Framsóknarblaðið - 16.05.1968, Blaðsíða 2
2
1£á£2CSH
FRAMSÓKNARBLAÐIÐ
Öslcndingar og hafið
Þann 25. þm. verður opnuð í íþróttahöllinni í Laugardal sýning, sem
nefnist „íslendingar og hafið“. Sýningin stendur í 18 daga.
Sýningu þessari má skipta í að-
alatriðum i þrjá þætti, sem kalla
má: fortíð, nútíð og framtíð. Verð
ur sá pátturinu er að fortíðinni
snýr, staðsettur í vestari hluta and-
dyris hússins og verður fyrst fyrir
sýningargestum, þegar inn í húsið
kemur. Hefur Lúðvík Kristjánsson
rithöfundur lagt á ráðin um val sýn
ingarmuna, sem hafðir verða í þess
ari deild, og hefur yfirleitt verið
ráðgjafi sýningarstjórnarinnar að
því er liðna tíð snertir.
„Árin og seglið“ heitir þessi
deild sýningarinnar, sem veita á
nokkra hugmynd um íslenzkar fisk
veiðar í fortíð og fram um síðustu
aldamót. Þar getur á margt að líta,
og verður hér aðeins drepið á fátt
eitt, enda er sjón sögu ríkari. —
Þjóðminjavörður, forstöðumenn
byggðarsafna og margir einstakl-
ingar hafa sýnt lofsverðan vilja
og áhuga á að lána myndir og
muni.
Fyrir framan sýningarhöllina
verður komið fyrir Þorlákshafnar
fari með rá og reiða, tólfrónum
teinæringi. Bátur þessi er að vísu
ekki gamall, 53ja ára ,en hann er
merkilegur vegna þess, að hann er
smíðaður af einum mikilvirkasta
bátusmið á Suðurlandi fyrr og síð
ar, Steini Guðmundssyni á Eyrar-
bakka. Taiið er, að hann hafi smíð-
að nærri 500 báta. Báturinn sýrnr
hið svokallaða Steinslag. Hann er
seinasti báturinn, sem Steinn smíð
aði, og var Steinn þá 77 ára gam-
all.
Liðin eru 109 ár síðan fyrsta ís-
lenzka fiskveiðasýningin var hald-
in, sem reyndar var þá kölluð
veiðarfærasýning. Fyrir allmörg-
um árum rakst Lúðvík á mikils-
verðustu frumgögn varðandi hana.
Þau verða kynnt þarna í fyrsta
sinn og ýmislegt annað, er þessa
sýningu snertir.
Stór ljósmynd er af einni elztu
vör, sem nú er varðveitt á íslandi.
Ætla má, að hún sé óbreytt frá
fyrstu öldum landnámsbyggðar.
Hjá þessari vararmynd er einn
steinn úr vararflórnum, en kjalar-
farið í steininum segir sína sögu.
— Þá verða þarna myndir og teikn
ingar af ýmsum gerðum verbúða,
hjalla og nausta, svo og myndir og
líkan af fiskgörðum og fiskbyrgj-
um. M ,a. er ljósmynd af fiskgörð-
um, er aldrei hefur verið birt fyrr.
Hún sýnir fiskgarða ,sem til
skamms tíma hafa verið faldir í
jörðu. Ætla má, að þeir séu frá
miðöldum eða jafnvel eldri. _
Margt verður þarna af gömlum
veiðarfærum og ýmis konar tækj-
um í sambandi við þau. — Þá er
að geta mynda og líkana af ýms-
um gerðum árabáta og þilskipa. —
Reynt er að sýna í höfuðdráttum
verkun fisks á fyrri tíð.
í einum skáp eru sýndir margs
konar gripir smíðaðir úr hvalbeini.
Þá verður skápur, sem í eru ýmis-
leg skilríki, er varða sjómanna-
fræðslu á íslandi um hálfri öld fyrr
en Stýrimannaskólinn var stofnað-
ur. Má þar á meðal nefna allstórt
handrit að íslenzkri stýrimanna-
fræði ,er lokið var við að semja
og skrá árið 1843, frumrit að fyrstu
skóla hér á landi. Bæði eru þessi
ritgerðinni um stofnun sjómanna-
handrit varðveitt utan Reykjavík-
ur. í þessum skáp er einnig bréf
sem staðfestir stofnun sjómanna-
skóla á ísafirði 1852 og reikningur,
er sýnir hvaða bækur og áhöld
voru keypt til þessa skóla. Myndir
eru af frumkvöðlum íslenzkrar sjó
mannafræðslu.
