Framsóknarblaðið - 20.12.1988, Side 12
12
FRAMSÓKNARBLAÐIÐ
Sendum
viðskiptavinum og
bœjarbúum öllum
bestu jóla- og
nýárskveðjur
Þökkum viðskiptin
VESTMANNAEYJA
Sól - sundlaug - sól
Sundlaugin er opin virka daga fyrir
almenning.
Á morgnana kl. 07:00-08:00.
í hádegi kl. 12:15-13:15.
Síðdegis kl. 17:00-20:30.
Laugardaga kl 09:00-15:30.
Sunnudadaga kl. 09:00-12:00.
Vestmannaeyingar og aðrir, notið þessa
frábæru aðstöðu: Sundlaug - sauna - líkams-
ræktarsalur - 7 sóiarlampar (nýjar perur) -
vatnsrennibraut - frábæri vatnsnuddpottar.
Athugið: Sólarlamparnir og vatnsnudd-
pottarnir eru opnir fyrir almenning allan
daginn frá kl. 07:00-20:30 og þegar jólafrí
byrja í skólum 19. des. n.k. verður sundlaugin
og líkamsræktarsalur opinn allan daginn frá kl.
12:00-20:30 og um helgar eins og opnunartími
sundlaugar.
Athugið: Vorum að setja nýjar, frábærar
perur í sólarlampana. Pantið tíma í lampana
með góðum fyrirvara eins og ykkur hentar best
á tímabilinu 07:00-20:30 og um helgar.
Frá innheimtunni
Hér með er skorað á þá, sem enn skulda
álögð útsvör og aðstöðugjöld til Vestmanna-
eyjabæjar að gera skil hið fyrsta. Við viljum
beina því til þeirra, sem ekki telja sig geta greitt
upp að fullu fyrir áramót að líta við í Ráðhúsinu
og koma til samningsviðræðna um sín mál.
Brennupeyjar athugið!
Brennur á ræktuðu landi verða alls ekki
leyfðar um áramótin. Vinsamlegast hafið sam-
band við slökkviliðsstjóra um frekari stað-
setningu í síma 11533.
FÖSTUDAGUR
16. DESEMBER
Svart kafald, engin ljós sáust
á Skaganum, hvorki vitar né
önnur Ijós. Siglt meö dýptar-
mæli stöðugt í gangi. Kl. 5
stoppað í 20 mín. Síðan lagt af
stað og kl. 6 sást bauja út af
Gróttu og nokkru síðan
Gróttuvitinn. Komið til
Reykjavíkur kl. 7. Losað,
lestað til Eyja. Fragt kr.
3.282,15. Lagt af stað til Eyja
kl. 18:00.
LAUGARDAGUR
17. DESEMBER
Komið til Vestmannaeyja kl.
8. Losað.
SUNNUDAGUR
18. DESEMBER
Legið í Vestmannaeyjum.
MÁNUDAGUR
19. DESEMBER
Lestað. Lagt af stað til
Reykjavíkur kl. 18. Fragt kr.
266,55.
ÞRIÐJUDAGUR
20. DESEMBER
Komið til Reykjavíkur kl. 8.
Losað, lestað. Fragt kr.
5.488,85. Lagt af stað til Vest-
mannaeyja kl. 19.
MIÐVIKUDAGUR
21. DESEMBER
Komið til Eyja kl. 12. Losað,
lestað. Fragt 241,30.
FIMMTUDAGUR
22. DESEMBER
Lagt af stað frá Eyjum kl.
00:40. Komið til Reykjavíkur
kl. 14. Losað, lestað. Fragt kr.
1.523,40. Lagt af stað til Eyja
kl. 19. SA strekkingur.
FÖSTUDAGUR
23. DESEMBER
KI. 2 andæft í SA fárviðri
sunnan við Stafnes. Snúið við
til Reykjavíkur. Komið til
Reykjavíkur kl. 8. Legið,
svipað veður.
LAUGARDAGUR
24. DESEMBER
Lagt af stað til Eyja kl. 1.
Komið til Vestmannaeyja kl.
16:30. Legið.
SUNNUDAGURINN
25. DESEMBER
Haldið heilagt
MÁNUDAGUR
26. DESEMBER
Haldið heilagt
ÞRIÐJUDAGUR
27. DESEMBER
Losað, lestað. Fragt til
Reykjavíkur kr. 208,40. Kl.
