Hamar - 25.08.1950, Qupperneq 3
H A M A R
3
80 ára
Guðmundur Jónsson
Sundmót Hafnarfjarðar
járnsmiður
Attræður verður í dag einn
af merkustu mönnum í hópi iðn-
aðarmanna og mætustu borgur-
um þessa bæjar, Guðmundur
Jónsson járnsmiður til heimilis
að Ölduslóð 7 hér í bæ. Enda
þótt eigi sé ætlunin, í þeim fáu
orðum sem hér eru skráð, að
rekja ítarlega hinn langa og
merka lífsferil þessa vinar míns
og samstarfsmanns nú um langt
skeið, heldur einvörðungu að
flytja honum þakkir og árnaðar-
óskir, þá verður eigi hjá því kom-
izt að drepa á örfáa meginþætti
úr starfssögu hans.
Guðmundur Jónsson er ættað-
ur úr Rangárvallasýslu. Varð
hann, svo sem títt var um unga
menn á j)eim tímum, snemma að
fara að vinna og eru því starfs-
dagar hans þegar orðnir óvenju
margir. Þegar á unga aldri lineigð
ist hugur hans að járnsmíði og
réðist hann innan við tvítugt til
náms hjá Gísla Finnssyni járnsm.
í Reykjavík árið 1889. Að loknu
námi, sem Guðmundur lauk með
hinni mestu prýði starfaði hann
nokkur ár hjá lærimeistara sín-
um. Síðan fluttist Guðmundur
til Patreksfjarðar þar sem hann
var ráðinn til að veita forstöðu
vélsmiðju Péturs Ólafssonar út-
gerðarmanns. Til Hafnarfjarðar
fluttist Guðmundur svo árið
1919. Hefir hann þannig starfað
að iðn sinni óslitið í yfir 60 ár og
Jrar af röskan helming tímans hér
i bænum og jafnan á sama stað
enda Joótt eigendaskipti hafi orð-
ið að fyrirtæki því, sem hann
hefir starfað hjá. Ekki mun Guð-
mundur lengi hafa starfað að
iðn sinni, er þess þótti gæta, að
þar sem hann var, var um engan
miðlungsmann að ræða heldur
frábæran hagleiks- og afkasta-
mann. Það mun og heldur engin
tilviljun hafa ráðið er honum,
ungum að árum, var falin forysta
vélsmiðju Péturs Ölafssonar á
Patreksfirði. Þar var þá mikil út-
gerð. Mun Guðmundur þar sem
alla jafna síðan oft hafa orðið að
ráða fram úr margvíslegum við-
fangsefnum að því er snertir við-
gerðir skipa og véla án þess að
hafa yfir að ráða þeim tækjum
og efnivið sem nú myndi talin
óhjákvæmilegur til sömu fram-
kvæmda. Útsjónarsemi, vand-
virkni og mikilvirkni hafa ein-
kennt allan hans langa starfsferil.
Eru margar frásagnir af frábær-
um afrekum Guðmundar í iðn
sinni, og enga hefi ég hitt eða
heyrt sem ekki hafa lokið lofs-
orði á verk hans og vantar J>ó
jafnan síst aðfinnslur ef útaf ber
og oft frekar á lofti haldið því
sem miður er heldur en hinu sem
vel er gert.
Munu þeir vera orðnir býsna
margir sem um dagana hafa falið
Guðmundi vandkvæði sín til úr-
lausnar, öruggir um það að ef
hann á annað borð tókst vand-
ann á hendur þá var málinu borg-
ið, og engan hefi ég hitt er orðið
hafi fyrir vonbrygðum. Slíkir
menn eru sómi sinnar stéttar,
enda mun óhætt að fullyrða að
hróður hans hafi víða um land
borizt og er hann mikilsvirtur
af stéttarbræðrum sínum. Hefir
hann fyrir alllöngu verið gerður
að heiðursfélaga í Iðnaðarmanna
félagi Hafnarfjarðar, en hann
var einn af stofnendum þess.
