Morgunblaðið - 28.10.2010, Qupperneq 37
AF TÍSKU
Inga Rún Sigurðardóttir
ingarun@mbl.is
Tískuritstjórar geta ekki leng-ur setið á hásæti og stjórnaðþannig. Þeir verða að fara á
meðal fólksins því það þarf að selja
blöð. Vogue, blaðið sem hefur verið
kallað Tískubiblían og mun seint
teljast alþýðlegt blað, hefur fært
sig fjær hátískunni og nær almenn-
ingi. Í fyrstu endurspeglaðist það í
því að kvikmyndastjörnur prýða
nánast alltaf forsíðu bandaríska
Vogue í stað fyrirsætna. Kvik-
myndastjörnurnar hafa meiri teng-
ingu við fólkið og þykja seljanlegri
en fyrirsæturnar; þótt þær séu
þekktar á sínu sviði dugar það ekki
til að lokka stjörnuóðan almúgann
til að kaupa blaðið.
Næsta skref í alþýðvæðinguVogue var að André Leon
Talley, hægri hönd Önnu Wintour,
ritstjóra bandaríska Vogue, tók
sæti í dómnefnd America’s Next
Top Model. Ekki nóg með það held-
ur fær sigurvegari þáttarað-
arinnar, sem Skjár einn hefur nú
til sýningar, myndaþátt í ítalska
Vogue. Hingað til hefur ítalska
Vogue haft á sér þann stimpil að
vera sérstaklega flott tískublað
sem er leiðandi á sínu sviði en eltir
ekki veruleikaþáttaraðir. Litið hef-
ur verið niður á Top Model í tísku-
heiminum því þar séu ekki alvöru
fyrirsætur. Eins og þáttastjórnand-
inn Tyra Banks bendir margoft á
er meira í húfi í þessari 15. þátta-
röð. Þátturinn er kominn á nýtt
stig og þátttakendurnir mögulega
aðeins „fyrirsætulegri“ en oft áður.
Bæði Vogue og Top Modelhagnast á þessu samstarfi,
þátturinn fær meiri vigt í tísku-
heiminum og þetta hátískublað
færir sig nær fólkinu því hvað er
alþýðlegra en sjónvarp?
Jú kannski er netið ennþá al-þýðlegra en sjónvarpið því
ekkert miðlar fréttum hraðar en
netsíður uppfærðar á öllum tímum
sólarhrings. Tískuheimurinn hefur
einmitt eignast nýtt ofurpar úr
heimi ljósmyndabloggsins, Garance
Doré (garancedore.fr/en) og Scott
Schuman (thesartorialist.blogs-
pot.com). Óhætt er að segja að þau
ógni völdum tískuritstjóranna á
tímaritunum. Fyrir þremur árum
eða svo var þeim varla hleypt inn í
sýningartjöldin en nú sitja þau á
fremsta bekk.
Time hitti naglann á höfuðiðog skynjaði breytta tíma þeg-
ar það valdi Schuman á meðal 100
helstu áhrifavalda í hönnunarheim-
inum árið 2007. Síðan þá hefur
Schuman meðal annars gefið út
bók á vegum Penguin og starfað
með hinu þekkta tískuhúsi Bur-
berry. Doré er jafnframt þekktur
teiknari og hefur haldið sýningu á
tískuteikningum sínum víða um
heim.
Þau eru því engir venjulegirbloggarar, þau hafa virkilega
eitthvað fram að færa, listrænt
auga og næma tilfinningu fyrir
straumum og stefnum.
Hátískan og almúginn
» Báðir hagnast ásamstarfinu; Top
Model fær meiri vigt í
tískuheiminum og
Vogue færir sig nær
fólkinu því hvað er al-
þýðlegra en sjónvarp?
Reuters
Kvikmyndastjarnan og ritstjórinn Það er við hæfi að leikkonan Sarah Jessica Parker sitji við hliðina á ritstjóra
bandaríska Vogue, Önnu Wintour, á fremsta bekk á tískusýningu enda hefur Parker prýtt forsíðu blaðsins.
Ofurpar Ljósmyndararnir og bloggararnir Garance Doré og Scott Schuman
eru af nýrri kynslóð áhrifafólks í tískuheiminum.
