Morgunblaðið - 05.08.2010, Side 2
2 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 2010
Suðurkóreska táningnum Noh Seung-Yul hefur verið
boðið að taka þátt í síðasta risamóti ársins í golfinu,
PGA-meistaramótinu sem fram fer síðar í mán-
uðinum. Noh þáði boðið samkvæmt fréttum fjölmiðla
í heimalandi hans og sagði það vera mikinn heiður að
fá þetta boð.
Það fer kannski ágætlega á því að Noh skuli ein-
mitt vera boðið á PGA-meistaramótið því þar sigraði
landi hans, Yang Yong, í fyrra og varð þar með fyrsti
asíski karlmaðurinn til þess að vinna eitt af risamót-
unum fjórum í golfi. PGA-meistaramótið verður að
þessu sinni haldið í Wisconsin dagana 12.-15. ágúst.
Mótið verður haldið á Whistling Straits-vellinum.
Suður-Kóreumenn eru heldur betur að gera sig
gildandi í golfinu hjá körlunum en þeir munu eiga sex
fulltrúa á PGA-meistaramótinu. Lengi vel hélt KJ
Choi uppi merki Suður-Kóreu hjá körlunum en kven-
kylfingar frá Suður-Kóreu hafa fyrir löngu sett mark
sitt á LPGA-mótaröðina bandarísku.
Noh er 19 ára gamall og sigraði
á opna Malasíumótinu í mars en
mótið er hluti af bæði Evrópu-
mótaröðinni og Asíumótaröðinni.
Þar sigraði hann einmitt eftir
kapphlaup við landa sinn KJ Choi.
Noh vann sér þannig þátttökurétt
á Opna breska meistaramótinu
sem fram fór á St. Andrews í síð-
asta mánuði.
Með sigrinum varð Noh jafn-
framt næstyngsti sigurvegari sög-
unnar á Evrópumótaröðinni. Þegar Noh landaði sigri
í Malasíu var hann 18 ára og 282 daga gamall en met-
ið á Danny Lee, sem var 18 ára og 213 daga gamall
þegar hann sigraði. Noh gerðist atvinnumaður árið
2007 og komst inn á Asíumótaröðina ári síðar og var
valinn nýliði ársins.
kris@mbl.is
Táningi boðið á PGA-meistaramótið
Noh
Seung-Yul
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
„Það er mikil tilhlökkun í hópnum og
frábært að fá að vera fyrsta liðið til að
halda riðilinn hér heima,“ sagði Jó-
hannes Karl Sigursteinsson, þjálfari
kvennaliðs Breiðabliks, sem í dag hef-
ur keppni í undanriðli Meistaradeildar
Evrópu í knattspyrnu. Leikið er á
Kópavogsvelli og eru Juvisy frá
Frakklandi, Targu Mures frá Rúmen-
íu og Levadia Tallinn frá Eistlandi
andstæðingar Blika.
Fyrsti leikur Breiðabliks er í kvöld
kl. 6 gegn Levadia Tallinn, sá næsti á
laugardag kl. 6 gegn Targu Mures, og
lokaleikurinn er við Juvisy á þriðjudag
kl. 4, og það gæti reynst úrslitaleikur
um efsta sætið sem gefur þátttökurétt
í 32 liða úrslitum. Þangað komast
einnig tvö lið af sjö sem lenda í 2. sæti í
sínum riðli, og skiptir þá máli að hafa
náð sem bestum úrslitum gegn lið-
unum í 1. og 3. sæti viðkomandi riðils.
„Þetta fyrirkomulag þýðir að núna
telur hver einasta mínúta. Það að fá á
sig mark á síðustu mínútu getur skipt
sköpum þó að lið vinni samt leikinn.
Þetta er þannig mót að við þurfum að
spila 3x90 mínútur alveg á fullu,“ sagði
Jóhannes.
„Við erum í erfiðum riðli. Við vorum
óheppin að fá rúmenska liðið úr 3.
styrkleikaflokki, því það var það
sterkasta þar, og svo er franska liðið
gríðarlega sterkt. Það varð þremur
stigum á eftir Lyon í frönsku deild-
inni, og Lyon lék til úrslita í Meist-
aradeildinni í vor. Það segir sitt enda
koma Frakkarnir úr 1. styrkleika-
flokki. Heimavöllurinn gefur okkur
hins vegar vonandi mikið og ef okkur
tekst að fá góða stemningu þar teljum
við okkur vel geta farið áfram,“ bætti
hann við.