Undirritaður hefir átt J)ví láni
að fagna að eiga samleið með
Guðmundi nú um 20 ára skeið.
Vil ég í tilefni af þessum merku
tímamótum í æfi hans, flytja
honum alúðarfyllstu þakkir, mín-
ar og þess fyrirtækis er hann svo
trúlega hefir starfað hjá um lang-
an tíma, fyrir öll störf hans og
frábæra viðkynningu fyrr og
síðar. Fullvíst er að slíkar þakkir
eru honum leynt eða ljóst færðar
nú af öllum þeim er með honum
hafa starfað eða starfa hans hafa
notið og sem allir minnast hans
með vinsemd og virðingu.
Giftur er Guðmundur, Guð-
rúnu Jónsdóttur, hinni glæsileg-
ustu og ágætustu konu. Hefir
hún verið honum öruggur og
traustur lífsförunautur í yfir
fimmtíu ár. Hefir sambúð þeirra
hjóna verið með ágætum og heim
ili Joeirra jafnan verið með þeim
myndarbrag, sem bezt verður á
kosið. Hygg ég að ekkert sé dreg-
ið úr því, sem fyrr er sagt um
farsæld Guðmundar í margvís-
legum störfum og ákvörðunum,
þótt Jm sé varpað fram í fullri
j einlægni, að í vali konu sinnar
hafi honum J)ó bezt tekizt. Eiga
þau hjón fimm börn öll hin mann-
vænlegustu.
Þrátt fyrir háan aldur er Guð-
mundur ennþá ern og kvikur í
hreyfingum og gengur til starfs
þótt eigi sé það eins samfellt sem
fyrr, sem að verulegu leyti stafar
Jró af því að heldur er eigi mætt
til vinnu ef ekki er talið öruggt
að skilað sé fullkomnu dagsverki.
Að lokum flyt ég svo afmælis-
barninu, Guðmundi Jónssyni,
innilegar hamingjuóskir í tilefni
af þessu merka afmæh. Sam-
gleðst honum með það að geta
á þessum tímamótum horft til
baka yfir óvenjulega langan og
farsælan starfsdag og óska þess
Sundmót Hafnarfjarðar fór fram hér í Sundlauginni s.I. sunnu-
dag og hófst kl. 2 e. h. Veður til keppni var hið ákjósanlegasta,
og árangrar í mörgum greinum mjög góðir. Sundkongur Hafn-
arfjarðar 1950 varð Garðar Sigurðsson og Sunddrottning Hafn-
arfjarðar 1950 varð Sigríður Guðbjörnsdóttir. Fimm Hafnar-
fjarðarmet voru sett á mótinu.
Sundlaug Iíafnarfjarðar
sá um mótið.
Að þessu sinni var efnt til
þessa móts og einnig séð um það
að öllu leyti af Sundlaug Hafnar-
fjarðar, eða réttara sagt fram-
kvæmdastjóra hennar Ingva Rafn
Baldvinssyni og Guðjóni Sigur-
jónssyni, íþróttakennara. 1 fyrstu
var íþróttafélögunum í bænum
boðið samstarf um sundkennslu
fyrir mótið, en daufheyrðust mál
efninu, svo að undirbúningur fór
algerlega fram undir umsjá kenn
ara sundlaugarinnar. Undirbún-
ingur sundmótsins hófst í byrjun
júlímánaðar og var sundfólkinu
gefinn kostur á að æfa tvisvar í
viku fyrir keppnina, því alger-
lega að kostnaðarlausu. Þátttaka
í æfingum þessum var fjölmenn
og árangur hennar eftir því góð-
ur, sem J)átttaka í sundmótinu
sýnir svo og góðir árangrar, sem
náðust á mótinu. Eiga framan-
greindir sundkennarar Ingvi
Rafn og Guðjón Sigurjónsson
mikið lof skilið fyrir dugnað og
áhuga fyrir því að auka vinsæld-
ir sundsins meðal Iiafnfirðinga
bæði með dagfarslegri prúð-
mennsku sinni í starfi, sem og því
að stuðla að og sjá um að vegleg
og skemmtileg sundmót sem
J)etta Sundmót Hafnarf jarðar
geti farið fram í Sundlauginni,
og þar með Hafnfirðingum gef-
inn kostur á að sjá unga og efni-
lega sundmenn og konur þreyta
kapp í þessari skemmtilegu og
hollu íþróttagrein, sem með svo
réttu hefur verið nefnd „íþrótt
íj)róttanna.“
Úrslit í hinum ýmsu greinum
200 m. frjáls aðferð — konur
1. Sigríður Guðbjörnsdóttir
4.04,3 mín. (nýtt Hafnarfjarðar-
met).
