Hamar - 25.10.1954, Page 1

Hamar - 25.10.1954, Page 1
Ásgeir G. Stefánsson lætur af framkvæmdar- st j órastörf um við Bæjarútgerðina fyrirvaralaust Afleiðingariiar af Biinum geysi miklu átökiim, sem iirðu á milli Kommnnistii oj; Alfi.vðu- flokksins liér i bæ eru að komsi í Ijos, en ]»á mun lisifa verið sætzt á það, að Ísgeir léti af sítörfum. þé að ætlunin liafi verið sií, að liann yrði til áramóta. Á útgerðarráðsfundi, sem haldinn var s. I. mánudag sagði Ásgeir G. Stefánsson af sér framkvæmdarstjóra- störfum við Bæjarútgerð Hafnarfjarðar og óskaði eftir að fá að losna þá þegar. Var sú beiðni Ásgeirs tekin til greina og Sigurði L. Eiríkssyni falið að gegna fram- kvæmdarstjórastörfum með Illuga Guðmundssyni, fyrst um sinn, en Kristinn Gunnarsson, var jafnframt ráðinn framkvæmdarstjóri Bæjarútgerðarinnar og á hann að taka við, þegar hann getur losað sig úr því starfi, sem hann gegnir nú hjá Sambandi ísl. samvinnufélaga, en þar hef- ur hann verið starfsmaður að undanförnu. Mikil átök. Eins og frá var sagt í síðasta tbl. Hamars urðu mjög mikil á- tök á milli samstarfsflokkanna hér í bæ, krata og komma. Varð það ósamkomulag aðallega út af Bæjarútgerðinni. Þegar flokkar þessir sömdu um það að stjórna bænum í sameiningu þetta kjör- tímabil mun hafa verið lætt inn í samningana, að Asgeir G. Stef- ánsson, sem rekið hefur umfangs mikla’einkaútgerð við hlið Bæj- arútgerðarinnar, yrði að láta af stjórn hennar og helga krafta sína einvörðungu Bæjarútgerð- inni. Talið er, að Alþýðuflokks- menn, undir forystu Emils Jóns- sonar, hafi samið um þetta at- riði, án þess að ræða það við Verlíun síldaraflans Verkun síldaraflans hér í bæ skiptist þannig: Saltaðar voru alls 9516 tunn- ur. Voru 2075 tunnur saltað- ar hjá Bátafélagi Hafnarfjarðar, 1487 tunnur hjá Fiski h.f., 880 tunnur hjá Guðmundi Þ. Magn- ússyni og 5074 tunnur hjá Jóni Gíslasyni. Frystar voru 9260 tunnur, sem skiptast þannig á milli frystihús- anna: Fiskur h.f. 2600 tunnur, Frost h.f. 3360 og íshús Hafnar- fjarðar h.f. 3300 tunnur. Lýsi & Mjöl h.f. hefur tekið á móti 6550 málum í bræðslu. Ásgeir og hann hafi því ekki um það vitað fyrr en nú fyrir skömmu, er Kommúnistar kröfð- ust þess, að það kæmi til fram- kvæmda. Vildi Ásgeir þá ekki ganga inn á slíkt og sagðist ekki hafa lofað neinu þar um. Voru þá sumir Alþýðuflokksmenn þannig sinnaðir, að þeir vildu láta þar við sitja, og urðu þá stór átök á milli samstarfsflokk- anna. Munu hafa sent bréf. Kommúnistar vildu ekki láta beygja sig í þessum efnum, enda því ekki vanir síðan sam- starfið hófst, að Alþýðuflokks- menn stæðu lengi fast á skoð- un sinni, þar sem hún var ekki í samræmi við vilja kommún- ista. Á það lagið mun líka hafa verið hlaupið og er talið full- víst, að kommúnistar liafi sent Alþýðuflokknum bréf, þar sem því var yfirlýst, að sam- starfinu í stjóm bæjarmálanna væri lokið. Munu þá kratarn- ir hafa orðið alvarlega hrædd- ir og var hver fundurinn hald- inn eftir annan og munu þeir svo hafa viljað vinna það til áframhaldandi samvinnu við komma, að framfylgja út í æs- ar fyrrnefndu atriði í samn- ingum varðandi Ásgeir G. Stef ánsson og einkaútgerð hans. Kaus að hætta. Þegar til kasta Ásgeirs kom mun honum hafa þótt, að Al- þýðuflokksmenn sýna sér nokk- uð mikið vantraust að ganga inn á slíka samninga við komm- únista. Mun hann ekki hafa vilj- að undirstrika það vantraust sjálfur með því að sleppa af hendi stjórninni á sínu eigin fyrirtæki og kaus heldur að hrökklast frá Bæjarútgdrðinni, sem hann hefur verið fram- kvæmdarstjóri fyrir frá því að hún var stofnuð 1931. Hlutur formanns útgerðarráðs. Fólki þykir hlutur formanns útgerðarráðs, Emils Jónssonar, vera fremur smár í þessum efn- um, að hann skuli geta gengið svo langt ,.sem hér virðist vera gert, hvað það snerti, að Ás- geir færi frá störfum. Emil hef- ur verið sameignarmaður Ás- geirs í einkaútgerðinni og jafn- framt formaður í útgerðarráði. Þeir hafa því verið nánir sam- starfsmenn og það telja margir, að það hefði verið formanni út- gerðarráðs mest til sæmdar, að hann