almennt þá sagðist
Hrafn ekki eiga von á miklum breytingum á meist-
araliðinu. Það væri þó ekki fullljóst enda væru enn
tveir og hálfur mánuður í að
deildakeppnin hæfist. Miðherj-
inn Signý Hermannsdóttir hefur
reyndar ekki gert það upp við sig
hvort hún heldur áfram að spila
eða leggur skóna á hilluna. Signý
ýjaði að því í vor að hún væri að
velta því fyrir sér að hætta.
Spurður um Signýju sagðist
Hrafn ekki vita til þess að hún
hefði gert þetta upp við sig en
sagði að hún yrði áfram í KR ef
hún kysi að halda áfram. Hrafn benti einnig á að
fjöldi leikmanna hjá KR hefði tekið miklum fram-
förum á undanförnum árum og það væri kominn
tími til að þær fengju stærri hlutverk. kris@mbl.is
Unnur Tara á leið til Ungverjalands?
Unnur Tara
Jónsdóttir
Úrslit í fimm greinum á Evr-
ópumeistaramótinu í frjálsíþróttum
réðust í gær. Mikil spenna var í 100
metra hlaupi kvenna þar sem Þjóð-
verjinn
Verena Sailer sigraði með minnsta
mun. Hún kom í mark á 11,10 sek-
úndum og var aðeins 1/100 úr sek-
úndu á undan Véronique Mang frá
Frakklandi. Myriam Soumaré varð
þriðja á 11,18 sekúndum.
Rússar einoka hástökkið
Rússarnir Aleksander Shustov og
Ivan Ukhov börðust um sigurinn í
hástökki karla. Shustov hafði betur
en hann var sá eini sem fór yfir 2,33
metra. Ukhov fór yfir 2,31 metra.
Þriðji varð Bretinn Martyn Bernard
með 2,29 metra. Svíinn Linus Thörn-
blad varð fjórði með 2,29 metra en
hann þurfti fleiri tilraunir til þess að
komast yfir þá hæð. Evrópumet Sví-
ans hárprúða, Patriks Sjöbergs
stendur enn þrátt fyrir að vera 23
ára gamalt. Hann stökk 2,42 metra
árið 1987 í Stokkhólmi. Javier So-
tomayor frá Kúbu á heimsmetið sem
er 2,45 metrar, frá árinu 1993.
Rússar hafa einokað þessa grein á
Evrópumeistaramótinu frá árinu
2002. Jaroslav Rybakov sigraði árið
2002 og Andrei Silnov árið 2006.
Idowu kom á óvart
Phillips Idowu frá Bretlandi sigr-
aði í þrístökki karla en hann stökk
17,81 metra og bætti eigin árangur
um átta sentimetra. Idowu varð ann-
ar í greininni á Ólympíuleikunum í
Peking en hann sigraði á heims-
meistaramótinu í Berlín fyrir ári.
Marian Oprea frá Rúmeníu varð
annar og stökk 17,51 metra. Frakk-
inn Teddy Tamgho var sig-
urstranglegur fyrir keppnina en
hann á lengsta stökk ársins, 17,98
metra. Hann náði sér ekki á strik og
endaði í þriðja sæti með stökk upp á
17,45 metra.
Barras meistari í tugþraut
Keppni í tugþraut karla lauk í gær
og Romain Barras frá Frakklandi
stóð uppi sem sigurvegari. Hann
fékk 8.453 stig sem er töluvert frá
heimsmetinu sem Tékkinn Roman
Sebrle á, 9.026 stig. Eelco Sintnicola-
as frá Hollandi varð annar með 8.436
stig og Hvít-Rússinn Andrei Krauc-
hanka fékk bronsverðlaun með 8.370
stig.
Lemaitre ætlar að vinna tvöfalt
Undanúrslitin í 200 metra hlaupi
karla fóru fram í gær. Frakkinn
Christophe Lemaitre komst auðveld-
lega áfram þrátt fyrir að sýna
þreytumerki. Hann sigraði í 100
metra hlaupinu og ætlar sér tvöfald-
an sigur á EM. Lemaitre er eini hvíti
spretthlauparinn sem hefur náð því
að hlaupa undir 10 sekúndum en
besti tími hans er 9,98 sek. Norð-
maðurinn Jaysuma Saidy Ndure er
líklegur til afreka í þessari grein en
hann kom fyrstur í mark í sínum
riðli í undanúrslitunum. seth@mbl.is
Reuters
Gullverðlaun Verena Sailer kom fyrst í mark í 100 metra hlaupi kvenna á EM.
Þýskt gull í 100 metra hlaupi kvenna
Verena Sailer
sigraði með
minnsta mun
U20 ára landslið karla í hand-
knattleik lagði Slóvaka, 33:26, í
fyrsta leik sínum í lokakeppni
Evrópumótsins sem hófst í Sló-
vakíu í gær. Íslendingar höfðu
undirtökin allan tímann og voru
þremur mörkum yfir í leikhléi,
15:12.
Guðmundur Árni Ólafsson
var markahæstur í íslenska lið-
inu með 8 mörk, Oddur Gret-
arsson, Heimir Óli Heimisson og
Ragnar Jóhannsson skoruðu 4 mörk hver, Sig-
urður Ágústsson og Aron Pálmarsson gerðu 3
mörk hvor, Ólafur Guðmundsson 2, Róbert Aron
Hostert 2 og Arnór Stefánsson 1.
Góð byrjun á EM
Guðmundur
Árni Ólafsson