„Brauðryðjendur" er yfirskrift
eins sýningarskápsins. Þar eru birt
ar myndir af ýmsum upphafsmönn
um ísl. þilskipaútgerðar svo og
mynd af því eina mannvirki, sem
enn er varðveitt frá bernsku þil-
skipaútvegsins. — Óhætt mun að
fullyrða, að í þessari sýningardeild
verður fjölmargt muna og mynda,
er varðar fiskveiðisögu íslendinga
fram að síðustu aldamótum og al-
menningi er lítt eða ekki kunnugt
um. — Að lokum skal aðeins vikið
að einum mun. Fyrir þrem áratug-
um hafði Lúðvík upp á saumuð-
um seglkrossi. Hann var þá illa
farinn,en þó var hægt að sauma
eftirmynd hans, og er hún í Þjóð-
minjasafni. Alllöngu síðar hafði
Lúðvik spurnir af öðrum seglkrossi
og er hann sem nýr, þótt hann væri
í sex ár í segli á bát, er var í stöð-
ugri notkun. Þessi seglkross er
meðal muna á sýningunni.
Þá má og geta þess, að í þessari
deild munu gamlir menn úr Hrafn
istu sýna vinnubrögð við veiðar-
færagerð.
Þessi stutti kafli gerir hinni sögu
legu hlið engin fullnægjandi skil,
en þessi fáorða lýsing ætti þó að
færa mönnum heim sanninn um,
' að þessi þáttur sýningarinnar mun
búa yfir geysimiklum og skemmti
legum fróðleik, sem vafalaust
mundi fara með öllu framhjá flest
um, ef ekki væri efnt til þessarar
sýningar .
Þegar kemur úr anddyrinu inn í
aðalsalinn, eru menn komnir í nú-
tímann, því að þar er kynnt starf-
semi fjölmargra stofnana, samtaka,
fyrirtækja og fleiri. Taka svo marg
ir slíkir aðilar þátt í sýningunni,
að þeir rúmast ekki allir í salnum
og eru sýningarstúkur þess vegna
einnig í fatageymslu hússins, undir
aðalsalnum. Eru þessir aðilar sam-
tals 65, og verða þeir taldir upp
hér á eftir, samkvæmt tölusetn-
ingu sýningarstúkna þeirra.
Akureyrarbær, Stillir hf., J. P.
Guðjónsson hf., Ferskfiskeftirlitið,
Radíóviðgerðarstofa Ólafs Jónsson-
ar, Landssamband Netagerðarverk-
stæða, Landssamband dráttar-
brauta og skipasmiðja, Skipaskoð-
un Ríkisins, Slysavarnafélag ís-
lands, Landhelgisgæzlan, Einar Far
estveit & Co hf., Fiskimat ríkisins,
Sölusamband ísl. fiskframleiðenda,
Landsbanki íslands, Síldarútvegs-
nefnd, Samvinnufélagið Hreyfill,
Póstur og sími, Vita- og hafnarmála
stj órnin, Haf rannsóknarstof nunin,
Hampiðjan hf., Reykjavíkurhöfn,
Samábyrgð íslands, Stýrimanna-
skólinn, Vélskólinn, Friðrik A.
Jónsson, Eimskipafélag fslands hf.,
Ríkarður Sigmundsson, Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna, Sjómanna-
dagsráð og happdrætti DAS, Rann-
sóknarstofnun fiskiðnaðarins, Síld-
arverksmiðjur ríkisins, Útvegs-
bankinn, Vélasalan hf., Fiskifélag
íslands, Landssamband ísl. útvegs-
manna og Félag ísl. botnvörpu-
skipaeigenda, Verzlun O. Elling-
sen hf., Álborg hf., Fiskimálasjóð-
ur, Veðurstofan, Fálkinn hf., Ullar
verksmiðjan Framtíðin og Verk-
smiðjan Max, Ingólfur Árnason,
Stýrimannaskólinn í Vestm.eyjum,
Tryggingamiðstöðin, Optima, Skreið
arsamlagið, Eggert Kristjánsson &
Co. hf., Sveinn Jónsson, fyrstivéla-
þjónusta, Netasalan hf., B. Sigurðs
son sf.,Málning hf., Kassagerð
Reykjavíkur hf., Seglagerðin Ægir,
Jöklar hf., Kristján G. Gíslason,
Ingvar & Ari, Pólar hf., Konráð
Gíslason, kompásasmiður, Björgun
hf., Akraneskaupstaður, I. Pálma-
son hf., Akurfell sf., Hafskip hf.,
Kúlulegasalan hf., Kafarafélag ís-
lands, Austfirðir.
REiÐHJÖLA-
ViÐGERÐIR
Tek að mér að gera við reið-
hjól. Teina upp lijól o. fl.
SÆVAR ÍSFELD
SMURSTÖÐ
SKELJUNGS
v/ 8. S. V.
ORÐSENDING
FRÁ LÖGRELUNNI
Bannað er að brenna sinu eft-
ir þennan tíma, slíkur bruni eyðir
varpi smáfugla.
LÖGREGLÁN.
Bareavags
til sölu, nýlegur. _ Upplýsingar í
síma 2133.