Morgunblaðið - 28.10.2010, Síða 2

Morgunblaðið - 28.10.2010, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 2010 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Egill Ólafsson egol@mbl.is Lögmaður frá Steptoe & Johnson, sem vinnur að málarekstri gegn fyrr- verandi eigendum og stjórnendum Glitnis í New York, hefur óskað eftir því að Íslandsbanki beiti starfsmenn sína þvingunum til að þeir veiti upp- lýsingar sem gagnast geta við rann- sóknina. Íslandsbanki telur sig ekki geta orðið við þessum óskum gagn- vart starfsmönnum sínum. Lögmennirnir sem vinna að mála- rekstrinum í New York hafa lagt áherslu á að fyrrverandi starfsmenn Glitnis, sem sumir hverjir starfa hjá Íslandsbanka í dag, veiti upplýsingar sem gagnast við rannsóknina. Mich- ael Miller, lögmaður Steptoe & John- son, átti fund með Steinunni Guð- bjartsdóttur, formanni slitastjórnar Glitnis, og Friðriki Sophussyni, stjórnarformanni Íslandsbanka, í byrjun september þar sem rætt var um hvernig bregðast ætti við ef starfsmenn Íslandsbanka neituðu að veita upplýsingar. Á fundinum var ákveðið að Miller sendi bankanum upplýsingar um starfsmenn sem neit- uðu að aðstoða við rannsóknina. Hefur ekki áhrif á starfsframa Íslandsbanki hefur lýst því yfir að hann hvetji starfsmenn sína til að taka þátt í hvers kyns skýrslutökum og rannsóknum á falli Glitnis. Bank- inn hefur jafnframt þá stefnu að starfsmönnum sé frjálst að óska eftir lögmannsaðstoð og hefur lýst því yfir að starfsmönnum sé frjálst að fara að ráðum lögmanns síns við skýrslutök- ur, án ótta við að það hafi áhrif á starfsframa þeirra hjá Íslandsbanka. Á fundinum í byrjun september óskaði Miller eftir að Íslandsbanki áskildi sér rétt til að nýta ráðningar- samband sitt við starfsmenn til að þvinga þá til skýrslugjafar enda þótt skýrslugjöfin kunni að ganga gegn ráðum lögmanns. Stuttu síðar greindi Miller Íslands- banka frá því að tiltekinn starfsmaður hefði ekki sýnt samstarfsvilja og ósk- aði hann eftir því að bankinn hug- leiddi til hvaða aðgerða hann gæti gripið til gagnvart starfsmanninum. Íslandsbanki óskaði í framhaldinu eftir áliti Fjármálaeftirlitsins á mál- inu. Fjármálaeftirlitið bendir á í bréfi til bankans að það hafi markað þá stefnu að stjórn og starfsmenn bank- ans hafi svigrúm til að haga störfum sínum í samræmi við hagsmuni bank- ans og þau lög og reglur sem gilda um starfsemi hans. Afskipti Glitnis af Ís- landsbanka geti farið gegn þessari ákvörðun. Fjármálaeftirlitið bendir jafnframt á að Glitnir geti á grund- velli laga um meðferð einkamála kvatt viðkomandi starfsmann fyrir dóm sem vitni. Vill þvinga starfsmennina  Dæmi eru um að starfsmenn Íslandsbanka sem áður störfuðu hjá Glitni neiti samstarfi við þá sem vinna að málarekstri gegn fyrrv. stjórnendum í New York Morgunblaðið/Golli Óvenjumikið var að gera á barnadeild Sjúkra- hússins á Akureyri í gær enda alþjóðlegi bangsa- dagurinn. Í tilefni af því bauð Lýðheilsufélag læknanema við Háskóla Íslands börnum á nokkr- um leikskólum á Akureyri að koma með bangs- ana sína í heimsókn á FSA. Elín Helga Þórarins- dóttir læknanemi skoðaði bangsann Bellu sem er í eigu Jóhönnu Maríu Gunnarsdóttur. Jóhanna velur hér lit á plástri handa Bellu. Bella bangsi lagðist inn á sjúkrahús Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Landsvirkjun hefur ákveðið að orku- öflun á Norðausturlandi verði for- gangsverkefni á næstunni. „Næstu virkjanaframkvæmdir Landsvirkj- unar verða á Norðausturlandi,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri Lands- virkjunar. Forsvarsmenn fyrirtæk- isins funduðu með fulltrúum sveitar- félaga á Húsavík síðegis í gær. Hörður segir að það sé sameig- inlegt verkefni Landsvirkjunar og heimamanna að vinna að uppbygg- ingu orkuvinnslu og finna orkukaup- endur. Landsvirkjun hefur átt í við- ræðum við áhugasama orkukaupendur og hafa fleiri aðilar komið að borðinu að undanförnu. Byggt upp í þrepum ,,Við erum bæði að horfa til stórra notenda og minni notenda. Það er mjög mikilvægt að stærri notend- urnir geti lagað sig að því hvernig uppbyggingin á svæðinu á sér stað. Svona jarðhitasvæði verður að byggja upp í þrepum. Þrátt fyrir að við telj- um að það séu yfirgnæfandi líkur á að orkugeta svæðisins sé 400 MW sem hægt er að nýta er ekki full vissa fyrir því. Við þurfum því að byrja á að virkja og sjá svo hvernig gengur. Væntanlegir kaupendur þurfa að geta lagað sig að því.