Morgunblaðið - 28.10.2010, Síða 16

Morgunblaðið - 28.10.2010, Síða 16
FRÉTTASKÝRING Una Sighvatsdóttir una@mbl.is V ið horfum hrygg í huga á alla fylgikvilla tóbaks- ins á heilsufar. Fyrir ut- an krabbamein þá veld- ur tóbaksnotkun öðrum langvinnum sjúkdómum líka sem hafa mjög slæm áhrif á lífsgæði fólks. Lungnaþemba dregur úr lífs- gæðum fólks, og þetta þurfum við að horfa upp á alla daga í okkar starfi,“ segir Birna Jónsdóttir, formaður Læknafélags Íslands (LÍ). Á aðalfundi sínum nú í október samþykkti LÍ stefnu- og aðgerða- áætlun í tóbaksvörnum og bendir m.a. á að samhæfðar aðgerðir gegn heilsuvá hafi áður skilað víðtækum árangri. Birna segir að kjarninn í áætluninni sé auknar forvarnir. „Við viljum láta reyna á allt sem í mannlegu valdi stendur til að koma í veg fyrir að tvö ungmenni byrji að reykja á hverjum einasta degi. Þó þetta sé ekki smitsjúkdómur þá þurfum við að nálgast nikótínfíkn sem þá heilbrigðisvá sem hún er, rétt eins og þegar samfélagið tekur sig saman um að grípa til aðgerða, sem geta verið óþægilegar, gegn hættulegum smitsjúkdómum.“ Fíknlækningar virka Ætla má að a.m.k. 300 Íslend- ingar deyi árlega af völdum reyk- inga og samkvæmt könnunum er fimmta hvert ungmenni byrjað að reykja um tvítugt. Læknafélagið leggur áherslu á að best sé að byrja aldrei reykingar, en einnig að efla þurfi meðferð við tóbaksfíkn. Í aðgerðaáætlun LÍ er m.a. lagt til að farið verði yfir þau meðferð- arúrræði sem eru í boði, hvernig megi bæta þau og að komið verði á fót þverfaglegri miðstöð í meðferð við tóbaksfíkn. Birna segir að útfæra þurfi miðstöðina eftir efnum og að- stæðum en markmiðið yrði að hún væri leiðandi í meðferð við fíkninni. „Við höfum náð mjög góðum ár- angri í fíknlækningum á Íslandi, til dæmis þegar kemur að áfengi. Þar höfum við bæði reynslu og mikla þekkingu og við vitum að meðferð við fíknsjúkdómum virkar.“ Þau meðferðarúrræði sem eru í boði við nikótínfíkn í dag byggjast fyrst og fremst á nikótínlyfjum. Auk þess hefur félagið Læknar gegn tób- aki boðið upp á ráðgjöf og hjarta- og lungnalæknar stundum haldið nám- skeið þar sem fólki er hjálpað að hætta að reykja. Þverfagleg miðstöð við tóbaksfíkn myndi að sögn Birnu geta samhæft þessi úrræði og gert þau markvissari. Hún bendir þó á að meðferð fylgi heilmikill kostnaður og fyrirhöfn. Hagkvæmast sé að koma í veg fyrir að fólk byrji að reykja með öflugum forvörnum. Í millitíðinni mælist LÍ hins vegar til þess að lyf sem notuð eru við tóbaksfíkn sem hluti af virkri meðferð verði niðurgreidd af Sjúkratryggingum Íslands. Enn fremur að nikótín og tóbak verði skilgreint í lögum sem ávana- og fíkniefni. Kostar þjóðarbúið milljarða Notkun tóbaks er að mati LÍ faraldur sem geisar á Íslandi og kostar þjóðarbúð um 30 milljarða á ári. Félagið hvetur yfirvöld til að auka fjármagn til tóbaksvarna, til að draga úr samfélagslegum kostnaði. „Sígarettur þyrftu að vera margfalt dýrari til að standa undir þeim auka- kostnaði sem afleiðingar reykinga hafa á heilbrigðis- kerfið. Það eru marg- föld rök með þessu og á endanum er mark- miðið að gera landið tóbakslaust. Á sparn- aðartímum er það ekki lítill kostur.“ Læknafélagið vill tóbakslaust Ísland Morgunblaðið/Golli Reykt Lífsgæði einstaklingsins aukast og þjóðfélagið sparar ef reykingum er útrýmt með forvörnum og meðferð, segir formaður Læknafélagsins. 