Morgunblaðið - 22.10.2010, Blaðsíða 4
KÖRFUBOLTINN
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Ólafur Ólafsson spilaði sig inn í
firnasterkt lið Grindavíkur á síð-
ustu leiktíð í Iceland Express-
deildinni í körfuknattleik. Ólafur er
aðeins tvítugur að aldri en hefur
öðlast nokkra reynslu og segist
tilbúinn til þess að láta frekar að
sér kveða í vetur.
Ólafur er þekktur háloftafugl og
hefur til að mynda sigrað í troðslu-
keppni KKÍ. Á síðustu leiktíð sýndi
Ólafur að hann er öflugur varnar-
maður og var gjarnan settur til höf-
uðs öflugustu sóknarmönnum and-
stæðinganna. Ólafur segist reikna
með að spila stærra hlutverk í
sókninni á þessari leiktíð. „Helgi
Jónas sagði við mig að ég yrði í
stærra hlutverki í vetur og ég held
að ég hafi nýtt mér það ágætlega
hingað til. Í fyrra var ég aðallega í
því að gera það sem ég kunni,
þ.e.a.s. spila vörn og taka fráköst. Í
vetur verður kannski meira um að
ég fái boltann þegar mikið er undir
í leikjum. Þá er lagt upp með að
nýta þann sprengikraft sem ég bý
yfir til þess að keyra á varn-
armanninn. Það er ábyrgð-
arhlutverk að fá það verkefni í
Grindavíkurliðinu að ganga frá
leikjum. Ég er alltaf tilbúinn ef til
mín er leitað í leikjum, annað en
bróðir minn sem er alltaf meiddur,“
sagði Ólafur léttur og sendi bróður
sínum Þorleifi eitraða pillu af göml-
um vana.
Lærði mikið í Þýskalandi
Ólafur eyddi tímabilinu 2008-2009
í Þýskalandi og segist hafa bætt sig
mjög sem leikmaður á þeim tíma.
„Þar var mjög miklu breytt varð-
andi minn leikstíl. Ég ráðlegg ung-
um leikmönnum sem vilja bæta sig
að fara til Þýskalands. Þjálfunin er
allt öðruvísi og þjálfararnir eru á
bakinu á manni allan veturinn.
Maður getur hatað þjálfarann en
þetta skilar sér og ég er bara lif-
andi sönnun þess,“ sagði Ólafur og
bendir á að hann þurfi að láta til
sín taka þar sem Grindavík hafi
misst tvo mjög öfluga leikmenn í
sumar. „Brenton Birmingham var
ótrúlega góður leikmaður og hann
gæti verið bestur á Íslandi til 45
ára aldurs ef honum sýndist svo.
Hann er hins vegar hættur og Arn-
ar Freyr Jónsson fór til Danmerk-
ur en það var einnig mikill missir
fyrir okkur,“ bætti Ólafur við.
Ný vinnubrögð
Spurður um nýja þjálfarann,
Helga Jónas Guðfinnsson, þá segir
Ólafur ný vinnubrögð hafa fylgt
honum. Mun meira hafi verið lagt
upp úr styrktarþjálfun en lang-
hlaupum og sprettum. „Helgi hefur
mikla reynslu sem leikmaður og
veit um hvað boltinn snýst. Ofan á
það er hann besti einkaþjálfari á
landinu. Hann er búinn að gera
gríðarlega mikið fyrir marga leik-
menn í sumar. Helgi tók okkur í
gegn og lét okkur gera ýmsar æf-
ingar sem hann hefur notað sem
kennari í Keili. Hann lét okkur hafa
æfingaáætlun þegar æfingar hófust
undir hans stjórn og fékk okkur til
að lyfta lóðum fjórum sinnum í
viku,“ sagði Ólafur ennfremur og
hann segir undirbúningstímabilið
hafa verið frábrugðið því sem hann
hafi áður kynnst.
„Álagið í lyftingunum minnkaði
niður í tvö skipti í viku þegar
keppnistímabilið byrjaði. Við vorum
meðal annars í ólympískum lyft-
ingum og leikmenn hafa bætt mjög
við sprengikraftinn sem er nauð-
synlegur í körfubolta.“
„Helgi tók okkur í gegn“
Háloftafuglinn Ólafur ætlar ekki bara að spila vörn Brenton hefði getað
verið bestur til 45 ára aldurs Helgi lét Grindvíkinga lyfta fjórum sinnum í viku
Morgunblaðið/Golli
Efnilegur Ólafur Ólafsson verður í lykilhlutverki hjá Grindvíkingum í vet-
ur. Ólafur er þekktur fyrir „tröllatroðslur“ í leikjum hjá Grindavík.
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2010
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Margir körfuboltaáhugamenn áttu von á því að
Grindvíkingar yrðu í baráttunni um helstu titl-
ana í körfuboltanum hjá körlunum á síðustu
leiktíð. Liðið var afskaplega vel mannað og lék
vel á löngum köflum. Skerið sem Grindvík-
ingar steyttu á var Snæfell úr Stykkishólmi.
Fyrst tapaði Grindavík fyrir Snæfelli í bik-
arúrslitaleiknum og svo aftur í tveimur leikj-
um í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar.
Annað er nú upp á teningnum því Grindavík
var spáð 5. sæti í deildinni í árlegri spá leik-
manna og forráðamanna liðanna. Vænting-
arnar til liðsins eru því aðrar en í fyrra þótt
Grindvíkingar sjálfir setji markið yfirleitt hátt.
Skipt hefur verið um karl í brúnni og það er
ljóst af viðtalinu hér að neðan, að Helgi Jónas
Guðfinnsson ætlar ekki að þjálfa Grindavík-
urliðið með vinstri. Helgi kemur með mikinn
metnað inn í þjálfunina, sem þarf svo sem ekki
að koma á óvart því Helgi var einn snjallasti
körfuboltamaður landsins.