2. Guðríður Guðmundsdóttir
4.06,5 mín.
3. Sigríður Sigurbjörnsdóttir,
4.14,1 mín.
I þessu sundi er keppt um bik-
ar sem Grímur heit. Andrésson
gaf, og fylgir honum sæmdarheit-
ið Sunddrottning Hafnarfjarðar.
Sigríður er því Sunddrottning
Hafnarfjarðar 1950, og hefir því
unnið þann titil í annað sinn þar
sem hún sigraði í þessu sundi
einnig í fyrra og í þetta sinn bætti
hún tíma sinn, sem var Hafnar-
fjarðarmet 4.05,6 og synti vega-
lengdina á nýju meti 4.04,3 mín.
100 m. bringusund — konur.
1. Guðbjörg Guðmundsdóttir
að heill og hamingja megi jafnan
fylgja honum og heimili hans.
Stefán Jónsson
1.54,6 mín. (nýtt Hafnarfjarðar-
met).
2. Sigríður Guðbjörnsd. 1.56,6
mín.
3. Sigríður Sigurbjörnsdóttir
1.58,0 mín.
Gamla metið í þessu sundi átti
Sigríður Sigurbjörnsdóttir 1.55,0
mín.
50. m. bringusund 12—15 ára
stidkur.
1. Ágústa Kristjánsdóttir 0.52,9
mín.
2. Sæunn Jónsdóttir 0.53,0
mín.
200 m. frjáls aðferð — karlar
1. Garðar Sigurðsson 3.24,1
mín.
2. Þórir Sigurðsson 3.35,8 mín.
I þessu sundi er keppt um bik-
ar er Grímur Andrésson gaf, og
fylgir honum sæmdarheitið Sund
konungur Hafnarfjarðar 1950.
Garðar er mjög efnilegur ungur
sundmaður sem með góðri æf-
ingu og tilsögn ætti að geta náð
góðum árangri. Sund þetta vann
í fyrra Björn Eiríksson, en gat
J)ví miður ekki vegna veikinda
varið titilinn, en Björn er sem
kunnugt er einn með efnilegustu
sundmönnum hér í Hafnarfirði,
og hefði því orðið skemmtileg og
tvísýn keppni ef þeir Garðar
hefðu getað verið báðir með í
sundinu.
100. m. frjáls aðferð — karlar.
1. Þorleifur Jónsson 1.29,8 mín
2. Þorsteinn Jónsson 1.33,9
mín.
500 m. bringusund — karlar.
1. Þljörleifur Bergsteinsson
9.29,2 (Nýtt Hafnarfjarðarmet).
2. Jón Pálmason 9.41,3 mín.
3. Sófus Berthesen 17.29,9
mín.