SÝND Í KEFLAVÍK
„GEÐVEIKISLEGA
FYNDIN“
- SHAWN EDWARDS,
FOX-TV
FRÁ LEIKSTJÓRA MEET THE PARENTS
7
Steve Carrell og
Paul Rudd fara
á kostum ásamt
Zach Galifianakis
sem sló eftir-
minnilega í gegn
í “The Hangover”
SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI
BEN AFFLECK LEIKUR BANKARÆNINGJA Í SINNI
BESTU MYND TIL ÞESSA
HHHH
„ÞESSI LÆTUR KLÁR-
LEGA SJÁ SIG Á ÓS-
KARNUM Á NÆSTA
ÁRI.“
- T.V. - KVIKMYNDIR.IS
HHHHH
“ÞETTA ER EINFALDLEGA BESTA
MYNDIN SEM ÉG HEF SÉÐ Á ÁRINU”
- Leonard Maltin
HHHH
“EF ÞAÐ ER TIL MYND
SEM ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ,
ÞÁ ER ÞAÐ ÞESSI”
- Boxoffice Magazine
HHHH
“THE TOWN ER ÞRILLER EINS OG ÞEIR
GERAST BESTIR OG RÚMLEGA ÞAД
- Wall Street Journal
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
FORSÝNING Í KVÖLD KL. 10:30
HHHH
- JOBLO.COM
HHHH
„A HAUNTING,
TOUCHING AND
UNFORGETTABLE
THRILLER.“
- BOXOFFICEMAGAZINE
100/100
„ONE OF THE YEAR’S MOST
POWERFUL THRILLERS.“
- HOLLYWOOD REPORTER
100/100
- VARIETY
Stephen King
segir: „Það gil-
dir einu hvort
að þú sért
unglingur eða
kvikmynda-
áhugamaður á
fimmtugsaldri,
þú verður
dolfallinn.”.
BESTA SKEMMTUNIN
THE SWITCH kl. 8 -10:20 10
ÓRÓI kl. 8 10
SOLOMON KANE kl. 10:20 16
/ KEFLAVÍK
SOCIAL NETWORK kl. 8 -10:20 12
ÓRÓI kl. 8 10
DINNER FOR SCHMUCKS kl. 10:20 7
/ SELFOSSI
KONUNGSRÍKI UGLANNA m. ísl. tali kl. 6 7
THE SWITCH kl. 8 -10:10 10
ALGJÖR SVEPPI OG... kl. 6 L
ÓRÓI kl. 8 -10:10 10
/ AKUREYRI
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 2010
Fréttir gærdagsins fyrir Batman-
aðdáendur birtust í LA Times þar
sem frá því var sagt að Batman þrjú
væri komin með nafn. Þriðja mynd-
in í þessari trílógíu frá Gotham-
borg hinni myrku mun nefnast upp
á útlenskuna The Dark Knight Ri-
ses sem hægt er að þýða Svarti
riddarinn rís eða Svarta ridd-
aranum rís. Önnur yfirlýsing fylgdi
í kjölfarið og hún er að Batman þrjú
verður í tvívídd. Þrívíddarmanían
er farin að hrjá alvöru karlmenni
sem fara ekki í bíó til að setja á sig
pappírsgleraugu og líta út eins og
diskónörd frá níunda áratugnum.
Þannig að það eru aðeins gleðifrétt-
ir sem berast frá Gotham.
Batman
þrjú fær nafn
Bilbo Baggins, hinn gamli íhalds-
hobbiti, er kominn með heimili.
Warner Brothers höfðu verið að
leita að heppilegum tökustað eftir
að hafa útilokað Nýja-Sjáland en
þar var Hringadróttinssaga kvik-
mynduð. En mótmælagöngur á
strætum borga eyjarinnar fögru
komu fulltrúum Warner Brothers
til að hugsa sig tvisvar um. Ekki
spillti það fyrir að stjórnvöld lands-
ins lofuðu auknum skattaafslætti
upp á tæpar átta milljónir dollara
og lagabreytingar kvikmyndaver-
unum í vil. Allt bendir til þess að
Skíri (Shire), heimaþorp Hobbitans,
gamla verði á Nýja-Sjálandi. Bara
að það verði nægur matur til, því
það var það sem Baggins hafði
raunverulegan áhuga á.
Hobbitinn
fær heimili