Grindavíkurliðið hefur haft margar frábær-
ar skyttur innan liðsins á undanförnum árum.
Páll Axel Vilbergsson fer þar fremstur meðal
jafningja en einnig má nefna Þorleif Ólafsson
og Guðlaug Eyjólfsson. Auk þeirra lék Bren-
ton Birmingham með Grindvíkingum síðustu
árin en hefur ákveðið að láta gott heita í bolt-
anum. Grindvíkingar hafa oft og tíðum verið
skemmtilegir á að horfa. Þeir hafa gjarnan
spilað hraðan leik að hætti Suðurnesjamanna
og látið þriggja stiga skotunum rigna yfir and-
stæðingana. Slíkur leikstíll er þó ekki endilega
vænlegur til árangurs og fráfarandi þjálfari
liðsins, Friðrik Ragnarsson, breytti þessum
hugsunarhætti. Liðið ætti að búa að því og
spilar væntanlega af skynsemi í sókninni. Í
fyrstu leikjunum í haust hefur liðið spilað afar
sterkan varnarleik og margt bendir til að það
verði aðalsmerki liðsins í vetur. Eftir að hafa
lagt á sig mikla vinnu á undirbúnings-
tímabilinu eru Grindvíkingar til alls líklegir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þjálfarinn Helgi Jónas Guðfinnsson er á sínu
fyrsta ári sem þjálfari í efstu deild.
Grindvíkingar stóla á varnarleikinn
Grindvíkingarskiptu um
þjálfara í sumar
þegar Njarðvík-
ingurinn Friðrik
Ragnarsson lét
af störfum. Frið-
rik tók við liði
Grindavíkur sum-
arið 2006 og var
hársbreidd frá því að gera liðið að
Íslandsmeisturum vorið 2009 en þá
tapaði liðið naumlega fyrir frábæru
liði KR í oddaleik.
Við starfi hans tók heimamað-urinn Helgi Jónas Guðfinnsson
sem þreytir frumraun sína í
meistaraflokksþjálfun. Helgi er að-
eins 34 ára gamall en ætti að hafa
margt til brunns að bera sem fyrr-
verandi atvinnumaður og menntaður
einkaþjálfari. Helgi er auk þess öll-
um hnútum kunnugur hjá félaginu
en þar lauk hann ferli sínum sem
leikmaður tímabilið 2008-2009.
Grindvíkingar urðu fyrir blóðtökuí vor þegar leikstjórnandinn
Arnar Freyr Jónsson yfirgaf félagið
og Brenton Birmingham ákvað að
leggja skóna á hilluna eftir farsælan
feril. Grindavík lenti í nokkru basli
með að finna heppilegan bandarísk-
an leikmann á síðustu leiktíð en Dar-
rel Flake leysti það mál á miðju
tímabili. Hann er einnig horfinn á
braut og mun leika með Skallagrími
í 1. deildinni í vetur. Auk þess skipti
Einar Eyjólfsson yfir í Þór Akur-
eyri.
Grindvíkingar munu tefla framtveimur erlendum leikmönnum
á tímabilinu. Annars vegar er það
leikstjórnandinn Andre Smith sem
kom frá Austurríki. Ryan Pettinella
mun hins vegar láta finna fyrir sér
undir körfunni. Hann sýndi alla vega
gegn KFÍ að hann getur tekið frá-
köst því hann tók 21 frákast í þeim
leik. Grindavík fékk einnig Helga
Björn Einarsson frá Haukum og Al-
mar Guðbrandsson frá KFÍ.
Grindvíkingarhafa fjórum
sinnum farið alla
leið og fagnað
sigri í bik-
arkeppninni, síð-
ast árið 2006.
Þrátt fyrir að
hafa oft teflt fram
öflugu liði á undanförnum árum þá
hefur aðeins einn Íslandsmeist-
aratitill komið í hús í Grindavík en
það var árið 1996. Þjálfarinn Helgi
Jónas Guðfinnsson og aðstoðarþjálf-
arinn Guðmundur Bragason voru
þá báðir í stórum hlutverkum. Tveir
leikmenn sem enn eru í hópnum
voru þá komnir í leikmannahópinn
en það eru þeir Páll Axel Vilbergs-
son og Guðlaugur Eyjólfsson.
Almar Guðbrandsson 20 ára Miðherji (1,98 m)
Andre Smith 25 ára Bakvörður (1,85 m)
Ármann Vilbergsson 25 ára Bakvörður (1,88 m)
Björn Steinar Brynjólfsson 28 ára Bakvörður (1,90 m)
Egill Birgisson 19 ára Miðherji (2,00 m)
Guðlaugur Eyjólfsson 30 ára Bakvörður 1,90 m)
Helgi Björn Einarsson 21 árs Framherji (1,90 m)
Jens Valgeir Óskarsson 16 ára Framherji (1,98 m)
Kjartan Helgi Steinþórsson 16 ára Bakvörður (1,88 m)
Marteinn Guðbjartsson 18 ára Bakvörður (1,92 m)
Nökkvi Már Jónsson 38 ára Miðherji (1,95 m)
Ólafur Ólafsson 20 ára Bakvörður (1,94 m)
Ómar Örn Sævarsson 28 ára Miðherji (2,00 m)
Páll Axel Vilbergsson 32 ára Framherji (1,97 m)
Þorleifur Ólafsson 26 ára Bakvörður (1,92 m)
Þorsteinn Finnbogason 21 árs Framherji (1,94 m)
Ryan Pettinella 26 ára Miðherji (2,06 m)
Leikmannahópurinn
GRINDAVÍK VETURINN 2010-2011