Framsóknarblaðið - 20.12.1988, Side 3
FRAMSÓKNARBLAÐIÐ
3
Helgasta nótt
Helgastci nótt, helgasta nótt!
Náttmyrkrið lýsir, þó löng vœri biðin,
Ijóma fram stjörnur á himninum blá,
hersveitir birtast oss, boðandi friðinn;
búumst við hirðunum, förum að sjá.
Fagnandi göngum og fylgjumst með þeim;
fylkingar englanna hér eru á sveim.
Lausir við svefn og sorg,
svífum að Davíðsborg,
sjáum Guðs son.
Helgasta barn, helgasta barn!
Pú, sem að feðurnir fjarlægan þráðu,
frjókvistir Davíðs af Ísaí rót,
grátfegnir fœrum vér gáfurnar, sjáðu,
gull, myrru, reykelsi, bljúgt þér við fót.
Himneski Lausnari, lífið oss greið
lífstjónið Adam af fallinu beið.
Þú semur sátt og frið,
sœttir þann Drottinn við,
sem þjónar þér.
Hjartkœra barn, hjartkæra barn!
Hjartanlegt angur sem gáfu ég færi;
þú ert vor eilífa elskunnar lind;
einasta gleðin vor ertu, hinn kæri,
einasti vinur, sem tókst vora synd.
Hjartkœri Jesú, ég héðan af vil
heyra þér til,
í sút og sorg og neyð,
í sælu, gleði, deyð,
þinn er ég, þinn!
Syndari, sjá! Syndari, sjá! —
Grátandi nakið við góðmeyjar hjarta
guðsbarnið hvílir, sem fœddist á jörð.
Það á að pínast og kveljast og kvarta
— krossdauða pínast; ó, skelfing svo hörð!
Heyr þó hve guðsbarnið grátbiður þig:
Gættu þín manneskja, trú þú á mig.
Sjá, að ég elska þig
eins þótt þú hatir mig.
Elskar þú ei?
Helgihald í
Landakirkju
yfir jól og
áramót 1988/1988
AÐFANGADAGUR 24. DESEMBER:
Aftansöngur kl. 18:00.
Náttsöngur kl. 23:30.
JÓLADAGUR 25. DESEMBER:
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00
ANNAR ÍJÓLUM 26. DESEMBER:
Jólasöngur á Sjúkrahúsinu k. 13:15.
Skírnarguðsþjónusta kl. 14:00.
Helgistund á Hraunbúðum kl. 15:15.
GAMLÁRSDAGUR 31. DESEMBER:
Aftansöngur kl. 18:00.
NÝÁRSDAGUR 1. JANÚAR 1989:
Guðsþjónsta kl. 14:00.
— SR. BRAGI SKÚLASON. —
Jóladagskrá
Betelsafnaðar
19 8 8
AÐFANGADAGUR 24. DESEMBER:
Aftansöngur kl. 18. Stjórnandi Snorri Óskarsson.
JÓLADAGUR 25. DESEMBER:
Hátíðarsamkoma kl. 16:30.
Stjórnandi Hjálmar Guðnason.
ANNAR JÓLADAGUR 26. DESEMBER:
Samkoma fyrir ungt fólk.
Stjórnandi Sigurmundur Einarsson.
29. DESEMBER:
Jólahátíð Sunnudagaskólans kl. 16.
GAMLÁRSDAGUR 31. DESEMBER:
Samkoma kl. 18. Stjórnandi Geir Jón Þórisson.
NÝÁRSDAGUR 1. JANÚAR 1989:
Hátíðarsamkoma kl. 16:30.
Stjórnandi Óskar Guðjónsson.
ALLIR ÁVALLT VELKOMNIR
,4 SAMKOMURNAR í BETEL!
Jólakveðja
frá lOWA
Séra Kjartan Örn Sigurbjörnsson
og fjölskylda senda
Vestmannaeyingum öllum
nær og fjœr
bestu jóla-
og nýárskveðjur
Biðjum ykkur Guðsblessunar
Sjáumst heil á næsta ári í Eyjum
KATRÍN, KJARTAN ÖRN,
GUÐRÚN BIRNA OG ÞÓRLINDUR
llappdrætti Háskólans býður nú
langhæstu vinninga á íslandi: 5 milljónir
sem gefa 25 milljónir á tromp og
45 milljónir á númerið allt. Sannkölluð
auðæfi! En stóru vinningarnir eru fleiri
því að milljón króna vinningar eru alls
108. Heildarupphæð til vinningshafa er
rúmur milljarður og áttahundruð milljónir.
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
-J r
> r i
f-jyJ .