Morgunblaðið - 12.11.2010, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.11.2010, Blaðsíða 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2010 Snæfell – Grindavík 79:71 Stykkishólmur, Iceland Express-deild karla, 11. nóvember 2010. Gangur leiksins: 7:4, 11:8, 13:14, 18:18, 20:24, 28:26, 32:28, 39:32, 47:41, 50:47, 58:49, 65:51, 72:55, 76:58, 77:66, 79:71. Snæfell: Sean Burton 23/5 fráköst, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 18/4 fráköst/6 stoð- sendingar, Jón Ólafur Jónsson 16/10 frá- köst/5 stoðsendingar, Ryan Amaroso 11/13 fráköst, Sveinn Arnar Davíðsson 6/4 frá- köst, Emil Þór Jóhannsson 3/3 varin skot, Kristján Andrésson 2. Fráköst: 29 í vörn, 12 í sókn Grindavík: Páll Axel Vilbergsson 20/7 frá- köst, Ryan Pettinella 14/11 fráköst, Ómar Örn Sævarsson 13/9 fráköst, Helgi Jónas Guðfinnsson 9, Ólafur Ólafsson 9/6 frá- köst/7 stoðsendingar, Þorleifur Ólafsson 6. Fráköst: 30 í vörn, 7 í sókn Dómarar: Kristinn Óskarsson, Rögnvaldur Hreiðarsson. Áhorfendur: 225. Fjölnir – Keflavík 96:104 Dalhús, Iceland Express-deild karla, 11. nóvember 2010. Gangur leiksins: 6:12, 17:18, 27:24, 32:27, 33:33, 35:36, 43:40, 49:45, 55:53, 56:64, 60:72, 67:79, 72:83, 78:90, 85:98, 96:104. Fjölnir: Tómas Heiðar Tómasson 28, Ben Stywall 24/9 fráköst, Ægir Þór Steinarsson 15/4 fráköst/13 stoðsendingar, Arnþór Freyr Guðmundsson 10, Ingvaldur Magni Hafsteinsson 10/7 fráköst, Sindri Kárason 6, Sigurður Þórarinsson 3. Fráköst: 18 í vörn, 10 í sókn Keflavík: Lazar Trifunovic 36/8 fráköst, Gunnar Einarsson 21/6 stoðsendingar, Val- ention Maxwell 17/4 fráköst, Hörður Axel Vilhjálmsson 14/7 fráköst/11 stoðsending- ar, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 9/9 frá- köst, Gunnar H. Stefánsson 3, Jón Nordal Hafsteinsson 2, Þröstur Leó Jóhannsson 2. Fráköst: 27 í vörn, 8 í sókn Dómarar: Eggert Þór Aðalsteinsson, Dav- íð Tómas Tómasson. Áhorfendur: Um 300. Haukar – ÍR 93:87 Ásvellir, Iceland Express-deild karla, 11. nóvember 2010 Gangur leiksins: 7:9, 20:12, 24:17, 26:26, 31:33, 38:36, 45:38, 49:46, 53:54, 59:64, 65:66, 72:71, 76:77, 79:79, 88:81, 93:87. Haukar: Semaj Inge 32/7 fráköst, Gerald Robinson 20/21 fráköst, Sævar Ingi Har- aldsson 14/7 fráköst/5 stoðsendingar, Ósk- ar Ingi Magnússon 7, Örn Sigurðarson 6, Davíð Páll Hermannsson 5/5 fráköst, Haukur Óskarsson 5, Sveinn Ómar Sveins- son 4/4 fráköst. Fráköst: 33 í vörn, 14 í sókn ÍR: Nemanja Sovic 26/7 fráköst, Kelly Biedler 17/11 fráköst, Vilhjálmur Steinars- son 12, Kristinn Jónasson 12/10 fráköst, Eiríkur Önundarson 8/5 stoðsendingar, Hjalti Friðriksson 6/4 fráköst, Níels Dun- gal 6. Fráköst: 28 í vörn, 11 í sókn Dómarar: Jón Guðmundsson, Jón Bender. Staðan: Snæfell 6 5 1 577:548 10 Grindavík 6 5 1 542:467 10 Stjarnan 5 4 1 430:405 8 Hamar 5 3 2 429:413 6 KR 5 3 2 467:432 6 Keflavík 6 3 3 522:522 6 Haukar 6 3 3 513:533 6 KFÍ 5 2 3 475:473 4 Fjölnir 6 2 4 527:546 4 Njarðvík 5 2 3 393:428 4 ÍR 6 1 5 528:555 2 Tindastóll 5 0 5 354:435 0 1. deild karla Höttur – FSu ........................................ 61:93 Gangur leiksins: 5:5, 7:7, 17:15, 19:21, 23:29, 31:33, 35:34, 37:37, 43:44, 45:48, 50:63, 52:67, 54:74, 56:78, 58:85, 61:93. Höttur: Björn B. Benediktsson 15, Nicho- las Kenrick Paul 12/6 fráköst, Kristinn Harðarson 10, Daniel Terrell 9/4 fráköst/5 stoðsendingar, Viðar Örn Hafsteinsson 5/4 fráköst, Jónas Hafþór Jónsson 5, Andrés Kristleifsson 5. FSu: Valur Orri Valsson 28, Richard Field 26/5 fráköst, Guðmundur A. Gunnarsson 15, Arnþór Tryggvason 8, Orri Jónsson 7/7 fráköst, Sæmundur Valdimarsson 6, Bragi Viðar Gunnarsson 2, Garðar Hannesson 1. Staðan: Þór Þ. 4 4 0 391:276 8 FSu 5 4 1 450:373 8 Þór A. 5 4 1 417:375 8 Skallagrímur 4 3 1 324:314 6 Valur 4 2 2 383:326 4 Ármann 5 2 3 399:456 4 Laugdælir 6 2 4 443:473 4 Leiknir R. 5 1 4 373:480 2 Breiðablik 4 1 3 281:299 2 Höttur 6 1 5 421:510 2 NBA-deildin Atlanta – Milwaukee.......................... 