Framsóknarblaðið


Framsóknarblaðið - 13.06.1968, Síða 3

Framsóknarblaðið - 13.06.1968, Síða 3
FRAMSÓKNARBLAÐIÐ 3 TILKYNNING Skrá um útsvör og aðstöðugjöld í Vestmannaeyjum árið 1968 liggur frammi á Skattstofunni almenningi til sýnis frá og með 31. maí. Kærufrestur er ákveðinn til 14. júní næstkomandi að þeim degi meðtöldum, og þurfa kærur að hafa borizt réttum aðilum í síðasta lagi þann dag. Útsvarskærur sendist framtalsnefnd, en aðstöðugjaldskærur sendist skattstjóra. BÆJARSTJÓRI. Tilkynning. FRÁ SKATTSTOFUNNI. Skattskrá Vestmannaeyja árið 1968 liggur frammi á Skatt- stofunni almenningi til sýnis frá og með 31. maí. í skránni eru eftirtalin gjöld: Iðnaðargjald, Tekjuskattur, Eignaskattur, Námsbókagjald, Kirkjugjald, Almannatryggingagjald, Kirkjugarðsgjald, Atvinnuleysistryggingagjald, Launaskattur, Iðnlánasjóðsgjald. Ennfremur liggja frammi eftirtaldar skrár: Skrá um gjöld skv .reglugerð nr. 116/1959 (um vangreidd spari- merki); Skrá um skiptingru atvinnuleysistrygginga. Kærur yfir gjöldum álögðum skv. skattskrá 1968 skulu hafa borizt Skattstjóra eigi síðar en föstudaginn 14. júní eða hafa ver- ið póstlagðar fyrir miðnætti þann dag. Vestmannaeyjum, 31. maí 1968. SKATTSTJÓRI. Orðsending fró lögreglunni. Mikið hefur borið á því í vor, að hús ,sem staðið hafa auð, hafa ekki verið séð í friði. Rúður hafa verið brotnar og ýmis spjöll veriiS unnin á þeim og hafa eig- endur þeirra orðið fyrir tilfinnanlegu tjóni. Búast má við, að þarna séu að verki unglingar, sem ekki enn hafa hlotið fulla ábyrgðartilfinningu, því er nauðsynlegt að þeir verði stöðvaðii' í þessu sem fyrst. Lögreglan óskar eftir aðstoð bæjarbúa til að stöðva þennan ófögnuð og biður alla þá, sem upplýsingar geta gefið, að snúa sér til hennar. LÖGREGLAN. 17. Júm 1968 17. júní móf í Frjólsum íþróH-um. 13. júní kl. 8: 100 m. hlaup, langstökk, kúluvarp, spjótkast. 15. júní kl. 1: 200 m. hlaup, þrístökk, kringlukast. 16. júní kl. 1: Hóstökk /Stangarstökk, sleggjukast. Mótinu lýkur með boðhlaupi drengja 17. júní. 17. júní á Stakkagerðistúni: Kl. 2: Hótíðin sett. Lúðrasveit Vestmannaeyja, Hótíðarræða: Haraldur Guðnason, Samkór Vestmannaeyja syngur Handbolti stúlkna. Þór - TÝR. o. fl. Lúðrasveit Vestmannaeyja. Kl. 4. Grasvöllurinn við Hóstein: Unglingalandslið KSÍ — ÍBV. Um kvöldið dansað í bóðum húsunum. í Alþýðuhúsinu. Logar leika og syngja. í Samkomuhúsinu. Eldar leika og syngja. Fró kl. 3—6 Líknarkafii í Alþýðuhúsinu. Heiðurkarlar hefðarfrúm hingað bjóðið rjóðum. „Líknar" konur líkna þeim, með //Líknar" sopa góðum. Heimsins bezta meðlæti! 17. JÚNÍ NEFNDIN. Auglýsing FYRIRFRAMGREIÐSLU ÚTSVARA. Sl. vetur samþykkti Alþingi breytingar á lögum um tekju- stofna sveitarfélaga, þar sem segir m.a.: „Útsvör sl. árs skulu einnig dregin frá hreinum tekjum, ef þau hafa verið greidd að fullu fyrir áramót næst á undan nið- urjöfnun. Hafi gjalddagar samkvæmt a-lið 47. gr. (Um jafnar mánaðarlegar afborganir fyrirframgreiðslu) verið ákveðnir, er sveitarstjórnum heimilt að láta reglu þessa gilda því aðeins, að jafnframt hafi verið gerð full skil á fyrirframgreiðslu eigi síðar en 31. júlí álagningarárið. Hafi gjaldandi eigi greitt þá upphæð hinn 31. júlí, en gerir síðan full skil á öllu útsvarinu fyrir áramót, skal helmingur út- svarsins dreginn frá hreinum tekjum . . . . ” Bæjarráð hefur ákveðið að notfæra sér þessa heimild og koma þessar nýju reglur til framkvæmda fr áog með árinu 1969, þ.e.a.s. fyrirframgreiðslu yfirstandandi árs þarf að vera lokið fyr- ir 31. júlí n.k. Jafnframt vil ég vekja athygli á því, að eftirleiðis verða víxlar ekki teknir sem greiðsla gjalda til bæjarsjóðs. BÆJARSTJÓRI.

x

Framsóknarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framsóknarblaðið
https://timarit.is/publication/795

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.