hefði staðið gegn þessum aðförum að Ásgeiri og látið eitt yfir báða ganga. En það fór nú ekki svo, heldur reynir hann að fljóta sjálfur svo lengi sem fært er. Reiðir Hamri. Bæði Alþýðuflokksmenn og Kommúnistar eru mjög reiðir Hamri fyrir það, að hafa skýrt bæjarbúum frá málum þess- um. Braust það út í svo mikl- um sárindum hjá þeim Krist- jáni Andréssyni og Illuga Guð mundssyni, að þeir gáfu þá yf- irlýsingu á útgerðarráðsfund- inum, að það væri ekki sam- kvæmt þeirra óskum, að Ás- geir G. Stefánsson léti af störf- um. Ottast þeir mjög, að þess- ar þvingunarráðstafanir þeirra mælist fremur illa fyrir meðal bæjarbúa, enda þótt Ásgeir sé mjög umdeildur maður. Jafn- framt hafa þeir með þessari (Framhald á bls. 3) Skólabörnum veitt leiðsögn í ráðdeild og sparnaði Að undanförnu hefur verið unnið að undirbúingi að spari- fjárstarfsemi þeirri, sem hefur verið valið heitið „Sparifjársöfn- un skólabarna" en hlutverkið er, að veita börnum leiðsögn í ráð- deild og sparnaði. Verkefni hefur verið veru- legt, þar sem til stendur að stofna til 18.000 nýrra spari- sjóðsbóka við allar innlánsstofn- anir landsins, svo og að byggja upp sparimerkjakerfið, sem á nú í vetur að ná til um 12.000 barna í kaupstöðunum. Er framlag og vinna allra innlánsstofnana í landinu mjög mikil við þessa starfsemi. Málið hefur ennfrem- ur verið undirbúið í skólunum og meðal almennings. Hefur Snorri Sigfússon ferðast um land ið og haldið fundi með skólastjór um og kennurum. Er mikið í húfi að fá alla skóla og kenn- ara með í starfið, ef góður árang ur á að nást. Menntamálaráð- herra og fræðslumálastjóri hafa báðir veitt málinu fylgi og sam- þykki er fengið fyrir því, að sala sparimerkja megi fara fram í kennslustund einu sinni í hálf- um mánuði, en æskilegt væri, að hinum leyfða tíma til þessa væri skipt í tvennt, þannig að fræðsla í sparnaði samfara sölu spari- merkja megi fara fram einu sinni í viku. I framkvæmd er sparifjárstarf semin tvíþætt og nauðsynlegt að foreldrar barna og kennarar kynnist máli þessu sem bezt og þá einkum eftirfarandi atriðum: Gjafabókin. Landsbanki Islands gefur nú í haust öllum börnum í landinu á barnaskólaaldri, 7—12 (eða 13) ára, 10 krónur til stofnunar sparisjóðbókar, en foreldrar barnanna velja þá innlánsstofn- un (banka, sparisjóð eða innláns deild kaupfélags), þar sem bók- in á að vera. Jafnframt er það foreldranna að velja fyrir börn sín, hvort gjafabókin á að vera 10 ára sparisjóðsbók, sem nú er með 7% ársvöxtum, eða bók bundin af 6 mánaða uppsagnar- fresti, sem nú er með 6% árs- vöxtum, en um þessar tvær teg- undir bóka er að ræða, sem gjafaféð fer í. Ef börnin eiga slíkar bækur fyrir, má leggja 10 krónurnar frá Landsbankanum inn á þær. Börn á barnaskólaaldri í Rvík, sem ekki eru í barnaskólum, fá sína gjafabók í Landsbankanum. Aðferðin við stofnun gjafabók anna er sú, að börnunum verða afhentar í skólunum sérstakar ávísanir. Ber að framvísa þeim (Framliald á bls. 3) Afli Hafnarfjarðarbáta Hafnarfjarðarbátar hafa nú hætt síldarveiðum og hefur heildarafli þeirra báta, sem lagt hafa upp hér í bæ orðið sem næst því er hér segir talið í tunnum: Andvari .....'.. 2965 Fagriklettur .... 1417 Fiskaklettur ... 2168 Fjarðaklettur .. . 1340 Fram............ 2834 Fróðaklettur .. . 2305 Guðbjörg ....... 1310 Hafbjörg ....... 2340 Hafdís ......... 4000 Hafnfirðingur . . 2551 Hreggviður .... 1400 Stefnir ........ 2006 Örn Arnarson .. 1500 Frá liöfiiinni Júlí landaði hér 319 tonnum af karfa 7. okt., Ágúst 170 t. 12. okt., Júní 160 t. 19. okt., Bjarni riddari 275 t. 20. okt. og Júlí landaði ca. 300 t. hér og á Akranesi 21. okt. Surprise kom hér 19. okt á leið til Þýzkalands með ca. 200 tonn. Fjallfoss tók hér skreið 10. okt., Katla tók saltfisk 13. okt., Dísafell tók skreið 13. okt., Bes lestaði þurrkaðan saltfisk 16. okt, Drangajökull tók frosinn fisk 21. okt og Goðafoss lestaði skreið 21. okt.

x

Hamar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hamar
https://timarit.is/publication/800

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.