Framsóknarblaðið - 13.06.1968, Blaðsíða 3
FRAMSÓKNARBLAÐIÐ
3
TILKYNNING
Skrá um útsvör og aðstöðugjöld í Vestmannaeyjum árið 1968
liggur frammi á Skattstofunni almenningi til sýnis frá og með
31. maí.
Kærufrestur er ákveðinn til 14. júní næstkomandi að þeim
degi meðtöldum, og þurfa kærur að hafa borizt réttum aðilum
í síðasta lagi þann dag.
Útsvarskærur sendist framtalsnefnd, en aðstöðugjaldskærur
sendist skattstjóra.
BÆJARSTJÓRI.
Tilkynning.
FRÁ SKATTSTOFUNNI.
Skattskrá Vestmannaeyja árið 1968 liggur frammi á Skatt-
stofunni almenningi til sýnis frá og með 31. maí.
í skránni eru eftirtalin gjöld:
Iðnaðargjald,
Tekjuskattur,
Eignaskattur,
Námsbókagjald,
Kirkjugjald,
Almannatryggingagjald,
Kirkjugarðsgjald,
Atvinnuleysistryggingagjald,
Launaskattur,
Iðnlánasjóðsgjald.
Ennfremur liggja frammi eftirtaldar skrár:
Skrá um gjöld skv .reglugerð nr. 116/1959 (um vangreidd spari-
merki); Skrá um skiptingru atvinnuleysistrygginga.
Kærur yfir gjöldum álögðum skv. skattskrá 1968 skulu hafa
borizt Skattstjóra eigi síðar en föstudaginn 14. júní eða hafa ver-
ið póstlagðar fyrir miðnætti þann dag.
Vestmannaeyjum, 31. maí 1968.
SKATTSTJÓRI.
Orðsending
fró lögreglunni.
Mikið hefur borið á því í vor, að hús ,sem staðið
hafa auð, hafa ekki verið séð í friði. Rúður hafa verið
brotnar og ýmis spjöll veriiS unnin á þeim og hafa eig-
endur þeirra orðið fyrir tilfinnanlegu tjóni. Búast má
við, að þarna séu að verki unglingar, sem ekki enn hafa
hlotið fulla ábyrgðartilfinningu, því er nauðsynlegt að
þeir verði stöðvaðii' í þessu sem fyrst.
Lögreglan óskar eftir aðstoð bæjarbúa til að stöðva
þennan ófögnuð og biður alla þá, sem upplýsingar geta
gefið, að snúa sér til hennar.
LÖGREGLAN.
17. Júm 1968
17. júní móf í Frjólsum íþróH-um.
13. júní kl. 8: 100 m. hlaup, langstökk,
kúluvarp, spjótkast.
15. júní kl. 1: 200 m. hlaup, þrístökk,
kringlukast.
16. júní kl. 1: Hóstökk /Stangarstökk,
sleggjukast.
Mótinu lýkur með boðhlaupi drengja
17. júní.
17. júní á Stakkagerðistúni:
Kl. 2: Hótíðin sett.
Lúðrasveit Vestmannaeyja,
Hótíðarræða: Haraldur Guðnason,
Samkór Vestmannaeyja syngur
Handbolti stúlkna. Þór - TÝR.
o. fl.
Lúðrasveit Vestmannaeyja.
Kl. 4. Grasvöllurinn við Hóstein:
Unglingalandslið KSÍ — ÍBV.
Um kvöldið dansað í bóðum húsunum.
í Alþýðuhúsinu. Logar leika og syngja.
í Samkomuhúsinu. Eldar leika og syngja.
Fró kl. 3—6 Líknarkafii í Alþýðuhúsinu.
Heiðurkarlar hefðarfrúm
hingað bjóðið rjóðum.
„Líknar" konur líkna þeim,
með //Líknar" sopa góðum.
Heimsins bezta meðlæti!
17. JÚNÍ NEFNDIN.
Auglýsing
FYRIRFRAMGREIÐSLU ÚTSVARA.
Sl. vetur samþykkti Alþingi breytingar á lögum um tekju-
stofna sveitarfélaga, þar sem segir m.a.:
„Útsvör sl. árs skulu einnig dregin frá hreinum tekjum,
ef þau hafa verið greidd að fullu fyrir áramót næst á undan nið-
urjöfnun. Hafi gjalddagar samkvæmt a-lið 47. gr. (Um jafnar
mánaðarlegar afborganir fyrirframgreiðslu) verið ákveðnir, er
sveitarstjórnum heimilt að láta reglu þessa gilda því aðeins, að
jafnframt hafi verið gerð full skil á fyrirframgreiðslu eigi síðar
en 31. júlí álagningarárið.
Hafi gjaldandi eigi greitt þá upphæð hinn 31. júlí, en gerir
síðan full skil á öllu útsvarinu fyrir áramót, skal helmingur út-
svarsins dreginn frá hreinum tekjum . . . . ”
Bæjarráð hefur ákveðið að notfæra sér þessa heimild og
koma þessar nýju reglur til framkvæmda fr áog með árinu 1969,
þ.e.a.s. fyrirframgreiðslu yfirstandandi árs þarf að vera lokið fyr-
ir 31. júlí n.k.
Jafnframt vil ég vekja athygli á því, að eftirleiðis verða
víxlar ekki teknir sem greiðsla gjalda til bæjarsjóðs.
BÆJARSTJÓRI.