Framsóknarblaðið - 20.12.1988, Qupperneq 14

Framsóknarblaðið - 20.12.1988, Qupperneq 14
14 FRAMSÓKNARBLAÐIÐ Sendum Vestmannaeyingum bestu óskir um gleðileg jól og farsœlt komandi ár. Pökkum viðskiptin á árinu sem er að líða. F O T O Bifreiðaverkst. H. Sig. Sandfell Brimnes Slökkvitækjaþjónustan Eyjakjör Jón Hauksson hdl. Tréverk Jón Hjaltason hrl. Neisti Geisli Brunvarðafélag Vestmannaeyja Netagerðin Ingólfur Frá Heilsugæslustöðinni Tekinn hefur verið í notkun farsími vaktlæknis: S 985-28955 Frá kl. 17:00 til kl. 09:00 morguninn eftir er hægt að hringja í hann. Allar upplýsingar eftir sem áður í símsvara: S 11966 — HEILSUGÆSLUSTÖÐIN — Þegar ég var EIR MENN, sem ná há- um aldri, hljóta öðru hvoru að hugsa til baka, til löngu liðins tíma. Þær hugsanir eru þá auk persónulegra reynslu, bundnar við lífsbaráttu þjóðarinnar á hverjum tíma. Pegar ég rifja upp liðna tíð, verða það kreppuárin á fjórða áratugnum og síðan hernámið, sem leita hvað fastast á í huga mínum. Eleimskreppan sagði hér til sín með hruni og verðfalli á erlendum mörkuðum, sem leiddi af sér almenna fátækt og atvinnuleysi. Gjaldeyrisskortur varð mjög tilfinnanlegur, en við honum var brugðist með inn- flutningshöftum, þar sem lífs- nauðsynjar gengu fyrir. En þrátt fyrir allt var mörgu til leiðar komið sem til framfara horfði með handafli og gömlu frumstæðu verkfærunum. Pegar líða tók á fjórða ára- tuginn, fór stríðsóttinn að grafa um sig. Varnarlaust smáríkið ísland var greinilega hlekkur í valdatafli stórveldanna. Svo skall heimsstyrjöldin á í byrjun september 1939. Vorið eftir sigruðu hjóðverjar Frakkland og Niðurlönd, hernámu Danmörk og Noreg og brutu undir lönd allt suður Balkan- skaga. Bretar hernámu Island, 10. maí 1940, sem raunar var í samræmi við fyrri stefnu þeirra, að halda íslandi á sínu vernd- arsvæði. Árið eftir leystu Bandaríkin Breta af hólmi og tóku að sér hervernd íslands. Á þessum árum urðu snögg umskipti á högum þjóðarinnar. Bretar keyptu útflutningsfram- leiðsluna að mestu leyti auk þess sem viðskipti við Banda- ríkin fóru vaxandi. Svo var það Bretavinnan, eða Setuliðsvinnan eins og hún var síðar kölluð. Með setu- liðinu hófust umfangsmiklar framkvæmdir, braggabygging- ar, vega- og flugvallagerð, auk margvíslegrar þjónustu í þágu hernámsins. Þá var atvinnu- leysið úr sögunni, allir fengu vinnu, sem vettlingi gátu valdið, Var jafnvel skortur á vinnuafli við íslenska atvinnuvegi. Mestar voru framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu og þangað hópuðust menn utan af landi, svo víða var þröngt setinn bekkurinn. Kaupgeta fór vaxandi og kreppusvipurinn gufaði upp. ^ N ÞAÐ VAR NÚ reynsla ■5S/ mín af þessari setuliðs- vinnu, sem átti að vera uppi- staða í þessu greinarkorni. Haustið 1941 kom ég mér fyrir í þröngbýli hjá bróður mínum. Já, við vorurn fjórir, sem þar fengum húsaskjól á heimilinu. Eg fór á einhverja skrifstofu niður í Aðalstræti og fékk svo að segja orðalaust reisupassa í vinnuna. Morguninn eftir var ég svo laust fyrir kl. 8, mættur á Miklatorgi, svo sem ákveðið var með ráðningunni. Þarna á torginu var fjöldi manna, sem fóru að hópast upp á vörubíla og hurfu síðan út í buskann. Vörpulegur eldri maður, vék sér bráðlega að mér og benti mér á einn bílpallinn. Þar sem hann settist frammí hjá bíl- stjóranum þóttist ég sjá að hann væri verkstjóri. Svo var haldið af stað upp í Mosfellssveit á vinnusvæði við Hafravatn. Bandaríkjamenn voru að koma sér þarna fyrir, með bragga- byggingum og vörugeymslum. Pá voru líka að rísa þarna nokkrir timburskálar, byggðir á staurum, þannig að gólfhæðin var nálægt einn metri yfir jörðu. í vinnuflokknum okkar voru að jafnaði 10-12 manns, flestir sveitamenn hver úr sinni átt- inni. Fyrsta verkefnið var að leggja afleggjara frá aðalveg- inum niður að vatninu. Heldur sóttist nú verkið seint, þar sem við höfðum aðeins skóflur og haka að vopni. Leiðin var krók- ótt, þar sem sneitt var framhjá moldarbörðum og mýrarfenj- um. Einn morgun varð óvænt hik á vegaframkvæmdum, verkstjórinn vék sér frá og lét áður orð falla á þá leið að við skyldum doka við. En það leið ekki á löngu, þar til við sáum einhvert ferlíki koma skrölt- andi í átt til okkar. Fyrir mínum augum gerðust nú undur og stórmerki, þessi járnbrýnda tröllkona ruddist gegnum moldarbörðin og velti jarðföstu grjóti úr leiðinni. Um hádegi var komin bein braut, en krók- ótti vegurinn okkar horfinn með öllu. Við, sem ekki höfðum séð slík tröllatök áður, vorum ef til vill að hugleiða, að slík mold- varpa og grjótpaíl gæti á fá- einum klukkustundum leyst af hendi ævistarf erfiðismannsins. Já, jarðýtan var tímamóta- viðburður í vegagerð og fleiri verkefnum eins og nú er löngu fram komið. Ill 'ESTU verkefni voru að íl^lbyggja grunna fyrir birgðageymslu hersins. Fyrst var aö grafa fyrir undirstöðum, steypt síðan í skurðina, slá síðan upp fyrir veggjum og að Hér leynir sér ekki einbeitnin sér. Ef til vill eru einhver ráðherraefni í þessum hóp. Þeir eru sumir sem byrjuöu sem fótboltastrákar.

x

Framsóknarblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framsóknarblaðið
https://timarit.is/publication/795

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.