“ Að sögn Harðar hefur Lands- virkjun nú þegar fjárfest fyrir hátt í tólf milljarða kr. á svæðinu og því sé fyrirtækinu mjög mikilvægt að geta nýtt þá fjárfestingu og skapað tekjur. „Við erum bjartsýn á að það takist að finna kaupendur sem eru tilbúnir að byggja upp á svæðinu. Það er hins vegar mjög erfitt að tímasetja það ná- kvæmlega. Það ræðst að miklu leyti af því hvernig efnahagsaðstæður í heiminum þróast.“ Tveir kostir hafa oftast verið nefndir, álver Alcoa og álver kín- verska fyrirtækisins Bosai. Hörður segir þessi fyrirtæki alveg koma til greina „en það koma fjölmargir aðrir til greina líka“. Næsta virkjun Landsvirkj- unar á Norðausturlandi  „Við erum bjartsýn á að það takist að finna kaupendur “ Síðustu ár hafa fleiri ökumenn verið teknir í Borgarfirði fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna en fyrir ölvunar- akstur. Á síðasta ári voru 43 teknir fyrir ölvun en 63 fyrir fíkniefna- akstur. Það sem af er árinu hafa 24 verið teknir fyrir að aka ölvaðir en 29 fyrir fíkniefna- akstur. Dregið hefur úr umferð Theodór Þórðarson yfirlögreglu- þjónn segir þessar tölur sýna hversu fíkniefnaakstur sé orðinn alvarlegt vandamál. Hann segir lögreglumenn orðna þjálfaða við að greina þá ein- staklinga sem liggja undir grun. Nokkuð færri hafa verið teknir fyrir ölvunarakstur og fíkniefna- akstur í ár og í fyrra en árin á und- an. Theodór segir að fjöldi tilvika haldist í hendur við hversu mikið er lagt í eftirlitið. Einnig verði að hafa í huga að heldur hafi dregið úr um- ferð á síðustu tveimur árum. egol@mbl.is Færri tekn- ir undir áhrifum Umferð á Vest- urlandsvegi. Fíkniefnaakstur er mikið vandamál Gera má ráð fyrir að frumvarp um breytingu á lögreglulögum verði end- urflutt á Alþingi í vetur en þar er m.a. kveðið á um að bóklegt nám í Lög- regluskóla ríkisins verði ekki lengur launað. Ekki eru neinir nemendur í grunnnámi í skólanum sem stendur. Bóklega námið tekur átta mánuði og hafa nemendur fengið um 190 þús- und krónur á mánuði en alls tekur námið tólf mánuði. „Við viljum að þeir peningar skól- ans sem notaðir hafa verið á lokaönn fari í að greiða fyrir starfsþjálfunina sem hefur verið kostuð af lögreglu- embættunum,“ segir Arnar Guð- mundsson skólastjóri. Gunnlaug Hartmannsdóttir, skóla- stjóri Tollskóla ríkisins, segir að ekki hafi verið rætt þar um að gera bók- lega námið launalaust. Lánasjóður ís- lenskra námsmanna telur námið ekki vera lánshæft, gagnstætt námi lög- reglumanna. kjon@mbl.is Fá ekki laun í skólanum Fram kom í viðtali við Dag B. Egg- ertsson, formann borgarráðs, hjá Stöð tvö í gær að búast mætti við hækkunum á útsvari auk gjaldskrár- hækkana en unnið er að fjárlaga- gerð fyrir Reykjavík. Hagspár bentu til þess að taka myndi minnst fimm ár að koma aftur á jafnvægi þannig að ekki dygði að grípa til tímabundinna ráðstafana. Einar Örn Benediktsson, annar maður á lista Besta flokksins og for- maður menningar- og ferða- málaráðs, hafði ekki heyrt ummæli Dags í gærkvöld. „Í þeirri fjárlagagerð sem við höf- um verið að standa í höfum við fyrst og fremst verið að líta á hagræð- ingar,“ segir Einar Örn. „Við höfum ekki farið út í að taka gjaldskrár- hækkanir inn í það fyrr en við erum búin að fara í gegnum allt annað. Þannig að þetta eru bara heiðarleg viðvörunarorð sem koma fram hjá Degi.“ En merkir hagræðing ekki að starfsfólki verði fækkað? „Við erum ekki að skoða það held- ur ýmsa samþættingu sviða en ekki uppsagnir sem slíkar.“ Ekki náðist í Dag í gærkvöldi. kjon@mbl.is Boðar hækkanir á gjaldskrá og útsvari Einar Örn Benediktsson Dagur B. Eggertsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.