Hamar - 25.10.1954, Qupperneq 3

Hamar - 25.10.1954, Qupperneq 3
HAMAR 3 - Asffeir lætur af störfum (f ramhald af bls. 1) yfirlýsingu verið að svínbeygja Alþýðuflokksmennina ennþá meira en áður, því að slík um- mæli benda til þess, að kratar hafi kurteislega boðið það, að láta Ásgeir hætta störfum. Það að Asgeir hafi hætt af öðr um ástæðum þýðir ekki að segja fólki með fulla skynsemi, því að allir vita, að Ásgeir G. Stef- ánsson er ekki sá maður, að hann færi að rjúka frá Bæjarút- gerðinni fyrirvaralaust, ef hann væri að hætta vegna aldurs. — Hann hefur viljað Bæjarútgerð- inni það vel, að hann hefði þá gefið stjórn hennar tóm til að hugsa málin og sagt upp með liæfilegum fyrirvara, ekki sízt, þegar fjárhag hennar er komið eins illa og raun er á. Slík bylt- ing, sem hér um ræðir getur haft hinar alvarlegustu afleið- ifigar fyrir Bæjarútgerðina, enda er orsök hennar allt önnur en aldur og heilsufar Ásgeirs. Reynt að fá Ásgeir til að vera fram að áramótum. Mjög mun hafa verið lagt að Ásgeiri að vera fram að áramót- um til þess að ekki yrði eins opinbert hvað væri raunveru- lega að ske. En til þess mun hann hafa verið með öllu ófáan- legur eftir það, að samstjórnin undir forystu Kristjáns og Em- ils bar ekki fullt traust til hans við Bæjarútgerðina. Verður sam stjórnin því að bergja þann beiska bikar í botn, að mál þetta hefur allt opinberast, svo að bæjarbúar geti gert sér fulla grein fyrir því sém er að gerast. Hvers vegna ekki Adólf? En þegar Ásgeir er hættur, þá spyrja margir, bvers vegna að Adólf Björnsson taki ekki við framkvæmdastjórn Bæjar- gerðarinnar. Adólf hefur eins og kunnugt er, hlaupið í skarð ið, þegar Ásgeir hefur vörið fjarverandi og verður ekki annað sagt en að hann hafi sýnt dugnað og árvekni í því starfi og er hann því málum Bæjarútgerðarinnar gagnkunn ugur. En framhjá honUm ejr gengið og ráðinn maður, sem aldrei hefur svo vitáð sé stjórnað útgerð eða fiskverk- un. Hvað veldur slíku? Er það satt, sem heyrzt hefur, að hann muni ekki hafa verið tal- inn heppilegur vegna þess, að hann mundi ekki skilyrðislaust hlýða þeim Kristjáni Andrés- syni og Emil Jónssyni? Um þetta verður ekkert sagt með vissu ennþá sem komið er, en sjálfsagt skýrast þær lín- ur áður en langt um líður. Lítið þekktur. Kristinn Gunnarsson, sem ráð- inn hefur verið framkvæmdar- stjóri Bæjarútgerðarinnar er ættaður frá Isafirði, hagfræðing- ur að mennt, en eins og áður er sagt hefur hann ekki svo vitað sé fengizt við útgerð eða fisk- verkun. Er hann því algert barn í þeim efnum og mun þurfa mik ið að læra. en á meðan .ráða kommar lögum og lofum í Bæj- arútgerðinni og reyna að koma ár sinni sem bezt fyrir borð. Hefur fengizt við pólitík. En Kristinn Gunnarsson hef- ur fengizt nokkuð við pólitík. Hann var í framboði i Norður- Isafjarðarsýslu fyrir Alþýðu- flokkinn í síðustu alþingiskosn- ingum og hlaut þar svipaða út- reið og Olafur Þ. Kristjánsson í V.