Hamar - 25.10.1954, Síða 2

Hamar - 25.10.1954, Síða 2
2 HAM AR HAMAR ÚTGEFANDI: Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Páll V. Daníelsson. (Símar 9228 - 9394). AFGREIÐSLA í Sjálfstæðishúsinu, Strandgötu 29. HAMAR kemur út annan hvern mánudag. Áskriftarverð kr. 20.00 á ári. Lausasala 1 króna. PRENTAÐ í PRENTSMIÐJU HAFNARFJARÐAR H.F. i.-----------------------------------------------------♦ Miiinkaiifli fylgi samstjórnarflokkanna Þau tíðindi, að Asgeir G. Stefánssyni framkvæmdarstjóra Bæj- arútgerðarinnar var vikið úr starfi af kommúnistiun og Emil Jónssyni hefur vakið mikla athygli í bænum. Finnst fólki, sem vonlegt er, að Alþýðuflokkurinn gangi nokkuð langt í því að þóknast kommúnistum í samstarfinu. Er engu líkara en komm- únistar hafi fengið í hendur eitthvað, sem Alþýðuflokkurinn vill ekki að komi fram í dagsljósið og því sé beitt án miskunnar til að beygja flokkinn til hlýðni við kommúnista. En undanlátssemi kratanna við kommúnista er skammgóður vermir. Þeir færa sig upp á skaftið og gera meiri og meiri kröf- ur eftir því, sem Alþýðuflokkurinn lætur meira undan. Það er talið fullvíst, að hefðu kratar haft manndóm til að neita kröfum kommúnista um brottvikningu Asgeirs hefðu þeir aldrei þorað að rjúfa samvinnuna af þeirri einföldu ástæðu, að þeir vissu, að þá var spilið að fullu tapað og þeir hefðu oltið út úr bæjar- stjórninni í næstu kosningum við lítinn orðstí. Þegar litið er á málin frá þessu sjónarmiði, þá er ekki að furða, þó að sú spurning vakni, hvort Emil hafi ekki verið svona sátt- fús við kommúnista af þeirri einföldu ástæðu, að hann hafi vel getað unað því að losna við valdamann í Alþýðuflokknum, sem ekki hlýddi skilyrðislaust boði hans og banni. En hvað sem því líður, þá verður útkoman af öllu þessu brölti sú, að hafnfirzkir kjósendur hafa hina mestu skömm á sam- stjórnarflokkunum báðum, kommúnistum fyrir það að beita tak- markalausum yfirgangi í því að hugsa um það eitt að koma mönnum sínum í stöður og Alþýðuflokknum fyrir þann aum- ingjaskap að láta kommúnista fara með sig eins og dulu í öllum atriðum, sem máli skipta. Það var álit fólks, að stjórnin á málefnum bæjarins gæti ekki orðið verri en hún var hjá Alþýðuflokknum, en það álit er orð- ið breytt. Nú sér fólkið að vont gat versnað og manndómsleysið og aumingjaskapurinn aukizt, enda hittast varla svo menn, að þeir telji ekki að þetta sé síðasta kjörtímabilið, sem sósíalistiskir afturhaldsflokkar fái nokkru ráðið um stjórn bæjarmálanna hér í bæ, þar sem krafan um auknar framfarir og betri stjórn er stöðugt að verða háværari með hverjum deginum, sem líður. Gcngið á rétt ■iiiiiiiililiiiaiis Það hefur verið regla hjá Alþýðuflokknum í bæjarstjórn að ráða málefnum bæjarbúa sem mest án þess að minnihluta flokk- arnir hefðu nokkra aðstöðu til að taka málin til athugunar áður en afgreiðsla fór fram. Þannig var það jafnan, að slík mál voru fyrst borin fram í bæjarráði degi áður en þau skyldu afgreiðast í bæjarstjórn. Kristján Andrésson kvartaði sáran undan þessari meðferð mála og vildi hafa hlutina þannig að nokkur tími gæfist til athugunar og umhugsunar áður en til fullnaðarafgreiðslu kæmi. Það hefði því mátt ætla að nokkur bót yrði á þessu ráðin með tilkomu Kristjáns í meirihlutaaðstöðu. En það virðist síður en svo. Sami hátturinn er hafður á og áður og Kristján talar aldrei um að það þurfi að virða rétt minnihlutans í þessum efnum. Þegar hinn frægi útgerðarráðsfundur var boðaður, þar sem aðalefnið var að leysa Ásgeir G. Stefánsson frá störfum og ráða nýjan framkvæmdarstjóra