16 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 2010 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Maðurinner hroka-fyllsta dýrategundin. Það er svo sem ekki að undra því að allar hinar urðu undir og verða nú að lúta honum, líka þær stærstu og kröftugustu. Fyrirferð mannsins fer sífellt vaxandi og og mörk frjálsra lenda dýraríkisins á jarðarkringl- unni skreppa hratt saman. Þess utan er gáleysi og óvönd- uð umgengni mannsins í sam- eiginlegu umhverfi sínu og þeirra dýrunum iðulega háskaleg. Skógareldar vegna íkveikju, flóð vegna ummynd- unar lands, olíuslys á sjó og landi, auk venjubundina mengunarslysa eru nokkur dæmi. Votlendi er fargað og samgönguþarfir mannskepn- unar þrengja sífellt að. Við ýmsa þætti þessarar þróunar verður sjálfsagt lítt ráðið, en varúð og tillitssemi getur þó bjargað miklu. En á eitt meginatriði er nauðsyn- legt að horfa. Þegar maðurinn hafði náð því að verða herra jarðarinnar og að lokum þannig að yfirburðir hans voru algjörir orðnir, hafði ábyrgðin á tilverunni þar með einnig flust til hans. Stöðu hans fylgja skyldur og þær ríkar. Mjög er talað um mannrétt- indi og flest undir það hugtak fellt nú orðið. Málleysingj- arnir hafa einnig sinn rétt, þótt stundum sé óskráður og staða mannskepnunnar og yf- irgangur setja þær skyldur á hana að gæta þess réttar. Talsmenn dýraverndar eru af einhverjum ástæðum ekki nægjanlega fyr- irferðarmiklir á Íslandi. Æskilegt væri að á því yrði breyting. Lítill vafi er á að meiri- hluti þjóðarinnar vill vel í slík- um efnum, en situr þó hjá og treystir því að „hið opinbera“ gæti hagsmuna þeirra sem engan umboðsmann eða tals- mann eiga. Því er ekki að treysta. Fréttir af framgöngu byssumanna gegn álftum fyr- ir nokkru og gæsum fyrir skömmu vekja óhug og skömm. Slíka níðinga þarf að finna og láta þá sæta ábyrgð. Heimilað er með lögum að menn geti nánast frjálst veitt tilteknar dýrategundir á Ís- landi og aðrar í takmörkuðum mæli. Það má vera augljóst að heimild til að drepa dýr er undantekningarregla frá hinni um að þau eigi rétt á lífi í landinu. Þessa undantekn- ingarreglu verður að umgang- ast af mikilli varúð. Það er fjarri því sjálfsagður hlutur að heimila mönnum að arka með morðtól um landið. Þeir sem slíkt leyfi fá verða að gæta hófs og mildi. Brjóti þeir gegn reglum um dýravernd verður að sjá til þess að vopn séu gerð upptæk og leyfi til að bera þau séu felld úr gildi. Þeir sem vilja gæta hagsmuna dýraríkisins, bæði hins villta hluta þess og hins sem not- aður er í atvinnuskyni, ættu að virkja og efla samtaka mátt sinn í þágu þess. Margvísleg dæmi síðustu árin sýna og sanna að ekki er vanþörf á því. Það verður að setja aukinn kraft í sam- tök um dýravernd. Það sýna gömul dæmi og ný} Dýravernd í molum? Evrópumeist-aratitill kvennaliðs Gerplu í hópfimleikum er einstakt afrek. Liðið hefur und- anfarið verið í fremstu röð og hafði áður í tví- gang unnið til silfurverðlauna á Evrópumeistaramótinu, 2006 og 2008. Sá árangur hafði greinilega ekki satt hungrið og í Malmö um helgina dugði ekki minna en gull. Aldrei áður hef- ur íslenskt lið unnið Evr- ópumeistaratitil. Lið Gerplu sýndi mikla yf- irburði á mótinu og fékk flest stig í öllum þremur keppn- isgreinunum, gólfæfingum, dýnustökki og trampol- ínstökki. Rétt er að taka fram að Gerpla er félagslið, en leyfi- legt er að senda landslið á mót- ið. Það gerðu Ís- lendingar í unglingaflokki og tókst íslenska ung- lingaliðinu að vinna brons í stúlknaflokki þannig að framtíðin er björt. Evrópumeistaratitillinn er afrakstur þrotlausra æfinga og ekki spillti árangurinn und- anfarin ár sjálfstraustinu. Meðan á undirbúningnum stóð æfði liðið 20 tíma á viku og oft meira. Markið var sett á Evr- ópumeistaratitil og ekkert ann- að kom til greina. Oft er sagt að Íslendingar séu svo fáir að þeir geti ekki náð árangri í hópíþróttum. Fimleikakonurnar fimmtán í Evrópumeistaraliði Gerplu og þjálfarar þeirra afsönnuðu það rækilega um helgina. Evrópumeistaratitill kvennaliðs Gerplu í