Framsóknarblaðið - 13.06.1968, Blaðsíða 4
4
FRAMSÓKNARBLAÐIÐ
—ini^v •!*• * * ^ * *1" f1" 1
F RÉT TIR
Lándakirkja:
Messa n. k. sunnudag kl. 10,30.
Séra Þorsteinn L. Jónsson prédik-
ar. Athugið breyttan messutíma.
Andltá og jarðarfarir:
Jarðarför Vilhelmínu Guðmunds
dóttur, Kirkjuvegi 88, fór fram frá
Landakirkju laugardaginn 8. júní.
Stefán Finnbogason, Framtíð, er
andaðist 2. júní s. 1. var jarðsung-
inn frá Landakirkju s. 1. mánudag,
10. júní.
Ragnar Benediktsson, vigtarmað
ur, Vesturvegi 29, andaðist hér í
sjúkrahúsinu aðfararnótt 7. þ. m.
Jarðarförin mun fara fram frá
Landakirkju n.k. laugardag.
Frá Ferðafél. Vestmannaeyja.
Árbók Ferðafélags íslands 1968
er komin. Efni hennar er Vopna-
fjörður og Hornstrandir. Vinsam-
lega vitjið bókanna til Jóhanns
Björnssonar, Pósthúsinu.
Bifreiðaeigendur
Athugið:
NÝKOMIÐ.
Allar tegundir af SHELL-
olium. Bílabón, Bónklútar,
Þvottakústar, Þvottalögur
með bóni. Teppahreinsir, Ron
songas, Lím og límbætur,
Ræsivökvi og margt fleira.
Látið ryðverja bílinn —
aðeins kr. 450.00 fyrir fólksbíl.
SHELL SMURT
ER VEL SMURT.
SMURSTÖÐ
SKELJUNGS
Sími 2132.
Heimili íþróftahreyfingarinnar vígt.
Myndm synir nokkra muni í einu herbergi íþróttafélaganna.
1. júní s .1. kl. 4 e. h. var formlega
afhent og vígt það aðsetur, sem í-
próttahreyfingin fær til afnota í
fyrirhuguðu Æskulýðsheimili, einn
ig var íþrótahreyfingunni afhent til
afnota húsið Bær, sem stendur við
grasvöllinn við Hástein
Stjórnir félaganna og ÍBV buðu
til samsætis að þessu tilefni í sal
neðstu hæðar Æskulýðsheimilisins,
er einnig var vígður við þeta tæki
færi, en hann rúmar um 75 manns
í sæti. Meðal gesta voru bæjar-
stjórnarfulltrúar, gamlir íþrótta-
menn, stjórnarmeðlimir félaganna
og aðrir velunnarar íþóttahreyfing
arinnar.
Formaður ÍBV, Stefán Runólfs-
son, setti hófið, bauð gesti vel-
komna, og bað þá að gera sér það
að góðu, er fram var reitt.
Forseti bæjarstjórnar, Sigurgeir
Kristjánsson, flutti þessu næst á-
varp. Minntist hann í upphafi máls
síns, að nú stæði yfir golfmót í
minningu Sveins Ársælssonar, bað
hann alla viðstadda að rísa úr sæt
um og votta hinum látna íþrótta-
manni virðingu.
Þá bað hann formenn íþróttafé-
laganna Þórs og Týs og ÍBV að
taka við lyklum herbergja þeirra,
er félögin fá til afnota. Herbergin
eru öll á neðstu hæð byggingarinn
ar, vestan megin (til gamans má
gea þess, að þetta eru gömlu
brunnarnir og var m. a. geymt í
þeim lýsi á sínum tima) standa
þau hlið við hlið, en ÍBV að sjálf-
sögðu í miðju.
Einnig afhenti forseti bæjar-
stjórnar iþróttahreyfingunni húsið
Bæ við Hástein til afnota, en í um
sjá vallarráðs.
Að endingunni óskaði hann í-
þróttahreyfingunni allra heilla og
sagðist vona, að þetta mætti verða
henni lyftistöng til frekari dáða.
Stefán Runólfsson þakkaði stuðn
ing bæjarstjórnar bæði fyrr og síð-
ar, en ekki hvað sízt fyrir þetta
seinasta framlag hennar, sem án
efa yrði til mikilla heilla. For-
menn Þór og Týs þökkuðu einnig
fyrir sín félög, og voru báðir sam
mála um, að þetta framlag yrði
félögunum til mikilla hagsbóta,
þar sem þau nú fyrst eftir hálfrar
aldar starf eignast varanlegt aðset
ur til varðveizlu gripa og annarra
verðmætra eigna félaganna, svo og
fast aðsetur til fundarhalda.