Frumkvöðlar hér á landi
Eins og Jóhannes bendir á eru Blik-
ar frumkvöðlar hér á landi því þeir eru
fyrstir til að gegna hlutverki gestgjafa
í undanriðli sem þessum. Slíkt hefur
ekki þótt ýkja fýsilegt hingað til en
vegna veikrar stöðu íslensku krón-
unnar er góður grundvöllur fyrir því
að halda svona riðil hér heima. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins fá
Blikar vel á annan tug milljóna frá
Knattspyrnusambandi Evrópu til að
gegna hlutverki gestgjafa, en reikna
má með að bróðurpartur þeirrar
summu fari í að greiða hótel- og uppi-
haldskostnað fyrir erlendu gestina.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fögnuður Breiðablik fær vonandi tækifæri til þess að fagna mörkum á heimavelli í dag.
Núna telur hver
einasta mínúta
Blikar hefja leik í dag í Meistaradeild Evrópu
Leikmenn franska knattspyrnu-
félagsins Lyon verða að finna sér e
hvað annað til dægrastyttingar á
ferðum sínum með félaginu og önn
ráð til að undirbúa sig fyrir leiki en
að hlusta á tónlist frá tónhlöðum
(iPod-um) sínum. Þjálfari félagsins
Claude Puel, hefur fengið sig full-
saddan af því að leikmenn séu með
heyrnartól í eyrunum á almannafæ
en slíkt hefur færst mjög í aukana
knattspyrnumönnum hin síðari ár.
„Þjálfarinn hefur beðið okkur um að nota ekki hey
artól lengur. Rétturinn er ekki okkar. Við höfum ekk
val,“ sagði varnarmaðurinn Aly Cissokho á frétta-
mannafundi.
Lyon-menn fylgja því fordæmi Frakklandsmeist-
aranna í Marseille og Brest sem er nýliði í 1. deildinn
sindris@mbl.is
Engar tónhlöður
Anthony
Reveillere
Karlalið ÍBV í fótbolta hefur fen
liðsstyrk því markvö
urinn Abel Dhaira h
ur gert samning við f
lagið til næstu tvegg
ára. Þetta staðfesti
Heimir Hallgrímsso
þjálfari liðsins, í sam
við fótbolta.net. Dha
er frá Úganda en þangað hafa Eyjamen
verið duglegir að ná sér í liðsstyrk síðus
ár. Tonny Mawejje er fyrir í liðinu og þ
Andrew Mwesigwa og Augustine
Nsumba léku einnig fyrir ÍBV, en allir e
þeir frá Úganda. Dhaira er meiddur nún
en mun í framtíðinni keppa við Albert
Sævarsson og Elías Fannar Stefnisson
markvarðarstöðuna en Albert, sem er a
almarkvörður ÍBV, verður 37 ára gama
haust.
Nýr dómari Pepsi-deildar karla í knaspyrnu verður á ferðinni í leik KR
Stjörnunnar í kvöld en það er Guðmund
Ársæll Guðmundsson. Guðmundur er
tólfti maðurinn í hópi A-dómara hér á
landi, en hann dæmir fyrir Hauka.
Ólafur Björn Lofts-son úr Nes-
klúbbnum lék í gær
fyrsta hringinn á EM
einstaklinga í golfi en
mótið fer fram í Finn-
landi. Ólafur náði sér
ekki alveg á strik og lék
á 77 höggum sem er
fimm högg yfir pari
vallarins. 144 kylfingar
taka þátt í mótinu og er Ólafur í 101. sæ
eftir fyrsta keppnisdag. Efsti maður, Jo
hann Lopez-Lazaro frá Frakklandi, lék
65 höggum. Leiknar eru 72 holur í móti
en keppendafjöldi verður ekki skorinn n
ur fyrr en eftir 54 holur. Þá munu um þa
bil 60 kylfingar halda leik áfram og því
ljóst að Ólafur þarf að herða róðurinn.
Ólafur fékk tvo fugla á hringnum, fimm
skolla og einn skramba.
Svissneski landsliðsmaðurinn PhilippDegen, sem verið hefur á mála hjá
Liverpool frá árinu 2008, er genginn í ra
Stuttgart í Þýskalandi. Degen er 27 ára
gamall bakvörður sem fékk fá tækifæri
Bítlaborginni því hann kom við sögu í að
eins sjö deildarleikjum Liverpool.
Barcelona er að undirbúa sig fyrir koandi leiktíð í spænsku knattspyrn-
unni og lék sinn annan æfingaleik í gær
þegar liðið lagði úrvalslið Suður-Kóreu,
5:2, í Seoul. Argentínski snillingurinn L
nel Messi skoraði tvö mörk fyrir Barcel
þrátt fyrir að spila aðeins síðasta korter
fyrri hálfleiknum. Zlatan Ibrahimovic,
Victor Sánchez og Jonathan Soriano vo
einnig á skotskónum.
Páll Tómas Finnsson skoraði tvö mörþegar Ísland lék sinn annan leik á
Evrópumeistaramótinu í andspyrnu (ás
ölskum fótbolta) í Danmörku á þriðjuda
Íslendingar mættu Bretum og máttu
sætta sig við tap, 36:87. Aron Leifsson o
Viðar Valdimarsson skoruðu einnig.