-ísafjarðarsýslu„ sem frægt var. Áður hafði Kristinn unnið sér það til ágætis að stuðla að því, að Hannibal Valdimars- son kæmist til valda í Alþýðu- flokknum, en þegar fór að halla undan fæti fyrir Hannibal, stökk Kristinn af skútunni og hallaðist á sveif með meirihlutanum, hef ur að sjálfsögðu talið léttara að róa þannig. Á þessum pólitíska ferli Kristins sézt það vel að hann er sannur krati, enda mun hann ætla sér nokkurn pólitísk- an frama hér í bænum. Þá mun vera ætlunin að borga manni þessum það góð laun fyrir störf sín, að hann sprengi þann launastiga, sem gilt hefur um laun starfsmanna bæjarins og er SVIKIN STEFHDSKRA Því hefur verið yfirlýst í Þjóðviljanum, að Alþýðu- flokkurinn hafi gengið inn á stefnuskrá þá, sem Komm- únistar settu fram fyrir bæj- arstjómarkosningamar, þeg- ar samstarf hófst á milli þess- ara flokka um stjórn bæjar- málanna. I þessari stefnu- skrá eru ýms atriði tiltölu- lega auðveld í framkvæmd, þó að hins vegar bóli lítið á aðgerðum. Einn liðurinn hljóðar svo: „Byggðar verði nýjar verbúð ir og bátabryggjur." Ekki hefur það sést, að neitt hafi verið gert í þessum efnum af hálfu bæjarins, en hins veg ar hafa menn fengið neitun, þegar til bæjaryfirvaldanna hefur verið leitað um fyrir- greiðslu með verbúðir. Það er lögð meiri áherzla á það, að eignast nokkur lömb í Krýsuvík, fáum mönnum að leik, en engum til gagns, heldur en að stuðla að því, að bæjarbúar hafi viðunan- lega aðstöðu til að afla fiskj- ar og efla atvinnulífið í bæn- um. Þannig er svikið það sem var lofað, en gerðir þeir hlut- ir, sem ekki var þorað að'' minnast á fyrir kosningar. — Virðast kratar og kommar þannig innilega sammála um að halda þeim leik áfram að gera allt aðra hluti, en kjós- endur ætluðust til. hætt við, að það leiði til al- mennra launalækkana hjá bæ og bæjarfyrirtækjum, þannig að koma hans muni þyngja útsvör bæjarbúa allmiklu meira en húsaleigustyrkur bæjarstjórans á sínum tíma. Tvímenningskeppnin Eftir fjórar 'umfprðir í tví- menningskeppni Bridgefélags Hafnarfjarðar er staðan þannig: 1. Reynir Eyjólfsson og Krist- ján Andrésson með 603 stig; 2. Hörður Þórarinsson og Olafur Ingimundarson, 562; 3. Ámi Þorvaldsson og Kári Þórðarson, 546; 4. Jón Guðmundsson og Björn Sveinbjörnsson, 500; 5. Páll Böðvarsson og Haukur Guðmundsson, 498/2; 6. Hall- dór Bjarnason og Hörður Guð- mundsson, 496/2; 7. Pálmi Jóns- son og Bjarni Marteinsson, 495/2 og 8. Kjartan Markússon og Viggó Björgúlfsson 494 stig. Ein umferð er eftir og verður hún spiluð n. k. þriðjudag kl. 20.00 í Alþýðuhúsinu. Næsta keppni verður svo hin árlega firmakeppni, og hefst hún þegar að þessari keppni lokinni. - Sparifjársöfnunin (Framhald af bls. 1) í þeirri innlánsstofnun, sem við- komandi óskar að skipta við, gegn innborgun inn á þá spari- sjóðsbók, sem barnið hefur átt fyrir. En áður en ávísunum er framvísað í innlánsstofnun, verð ur foreldri eða forráðamaður barns að hafa kvittað á þær, og jafnframt gefið þar til kynna, hvora tegund sparisjóðsbókar barnið eigi að fá með því að strika undir 10 eða 6 á ávísun- inni. Sé þetta gert rétt á heim- ilum mega börnin sjálf fara ein í sína innlánsstofnun og sækja gjafabókina. Sparimerkin. Sparimerkjunum hefur verið dreift til flestallra innlánsstofn- ana í kaupstöðum landsins og getur almenningur keypt þau þegar frá 1. vetrardegi. Það verða hins vegar fyrst og fremst kennarar, sem munu annast dreifingu sparimerkjanna til skólabarna. Hefur verið reynt að gera þeim það sem auðveldast. Fá þeir merki að láni, auk þess sem þeir fá sérstaka