var því vandlega leynt að nokkuð slíkt lægi fyrir fundinum. Annar, sem spurður var að því, hvaða mál kæmu til umræðu, sagði að það ætti að ræða um reksturinn, en hinn að það ætti að leggja fram reikninga síðasta árs, en vandlega var þagað um aðal verkefni fundarins. Eru slík vinnubrögð hreint brot á öllum lýðræðisreglum, en hæfa hins vegar vel þeim Emil Jónssyni og Kristjáni Andréssyni. Sjálfstæðismenn í útgerð- arráði mótmæltu slíkum vinnubrögðum og óskuðu eftir frestun á ráðningu framkvæmdarstjóra. Kristján Andrésson lýsti því þá yfir að meirihlutinn hefði valdið og það yrði enginn frestur gef- inn því það gæti orðið til þess að einhverjir færu að sækja um starfið en slíkt samrýmdist ekki vilja meirihlutans. Þannig eru vinnubrögð þeirra rekkjunautanna Emils og Kristjáns. Bjnrni M. Jóbannesson mimiinar Bygging verbúða Eftirfarandi bókun úr fundar- gerðum bæjarráðs var samþykkt á síðasta bæjarstjórnarfundi: Jón Gíslason sækir með bréfi dags. 14. sept. s. 1. um lóð undir verbúðir og beitningarhús á lóð þeirri, er hann hafði fengið leigða fyrir fiskhjalla og er merkt K á uppdrætti. Samþykkt að leggja til við bæjarstjórn, að orðið sé við er- indi þessu, þannig að lóðin verði leigð til 30 ára, ef lóðin er fyr- ir hendi og eftir nánari tilvísun bæ jar verkf ræðings.“ ‘Eins og fram kemur í erindi þessu ætlar Jón Gíslason að koma upp verbúðum fyrir nokkra báta og er bygging þeirra þegar hafin. Eins og kunn ugt er, þá má segja að ekki séu til verbúðir í bænum. Að vísu hefur verið reynt að notast við Svendborgina fyrir verbúðir, en þær eru mjög ófullnægjandi og tæpast mannabústaðir, enda allt of fáar fyrir þann bátaflota, sem gerður er út á vetrarvertíð hér í bæ. Verbúðir þær, sem Jón Gísla- son er byrjaður að byggja koma til með að rúma 50 til 60 manns, auk þess, sem þar verða tvær fáðskonur, rúmgott eldhús og matsalur og hreinlætisherbergi. Þá ætlar Jón einnig að byggja beitningarskýli. Það er ætlunin að byggingum þessum verði lok ið fyrir næstu vetrarvertíð. Vetrarstarf íþróttafélaganna er hafið og hefur Iþróttabanda- lag Hafnarfjarðar úthlutað þeim tímum til æfinga í fimleikasal barnaskólans eins og hér segir. Haukar. Æfingatímar lijá Haukum eru á þriðjudögum kl. 7,00—8,30, miðvikudögum kl. 8,30—9,15 og föstudögum kl. 8,30—10,00. — Haukar æfa handknattleik og leikfimi og er Hörður S. Oskars- son kennari. Fimleikafélag Hafnarfjarðar. F. H. hefur æfingathna á mánudögum kl. 8,30—10,00, miðvikudögum kl. 9,15—10,00 og fimmtudögum kl. 7,00-10,- 00. F. H. æfir handknattleik, leikfimi og frjálsíþróttir. Kenn- arar eru: Hallsteinn Hinriksson, Sigurður Friðfinnsson og Ingv- ar Hallsteinsson. Ernir. Fimleikafélagið Ernir hefur æfingatíma þriðjudaga kl. 8,30 —10,00 og föstudaga kl. 7,00— 8,30. Kenndir verða fimleikar og er Guðjón Sigurjónsson kennari. Björk. Fimleikafélagið Björk æfir fim leika á mánudögum kl. 7,00—- 8,30 og miðvikudögum kl. 7,00 —8,30. Kennari er Þorgerður M. Gísladóttir. Margan mun hafa sett hljóð- an fimmtudaginn 14. þ. m., þegar sú fregn barst um bæinn að Bjarni M. Jóhannesson væri dáinn, svo stutt var síðan hann gekk til vinnu sinnar glaður og áhugasamur eins og hans var vandi. En þetta var staðreynd. Hann ándaðist á Landsspítal- anum eftir stutta legu og var jarðsettur 21. þ. m. Með Bjarna er fallinn í valinn, ekki aðeins einn af beztu full- trúum sjómannastéttarinnar, heldur einn af beztu sonum þjóðarinnar, sístarfandi atorku- maður, sem aldrei mátti vamm sitt vita og var alltaf reiðubú- inn til hvers, er hann vissi að var til