Morgunblaðið - 16.10.2010, Qupperneq 3
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2010
Íslandsmeist-arar Breiða-
bliks mæta úr-
valsliði efstu
deildar karla í
knattspyrnu í
ágóðaleik í Kórn-
um klukkan 13 í
dag. Heimir Guð-
jónsson, þjálfari
FH, stýrir úrvalsliðinu. Þá verður
hin fjólubláa peysa Ólafs Kristjáns-
sonar, þjálfara Breiðabliks, boðin
upp. Allur ágóði af leiknum rennur
til styrktar fjölskyldu Guðmanns
Þórissonar, fyrrverandi leikmanns
Breiðabliks, sem nú spilar með Ny-
bergsund í norsku 1. deildinni. Báðir
foreldrar hans glíma við erfið veik-
indi. Aðgangseyrir er 1.000 krónur.
Magnús Gunnarsson var stiga-hæstur í liði Aabyhøj IF í
dönsku úrvalsdeildinni í körfuknatt-
leik í fyrrakvöld í tapleik gegn Hors-
ens á útivelli. Magnús skoraði 22 stig
en hann skoraði alls sex þriggja
stiga körfur í tíu tilraunum. Leik-
urinn fór 82:78 fyrir Horsens. Sig-
urður Þór Einarsson, fyrirliði Hor-
sens, komst ekki á blað á þeim fimm
mínútum sem hann lék. Karfan.is
greinir frá.
ÞorgerðurAnna Atla-
dóttir fékk í gær
leikheimild með
handknattleiks-
liði Stjörnunnar.
Hún er þar með
gjaldgeng með
Stjörnuliðinu í
dag þegar það
sækir Fram heim í úrvalsdeild
kvenna í handknattleik. Þá hefur
fyrrverandi landsliðskona í hand-
knattleik, Inga Fríða Tryggvadótt-
ir, fengið félagsskipti úr Haukum yf-
ir í raðir Stjörnunnar.
Karl Gunnlaugsson, formaðurGolfklúbbs Flúða til 25 ára, fór
holu í höggi á 1. braut vallarins hinn
12. október. Leikið er á sumarflatir á
Selsvelli en Karl, sem verður 79 ára í
nóvember, lék hringinn á 77 högg-
um.
Brittany Linci-come lék á
11 höggum undir
pari eða 61 höggi
á fyrsta keppn-
isdegi á LPGA,
atvinnumótaröð
kvenna í Banda-
ríkjunum, á
fimmtudag. Þetta
er besti einstaki
hringur á kvennamótaröðinni á
þessu tímabili en Lincicome fékk 11
fugla á hringnum og gerði engin
mistök.
Fólk sport@mbl.is
Leikmannasamtök NBA deildarinnar í körfu-
knattleik hóta nú forsvarsmönnum NBA deild-
arinnar lögsókn vegna áherslubreytinga hjá
dómurum í NBA leikjum. Á undanförnum dög-
um hafa NBA liðin leikið æfingaleiki þar sem
dómarar hafa beitt nýjum áherslum í dómgæsl-
unni. Þar á meðal er ný regla þar sem dómarar
dæma tæknivillu á leikmenn sem mótmæla
dómum þeirra – eða sýna látbragð sem gefur
til kynna ónægju með dómgæsluna. Billy Hun-
ter, framkvæmdastjóri leikmannasamtaka NBA,
sagði í gær að áherslubreytingin væri ónauðsyn-
leg og yfirdrifin viðbrögð dómara í æfinga-
leikjum væru ekki íþróttinni til framdráttar.
Samkvæmt nýjum áherslum mega leikmenn
ekki gefa það til kynna með látbragði eða orð-
um að þeir séu ósáttir. Og
hafa margir „undarlegir“ dóm-
ar fallið á undirbúnings-
tímabilinu. Kevin Garnett leik-
maður Boston Celtics fékk
brottvísun í æfingaleik á mið-
vikudag þar sem hann kvart-
aði ítrekað við dómara. Leik-
menn og þjálfarar verða að
greiða um 220.000 kr. sekt fyr-
ir hverja tæknivillu og sú sekt
helst óbreytt í fyrstu fimm
skiptin. Hæsta sektin er 550.000 kr. fyrir tækni-
villu og þurfa menn þá að hafa brotið af sér 15
sinnum áður. Leikbann fylgir í kjölfarið ef menn
fara svo oft yfir strikið.
NBA leikmenn ósáttir við nýjar reglur
Kevin
Garnett
VIÐTAL
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Íslandsmeistarar Vals í handknattleik
kvenna taka í dag og á morgun á móti
einu sterkasta liði Þýskalands, Vfl Ol-
denburg í annarri umferð EHF-
keppninnar. Flautað verður til leiks
klukkan 17 í dag en klukkan 20 annað
kvöld.
