Morgunblaðið - 28.10.2010, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 28.10.2010, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 2010 Það er ekki hægt annað en aðhafa gaman af umræðunni um fundnu leyniskjölin um Íraksmálið. Fyrir mörgum mánuðum voru flutt- ar tillögur um að rannsaka bæri að Íslendingar lýstu yfir stuðningi við helstu bandalagsþjóðir okkar, sem töldu óhjákvæmilegt að koma Saddam Hussein frá. Ekki stóð til að Ísland færi í stríð eins og Bandaríkja- menn, Bretar eða Danir og fleiri þjóð- ir gerðu. Einungis að afstaða yrði tekin með þessum þjóðum og gegn Saddam.    Þeir menn sembáru pólitíska ábyrgð á þeirri pólitísku ákvörðun hafa hvergi vik- ið sér undan þeim. Svo ekki er vitað hvað eigi að rannsaka en sjálfsagt auðvitað að rannsaka.    Og fyrir mörgum mánuðum varþess einnig krafist á Alþingi að öll skjöl um málið yrðu lögð fram. Síðan hefur ekkert gerst fyrr en Össur Skarphéðinsson fer að fimbulfamba í útvarp um fundin skjöl.    Þá kom Ögmundur Jónasson,sem bað um skjölin fyrir löngu og fékk ekki og upplýsti að Össur hefði sagt sér fyrir skömmu að eng- in skjöl væru til.    Nú verður að rannsaka hversvegna skjölin fundust ekki. Hver faldi þau fyrir Össuri og svil- konu hans og fyrirrennara í þrjú ár? Er sá enn í starfi? Af hverju fær Ögmundur ekki skjölin og af hverju ekki fjölmiðlarnir fyrst Össur er að monta sig af þeim opinberlega? Hvaða aulagangur er þetta eig- inlega?    Bara þessi venjulegi eða nýtt af-brigði? Össur verður að svara því. Össur Skarphéðinsson Týndu leyniskjölin STAKSTEINAR Veður víða um heim 27.10., kl. 18.00 Reykjavík 6 skýjað Bolungarvík 3 rigning Akureyri 4 rigning Egilsstaðir 5 rigning Kirkjubæjarkl. 6 skýjað Nuuk 0 alskýjað Þórshöfn 7 skýjað Ósló 6 skýjað Kaupmannahöfn 7 þoka Stokkhólmur 7 súld Helsinki 1 skýjað Lúxemborg 8 skýjað Brussel 10 skúrir Dublin 11 skúrir Glasgow 12 léttskýjað London 16 léttskýjað París 12 heiðskírt Amsterdam 10 súld Hamborg 8 súld Berlín 7 skúrir Vín 7 léttskýjað Moskva 2 alskýjað Algarve 21 heiðskírt Madríd 21 heiðskírt Barcelona 17 heiðskírt Mallorca 18 léttskýjað Róm 15 léttskýjað Aþena 17 skýjað Winnipeg 2 skúrir Montreal 16 léttskýjað New York 21 alskýjað Chicago 14 léttskýjað Orlando 29 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 28. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:59 17:25 ÍSAFJÖRÐUR 9:15 17:19 SIGLUFJÖRÐUR 8:58 17:02 DJÚPIVOGUR 8:31 16:52 „Eigandinn hefur fullan rétt til að loka en spurning hvort það hafi ekki verið gert í einhverju fljót- ræði. Lokun heim að Núpsstað er sannarlega skarð fyrir skildi,“ seg- ir Skúli Möller, formaður Félags leiðsögumanna, um þá ákvörðun eiganda jarðarinnar Núpsstaðar í Skaftárhreppi að loka aðgangi ferðamanna heim að bænum. Skúli segir Núpsstað og bæn- húsið vera meðal fastra áningar- staða leiðsögumanna með hópa ferðamanna. Aðstæður á bænum hafi gjörbreyst þegar salernis- aðstöðu var komið upp og móttökur ávallt verið hlýjar og góðar hjá Fil- ippusi heitnum Hannessyni yfir sumartímann. „Hann naut þess að sitja úti og rabba við fólk.