Margir gestir tóku til máls, ósk
uðu þeir allir íþróttahreyfingunni
til hamingju með þennan áfanga
og óskuðu henni bjartrar framtíð-
ar.
Meðal þeirra, sem tóku til máls
voru: Oddný Bjarnadóttir, Páll
Scheving, Lýður Brynjólfsson og
Reynir Guðsteinsson.
Að loknu kaffisamsæti skoðuðu
gestirnir húsakynnin og virtist það
samdóma álit allra, að aðstaða
þessi og búnaður væri íþrótta-
hreyfingunni til mikils sóma og að
vel færi á því, að fjölmennustu
æskulýðsfélögin væru komin undir
eitt og sama þak, en það eru eins
og áður hefur verið getið hér í
blaðinu skátafélagið Faxi og nú í
þróttafélögin.
íþróttir
Schwarz—Weiss — ÍBV.
All viðburðaríkt hefur verið að
undanförnu kringum íþróttamenn
okkar og ber þar hæst 1. deildar
liðið, lék það nýlega sinn fyrsta
,,landsleik“ eftir að það komst í 1.
deild. Leikið var við þýzka at-
vinnumannalið Schwarz-Weiss frá
Essen í Vestur-Þýzkalandi, en
það var hér í boði íþróttabanda-
lags Keflavíkur.
Leikurinn fór fram í Keflavík s.
1. miðvikudag og fóru nokkrir á-
hugamenn um knattspyrnu gagn-
gert héðan til að sjá leikinn. Eins
og löngu hefur komið fram sigr-
aði þýzka liðið með 4 mörkum
gegn engu. Þjóðverjarnir skoruðu
3 mörk í fyrri hálfleik en aðeins
eitt í seinni.
í stuttu máli er þetta helzt að
segja um leikinn. Þjóðverjarnir
hófu snarpa sókn og virtist sem
þeir ætluðu strax í upphafi að
brjóta ÍBV-liðið með miklum
hraða, en okkar menn stóðu sig
vel og sýndu nokkrum sinnum
góð tilþrif, undir lok fyrri hálf-
leiks fór að gæta, að þeir réðu
ekki við þennan mikla hraða og
tókst Þjóðverjum að skora 3
mörk eins og áður sagði. ÍBV skor
uðu að vísu eitt mark, en það var
dæmt af vegna meintrar rang-
stöðu. Réttlát úrslit fyrri hálfleiks
hefðu verið 2—1.
Seinni hálfleikur var einnig
nokkuð hraður og harður, en Eyja
menn hafa nú fengið orð fyrir að
geta sýnt hörku, ef því væri að
skipta og gáfu Þjóðverjunum ekki
eftir.
Sýndi liðið enn einu sinni, að út
hald og þrek virðist ekki skorta,
heldur aðeins meira spil, þ. e. stutt
og hratt spil. Má segja, að liðið
hafi farið nokkuð vel út úr þess-
ari hildi. Þess ber að gæta, að
þarna var keppt við atvinnumenn.
LEIK FRESTAÐ.
Um seinustu helgi átti 1. deildar
lið Fram að leika hér, en vegna
furðulegra mistaka og handvamm
ar kom liðið ekki samkvæmt áætl-
un.
Hafa þegar orðið nokkur skrif
um mál þetta í dagblöðunum og
sýnist sitt hverjum. Það hefur þó
komið greinilega í ljós ,að við lið
Fram er ekki að sakast, heldur
virðast hafa átt sér stað mistök hjá
Flugfélaginu varðandi boðun svo
og vanþekkingu framkvæmda-
stjóra KSÍ en honum átti að vera
í lófa lagið að fá leiguvél til Eyja
eftir að þeir misstu af áætluninni,
eða koma með áætluninni kl. 6,30
um kvöldið, en jjess í stað grípur
hann til þess frumhlaups upp á
sitt eindæmi að fresta leiknum um
óákveðinn tíma án þess að ráð-
færa sig nokkuð við mótanefnd
KSÍ. ^
Áhugamönnum um knattspyrnu
hefur að vonum sárnað þessi mis-
tök, /ar fjöldi manns mættur á í-
þróttavellinum á auglýstum tíma
og trúðu menn varla, að liðið hefði
ekki komið með vélinni og vildu
að vonum dæma ÍBV sigur.
Er þetta er skrifað (þriðjudags-
kvöld) hafa verið flognar 4 ferðir
til Eyja en ekkert lið mætt. Sam-
kvæmt seinustu fréttum á leikur-
inn að verða annað kvöld (mið-
vikudag) ef fær verður og þá senni
lega beðið eftir kvöldferðinni?
Framhald á 2. síðu