Fólk sport@mbl.is
Pepsi-deild karla
Úrvalsdeild, 14. umferð:
Breiðablik – Valur....................................5:0
Jökull I. Elísabetarson 42., Kristinn Stein-
dórsson 59., Alfreð Finnbogason 70., 76.,
Guðmundur Kristjánsson 73.
Staðan:
Breiðablik 14 9 2 3 34:16 29
ÍBV 13 9 2 2 22:10 29
FH 13 6 4 3 24:19 22
Fram 13 5 5 3 21:18 20
Keflavík 13 5 5 3 13:14 20
Valur 14 4 6 4 21:26 18
Stjarnan 13 4 5 4 23:21 17
KR 12 4 4 4 20:18 16
Fylkir 12 4 3 5 24:24 15
Grindavík 13 2 3 8 13:23 9
Selfoss 13 2 2 9 15:29 8
Haukar 13 0 7 6 16:28 7
Meistaradeild Evrópu
Forkeppni 3. umferð, síðari leikir:
HJK Helsinki – Partizan Belgrad ...........1:2
Partizan kemst áfram 5:1.
Zenit – Unirea Urziceni............................1:0
Zenit kemst áfram 1:0.
FC Kaupmannahöfn – BATE ..................3:2
FC Kaupmannahöfn kemst áfram 3:2.
Zilina – Litex Lovech................................3:1
Zilina kemst áfram 4:2.
Basel – Debrecen ......................................3:1
Basel kemst áfram 5:1
Dinamo Zagreb – Sheriff..........................1:1
Sheriff kemst áfram eftir vítaspyrnu-
keppni.
Lech Poznan – Sparta Prag .....................0:1
Sparta Prag kemst áfram 2:0.
Fenerbahce – Young Boys .......................0:1
Young Boys kemst áfram 3:2.
Gent – Dynamo Kiev.................................1:3
Dynamo Kiev kemst áfram 6:1.
Salzburg – Omonia Nicosia ......................4:1
Salzburg kemst áfram 5:2.
Celtic – Braga............................................2:1
Braga kemst áfram 4:2.
PAOK Saloniki – Ajax ..............................3:3
Ajax kemst áfram á fleiri skoruðum
mörkum á útivelli, 4:4.
Rosenborg – AIK ......................................3:0
Rosenborg kemst áfram 4:0.
H. Tel-Aviv – Aktobe ................................3:1
H. Tel-Aviv kemst áfram, 3:2.
Anderlecht – TNS .....................................3:0
Anderlecht kemst áfram, 6:1.
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA
Meistaradeild UEFA, forkeppni kvenna:
Kópavogsv.: Juvisy – Targu Mures .....15.00
Kópavogsv.: Breiðablik – L. Tallinn ....18.00
Úrvalsdeild karla, Pepsí-deildin:
Grindavíkurvöllur: Grindavík – Fram.19.15
Fylkisvöllur: Fylkir – Keflavík ............19.15
Hásteinsvöllur: ÍBV – FH ....................19.15
KR-völlur: KR – Stjarnan ....................19.15
Vodafonevöllurinn: Haukar – Selfoss..19.15
1. deild karla:
Valbjarnarvöllur: Þróttur R. – Fjölnir19.15
3. deild karla:
Selfossvöllur: Árborg – KFR ...............19.00
ÍR-völlur: Léttir – Tindastóll ...............19.00
Dalvík: Dalvík/Reynir – Samherjar.....19.00
1. deild kvenna:
Fjölnisvöllur: Fjölnir – ÍR....................19.00
Í KVÖLD!
Miðherjinn leik-
reyndi Shaquille
O’Neal samdi í
gær við Boston
Celtics í NBA
deildinni í körfu-
bolta til tveggja
ára. O’Neal fær
um 360 milljónir
kr. í laun á samn-
ingstímanum en
hann fékk um 2,5
milljarða kr. í laun á síðasta tíma-
bili.
O’Neal lék með Cleveland Caval-
iers á síðustu leiktíð en hinn 38 ára
gamli O’Neal hefur fjórum sinnum
orðið meistari, einu sinni sem leik-
maður Miami Heat og þrisvar hjá
LA Lakers. Hann vonast til þess að
ná fimmta meistaratitlinum með
Boston sem tapaði gegn LA Lakers
í úrslitum NBA deildarinnar í vor.
Boston verður án miðherjans
sterka Kendrick Perkins fram eftir
næsta vetri en hann meiddist illa á
hné í úrslitunum gegn LA Lakers.
Boston hefur fengið framherjann
Jermaine O’Neal frá Miami Heat.
„Shaq“
samdi við
Boston
Shaquille
O’Neal