“ Skúli segir leiðsögumenn ávallt hafa brýnt fyrir hópum sínum að ganga um bæinn af virðingu og hógværð. Hann segist í heimsókn- um sínum að Núpsstað ekki hafa orðið var við slæma umgengni ferðamanna, ekki síst eftir að sal- ernis- og snyrtiaðstöðu var komið upp. Skúli segir leiðsögumenn von- ast til þess að lokunin heim að Núpsstað sé tímabundin og einhver lausn finnist. Fyrst um sinn væri t.d. ráð að hleypa ferðamönnum að í fylgd innlendra leiðsögumanna. Spurður hvaða lausn leið- sögumenn vildu helst sjá segir Skúli að gjaldtaka af ferðamönn- um, til að halda uppi þjónustu og eftirliti á bænum árið um kring, muni aldrei standa undir sér ein og sér. Gjaldtaka geti fælt ferðamenn frá, eins og gerst hafi með Kerið í Grímsnesi er það var keypt af einkaaðilum. bjb@mbl.is Lokun Núpsstaðar skarð fyrir skildi  Formaður leiðsögumanna segir gjaldtöku geta fælt ferðamenn frá Vímuvarnavikan, Vika 43, var formlega sett í Þjóðleikhúsinu á þriðjudag að viðstöddum nem- endum frá Sjálandsskóla í Garða- bæ, frammáfólki í æskulýðs- og for- varnastarfi á Íslandi, lögreglustjóra höfuðborgarsvæð- isins, Stefáni Eiríkssyni og ráð- herra dóms- og mannréttindamála, Ögmundi Jónassyni. Tinna Gunn- laugsdóttir þjóðleikhússtjóri bauð gesti velkomna og fagnaði sam- starfi leikhússins og vímuvarnavik- unnar en forvarnaleikritið „Hvað ef?“ er nú sýnt í Kassanum og er ætlað efri bekkjum grunnskóla. Í áskorun vikunnar, sem und- irrituð er af fulltrúum 22 aðild- arsamtaka þessa árlega verkefnis, er sjónum beint að áhrifum fíkni- efnaneyslu þar sem ungum kanna- bisneytendum, sem leita sér með- ferðar, hefur fjölgað um helming hér á landi síðustu árin. Ungmenni þurfi skýr skilaboð frá fjölskyldum sínum um að hafna neyslu fíkniefna og verjast öllu áreiti þess efnis. Vímuvarnavika berst gegn neyslu kannabisefna Setning Vímuvarnavika sett í Þjóðleikhúsinu af m.a. dómsmálaráðherra og lögreglustjóra. Ljósmynd/Odd Stefán Álagningu opinberra gjalda á árinu 2010 er lokið á alla lögaðila sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, og aðra sem lagt er á í samræmi við VIII. – XIV. kafla tilvitnaðra laga. Jafnframt er álagningu lokið á lögaðila, sem skattskyldir eru af fjármagnstekjum samkvæmt ákvæði 4. mgr. 71. gr. laganna. Álagningarskrár, sem sýna álagða skatta á lögaðila í viðkomandi sveitarfélagi, liggja frammi á skattstofum eða á sérstaklega auglýstum stöðum dagana 28. október til 11. nóvember að báðum dögum meðtöldum. Álagningarseðlar eru nú aðgengilegir á þjónustuvef ríkisskattstjóra á www.rsk.is og www. skattur.is. Kærurufresti vegna álagningar þeirra gjalda, sem hér um ræðir, lýkur mánudaginn 29. nóvember 2010. Álagningarskrár eru lagðar fram samkvæmt ákvæðum 1. mgr. 98. gr. framangreindra laga. 28. október 2010 Auglýsing um álagningu opinberra gjalda á lögaðila árið 2010

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.