Vfl Oldenburg er í fjórða sæti
þýsku 1. deildarinnar, liðið hefur leik-
ið fimm deildarleiki á leiktíðinni og
unnið þrjá þeirra. Síðasta á mið-
vikudagskvöldið lagði Oldenburg liðs-
menn Trier, 38:24, á heimavelli. Vfl
Oldenburg telst fjórða besta kvenna-
lið Þýskalands um þessar mundir og
hefur náð góðum árangri á Evr-
ópumótunum, vann m.a. Áskor-
endakeppni Evrópu árið 2008. Þá varð
Oldenburg þýskur bikarmeistari vorið
2009 og komst í undanúrslit í Evr-
ópukeppni bikarhafa í vor.
Fjórir þýskar landsliðskonur
Oldenburg hefur innan sinna raða
fjóra þýska landsliðsmenn og einn frá
Slóvakíu. Þá er innan raða liðsins
rússneskur markvörður sem þykir
sterkur en hún hefur ekki náð að leika
með liði heimsmeistranna.
„Við teljum okkur geta unnið öll lið,
ekki síst á heimavelli,“ sagði Stefán
Arnarson, þjálfari Vals, spurður út í
leikina um helgina. „Þýska liðið er
hinsvegar afar sterkt og sennilega
betra en okkar en það er svo sann-
arlega allt hægt og við förum með
fullu sjálfstrausi í viðureignirnar,“
sagði Stefán sem hafði nýlokið við að
sjá upptöku af síðasta leik Oldenburg
þegar rætt var við hann.
„Þetta er afar sterkt lið enda varð
það í þriðja sæti þýsku 1. deildarinnar
á síðustu leiktkíð, aðeins þremur stig-
um frá efsta liði.
Einn helsti styrkleiki Oldenburg-
liðsins er afar góður og hávaxinn
rússneskur markvörður, Tatiana Sur-
kova. Hún ver mikið og er fljót að
koma boltanum í leik sem gefur
möguleika á hraðaupphlaupum. Svo
virðist allt liðið vera mjög öflugt enda
er þýskur kvennahandbolti einn sá
besti í heiminum. Það er ekkert um
slaka menn í liðum sem þar eru í
fremstu röð,“ sagði Stefán, sem er
hvergi banginn.
Valsstúlkur slógu sem kunnugt er
Iuventa frá Slóvakíu út í fyrstu um-
ferð EHF-bikarsins, unnu fyrri leik-
inn hér heima 26:21 og gerðu jafntefli
í seinni leiknum 30:30 og unnu því við-
ureignina samanlagt með fimm
marka mun. Valur náði sínum besta
árangri á Evrópumótunum árið 2006,
en þá komst liðið í undanúrslit Áskor-
endakeppni Evrópu.
Hvalreki fyrir handboltann
„Þetta verða erfiðir leikir en við er-
um staðráðin í að gera okkar besta,“
sagði Stefán og undirstrikaði hveru
mikill hvalreki það væri fyrir íslenska
kvennahandknattleik að fá jafn sterkt
lið til landsins og Vfl Oldenburg nú í
undanfara lokakeppni Evrópumótsins
þar sem íslenska landsliðið verður á
meðal þátttakenda í fyrsta sinn. Vit-
anlega eiga nokkrir leikmenn Vals
sæti í íslenska landsliðinu.
„Við förum fullar sjálfstrausts í
Evrópuleikina á Íslandi eftir þennan
stóra sigur,“ er haft eftir Barböra
Hetmanek, einum leikmanna Oldeb-
urg á heimsíðu félagsins eftir 14
marka sigur liðsins á Trier í þýsku 1.
deildinni á miðvikudaginn.
Aðgangseyrir á leikina í Vodafone-
höllinni er 1.000 krónur á hvorn leik
en 1.500 krónur ef keyptur er miði
sem gildir á báða leikina, 10% af
miðaverðinu rennur til Bleiku slauf-
unnar, átaksverkefnis Krabbameins-
félagsins.
Morgunblaðið/Golli
Evrópukeppni Íris Ásta Pétursdóttir og Anna Úrsúla Guðmundsdóttir standa í
ströngu með samherjum sínum í Val í Evrópuleikjum við Vfl Oldenburg.
Valur mætir Oldenburg í tvígang
„Getum unnið öll lið á heimavelli“
þangað fyrst 1985 og lék þar fjórum sinnum á
árunum 1991 til 1997. Minnstu munaði að það
kæmist í átta liða úrslitin árið 1993, eftir
stórsigur, 6:2, á Norður-Írum í fyrsta leik úr-
slitakeppninnar. Þá skoraði 14 ára piltur,
Eiður Smári Guðjohnsen, eitt markanna. En
tvö naum töp gegn Póllandi og Sviss gerðu
þann draum að engu.