91:108 Orlando – Utah................................... 94:104 Toronto – Charlotte ........................... 96:101 Washington – Houston ........................ 98:91 Cleveland – New Jersey...................... 87:95 New York – Golden State................ 117:122 Memphis – Dallas............................... 91:106 Oklahoma – Philadelphia................. 109:103 San Antonio – LA Clippers ............... 107:95 Sacramento – Minnesota..................... 89:98 KÖRFUBOLTI Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Það er óhætt að segja að spennan hafi verið mik- il þegar Haukar tóku á móti ÍR-ingum í Iceland Express-deild karla í körfuknattleik í gærkvöld. Leikurinn var jafn fram í síðasta leikhluta, að- eins munaði einu stigi á liðunum þegar að honum kom, og þegar um átta mínútur lifðu leiks kom- ust ÍR-ingar í 77:74. Haukar sneru þá leiknum sér í vil með tólf stigum gegn engu á fjögurra mínútna kafla og tryggðu sér á endanum sigur, 93:87. ÍR-ingum mistókst því naumlega að landa sín- um öðrum sigri á leiktíðinni en þeir eru í næst- neðsta sæti deildarinnar eftir sex leiki, og hafa aðeins innbyrt sigur gegn botnliði Tindastóls. Nýliðar Hauka hafa hins vegar komið nokkuð á óvart og eru með sex stig um miðja deild. Bandarískættaði Hollendingurinn Gerald Rob- inson tók hvorki fleiri né færri en 21 frákast fyr- ir heimamenn og gerði auk þess 20 stig í leikn- um. Stigahæstur þeirra var Semaj Inge, sem gerði 34 stig, en hann hefur reynst Haukum gulls ígildi síðan hann kom frá KR á síðustu leik- tíð og átti stóran þátt í að koma liðinu upp í úr- valsdeildina. Þá gerði Sævar Ingi Haraldsson 14 stig og tók sjö fráköst. Hjá ÍR-ingum var Nemanja Sovic atkvæða- mestur eins og stundum áður og gerði 26 stig auk þess að taka sjö fráköst. Kelly Biedler gerði 17 stig og tók 11 fráköst, en hann hitti þó ekki úr neinu af fimm þriggja stiga skotum sínum. Haukar mörðu sigur í lokaleikhlutanum Á VELLINUM Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Það var ekki fyrr en komið var fram í 3. leikhluta að Keflvíkingar sýndu mátt sinn og megin, og slitu baráttuglaða Fjölnismenn frá sér, þegar liðin áttust við í fjörugum leik í Iceland Express- deildinni í gær. Í aðahlutverki var tröllvaxinn Serbi að nafni Lazar Trifunovic, geðþekkur náungi sem hreinlega raðaði niður körfum líkt og hann fengi borgað fyrir það. Sem er líklega rétt. Bandaríkjamaðurinn Valentino Maxwell fann sig ekki eins vel en þeir félagar hafa nú tekið þátt í tveimur góðum sigrum Keflvíkinga í röð. „Þeir virka mjög vel og ég er ánægður með að hafa fengið svona stóran og öflugan Serba til okk- ar. Hann átti náttúrlega stórleik í kvöld og sýndi hvers hann er megnugur. Þeir passa báðir vel inn í okkar leik og eiga bara eftir að slípast betur inn í liðið þegar fram í sækir,“ sagði Gunnar Einarsson sem gerði 21 stig fyrir Keflavík og skoraði úr fjór- um þriggja stiga skotum í röð í fyrri hálfleik. „Við vorum náttúrlega í manneklu og vandræð- um, og það var hundleiðinlegt að standa í því að tapa fyrstu leikjunum. Sá tími er að baki og núna erum við komnir á beinu brautina, og það eru spennandi tímar fram undan,“ bætti Gunnar við. Hann hrósaði einnig Fjölnisliðinu sem lék lengst af vel í leiknum, með Tómas Heiðar Tómasson fremstan í flokki en hann átti algjöran stórleik og gerði m.a. 7 þriggja stiga körfur í leiknum. „Þetta eru ungir og sprækir strákar og það er bara gaman að mæta þeim. Þeir gefa sig alla í leikinn og það þýðir ekkert að mæta hingað með hálfum huga eins og sýndi sig í þessum leik,“ sagði Gunnar og vísaði þar til 2. leikhluta þegar Fjölnismenn komust yfir. „Komnir á beinu brautina“ Morgunblaðið/Kristinn Frábærir Þeir Tómas Heiðar Tómasson og Lazar Trifunovic, sem hér sjást eigast við í leiknum í Graf- arvogi í gærkvöld, voru í algjörum aðalhlutverkum hjá sínum liðum þegar Keflavík vann Fjölni.  