heilla. Sundhöllin. Sundfélag Hafnarfjarðar hef- ur fengið æfingatíma í sundhöll- inni á mánudags- og miðviku- dagskvöldum kl. 7,30—9,30, kennari er Hörður S. Óskarsson og Haukar hafa æfingatími í sundi á þriðjudags- og fimmtu- dagskvöldum kl. 7,30—9,30, kennari er Ólafur Guðmundsson. Þeir, sem ætla að taka þátt í æfingum fyrrnefndra félaga þurfa að gefa sig fram á þeim tímum, sem upp eru gefnir hér að framan hjá þeim félögum, sem þeir ætla að æfa hjá. Listdanskennsla Tónlislarskólans Listdanskennsla á vegum Tónlistarskóla Hafnarfjarðar er nú hafin og verður hún á þriðju dögum og föstudögum kl. 5—7 í Sjálfstæðishúsinu. Kennari er Björg Bjarnadóttir frá Reykja- vík. Kennt er í tveimur flokkum yngri og eldri og eru 15 í eldri deild, en um 30 í byrjendadeild inni. Miðað við að kenna í þess- um tveimur flokkum, þá er orð- ið fullskipað, en nemendur eru samt teknir á biðlista, og komi nógu margir, þá verða athugað- ir möguleikar á því, að bæta einum flokki við. Á fermingaraldri byrjaði Bjarni að stunda sjó og var sjó- mennskan ævistarf hans upp frá því. Hann tók próf frá Stýri- mannaskólanum 1915 og sigldi, t. d. bæði stríðstímabilin, ýmist á togurum eða fiskflutningaskip um sem bátsmaður eða stýrimað ur. Hann var einn með harðdug legustu mönnum, ósérhlífinn og verkhagur. Það var því engin furða þótt hann væri eftirsóttur í skiprúm. Ganga ýmsar sögur um afrek Bjarna og úthald frá þessum tímum, þegar vökulög þekktust ekki á togurum og all- ir urðu að vinna, þar til kraftar voru á þrotum. Þar þurfti karl- mennsku til og ekki er ósenni- legt, að þeir, sem þar voru á há- tindi, hafi orðið örþreyttir fyr- ir tímann. Bjarni var fæddur að Hesti í Önundarfirði 16. apríl 1890, son ur hjónanna Jóhannesar Krist- jánssonar og Jónínu Sveinsdótt- ur, sem bjuggu þar. Hinn 25. september 1920 íhittist Bjarni til Hafnarfjarðar og gekk að eiga heitmey sína, Stefaníu Magnúsdóttur frá Skuld í Hafn arfirði. Árið 1925 byggðu þau húsið við Suðurgötu 13 og hafa búið þar síðan. Þeim varð 9 barna auðið. Stúlku, sem hét Ás- laug Þóra misstu þau 8 ára gamla og aðra stúlku misstu þau nýfædda. Hin, sem eftir lifa eru Jóhannes, forstjóri í Reykjavík, Magnús skrifstofumaður, Guð- laug, frú í Californíu, Gunnar Hafsteinn verkfræðingur, Jónína Margrét skrifstofustúlka, Mar- grét Dagbjört stúdent og Sig- urður Oddur nemandi í Stýri- mannaskólanum. Það mun ekki ofsagt., að heim- ilið á Suðurgötu 13 hafi verið til fyrirmyndar og það sannar bezt hinn myndarlegi barnahóp- ur, sem þrátt fyrir alla erfið- leika á uppvaxtarárunum, hefur hlotið meiri menntun en al- mennt gerist, en þar kemur stór hugur og atorka foreldranna bezt í ljós, sem hvorttveggja var til í ríkuin mæli. Það er því bjart yfir minn- ingunum um Bjarna Jóhannes- son og þætti hans í lífinu. Þótt sorgin sé sár eftir svona snögg umskipti — hjá því verður ekki komizt — þorna tárin og gróa sárin fyrr, fyrir þá bjargföstu fullvissu, að starfsdagurinn hafi verið nýttur til hins ýtrasta og árangurinn sé blessun fyrir þá, sem lifað var fyrir. Vinur. Fjölsótt spilakvöld Síðasta spilakvöld Sjálfstæð- isfélaganna var mjög fjölsótt og verður næst spilað á miðviku- daginn kemur kl. 8,30 í Sjálf- stæðishúsinu. Spiluð verður fé- lagsvist og verðlaun veitt. Bókasafn Hafnarfjarðar er opið til útlána kl. 5—7 alla virka daga, enn fremur frá kl. 7—9 á mánudögum og fimmtudögum. Frá íþróttafélögunum

x

Hamar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hamar
https://timarit.is/publication/800

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.