Komnir skrefinu lengra
En hvað sem fyrri afrekum líður þá eru
leikmenn 21-árs landsliðsins í dag í betri
stöðu en aðrir á undan þeim. Þeir hafa þegar
fengið smjörþefinn af A-landsliðinu og sumir
gott betur en það. Margir eru atvinnumenn
og fastamenn í sínum liðum. Allir virðist lík-
legir til að eiga langan feril framundan í fót-
boltanum. Þar eru þeir komnir skrefinu
lengra en fyrri kynslóðir efnilegra yngri
landsliða Íslands, þar sem ytri aðstæður urðu
þess valdandi að margir hættu snemma í fót-
boltanum eða urðu meðalmennskunni að bráð.
mikla athygli þegar það gerði 0:0-jafntefli við
England og 1:1 við Grikkland.
Englendingarnir undrandi
Morgunblaðið sló á þráðinn til Lárusar
Loftssonar sem þjálfaði unglingalandsliðið
um langt árabil og fór oft með það í úr-
slitakeppni.
„Já, mörgum þótti mikið undur að við vær-
um í svona keppni, og hve góða leikmenn við
áttum og sterkt lið. Englendingarnir voru t.d.
mjög undrandi eftir að við gerðum jafnteflið
við þá og spurðu mikið út í okkar þjálfun og
aðstæður. Þær voru náttúrlega litlar sem
engar, við undirbjuggum okkur fyrir þessi
mót á veturna og vorin á lélegum mal-
arvöllum. Samt slógum við út lið eins og Nor-
eg og Írland til að vinna okkur þátttökurétt í
þessum úrslitamótum og strákarnir stóðu sig
alltaf mjög vel,“ sagði Lárus Loftsson.
Seinna meir var U17 ára landsliðið nánast
fastagestur í 16 liða úrslitakeppni EM, komst
En viðmælandi minn var með eldri afrek í
huga og minnti á að íslenska unglingalands-
liðið, sem þá hét U18 en var síðan uppfært í
U19, stóð sig frábærlega á árunum 1973 til
1978.
Á þessum árum komust íslensku strákarnir
fimm sinnum í 16 liða úrslit Evrópukeppn-
innar, eins og hún var leikin á þeim tíma.
Faxaflóaúrvalið
Fyrsta liðið sem fór svona langt, 1973, var
með menn á borð Ásgeir Sigurvinsson og
Janus Guðlaugsson í stórum hlutverkum. Það
gerði jafntefli við Belga í úrslitakeppninni og
veitti Englandi og Sviss harða keppni. Þetta
lið var byggt á frægu „Faxaflóaúrvali“ sem
var myndað upp úr 1970 og lék fjölda æfinga-
leikja utan hefðbundins keppnistímabils.
Nokkrum árum síðar voru m.a. Arnór Guð-
johnsen, Pétur Pétursson og Lárus Guð-
mundsson í liðum Íslands sem spiluðu í úr-
slitakeppni. Árið 1977 vakti íslenska liðið
ótboltinn var ekki fundinn upp í gær
nn hafi
mul
aður vildi
21-árs
úrslit
til þess
n í
ns og ég
ensk
rslitum í
ð árið
t hafa
drei áður
angt í fót-
ð hefur
„Við viljum alltaf tala við fjölmiðla
eftir leiki og þetta var einhver
stór misskilningur,“ sagði Sebast-
ian Alexandersson, þjálfari hand-
knattleiksliðs Selfoss, í gær við
Morgunblaðið. Eftir leik liðsins
gegn FH í fyrrakvöld náði blaða-
maður Morgunblaðsins og mbl.is
ekki tali af þjálfaranum eða leik-
mönnum þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir. „Okkur þykir þetta leitt en
það var alls ekki ætlunin að fara í
felur og ræða ekki við fjölmiðla.
Við vorum með fund eftir leikinn
og lokuðum að okkur,“ bætti Seb-
astian við.
seth@mbl.is
„Viljum
alltaf tala
við fjölmiðla“
lit kvenna á al-
r áfram keppni í dag.
baráttu í sextán
21:2 og 21:8, í
6 manna úrslitum
nn hana örugglega,
gingu í annarri lotu,
frá Austurríki í átta
ti keppandinn í ein-
.
ðinni í gærmorgun,
litunum. Hansen
aninn hafði betur í
úrslit
Ragna
Ingólfsdóttir