Þetta sund var án efa mest
spennandi af sundgreinunum,
því þótt sundið sé langt og reyni
á þolrif keppendanna, þá var
keppnin hörð og tvísýn hjá fyrsta
og öðrum manni, allt til síðustu
100 m. að Hjörleifur fór að fá
yfirhöndina í sundinu og sigraði
að lokum með tæpri hálfri laugar
lengd á undan Jóni. Tíminn í
sundinu má teljast frekar góður,
og J)ó sérstaklega af Hjörleifs
hálfu, þar sem hann er aðeins 15
ára gamall. Báðir syntu þeir Jón
og Hjörleifur undir gamla met-
tímanum, sem Jón átti en hann
var 9.43,0 mín.
Milli tími Iljörleifs á 400 m.
var 7.32,3 mín. og er talinn vera
fimmti bezti tími er náðst hefir
á Joeirri vegalengd í ár. Má sigur
Hjörleifs teljast glæsilegur, er
tekið er tillit til aldurs hans,
kennslu, æfingar og keppnis-
reynslu. Þó tel ég að Hjörleifur
ætti að fara varlega í að Jireyta
svo löng sund, nema með eftiliti
sérfróðra manna, J)ví ekki er víst
nema að það kæmi honum síðar
meir í koll. 100 og 200 m. bringu-
sund hafa reynst fullerfið góðum
mönnum hingað til, og ætti J)að
J)ví að vera fyrsta verkefni ungra
drengja að finna réttan, góðan,
fallegan og árangursríkan sund-
stíl, með góðri æfingu áður en
lagt er út í lengri vegalengdir,
þótt kraftur og geta virðist vera
nóg til að geta synt alla Ieið.
50. m. frjáls aðferð — karlar.
1. Þorleifur Jónsson 0.34,3
mín.
2. Garðar Sigurðsson 0.34,9
mín.
3. Karl Stefánsson 0.36,9 mín.
50. m. bringusund 12—15 ára
drengir.
1. Ragnar Magnússon 0.45,3
mín. (nýtt Hafnarfjarðarmet).
2. Óskar Pétursson 0.52,9 mín.
3. Guðmundur Hermannsson
1.00,2 mín.
Gamla metið 0.46,6 mín átti
Hjörleifur Bergsteinsson.
25. m. baksund — drengir.
1. Þórir Sigurðsson 0.23,0 mín.
(nýtt Hafnarfjarðarmet).
2. Ragnar Magnússon 0.28,3
mín.
Gamla metið í þessu sundi
0.26,6 mín. átti Hjörleifur Berg-
steinsson.
Silfurpeningar og bikarar.
Verðlaun mótsins voru sem
fyrr hin glæsilegustu. Auk bikara
þeirra sem Grímur heit. Andrés-
son gaf til sundkeppni hér í
Hafnarfirði, var keppt um bikar
í 500 m. sundinu, sem Halldór
Hallgrímsson gaf. Jón Pálmason
vann þann bikar í fyrra og hitt eð
fyrra, svo ef hann hefði unnið nú
hefði hann unnið bikarinn til
fullrar eignar, en reglugerð bik-
arsins segir svo að bikarinn vinn-
ist til fullrar eignar ef unnin er
af sama manni þrisvar í röð eða
fimm sinnum alls. Svo að Jón
Pálmason hefir, ef hann æfir vel,
mikla möguleika á að vinna bik-
arinn til fulhar eignar.
Þeir sem sáu um mótið höfðu
látið gera afar vandaða og smekk
lega silfm-peninga sem voru veitt-
ir sem 1. og 2. verðlaun í hverju
sundi, og voru þeir veittir til
fullrar eignar. Verðlaunin afhenti
Ingvi Rafn, nema bikara 200 m.
sundsins, J)á afhentu starfstúlkur
Sundlaugarinnar.
Gríms Andréssonar minnst.
Plermann Guðmundss., varaf.
l.B.H. setti mótið. Um leið og
bikarar 200 m. sundsins voru af-
hentir minntist hann gefandans
Gríms heit. Andréssonar, sem nú
nýlega er látinn. Eins og kunnugt
er öllum Hafnfirðingum var
Frarnh. á bls. 4