Þriðji sigur Keflavíkur  Serbíutröllið lofar góðu Á VELLINUM Sigurður Ragnar Bjarnason sport@mbl.is Íslands- og bikarmeistarar Snæfells stöðvuðu sigurgöngu Grindvíkinga í Iceland Express-deildinni í gær- kvöld þegar toppliðið kom í heim- sókn í Stykkishólm. Fyrir umferð- ina hafði Grindavík ekki tapað leik í deildinni og Snæfell sat í öðru sæt- inu. Það kom því á óvart að áhorf- endur voru færri en oft áður en kannski var það vísbending um það sem koma skyldi í leiknum sjálfum sem endaði 79:71, Snæfelli í hag. Leikurinn náði aldrei að verða sá spennuleikur sem vonir stóðu til og þrátt fyrir tiltölulega jafnan leik framan af þá virtust Grindvíkingar ekki hafa orku til að mæta áhlaup- um Snæfells. Snæfell náði mest 19 stiga forystu í lokaleikhlutanum, 74:55, en þá var eins og meist- urunum þætti nóg komið og þeir slökuðu á. Grindavík náði þá að rétta hlut sinn í lokin og þar var þjálfarinn Helgi Guðfinnsson í fararbroddi sem sjálfsagt hefur ekki reiknað með að spila í leiknum þó hann hafi verið á skýrslu en Grindavíkurliðið mætti hálfvængbrotið í leikinn, Kanalaust og einnig án Guðlaugs Eyjófssonar. En þó Grindvíkingar hafi eilítið náð að rétta úr kútnum í lokin þá náðu þeir aldri að ógna Snæfelli. Sean Burton hafði hægt um sig framan af leik en svo hrökk hann í gírinn í seinni hálfleik og smellti niður þristum sem urðu 7 á end- anum og hann var sáttur í lok leiks. „Við vissum að við ættum erfiðan leik fyrir höndum og vildum leggja áherslu á vörnina og náðum því í 3. leikhluta. Markmiðið var að halda þeim undir 75 stigum, næðum við því myndum við vinna leikinn,“ sagði Burton við Morgunblaðið. Helgi, þjálfari Grindavíkur, var hins vegar allt annað en sáttur við sína menn „Þetta var bara lélegt. Ég er mjög ósáttur, þetta var al- gjört andleysi, menn voru ekki til- búnir í leikinn og ég þurfti að koma inn á til að spila og ég hef ekki spil- að í tvö ár, þetta var bara sorglegt.“ Þínir menn virkuðu þreyttir og þungir. Eru þeir ekki heilir? „Nei, menn eru ekki heilir, Lalli er búinn að spila lítið í vetur, en það er samt engin afsökun fyrir þessu andleysi. Við höfðum alla þá örvun sem þurfti til að koma einbeittir í þennan leik. Enginn hafði trú á okk- ur fyrir leikinn því okkur vantaði bæði Gulla og Kana en það var ekki nein hvatning fyrir menn til að gíra sig upp og koma hingað og vinna leikinn. Þetta var bara lélegt.“ Ingi Þór, þjálfari Snæfells, var eðlilega sáttari við sína menn og þá sérstaklega í seinni hálfleik. „Við fengum frábært framlag frá Sean í seinni hálfleik og áttum þá að stinga þá af. Ég hefði viljað sjá okk- ur ná yfir tuttugu stiga forustu en það er ósanngjarnt að biðja um það á móti toppliðinu. En við vorum bara betri en þeir í kvöld, þeir voru að vísu með vængbrotið lið en það vorum við líka. Hvorugt lið með þéttan bekk en við þó greinilega með þéttara lið en þeir,“ sagði Ingi Þór. „Við vorum bara betri“  Snæfell stöðvaði sigurgöngu Grindvíkinga og vann 79:71  Vængbrotið lið Grindavíkur  Helgi Jónas þjálfari fór inn á og spilaði sinn fyrsta leik í tvö ár

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.