Morgunblaðið - 05.08.2010, Page 1
FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 2010
íþróttir
Á HM í Japan Þrír íslenskir júdómenn keppa á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Japan.
Þormóður Jónsson stefnir á að komast í átta manna úrslit í + 100 kg flokknum 4
Íþróttir
mbl.is
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
„Þetta er grimmt. Það er ekki hægt
að kenna neinu einu um þetta en það
var mikill æsingur þarna í lokin þeg-
ar við þurftum ekki einu sinni að
skjóta. Þetta var mikil óheppni, al-
veg eins og gegn Portúgal, og þegar
svo er þá falla lið bara úr leik í svona
móti,“ sagði Einar Guðmundsson,
annar þjálfara íslenska karlalands-
liðsins í handknattleik, skipaðs leik-
mönnum 20 ára og yngri, sem mis-
tókst með miklum naumindum að
komast í undanúrslit á EM í gær.
Ísland tapaði 33:32 fyrir Dan-
mörku í síðasta leik sínum í milliriðl-
inum, en jafntefli hefði dugað. Sig-
urmarkið kom á síðustu sekúndu
leiksins. Íslendingar fengu boltann á
lokamínútunni, þegar staðan var
jöfn, og tóku sér góðan tíma í sókn-
ina enda hefðu þeir getað spilað út
leikinn. Æsingurinn sem Einar
nefnir var hins vegar gríðarlegur og
líklega of mikill fyrir ungu strákana.
Örn Ingi Bjarkason fékk boltann í
dauðafæri í síðustu sókninni en
ákvað að halda sókninni áfram með
því að gefa á Guðmund Árna Ólafs-
son. Guðmundur ákvað hins vegar
að reyna að skora en fékk dæmdan á
sig ruðning þegar 8 sekúndur voru
eftir, sem dugði Dönum til að skora
síðasta markið.
Börðust eins og hetjur
„Það er margt sem hægt er að
svekkja sig á núna. Hefðum við til
dæmis bara skorað í næstsíðustu
sókninni hefðum við komist yfir og
tryggt okkur áfram, og eins í síðustu
sókninni. En á meðan menn leggja
sig svona fram er ekki hægt annað
en að vera sáttur. Ég er mjög
ánægður með strákana og þeir börð-
ust alveg eins og hetjur,“ sagði Ein-
ar.
Danir höfðu frumkvæðið í leikn-
um lengst af og náðu mest fimm
marka forskoti um miðjan seinni
hálfleikinn. Íslensku strákarnir neit-
uðu hins vegar að gefast upp og
svöruðu með framliggjandi og
frískri vörn.
„Mér fannst við vera þreyttir og
þungir í byrjun seinni hálfleiksins
og þá gekk þetta illa. En ég er feiki-
lega ánægður með karakterinn í
strákunum. Menn voru ákveðnir í að
gefa sig alla í verkefnið,“ sagði Ein-
ar.
Ísland leikur nú um 5.-8. sætið og
byrjar á leik gegn Svíum á föstudag.
Spánverjar og Frakkar eigast við í
hinum leiknum um 5.-8. sætið.
„Nú fáum við Svía sem eru með
frábært lið en töpuðu mjög óvænt.
Ég ætla ekkert að hugsa um þann
leik fyrr en á morgun og það verður
erfitt að fá menn til að koma sér í
rétta gírinn eftir þetta, en við reyn-
um okkar besta,“ sagði Einar.
Ísland hafði áður tapað gegn
Portúgal en unnið stórsigur á
Frökkum í milliriðlinum.
Portúgalar og Danir fara í undan-
úrslitin. Portúgal mætir Slóveníu.
Og Danir og Þjóðverjar eigast við.
„Þetta var mikil óheppni“
Danir tryggðu sér sigur gegn U20 ára landsliði Íslands á lokasekúndunni
Íslendingar sátu eftir með sárt ennið á EM og komust ekki í undanúrslit
Morgunblaðið/Kristinn
Næstum því Ólafur Guðmundsson og félagar hans í U20 ára landsliðinu
voru hársbreidd frá því að komast í undanúrslit á EM í Slóvakíu.
Guðmundur Ágúst Krist-
jánsson, klúbbmeistari Golf-
klúbbs Reykjavíkur, heldur
sínu striki á heimsmótaröð
unglinga sem fram fer í
Þýskalandi. Hann lék á 69
höggum í gær eða 3 höggum
undir pari
en hann var
á sama
skori á
fyrsta
keppnisdegi
mótsins.
Guðmundur,
sem varð Ís-
landsmeist-
ari í högg-
leik í 17-18
ára flokki
pilta í júlí, er í 3.-4. sæti fyrir
lokahringinn, þremur högg-
um á eftir Sebastian Schwind
frá Þýskalandi sem er á 9
höggum undir pari. Andri
Björnsson lék á 69 höggum í
gær og hann er samtals á
einu höggi undir pari eftir að
hafa leikið á 74 höggum á
fyrsta hringnum. Andri er í
21.-24. sæti. Andri Már Ósk-
arsson lék á 72 höggum í gær
og er hann samtals á 5 högg-
um yfir pari í 50.-57. sæti.
Haraldur Franklín Magnús,
sem hefur titil að verja á þess-
ari mótaröð, lék á 77 höggum
í gær og er hann í 67.-70. sæti
á 8 höggum yfir pari. Helgi
Ingimundarson er neðstur á
19 höggum yfir pari samtals.
Sunna Víðisdóttir lék á 76
höggum í gær og er hún sam-
tals á 11 höggum yfir pari í
33.-35. sæti.
Guðmund-
ur Ágúst í
baráttunni
Guðmundur Ágúst
Kristjánsson
Klúbbmeistari GR
leikur vel í Þýskalandi
Það verður líf og fjör á Kópavogs-
velli næstu daga þegar kvennalið
Breiðabliks tekur á móti þremur
liðum í undankeppni Meist-
aradeildar Evrópu í knattspyrnu.
Leiknir verða fimm leikir í keppn-
inni á sex dögum, þar af tveir leikir
á dag bæði í dag og á laugardaginn.
Óhætt er að segja að álagið á
Kópavogsvöll verði gríðarlegt því
karlalið Breiðabliks lék þar í gær-
kvöldi og karlalið HK leikur svo
þar föstudaginn 13. ágúst. Alls
verða því leiknir sjö leikir á tíu dög-
um á vellinum. »2
sindris@mbl.is
Gríðarlegt
álag á Kópa-
vogsvöll
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Efstir Breiðablik tyllti sér á toppinn í úrvalsdeild karla í Pepsí-deildinni í gær eftir 5:0 sigur gegn Val í upphafsleik 14. umferðar. Fimm leikir fara fram í
kvöld en Blikar eru með 29 stig líkt og ÍBV sem á leik til góða gegn Íslandsmeistaraliði FH í kvöld. »3