hópfimleikum er einstakt afrek } Hetjurnar í Gerplu Í mannréttindaráði Reykjavíkurborgar virðast menn ekki hafa sérlega mikið að gera og finna sér þess vegna sér- kennileg dekurverkefni til að hlúa að. Af einhverjum ástæðum fékk mannréttindaráð þá hugmynd að skaði gæti orðið þegar óhörðnuðum skólakrökkum væri kenndur kærleiksboðskapur kristinnar kirkju. Mannréttindaráðið mun hafa áttað sig á alvöru þess að ræða kristna trú í skólum þegar því bárust kvartanir vegna heimsókna trúfélaga í skóla landsins. Fulltrúar mann- réttindaráðs, sem eru reyndar hættir að þora að mæta í fjölmiðla, létu að því liggja að gríð- arlegur þrýstingur væri á ráðið að grípa í taumana gegn þessu umfangsmikla trúboði. Helst mátti skilja að foreldrar víðs vegar um borg væru beinlínis örvæntingarfullir vegna þess að kristilegum boðskap væri troðið ofan í börn þeirra af offorsi. Nú hafa fulltrúar Sjálfstæðisflokksins upplýst að þessi gríðarlegi þrýstingur, sem var um það bil að buga mannréttindaráð, byggist á rúmlega tuttugu kvörtunum í skólasamfélagi sem telur tugþúsundir. Kannski eru fulltrúar mannréttindaráðs mun við- kvæmari en aðrir eða kannski vilja þeir bara fá frið í vinnutímanum. Allavega hafa þessar rúmlega tuttugu kvartanir orðið til þess að mannréttindaráð hefur lagt fram ofurheimskulega tillögu um að banna trúartengt starf í skólum borgarinnar. Allur þorri almennings hef- ur reyndar alls ekki orðið þess var að trúboð sé stundað dag hvern innan skólaveggja. Hins vegar eru skólabörn nokkuð vel upplýst um þátt kristinnar trúar í íslensku þjóðfélagi og er það einfaldlega sjálfsagður hluti af menntun þeirra. Nú á að skapa algjör skil milli kirkju og skóla vegna rúmlega tuttugu kvartana. Það er ljóst að sáralítið vit liggur á bak við þá hugmynd og nær engin skynsemi. Komið hefur fram að yfir þrjú hundruð kvartanir hafa borist fulltrúum mannréttindaráðs þar sem hugmyndum ráðsins er mótmælt. Miðað við það hversu auðveldlega fulltrúar mann- réttindaráðs fóru á taugum vegna nokkurra kvartana veltir maður því fyrir sér hvernig líðan þeirra sé nú. Í opinberri umræðu er ljóst að mannréttindaráð nýtur lítils stuðn- ings. En það eina sem heyrist frá fulltrúum ráðsins er píslarvættistal um að umræðan sé á villigöt- um. Flestum ætti þó að vera ljóst að það var mannrétt- indaráð sem villtist af leið. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa haft vit á að stíga fram og mótmæla banni við trúartengdu starfi í skólum. Fátt heyrist hins vegar frá stjórnmálamönnum á vinstri væng, annað en einstaka fagnaðarkvak vegna þess að meina á hempuklæddum prestum að heimsækja skóla. Borgastjórinn í Reykjavík, sem áður var fús að vitna um trú sína, þegir núna. Er ekki kominn tími til að hann tjái sig og mótmæli bullinu í mannréttindaráði? kolbrun@mbl.is Kolbrún Berg- þórsdóttir Pistill Hinn gríðarlegi þrýstingur STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Konur reykja minnst hér MIÐAR Í RÉTTA ÁTT Íslenskar konur eru fremstar í flokki reyklausra kvenna á Norðurlöndum, ásamt sænskum kynsystrum sínum. Þetta kemur fram í ársritinu Norrænar hag- tölur 2010 sem gefið var út af Norrænu ráðherranefndinni í gær. Samkvæmt því reykja að- eins 16% íslenskra kvenna dag- lega og eru því 84% þeirra reyk- lausar. Finnskar konur reykja hins vegar mest norrænna kvenna, því einungis 75% þeirra eru lausar við tóbaksfíknina. Læknafélag Íslands vill að stjórnvöld stefni að því að Ís- land verði eitt fyrsta landið í heiminum til að taka tóbak al- farið úr almennri sölu. Einnig að reykingum verði útrýmt á al- mannafæri og að tóbak verði tekið út úr vísitölureikningi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.