peninga- kassa til geymslu á merkjum og andvirði þeirra. Eru kassarnir með merkjum og peningum vá- tryggðir af Landsbankanum. Keypt sparimerki á að líma inn í sérstakar sparimerkjabæk- ur ,sem börnin fá ókeypis í skól- unum. Þegar hæfilegur fjöldi merkja er kominn í sparimerkja- bækurnar getur barnið lagt þau inn í sparisjóðinn í þá bók, sem foreldri kýs, og er alls ekki ætl- ast til þess, að gjafasparisjóðs- bókin verði ein notuð til þess. Merkin má leggja inn í hvaða sparisjóðsbók sem vera vill. Að lokum skal þess getið, að með Sparifjársöfnun skólabarna 11 F. U. S. STEFNIR. Adnlfundur jii F. U. S. Stefnis verður haldinn n. k. föstúdag 29. okt. í. iii iij Sjálfstæðishúsinu og hefst kl. 20,30. 1! DAGSKRÁ FUNDARINS: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. 25 ára afmælið. , iii 3. Vetrarstarfið. iji Félagar fjölmennið! iii ÍÍÍ Stjómin. ij; TILKYNNING jjj til félagsmanna Brunabótafélags íslands um jjj arðsúthlutun og iðgjaldagreiðslur. ÍÍÍ Iðgjöld féllu í gjalddaga 15. október og eru menn vinsam- jjj jjj legast beðnir að greiða þau til umboðsmanna félagsins eða jjj jjj aðalskrifstofunnar. jjj jjj Um leið og ársiðgjöldin eru greidd, verður félagsmönnum jjj jjj útborgaður arður, sem nemur 10% af fasteignaiðgjöldum og jjj j|| 5% af lausafjáriðgjöldum. jjj Arðurinn reiknast af endurnýjunariðgjaldi eins og það er jjj jjj á gjalddaga, 15. október, og arðurinn færður til frádrátt- jjj jjj ar á iðgjaldskvittun. jjj Arður af fasteignatryggingum á Akureyri, Hafnarfirði og jjj jli Isafirði rennur til bæjarsjóðs viðkomandi staða, samkvæmt jjj jjj samningum við bæjarstjórnir kaupstaðanna. Virðingarfyllst, BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS. Ttýja Bilstöðin Sími0888 Þýzk gólfteppi og teppafillt. Kaupfélag Hafnfirðinga Sími 9224. er tilgangurinn að skapa æsk- unni tækifæri og aðstöðu til þess að sjá í reynd gildi ráðdeild ar og sparnaðar. Börnin verða að fá tækifæri til þess að sjá sjálf árangurinn. En til þess að slíkt megi takast, verða allir að leggja sig fram. Mest mun þetta hvíla á skólastjórum og kennur- um barnaskólanna. Mun árang- ur mjög undir þeim kominn. Og að sjálfsögðu er það einnig mjög á valdi foreldranna, hvernig þessi viðleitni tekst. Þeir verða að vera í góðri samvinnu við skólana, ræða við börnin um gildi spamaðar, vera síhvetjandi aðilar og fylgjast vel með þess- ari starfsemi á alla lund, og svo að sjálfsögðu taka ákvörðun með barninu um það, hvenær liið sparaða fé eigi að falla til út- borgunar o. s. frv. Það skal svo að lokum tekið fram, sem margoft hefur verið yfirlýst, að starfsemi þessari er fyrst og fremst og eingöngu ætl- að að hafa uppeldislegt gildi fyr ir æsku landsins II. 8. II. Bifreiðastöð Hafnarfjarðar. Símar 9168 og 9468 B. M. SÆBERG Kven- Karlmanna- ULLAR- Telpna- PEYSUR Drengja- Stebbabúð Strandgötu 39, Sími: 9919. HÚSGAGNA- VINNUSTOFAN Skólabraut 2 — Sími 9982 Ljósapernr 15, 25, 40, 60, 75 wött. Straujárn, Hraðsuðukatlar. Stebbabúð Strandgötu 39. Sími: 9919. Þýzkar ljósakrónur og vegglampar væntanlegt. Kaupfélag Hafnfirðinga Sími 9224

x

Hamar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hamar
https://timarit.is/publication/800

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.