16:40 þegar verið var að fara
frá austurkantinum á Bása-
skersbryggjunni í Vestamnna-
eyjum, átti að bakka bátnum
fyrir bryggjuhornið. Strax kom
í ljós að vélin hafði áfram ogvar
vélstjóra gert viðvart en ferð
bátsins jókst áfram. Fyrir
frarnan Nönnu lá m/b Leifurog
lá við að keyrt væri á hann en
slapp þó. Nanna stuðaði loks á
bólverkskant undan olíugeym-
um Olíusamlags Vestmanna-
eyja og hélt síðan áfram austur
með bólverkskantinum uns tók
niðri á sandi við austurhomið
undan olíutönkunum. Þegar
vélin hafði verið stöðvuð
reyndist ekki hægt að töma
henni og var fengin aðstoð frá
Vélsmiðjunni Magna og var
komið í lag kl. 21 og þá lagt af
stað til Reykjavíkur. Stefnið
hafði brotnað að framan niður í
sjómál, en athugun leiddi í ljós
að tróð var í lagi og ólekt með
stefninu.
MIÐVIKUDAGUR
28. DESEMBER
Komið til Reykjavíkur kl.
. 12. Tilkynnt brotið á stefninu
til Gróttu.
FIMMTUDAGUR
29. DESEMBER
Komu viðgerðarmenn frá
Gróttu og einnig skipaskoðun-
armaðurinn P. Ottóson. Hófst
viðgerð á stefninu. Losað,
lestað.
FÖSTUDAGUR
30. DESEMBER
Lestun lokið. Fragt til Vest-
mannaeyja kr. 4610,20. Við-
gerð á stefninu lokið kl. 22.
Lagt af stað til Eyja.
LAUGARDAGUR
31. DESEMBER
Komið til Vestmannaeyja kl.
13.
SUNNUDAGUR
1. JANÚAR 1950
Legið í Vestmannaeyjum.
MÁNUDAGUR
2. JANÚAR
Losað, lestað. Fragt til
Reykjavíkur kr. 293,95. Lagt
af stað til Reykjavíkur kl.
17:00.
ÞRIÐJUDAGUR
3. JANÚAR
Komið til Reykjavíkur kl. 7.
Beðið eftir afgreiðslu.
MIÐVIKUDAGUR
4. JANÚAR
Losað, lestað. Fragt kr.
1.326,35. Lagt af stað til Eyja
kl. 17:30.
FIMMTUDAGUR
5. JANÚAR
Komið til Eyja kl. 12.
Losað, lestað. Lagt af stað kl.
19. Fragt kr. 267,75.
FÖSTUDAGUR
6. JANÚAR
Komið til Reykjavíkur kl. 9.
Losað, lestað. Fragt til Eyja kr.
864,65. Lagt af stað til Vest-
mannaeyja kl. 18:30.
LAUGARDAGUR
7. JANÚAR
Stýrið hefur verið í ólagi
vegna þess að tekið hefur af því.
Komið undir Eiðið kl. 12:30.
Farið grunnt uppundir til að
reyna að laga stýrið en tókst
ekki. Kl. um 14 sást til M/s
Helga sem hafði farið ca. hálfri
klst á undan okkur frá Reykja-
vík. Fylgst með ferð hans í
Faxasundi og þar til sýnilegt var
að hann hafði farist á Faxaskeri
m/s Herðubreið tilkynnti slysið
í land og að tveir menn sæust í
Skerinu. Flutt sig undir Ham-
arinn og lagst þar, en vegna
vaxandi A stórviðris rak og
lentum við á vír frá belsgískum
togara, þegar verið var að létta
og lá við að lenti saman. Síðan
lenti vír í skrúfu Nönnu og er
viðbúið að hún hafði skemmst.
Andæft í fárviðri undir Hamr-
inum.
SUNNUDAGUR
8. JANÚAR
Reimin á ljósavélinni hefur
slitnað vegna bleytu og ekki
hægt að koma henni á. Mót-
takari bilaður. Kl. 3 bilar
lensidæla og er þá ekki annað
að gera en fara að láta reka.
Veður A 15. Kl. 16 kallað út
skeyti um að við séum á reki
30-40 sml. V af Eyjum og þurf-
um aðstoð þegar hægt sé en
engin yfirvofandi hætta. Kl.
20:30 lensidælan komin í lag,
Qk-CýiJ-t ^-Cu-OC
OLttéöL OlJt /jtsis Á-uUf'ty-*— & ^
'■ oL •
tíopCf’
yk-n,iCv a, <xX QskxpHrt (U.
■ - Á æ A . rfc* * / A/*
/fj ÁO **■
/usk utj -
3"*'» * CA^v • f&Oj í (U. 0*)
X-'-'V, ey.
---------------4 ajf a. .
vLÁa-o/uIáX-o-x,ý-x- v
— - Á /« (2J t-f (sVt-fiXo. "
/vUÁ /ÚÁ. xs6a.
Á-x- (6t-^U-/~ /C-f' <5V /4.*
- ð“d tf/Oo . r&A-epf (S/C
'/<-/ /Í/á0\Ár> r=y. (s> />. o/'.
(//? /C4, Co<C-<- . /V/etf h-i- Ávn A-t*J**
fyrt'i
-Uc^.
Dagbókarsíða úr m/b Nönnu RE 9